Pressan - 15.11.1990, Síða 4
4
n\nmmc>mkPRESSAN i5. nóvember
RISAEÐLA
UBAKSTRI
segir
Stína
eðla.
„Ég er afgreiðslukona og
tek að mér að baka þegar
svo ber undir," sagði Magga
Stína risaeðla í samtali við
PRESSUNA, en aðalvinnu-
staður hennar er pizzustað-
urinn Eldsmiðjan. Stundum
stelst hún úr vinnunni og
leikur með Risaeðlunni á
tónleikum vítt og breitt um
heiminn. Hljómsveitin er
einmitt nýkomin heim frá
Berlín og Englandi, þar sem
leikið var fyrir vitlausa
áhorfendur á báðum stöð-
um, aðallega í Wales, þar
sem brjálaðir þjóðernissinn-
aðir áhorfendur heimtuðu
að Risaeðlan syngi á ís-
lensku.
PRESSAN spurði Möggu
Stínu hvort hún og Dóra
Wonder fengju að vera í
friði fyrir ljótum strákum á
svona ferðalögum. Magga
Stína sagði svo vera, enda
sagðist hún ekki vita hvort
hún væri nógu lokkandi. „í
þessari ferð voru það aðal-
lega miðaldra veiskir karlar
sem urðu á vegi manns, vel
yfir fertugt." Er það kannski
markhópurinn? „Já, ég held
það,“ sagði Magga Stína, „og
svo alyngsta kynslóðin, frá
átta upp í tólf. Einnig eru
miðaldra húsmæður mjög
veikar fyrir hljómsveitinni."
En hvaða pizza er í mestu
uppáhaldi hjá Möggu Stínu?
„Með pepperóní, miklum
grænum pipar og ólívum."
Tónleikar með Risaeðl-
unni fara líklega aftur í
gang ytra eftir áramótin og
Magga Stína sagðist t.d.
hafa heyrt talað um Hróars-
kelduhátíðina í Danmörku
í því sambandi. Hins vegar
verður íslenski sveitavargur-
inn að bíða um sinn — eða
hvað? „Við spiluðum einu
sinni á Bleika fílnum á Ak-
ureyri. Það var ofboðslega
skemmtilegt. Svo er ég til í
að fara til Isafjarðar. Eg hef
heyrt að það sé algjör tryll-
ingur að vera þar, alveg
brjálað fólk.“
SIGGA BEINTEINS MEÐ LJOÐABOK
„Um fjöll og dali" heitir ný Ijóöa-
bók eftir Sigríði Beinteinsdóttur.
Þó ótrúlegt sé er þetta ekki sú
Sigga Beinteins sem söng „Eitt lag
enn" í Júróvisjón, heldur allt önnur
Sigga. Nefnilega Sigríður, ein
skáldsystkinanna frá Grafardal,
hverra Sveinbjörn, allsherjargoði
frá Draghálsi, er þekktastur.
Ættfræðideildin verður sjálfsagt
svekkt að heyra það, en þannig er
það nú samt, að þær Siggur Bein-
teins eru ekki skyldar.
„Það er afar gott að vinna með honum.
Hann er duglegur, viljugur og ósérhlífinn.
Þá er hann þægilegur í um-
gengni," sagði Guðmund-
ur Bjarnason heilbrigðis-
ráðherra. „Hann er dugleg-
ur ungur maður sem vill
keyra málin áfram og vill
gera eins vel og hann get-
ur,“ sagði Davíð A. Gunn-
arsson, forstjóri Ríkisspít-
ala.
„Hann getur verið afskap-
iega góður að taka ákvarð-
anir og taka til höndunum,"
sagði Gissur Pétursson,
formaður Sambands ungra
framsóknarmanna. „Nái
hann kjöri á Alþingi mun hann styrkja lið
þingsins í innanhússknattspyrnu," sagði
Friðrik Sophusson, þingmaður sjálf-
stæðismanna.
„Hann er ekki alltaf nógu varkár og fer
stundum of geyst," sagði Guðmundur
Bjarnason. „Ég get ekki
gagnrýnt hann fyrir
óheilindi en ég hef heyrt
suma halda því fram. Það
hefur aldrei komið fram
í neinu sem snýr að mér,“
sagði Davíð A. Gunnars-
son. „í raun eru kostir
hans iíka helstu veik-
leikarnir. Framkvæmda-
semi hans og röskleiki
geta stundum verið gaiii.
Hann mætti stundum
huga betur að hlutun-
um,“ sagði Gissur Péturs-
son. „Hann á
margt eftir ólært, einkum að virða og
standa við samninga og sameiginiegar
ákvarðanir sem hann hefur sjálfur
gert og átt frumkvæði að,“ sagði Friðrik
Sophusson.
DEBET
KREDIT
Finnur Ingólfsson
framb(óðandi
Finnur Ingólfsson, aöstoðarmaður heilbrigðisráðherra og varaþingmaður, sigraði í umdeildri skoðanakönnun
framsóknarmanna í Reykjavík um siðustu helgi. Finnur hefur m.a. verið aðstoðarmaður sjávarútvegsráðherra
og var framarlega í stúdentapólitíkinni í Háskóla íslands á sínum tíma.
2000
tíáÁUr
Nú hefur Laugavegurinn
eignast sína tískukringlu.
Svava Johansen og Bolli
Kristinsson í Sautján hafa
opnað stærstu tískuverslun
landsins í Dómus-húsinu
Laugavegi 91. Hið nýja hús-
næði Sautján er alls 2000 fer-
metrar og fara 1000 fermetr-
ar undir verslanirnar. I hús-
inu verður fjölbreytt starf-
semi; kaffitería, tískuverslan-
ir fyrir bæði dömur og herra,
plötubúð, snyrtivöru- og skó-
deildir fyrir bæði kynin,
saumastofa á efstu hæðinni
og skrifstofur fyrirtækisins.
Verslanirnar verða opnar frá
10—18 alla daga og á laugar-
dögum er stefnt að þvi að
hafa opið til klukkan 17. En
sennilega verður lokað til há-
degis á mánudögum. „Með
því viljum við taka svipaða
stefnu og er núna í Þýska-
landi, Hollandi og á Italíu,
það er að hafa opið lengur á
iaugardögum, en lokað fyrir
hádegi á mánudögum," segir
Svava. Verslun Sautján í
Kringlunni verður áfram á
sínum stað, en versluninni
Laugavegi 51 hefur verið lok-
að.
KYNLÍF
„Sæl og blessuð Jóna.
Mér brá í brún þegar
ég las pistilinn þinn um
kynferðislega misnotk-
un. í sannleika sagt hélt
ég að núna værir þú að
ganga yfir strikið, ef þú
veist hvað ég á við. Ég á
tólf ára son og ef svo ber
undir labba ég alltaf inn
á baðherbergið þegar
hann er þar inni. Mér
hefur aldrei fundist það
óþægilegt en fékk óþæg-
indatilfinningu fyrst eft-
ir að ég las pistilinn. Ég
vildi iáta þig vita af
þessu og spyrja þig í leið-
inni hvort þessi umræða
þín sé ekki farin að
ganga út í öfgar?
Móðir.“
líki við okkur sjálf sem ein-
staklinga, að við sáum sátt
við líkama okkar og okkur
sjálf sem konur og karla.
Því miður er ekki unnið
að eflingu kynferðislegs
heilbrigðis á markvissan
hátt í samfélagi okkar.
Hvers vegna er kynfræðsla
lögboðin en samt bara til-
viljunarkenndur þáttur,
eða alls enginn, í námi heil-
brigðis- og kennarastétta?
Hvers vegna kljást kynin
svona oft? Hvers vegna
þurfum við að þola kyn-
ferðislega niðurlægingu
vegna kláms og óþrjótandi
neðanmittisbrandara?
Hvers vegna hafa kynin —
og þá sérstaklega konur —
svona afskræmda mynd af
eigin líkama þrátt fyrir að
líkami þeirra sé fallegur?
Nú langar mig að varpa
þeirri spurningu til þín og
annarra lesenda hvað það
gæti verið í okkar samfé-
lagi sem stuðlar að kyn-
ferðislegu heilbrigði — vel-
líðan í kynlífi? Og þá er ég
Ég kann alltaf að meta
það þegar fólk lætur í sér
heyra. Hvað þitt atvik varð-
ar er þetta, eins og ég hef
margtuggið, alltaf spurn-
ingin um tilfinninguna sem
fólk hefur varðandi hegðun
sína. Það er í sjálfu sér ekk-
ert að því að labba inn á
bað þegar einhver nákom-
inn eða vinur er að sinna
kalli náttúrunnar, ef báðum
finnst það í lagi. Hvað
finnst syni þínum? Ef þú
spyrð hann og honum
finnst það ekkert mál, þá
veistu það. Ef þú svo spyrð
sjálfa þig hvort þér líði vel
með það og svarið er á þá
lund, þá er þetta greinilega
á hreinu hjá ykkur báðum.
Ef þér líður aftur á móti
eitthvað óþægilega með
þetta myndi ég virða þá til-
finningu og gera eitthvað í
málinu.
Þú spyrð mig einnig að
því hvort þessi umræða sé
ekki farin að ganga út í öfg-
ar. Svar mitt er skýrt. Svo er
ekki. Nýjar hugmyndir
mæta oft mótstöðu og hvað
varðar eins viðkvæmt mál
og kynferðislega misnotk-
un er ekki við öðru að bú-
ast en einhverjir fái ,,sjokk“,
vegna þess að málefnið
hefur verið hálfgert ,,tabú“.
Mörgum finnst erfitt að
hugsa til þess að kynferðis-
leg misnotkun geti verið
eitthvað fleira en sifjaspell
og nauðgun. „Kynferðis-
legt“ þýðir jú ekkert annað
en eitthvað sem vísar til
kyns okkar — sem konu
eða karls. Allt sem við upp-
iifum tengist okkur sem
konum eða körlum, því
ekki er hægt að aðskilja
persónuna frá einstaklingi
af ákveðnu kyni. Heilbrigt
kynlíf felur í sér að okkur
. .. það er í sjálfu
sér ekkert að því
að labba inn á
bað þegar ein-
hver nákominn
eða vinur er að
sinna kalli
náttúrunnar, ef
báðum finnst það
í lagi.
að tala um fyrirbyggjandi
þætti en ekki eingöngu
hjálp eftir að skaðinn er
skeður. Stígamót, ráðgjaf-
arstöð fyrir sifjaspella- og
nauðgunarþolendur, er
nauðsynleg, en það þarf
líka að koma meirihluta
þjóðarinnar í skilning um,
um hvað sifjaspell og
nauðgun í raun og veru
snúast. Til dæmis eiga sifja-
spell oft rætur í kynlífsfíkn,
feðraveldishugsun, tilfinn-
ingabælingu og valdi. Mis-
skildu valdi sem foreldrar
halda oft að þeir hafi yfir
börnum sínum. Skiljum við
til fulls eðli kynlífsfíknar
hjá sifjaspella„geranda“
eða höfum við skorað á
hólm „eignarrétt" foreldra
yfir börnum sínum, sem
styður það að foreldrar geti
gert nákvæmlega það sem
þeir vilja við börnin? Og þá
erum við komin að lykilatr-
iðinu — gildismati okkar í
mannlegum samskiptum.
Kynferðislega misnotkun,
sem virðir ekki persónu-
landhelgi einstaklinga né
viðurkennir eðlilega lögun
mannslíkamans, má alveg
eins kalla „félagslega
áverka", en ég ætla ekki að
fara að æra óstöðugan með
því að fara nánar út í þá
sálma að sinni!