Pressan - 22.02.1990, Blaðsíða 19
19'
Fimmtudagur 22. febr. 1990
VILTU LOSNA VIÐ
LEIKJATÖLVU?
Hafðu samband, ef þú vilt selja
COMMODORE 64 leikjatölvu með
kassettutæki og kannski einhverjum
leikjum líka.
SÍMI 91-29203 Á KVÖLDIN
EÐA 681866 Á DAGINN.
DÓSIR
BORGA
SKÓLA-
GJALD
Síðan skilagjald var sett á ein-
nota öl- og gosdrykkjaumbúðir
1. júní á síðasta ári hefur tölu-
verð breyting orðið á umgengni
fólks. Aldósir, plast- og gler-
flöskur sjást ekki lengur á víða-
vangi og götur eru mun hrein-
legri en áður var. En kannski
hugsa ekki allir út í hvaða gagn
er hægt að gera með þessum
endurvinnanlegu umbúðum.
Dósakúlurnar, sem einkum er að
finna á bensínstöðvum og í flestum
stórmörkuðum, eru hugmynd sam-
taka sem kallast Þjóðþrif og voru
stofnuð, þegar skilagjaldið var lög-
fest hér á landi. Aðilar að þessum
samtökum eru Landssamband
hjálparsveita skáta, Bandalag ís-
lenskra skáta og Hjálparstofnun
kirkjunnar. Markmið þeirra er að
stuðla að aukinni umhverfisvernd
og efla æskulýðs-, hjálpar- og björg-
unarstarf hérlendis sem erlendis.
Meðal þeirra verkefna, sem Hjálp-
arstofnun kirkjunnar fjármagnar, er
menntun fátækra barna á Indlandi;
barna þvottafólksins svokallaða,
sem er af lægstu stigum þjóðfélags-
ins. Skólagjald hvers barns er um
500 krónur á mánuði, þannig að fyr-
ir tíu þúsund krónur er hægt að
kosta tuttugu börn til náms í heilan
mánuð. Skátahreyfingin notar sinn
skerf af andvirði umbúðanna til
æskulýðsstarfs og ekki þurfa hjálp-
arsveitirnar síður á peningum að
halda til þess að viðhalda dýrum
tækjabúnaði og bílum, sem þurfa að
vera til taks þegar slys verða.
í dósakúlurnar má setja allar ein-
nota öl- og gosdrykkjaumbúðir,
hvort sem þær eru úr áli, plasti eða
gleri. Skilagjald fyrir hverja einingu
er fimm krönur, sem er kannski ekki
stórpeningur í dag, en aðstandend-
ur Þjóðþrifa hafa tröllatrú á því að
margt smátt geri eitt stórt.
Ævintýrið utn Dimmalimm
er ein faUegasta barnasaga sem
samin liefur verið á íslenska
tungu. Málaritm Muggur
(Guðmundur Thorsteinssoti,
1891-1924) skrifaði Dimma-
limm og myndskreytti um borð
í saltskipi á leið til Ítalíu.
Sagan var gjöf hans til lítillar
frænku sittnar í Barcelona.
Myndin er af 6. útgáfu
bókarinnar sem kom út hjá
Hetgafelli 1982.
ISLENDINGAR
LÆRA UNGIR AÐ META
GÓÐAR BÆKUR
L A M D S B O K
1
er sannarlega gód bókfyrir unga
sem aldna. Landsbók er ný verðtryggð Í5 mdnaða bók sem
ber 5,75% vexti og tryggirþví mjöggóða raunávöxtun sparifjár.
Allir íslendingar ættu að eignast Landsbók. Pvífyrr, því betra.
L
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna