Pressan - 15.11.1990, Page 18
18
FIMMTUDAGUR PRESSAN 15. NÓVEMBER
Komið hefur fram i máli Guðmundar G. Þórarinssonar að hann
telur fulltrúaráð Framsóknarflokksins slæman félagsskap. Guð-
mundur komst að þessari niðurstöðu eftir að hann tapaði skoð-
anakönnun innan ráðsins um efstu menn á listanum. Hann segir
að þarna hafi engin skoðanakönnun farið fram heldur skipulögð
rógsherferð gegn sér. Myndin sýnir vel hvað Guðmundur er að
fara.
/
Háskólanemar
notaðir sem
tílraunadýr
Þorkell Jóhannes-
son, prófessor við há-
skólann, sér um að út-
vega tilraunadýr í
lyfjaprófanir. Meðal
þeirra sem hann nær
eru háskólastúdentar,
en þeir fá greitt fyrir
að taka þátt í tilraunun-
um.
Þorkell segir að þeir
sem taka þetta að sér fari
í miklar læknisskoðanir
áður, svo fullvíst sé að
viðkomandi þoli prófan-
irnar. Sérstaklega sé þess
og gætt að prófa ekki
barnshafandi konur.
í tilraununum er kann-
að hvort íslensk lyf séu
jafngild erlendum sam-
bærilegum lyfjum.
„Ég man ekki hvað er
greitt fyrir þetta. Það er
eitthvað mismunandi.
Lyfjafyrirtækin borga
misvel eins og gengur. Ég
get fullyrt að það eru lág-
ar upphæðir sem fólk
fær,“ sagði Þorkell Jó-
hannesson prófessor.
Þá vitum við það. Gróði
lyfjafyrirtækjanna fer því
eitthvert annað en í til-
raunadýrin í háskólan-
um.
Geimskip í Reykhólasveit
„Ég horfði á þetta í kíki
og mér fannst sem það
væru einhverjir hlutir í
kringum ljósið,“ segir Erla
Reynisdóttir, húsmóðir í
Mýrartungu í Reykhóla-
sveit, en heimilisfólkið þar
sá fyrir skömmu torkenni-
legt ljós á himni fyrir ofan
Bæjardal.
„Þetta var eins og aftur-
hlutinn á kyrrstæðri risaþotu.
Það var eins og gengju vængir
skáhallt niður af ljósinu. Mið-
að við fjarlægðina frá bæn-
um hefur þetta verið alveg
risastór eldflaug. Þessi hlutur
spannaði um sex sentimetra
á himninum héðan frá séð og
það eru um fjórir kílómetrar
inn í Bæjardal."
Það var mágur Erlu, Trausti
Um 15.000 bændur
voru samankomnir í
Genf í Sviss síðastliðinn
þriðjudag til að mót-
mæla samningaviðræð-
um innan GATT um nið-
urskurð á framlögum til
landbúnaðar.
Bændurnir komu víða
að, frá Frakklandi, Þýska-
landi, Danmörku, Hol-
landi, Sviss, frá öllum ná-
lægum löndum. Frá íslandi
mætti hins vegar engu
minni maður en sjálfur
landbúnaðarráðherrann,
Steingrímur J. Sigfússon.
Ekki er alveg víst að
Steingrímur hafi eingöngu
verið mættur til Genfar til
að taka þátt í mótmælaað-
gerðum evrópsku bænd-
anna, því vitað var að á
þriðjudagsmorguninn bær-
ust tillögur frá íslenska ut-
anríkisráðuneytinu um nið-
urskurð á stuðningi við ís-
lenskan landbúnað og til-
lögur um rýmkun heimilda
til innflutnings. Líklega hef-
ur Steingrímur viljað sjá
svart á hvítu hvað rynni út
úr faxtækjunum í Genf,
þannig að hægt væri að
lappa upp á textann. Sá
hængur er þó á, að fasta-
fulltrúi íslands í Genf er af
sama sauðahúsi og Jón
Baldvin utanríkisráðherra,.
það er Kjartan Jóhannsson,
fyrrum formaður Alþýðu-
flokksins.
Hansson, sem sá ljósið fyrst.
Erla segir að frá því hún sá
ljósið hafi liðið um fimmtán
mínútur þar til það hvarf með
ógnarhraða. Það hafi verið
appelsínugult og miklu
stærra en nokkur stjarna á
himninum.
Á sama tíma og heimilis-
fólkið í Mýrartungu sá Ijósið
varð vart mikils ljósagangs
um alla Evrópu. Opinber
skýring á honum er sú, að
eldflaug eða gervitungl hafi
verið að koma inn í gufu-
hvolfið.
„Ég hélt að svona hlutir
ættu að brenna upp á ógnar-
hraða. Við horfðum á ljósið
kyrrstætt í heilar fimmtán
mínútur," sagði Erla.
SVARTI SVANURINN
Nýr
atvinnuvegur
Islenskir bissnessmenn
eru misséðir. Sá alsniðug-
asti af þeim öllum hefur
fundið efnilega atvinnu-
grein; innflutning á tóm-
um bjórdósum.
Þannig er að skilaverð á
bjórdósum er lítið eitt hærra
á Islandi en í Danmörku. Með
flóknum útreikningum hefur
þessi bissnessmaður komist
að því að það borgar sig að
fara út til Danmerkur, kaupa
samanpressaðar dósir og
flytja til íslands í gámum.
Hagnaðurinn er umtalsverð-
ur. Reynið sjálf.
SJÖ EFSTU Á LISTA FRAMSÓKNAR í REYKJAVÍK
STEINGRÍMUR J. MEÐ 15 ÞÚSUND
ÖSKRANDIRÆNDUM í GENF
KONAN MEÐ JÁRNANDLITIÐ
Jóhanna Sigurðardóttir
ÍHUGUL OG ÞENKJANDI
Jóhanna Sigurðardóttir
Á BARMI TAUGAÁFALLS
Jóhanna Siguröardóttir
í SJÖUNDA HIMNI
Jóhanna Sigurðardóttir
SÓTILL
Allt í einu heita
sioppurnar eitthvað
Einu sinni hétu allar sjopp-
ur söluturn. Til var Söluturn-
inn Gnoðarvogi 44, Söluturn-
inn Hverfisgötu 50, Söluturn-
inn Bræðraborgarstíg 43 og
svo framvegis.
En nú er aldeilis öldin önn-
ur.
Nú eru sjoppur farnar að
heita stórum og feitum nöfn-
um. Ein heitir þannig því
heimilislega nafni Anna
frænka, önnur ber hið losta-
fulla heiti Draumurinn og sú
þriðja er skírð Svarti svanur-
inn, eins og þar sé hin
skuggalegasta hafnarbúlla.
Sú með stærsta nafnið er lík-
lega Mekka. Það er ómögu-
legt að ímynda sér að fólk
telji sjoppu vera líka Mekka,
— nema þá þeir bræður Kar-
íus og Baktus.
En þetta er allt í anda nýrra
tíma, segja tískusveiflusér-
fræðingarnir. Nú er málið að
láta fyrirtækin hafa persónu-
legan og afgerandi svip.