Pressan - 15.11.1990, Síða 8
8
FIMMTUDAGUR PRESSAN 15. NÓVEMBER
SKULDAHALI
PÁLS í
POLARIS
STEFNIR
SANITAS
í ÞROT
Sanitas hf. riöar til falls og framtíð fyrirtœkisins ræöst
á allra nœstu dögum. Staöa þess er mjög slœm og leiðir
til bjargar uirðast fáar.
Landsbankinn á mikið undir því að Sanitas verði ekki
gjaldþrota þar sem bankinn hefur veitt fyrirtœkinu mikil
lán gegn litlum tryggingum. Páll G. Jónsson, aðaleigandi
Sanitas, hefur ekki skipt lengi við Landsbankann. Til
skamms tíma var Sanitas með viðskipti við Iðnaöar-
bankann en fyrir þau var skrúfað eftir að Páll tók við
stjórn fyrirtœkis síns.
Frá því bjórinn var leyfður hefur staða Sanitas versnað
til muna, þrátt fyrir að fyrirtœkinu hafi tekist að ná yfir-
burðastöðu á bjórmarkaðinum. Ástœður fyrir hrakför-
um Sanitas eru fyrst og fremst þœr að Páll í Pólaris setti
miklar skuldir, óviðkomandi Sanitas, á fyrirtœkið. Undir
þessum skuldum getur Sanitas ekki staðið og nú er svo
komið að fyrirtœkið getur ekki greitt hráefni til fram-
leiðslunnar.
Vegna hrikalegrar stöðu Sanitas
er nú í gangi síðasta tilraun til að
bjarga fyrirtækinu og kemur Lands-
bankinn þar mikið við sögu.
Ahyggjur Landsbankans eru skiljan-
legar. Sem dæmi má nefna að á
verksmiðjuhúsi Sanitas á Akureyri
eru veðskuldir upp á um 320 millj-
ónir, óframreiknaðar. Þar af á
Landsbankinn um helming skuld-
anna, eða 157 milljónir. Brunabóta-
mat hússins er 126 milljónir. Veð-
setningin er því um 250 prósent af
brunabótamati. Landsbankinn
veitti þrjú síðustu lánin á eignina og
voru skuldirnar þá þegar komnar
talsvert framyfir brunabótamat.
STJÓRNENDURNIR FÓRU
Þegar uppgangstími Sanitas var
hvað mestur voru sjö ungir menn í
stjórnunarstörfum á vegum fyrir-
tækisins. Skömmu eftir bjórdaginn
hættu þeir allir hjá fyrirtækinu.
Sjömenningarnir höfðu veg og
vanda af uppbyggingu fyrirtækisins.
Eftir bjórkomuna og ótrúlegan ár-
angur í markaðssetningu á Löwen-
bráu-bjórnum hættu allir þessir
menn hjá Sanitas. PRESSAN hefur
rætt við flesta þeirra, en þeir hafa lít-
ið viljað segja um hvers vegna þeirl
létuafstörfum hjá Sanitas. „Tilviljuni
að við hættum allir á sama tíma,“ er
nánast eina svarið sem fæst hjá
hverjum og einum þeirra.
Ragnar Birgisson, sem var for-
stjóri fyrirtækisins, vill ekkert tjá sig
um rekstur þess eða hverjar hann
telur ástæður þess að fyrirtækið er
jafnilla statt og raun ber vitni.
Heimildamenn PRESSUNNAR
segja að aðalástæða þess, að yfir-
menn fyrirtækisins sögðu upp, sé sú
að Páll G. Jónsson hafi ætlast til þess
að Sanitas tæki að sér að greiða
ótrúlegan skuldahala sem Páll hafði
stofnað til, ýmist persónulega eða í
gegnum önnur fyrirtæki sem hann
á. Þar er helst nefnt til Pólaris hf.
SKALLASJOPPUNA við Lækjargötu keypti Páll á 20 milljónir árið 1987. Leigj-
andi Páls var borinn út.
HEFUR KOMIÐ VÍÐA VIÐ
Páll G. Jónsson hefur víða komið
við í viðskiptalífinu á síðustu árum
og hann er þar enginn nýgræðingur.
Hann stofnaði heildverslunina Pól-
aris árið 1964.
Upphafið að veldi Páls má rekja
aftur til áranna upp úr 1970. Hann
var þá umboðsmaður fyrir gler-
verksmiðju og var nánast einráður á
markaðnum. Það var varla til
gluggarúða sem Páll hafði ekki flutt
til landsins.
Frá því hann hóf viðskipti naut
hann lengst af trausts sem góður og
heiðarlegur viðskiptamaður, en
honum virðist vera farið að fatast
flugið.
Dæmi um það er þegar hann
keypti Kostakaup í Hafnarfirði og
seldi aftur. Það gerði hann til að
bjarga sex hundruð þúsund króna
kröfu sem hann átti í þrotabú Kosta-
kaups. Páll seldi Fridrik Gíslasyni
verslunina. Kaupverðið, um 15 millj-
ónir króna, var greitt með pappír-
um. Páll notaði þá pappíra í öðrum
viðskiptum.
Friðrik Gíslason og Páll áttu önnur
viðskipti síðar. Friðrik hafði keypt
verslunina við Garðatorg í Garða-
bæ. Páll keypti hana af honum, til að
bjarga sér frá frekara tapi eftir fyrri
viðskipti sín við Friðrik. Kaupverðið
var rúmar 80 milljónir króna. Páll
seldi Jens Ólafssyni í Grundarkjör
verslunina sömu nótt, en fyrir um
20 milljónum meira. Jens greiddi
kaupverðið með pappírum sem Páll
notaði í öðrum viðskiptum.
„Ég er sannfærður um að Páll hef-
Páll í Pólaris
PAD HEFUR ENGINN
TAPAD Á OKKIIR
,,Það er unnid að endurskipulagn-
ngu í rekstri og fjármálum. Meðal
annars með sölu eigna og auknu
hlutafé," sagði Páll G. Jónsson, for-
stjóri Sanitas.
Páll nefndi samninga um sölu á
bjór og vatni til nokkurra Evrópu-
landa. Eins nefndi hann að Sanitas
ætti eignir umfram skuldir. Hann
játaði að lausafjárstaða félagsins
væri erfið.
„Það hefur dregist að ná fram
þeim lausnum sem við höfum verið
að vinna að. Þetta hefur tekið miklu
lengri tíma en við reiknuðum með í
upphafi. Síðan hafa komið truflanir
eins og gengur og gerist. Þetta er
málið í hnotskurn. Við erum að
ganga frá samningum þessa dagana
sem varða fyrirtækið og reksturinn
talsvert," sagði Páll. Hann vildi ekki
greina frá hvaða samningar það
væru, en sagði þá geta haft umtals-
verð áhrif.
„Okkur hefur tekist vel upp að
ýmsu leyti. Við höfum gert mjög
góða hluti í sambandi við ölið. Við
keppum þar við erlend merki, og
það ekki af billegustu gerð, og við
höfum haft þá stöðu að vera með
um helming markaðarins. Frá ára-
mótum erum við með 41 prósent.
Þetta gengur mjög vel og varan er
mjög góð. Löwenbráu framleiddur
hér er ekki síðri en Löwenbráu
framleiddur í Þýskalandi. Þetta höf-
um við fengið staðfest.
Við stefnum að því að leysa þessi
mál í heildina. Það hefur enginn tap-
að á okkur ennþá og eignastaðan er
það góð að það er engin hætta þess
vegna. Við þurfum á vissum skuld-
breytingum að halda og erum að
vinna í því. Þetta er myndin eins og
hún er sönnust og réttust," sagði Páll
G. Jónsson.
ur fengið alla þessa pappíra, bæði
vegna verslunarinnar í Hafnarfirði
og eins í Garðabæ, í hausinn aftur.
Ég hef trú á að hann hafi þurft að
leysa til sín 110 til 120 milljónir
króna vegna þessara fáránlegu við-
skipta. Hann var alltaf að stökkva á
ímyndaðan gróða,“ sagði maður í
viðskiptalífinu sem hefur fylgst með
Páli og viðskiptum hans.
VILDI KAUPA SS-HÚSIÐ
Hann ætlaði að gerast byggingar-
verktaki og keypti lóðir á Artúns-
holti. Lítið varð úr framkvæmdum,
en tap Páls vegna þeirra ævintýra
varð umtalsvert.
Hann keypti hlut í heildverslun-
inni Isleið, en rekstur hennar geng-
ur illa. Meðal annars veit PRESSAN
að fyrirtækið á yfir höfði sér inn-
heimtumál vegna skuldar sem er
upp á 250 þúsund bandaríkjadali,
auk vaxta og kostnaðar. Það er að-
eins eitt af mörgum erfiðum málum
sem ísleið á í.
Hús Sláturfélags Suðurlands á
Kirkjusandi hefur mikið verið í um-
ræðunni. Páll í Pólaris ætlaði að
kaupa húsið, en af kaupunum varð
þó ekki.
KAUP Á SJOPPU FYRIR
DÓMSTÓLUM
Nokkur mál á hendur Páli eru þá
til meðferðar hjá dómstólum. Þegar
GGS hf. varð gjaldþrota keypti Páll
matsölustaðinn við Grensásveg, áð-
ur Tommaborgara, á tíu milljónir.
Þeim samningi var rift á þeim for-
sendum að Páll hefði hagnast um-
fram aðra lánardrottna GGS. Páli
hefur verið gert að greiða til baka 7
milljónir vegna þeirra viðskipta. Þá
tapaði hann útburðarmáli vegna
sjoppu sem hann keypti í Lækjar-
götu. Páll greiddi 20 milljónir fyrir
sjoppuna árið 1987. Hann leigði
hana Sœvari Þór Carlssyni fyrir um
BARKARSKEMMAN í Hafnarfirði er
eitt þeirra húsa sem Páll hefur keypt.
Það stendur autt og engum til gagns.