Pressan - 29.06.1989, Blaðsíða 23
Fimmtudagur 29. júní 1989
Baðfatatískan tekur ekki sömu
stökkbreytingum og fatatíska almennt,
en alltaf ber þó á einhverjum nýjung-
um.
Sumartískan 1989 boðar að litir sund-
fatnaðar skuli vera skærir og efnin
mynstruð eða skræpótt.
Hjá Hummel hafa þeir líka hannað
sundbuxur. sem ná niður á mið læri,
nokkuð sem flestir muna aðeins eftir
úr gömlum biómyndum.
Sundfatnaður í Hummel-verslununum
kostar frá 1.800 krónum upp í 2.900.
Frá danska fyrirtækinu Vicki og hinu
sænska Eiser koma sundbolir i mörg-
um sniðum og litum, en þar ber einna
mest á svörtu og hvitu, túrkisbláum
og rauðum bolum.
Þeir fást í Sápuhúsinu og meðalverð
er 2.400 krónur.
Verslunin Dinah í Grímsbæ selur meðal
annars
Triumph-baðfatnað og þar er mikið af
sjálflýsandi grænum og oleikum litum.
Bíkiní-in i ár eru efnismeiri en síðustu
sumur, þvi miður segja margir.
Sundfötin i Dinah kosta frá 1.500
krónum upp í 4.000 kr.
Stíll selur israelskan Gottex-baðfatnað
sem er i líflegum litum og ber mest á
skræpóttum og mynstruðum efnum.
Meðalverð sundbola þar er 5.000
krónur.
Og ekki má gleyma öllum þeim fylgi-
hlutum sem boðið er upp á við bað-
fatnaðinn í sumar; sloppar, jakkar og
pils, ýmist úr sama efni og sundfötin
eða þá að minnsta kosti í stil.