Pressan - 15.11.1990, Blaðsíða 6
6
/inniVhi/A//
FIMMTUDAGUR PRESSAN 15. NÓVEMBER
Lactacyd léttsápan
fyrir viokvæma núð!
Ungböm hafa viðkvæma húð sem verður fyr-
ir mikilli ertingu, t.d. á bleiusvæði. Þvottur
með Lactacyd léttsápunni dregur verulega
úr kláða og sviða.
Húðin er í eðli sínu súr og er það vöm hennar
gegn sýklum og sveppum. Þetta þarf að hafa
í huga við val á sápu.
Mikilvægt er að eðlilegt sýmstig húðarinnar
raskist ekki við þvott. „Venjuleg" sápa er
lútarkennd (hefur hátt pH-gildi, 10-11) og
brýtur niður náttúmlega vöm húðarinnar.
Lactacyd léttsápan hefur hins vegar lágt pH-
gildi (3,5) eins og húðin sjálf og styrkir því
eðlilegar vamir hennar.
Það er því engin tilviljun að margir læknar
mæla með Lactacyd léttsápunni fyrir ung-
böm og fólk með viðkvæma húð.
Þegar Lactacyd léttsápan er notuð á ungböm
skal þynna hana með þremur hlutum vatns.
Lactacyd léttsápan fæst í helstu stórmörkuð-
um og að sjálfsögðu í næsta apóteki.
' [Lítlsápa
A
utvarpsráðsfundi fyrir
skömmu kom fram hörð gagnrýni
frá Magnúsi Erlendssyni, sem
er fulltrúi sjálfstæð-
ismanna í útvarps-
ráði, út af útsend-
ingu í sjónvarpsfrétt-
um frá ræðu Inga
Björns Alberts-
sonar. Var Magnús
harðorður yfir því
að sýnt var brot úr ræðu Inga Björns
án frekari útskýringar. Taldi Magnús
sérstaklega „hörmulegt" að þetta
skyldi vera gert skömmu fyrir próf-
kjör sjálfstæðismanna...
A
Siglufirði stendur nú deila
milli nokkurra vinnuvélaeigenda.
Einn þeirra, Stefán Einarsson,
fékk það í gegn að í fjárlögum fyrir
árið 1987 var heimilað að endur-
greiða honum aðflutningsgjöld á
jarðýtu, þar sem hann var að ráðast
í hafnargerð á Siglunesi. Fjármála-
ráðuneytið setti ákveðnar reglur
sem Stefán varð að fara eftir. Meðal
annars átti að gera bæjarfógetanum
á Siglufirði, Erlingi Óskarssyni,
grein fyrir framkvæmdunum á
tveggja vikna fresti. Stefán hefur
aldrei gert fógeta grein fyrir hvernig
verkinu miðar, enda ekki nema von
þar sem Stefán hefur ekki hafist
handa við hafnargerðina. . .
c
A^amkeppnisaðilar Stefáns Ein-
arssonar í verktakabransanum á
Siglufirði eru ekki sáttir við að hann
skuli keppa við þá um verkefni, þar
sem Stefáni var gefinn kostur á að
sleppa við hluta innflutningsgjalda
á jarðýtu sinni. Heimildin var veitt
vegna fyrirhugaðra hafnarfram-
kvæmda á Siglunesi. Stefán hefur
ekki ráðist í hafnarframkvæmdirn-
ar, en þess í stað er hann að gera veg
einn mikinn og hefur meðal annars
farið yfir eignarlönd, við litla hrifn-
ingu landeigenda...
MÖltuferðÍC: Mörg hótel á skrá
Verð og gæði við allra hæfi
Góð og persónuleg þjónusta
Kaupmannahöfn: Lúxushelgarferðir með SAS
Ótrúlegt verð
Norræna: Verðskrá 1991 liggur fyrir
NORRÆNA FE RÐASKRIFSTOFAN SÍMI626362
\tvö
og
Íese^