Pressan - 29.06.1989, Side 27
27
Fimmtudagur 29. júní 1989
sjonvarp
FIMMTUDAGUR
29. júní
Stöð 2 kl. 21.30
FERTUGASTA OG FIMMTA
LÖGREGLUDÆMI***
(New Centurions)
Bandarísk spennumynd. Leikstjóri:
Richard Fleicher. Aðalhlutverk:
George C. Scott, Stacey Keach og
Jane Alexander.
Myndin fjallar urn tvo lögreglumenn
sem starfa í ilíræmdu glæpahverfi.
Þeir hafa lítinn tíma fyrir einkalífið
og annar þeirra á í vandræðum með
eiginkonuna, sem fyrirlítur starf eig-
inmannsins. Starf þeirra er fjölbreytt
og stundum þurfa þeir bæði að vera
sálusorgarar og harðsvíruð hörkutól.
Scott og Keach fara víst á kostum í
þessari löggumynd og sýna hörku-
leik. Alls ekki við hæfi barna.
Stöð 2 kl. 23.35
SYNDIN OG SAKLEYSID
(Shattered Innocence)
Bandarísk bíómynd. Leikstjóri:
Sandor Stern. Aðalhlutverk: Melinda
Dillon, Jonna Lee og John Pleshette.
Unga klappstýru frá smábæ nokkr-
um dreymir um að verða stjarna á
sviði kvikmyndanna. Hún hleypst að
heiman, en í stað þess að finna hið
ljúfa líf kvikmyndastjarnanna finnur
hún nöturlegan raunveruleika klám-
iðnaðar og eiturlyfja. Þessi mynd er
lauslega byggð á ævisögu klám-
drottningarinnar Shaunu Grant,
sem framdi fyrir rest sjálfsmorð.
Syndin og sakleysið rís víst yfir vegg
meðalmennskunnar en er alls ekki
við hæfi barna eins og gefur að
skilja.
FÖSTUDAGUR
30. júní
Stöð 2 kl. 21.15.
STORMASAMT LÍF*
(Romantic Comedy)
Bandarísk grínmynd. Leikstjóri:
Arthur HUler. Aðalhlutverk: Dudley
Moore og Mary Steenburgen.
Hér er Dudley Moore i hlutverki rit-
höfundar sem hefur gert það gott á
Broadway. Hann hyggst nú gifta sig
en að kveldi brúðkaupsdagsins kynn-
ist hann konu sem verður siðar sam-
starfsmaður hans. Fyrsta verkefni
þeirra er leikrit sem er mistök frá
upphafi til enda og nær enguin vin-
sældum. Með tímanum verða þau þó
fræg og eftirsótt. Skötuhjúin laðast
hvort að öðru og fyrr en varir er farið
að blása kröftuglega innan hjóna-
banda þeirra. Frekar þunn mynd hér
á ferðinni, en það má þó alltaf hlæja
eitthvað að íitla tittinum, honum
Dudley.
Stöð 2 kl. 22.50
OLÍUKAPPHLAUPIÐ* * *
(War of the Wildcats)
Bandarísk spennumynd. Leikstjóri:
Albert S. Rogell. Aðalhlutverk: John
Wayne, Martha Scott og Albert
Dekker.
í þessum olíuvestra blandast saman
sþenna, ástir og æsilegir bardagar.
Hann er kominn aftur á skjáinn,
gamla goðið John Wayne, með kú-
rekahattinn, Smith og Wesson-skamm-
byssuna og manndrápsglampa í
augum. Hörkutól á háu stigi. Osvik-
inn vestrj hér á ferð, nokkuð sem
sannir kvikmyndaaðdáendur hafa
svo sannarlega gaman af. Bang,
bang.
Stöð 2 kl. 00.55.
LEIGUBÍLSTJÓRINN* * * *
(Taxi Driver)
Bandarískur tryllir. Leikstjóri:
Martin Scorcese. Aðalhlutverk:
Robert de Niro, Jodie Foster og
Cybil Shepherd.
Brjálæðisleg kvikmynd um fyrrver-
andi Víetnam-hermann sem keyrir
leigubíl um nætur en breytist í eins-
konar borgarskæruliða á daginn.
Ríkissjónvarpið kl. 21.50
FJÁRHÆTTUSPILARINN
(The Gambler)
Bandarísk bíómynd. Leikstjóri: Dick
Lowry. Aðalhlutverk: Kenny Rogers,
Linda Grey, George Kennedy og
Bruce Boxleitner.
í þessari mynd, sem gerist í villta
vestrinu árið 1885, segir frá ungri
kennslukonu sem starfar með indíán-
Hann er sannfærður um að ekkert
geti bjargað þessari veröld og tekur
því til sinna ráða. Robert de Niro er
hér í einu af sínum fjölmörgu frá-
bæru hlutverkum og skilar því
næstum fullkomlega. Blóði drifin
persónan sem hann túlkar er hreint
mögnuð. Taxi Driver var tilnefnd til
þrennra Óskarsverðlauna. Tónlist-
ina, sem er stórgóð, samdi Bernie
Herman og var þetta siðasta mynd-
in sem hann vann við. Mjög merki-
leg kvikmynd og alls, alls ekki við
hæfi barna.
1. júlí
Stöð 2 kl. 21.50
MORÐIÐ í CANAAN
(A Death in Canaan)
Bandarísk sjónvarpskvikmynd.
Leikstjóri: Tony Richardson. Að-
alhlutverk: Paul Clemens og Steph-
anie Powers.
I myndinni er sagt fá þeim atburði
í smábænum Canaan þegar dreng-
ur nokkur kemur að móður sinni í
andarslitrunum, illa útleikinni og
svívirtri. Hann kallar á lækna og
lögreglulið sér til hjálpar en við
yfirheyrslu grunar lögregluna að
pilturinn hafi framkvæmt voða-
verknaðinn. Við sögu kemur einnig
blaðakona sem er nýflutt til bæjar-
ins, en hún hyggst skrifa ítarlega
grein um málið. Þetta er frumraun
bæði Ieikstjórans og piltsins í aðal-
hlutverki og er árangur þeirra vel
yfir meðallagi. Alls ekki við hæfi
barna.
um á svæði sem þeim var úthlutað af
hvítum mönnum. Að venju slæst i
brýnu með þeim rauðu og hvítu og
slæst kennslukonan í för með tveim-
ur ævintýramönnum sem berjast fyr-
ir réttindum indíánanna. Kúreka-
söngvarinn hvítskeggjaði, Kenny Ro-
gers, leikur hér einhvern svakalegan
fjárhættuspilara og er að sjálfsögðu
góði gæinn sem er í liði með indíán-
unum. Myndin er i tveimur hlutum
og verður sá síðari sýndur á laugar-
dagskvöldið kl. 23.40.
Stöð 2 kl. 00.30
TONY ROME**
Bandarísk spennumynd. Leikstjóri:
Gordon Douglas. Aðalhlutverk:
Frank Sinatra, Jill St. John og
Richard Conte.
Tony (Sinatra) er ungur og glæsileg-
ur piparsveinn sem býr einn um
borð i skemmtisnekkju. Kvöld eitt
æxlast atburðir svo að hann fer
heim með eina sæta, unga og ríka.
Það er dóttir auðkýfings og ekki
líður á löngu þar til þau uppgötva
að lnin hefur týnt dýrmætum gim-
steini. Og saman leggja þau af stað
til að finna gimsteininn, því að týna
slíkum hlut er náttúrlega hið versta
mál, eins og segir einhvers staðar.
Eitthvert morðmál blandast líka
inn i þetta og gerir að verkum að
myndin er alls ekki við hæfi barna.
SUNNUDAGUR
2. júlí
Stöð 2 kl. 22.15
ELVIS 56
Bandarísk heimildakvikmynd.
Aðalhlutverk: Elvis PresleyH
Einstök heimildakvikmynd um árið
sem Elvis varð konungur rokksins,
en árið 1956 skaut honum upp á
stjörnuhimininn og þaðan fór hann
ekkert fyrr en hann ferðaðist yfir
gufuna miklu, og þá fyrir fullt og
allt. Hér kennir ýmissa grasa úr lifi
þessa mikla listamanns, sem var svo
dáður að menn muna varla annað
eins. í myndinni eru sýndir bútar frá
tónleikum kappans svo og leikin út-
varpsviðtöl frá þessum tíma. Ansi
persónulegar Ijósmyndir eru einnig
sýndar, samanber þessi að ofan.
Þessi mynd er við hæfi barna.
Stöð 2 kl. 00.00
MACKINTOSH-
MAÐURINN* *
(The Mackintosh Man)
Bandarískur njósnatryllir. Leik-
stjóri: John Huston. Aðalhlutverk:
Paul Newman, James Mason og
Peter Vaughan.
Starfsmaður bresku leyniþjónust-
unnar reynir að hafa uppi á áhrifa-
miklum njósnara innan breska
þingsins. Meira þarf varla að segja
um þessa mynd því þetta hefur allt
verið gert áður innan kvikmynd-
anna. Toppleikstjóri og góðir leik-
arar bjarga fyrir horn þessari mynd
sem var tekin á írlandi, Englandi og
á Möltu. Handritið er eftir hinn
þekkta leikstjóra Walter Hill. Ekki
við hæfi barna.
dagbókin
hennar
dúllu^
Það er einn feríegur galli við að
vinna í miðbænum. Maður verður
fyrir svo ofboðslegum freistingum.
A þessum stutta tíma er ég t.d. búin
að uppgötva helling af hlutuin, sein
ég vissi ekki að væru til en skil núna
ekki hvernig ég get lifað án!
Ég fer oftast út að labba i matar-
tímanum og smám saman hef ég
uppgötvað að það er m.a.s. ýmislegt
smart til í búðum, sem ég héll að
væru bara fyrir kellingar. Þetta á
m.a. við um litlu nærbuxnabúðina,
sem annna á Einimelnum' verslár
alltaf i. Mér hefur reyndar fundist
. soldið óþægilegt að horfa á útstill-
inguna þar út af öllum þessum nær-
buxum og brjóstahöldurum, sem
verið er að glenna framan í fólk, en
þarna fást líka rosa lekkerar nátt-
skyrtur og alls konar. í flestum hin-
úin búðunum langar mig líka í nán-
ast allt heila klabbið.
Út af öllum þessum fötum og
hlutum, sem mig langar í, er ég
voða mikið farin að spekúlera i
hverjum er best að giftast. Eg hel'
nefnilega alltaf verið svo ógeðslega
rómó í mér og alveg með það á
hreinu að ég gæti búið i smákompu
í bragga — bara ef ég væri með
strák, sem ég elskaði út al' líl'inu. En
ég er ekki lengur viss, því ég hugsa
að þegar ástin færi að minnka
myndi kannski ýmislegt við fátækt-
ina fara að pirra mann. Þess vegna
er ekkert endilega svo bilað áð gift-
ast barasta einhverjum ríkum kalli
til fjár, svona þegar maður pælir í
því. Ef þessi ást er gjörsamlega
dauðadæmd hvort sem er...
Mamma segir, að það sé til mis-
munandi ást, en ég hef ekki kynnst
nema einni tegund. Það segir hún
að sé af þvi að ég hafi aldrei verið í
almennilegu og löngu sambandi.
Hún útskýrði þetta þannig fyrir
mér að fyrsta ástarstigið væri eins
og blossandi rafmagnsstraumur,
sem ætlaði algjörlega að tæta mann
í sundur í svona góð/vondum fíl-
ingum. (ÞAÐ þekki ég sko alveg
eins vel og hún! Mamma veit bara
ekkert um hvað ég hef kvalist sjúk-
lega á sálinni í ástarsorgunum.) Svo
segir hún að rafmagnið og trylling-
urinn eyðist smám saman og i stað-
inn komi voða djúp ást, sem er
miklu rólegri og skynsamari og svo-
leiðis. Eiginlega meira eins og göm-
ul og gróin vinátta.
Ég get nú ekki beinlínis sagt að
mér finnist þetta uppörvandi, en ég
er ferlega hrædd um að mamma
hafi rétt fyrir sér. Ég hef sjálf mörg-
um sinnum orðið ógeðslega sjálfs-
morðslega skotin í strákum, sem ég
sé ekki glætu í núna, þannig að ást
getur alveg greinilega drepist. Þess
vegna held ég barasta að ég segði já,
ef einhver ríkur kall vildi giftast
mér...