Pressan - 15.11.1990, Side 29

Pressan - 15.11.1990, Side 29
FIMMTUDAGUR PRESSAN 15. NÓVEMBER 29 Öruggt má teljast að fjármálavit verður ekki til þess að koma fólki á peningaseðla. Jón Sigurðsson, sem prýðir 500 króna seðilinn, var frægur á sínum tíma fyrir að lifa flott. Hann var alltaf klæddur samkvæmt nýjustu tísku og hélt uppi reisulegu heimili í Kaupmannahöfn. Hann lifði fyrst og fremst á styrkjum heiman frá íslandi. Það er hins vegar dálítið feimnismál að hann var nánast gjaldþrota þegar hann lést. Því var það að íslenska ríkið kom til hjálpar og keypti búslóð hans, sem nú er í Jónshúsi í Kaupmannahöfn. Brynjólfur Sveinsson biskup, sem prýðir 1000 króna seðilinn, var hins vegar betur að sér í fjármálum og þótti duglegur fjár- aflamaður. Hlýtur það að vera þörf ábending til kirkjunnar manna sem eru einmitt að kvarta yfir peningaleysi þessa dagana. Brynjólfur leit vel eftir fjármálum kirkjunnar og fór til dæmis í stöðugar yfirreiðir til að fylgjast með prestunum. Á 100 króna seðlinum er Árni Magnússon handritasafnari en hann giftist til fjár þegar hann gekk að eiga danska bruggara- ekkju. Árni var einnig í góðu embætti og hafði því töluvert fé handa á milli. Það notaði hann til að kaupa bækur eins og kunnugt er. Á 5000 króna seðlinum er Ragnheiöur Jónsdóttir biskupsfrú. Engum sögum fer af fjármálum hennar, frekar en annarra heldri kvenna á miðöldum. „Ég fyrirlft peninga. Ég fyrir- lít líka fólk sem hefur það að keppikefli að græða pen- inga." BALDUR HERMANNSSON EÐLISFRÆÐINGUR 1986 margar leiðir til að verða ríkur og ekki ætlunin að benda les- endum á eina leið öðrum fremri, en án efa eru vinnusemi og sparnaður árangursríkasta leiðin þegar á allt er litið. Sjálfsagt hefur ekkert eitt þjóðfélag búið við hraðari upp- gang auðkýfinga en Rómaveldi til forna. Þar gátu menn orðið auðugir af ótrúlegasta tilefni. Má sem dæmi nefna einn ríkasta mann Rómverja, Marcus Liciníus Crassus, sem varð ríkur af því að stofna slökkvilið. Lið hans skundaði á vettvang þegar kviknaði í húsum og seldi þjón- ustu sína á staðnum eða keypti hús þau sem í hættu voru fyrir lítið verð og slökkti síðan eldinn. Með þessu móti eignaðist Crass- us heilu hverfin í Róm. Crassus þessum dugði síðan ekki að vera ríkur heldur þurfti hann að fara í pólitík og endaði ævi sína þegar bræddu gulli var hellt í munninn á honum eftir að hann hafði tap- Sigurður Már Jónsson „Mér finnst þaö hreint alveg hræöileg tilhugsun að hafa ekki eitthvað af peningum milli handanna dag frá degi." ORN ÁRNASON LEIKARI 1986 „Ég tel að peningum sé hvergi betur varið en ein- mitt í hótelrekstur. Þar er mesta þenslan í atvinnulíf- inu í landinu. Og þar skila peningar afrakstri." HELGI ÞÓR JÓNSSON HÓTELEIGANDI 1986 arinnar væri gott, væri eins og birti yfir öllum. Þegar hins vegar verr gengi væri eins og nöldur- tónn færðist yfir alla. Allir stjórnmálamenn yrðu ómöguleg- ir og enginn gerði neitt rétt. Fólk færi jafnvel að tala um að flýja land; væntanlega þangað sem meira væri af peningum. Það hefur stundum loðað við Islendinga að þeir kunni ekki með peninga að fara. íslendingar, hafa viljað snúa þessu upp í að við séum allra manna örlátastir en það er nú dálítið málum blandið. Kannski sjá megi fjár- málavit íslendinga í eftirfarandi sögu sem sögð var af fátækum bónda fyrr á öldinni. Bóndi þessi skuldaði kaup- manninum háar upphæðir og sá ekki fyrir endann á því. Eitt sinn kom hann hins vegar glaður og kátur í bragði á næsta bæ. Bónd- inn þar spurði hvernig stæði á því og svaraði bóndi að bragði: ,,Nú er Bjarni kátur, ég tók víxil og borgaði allt upp í topp.“ að orrustu. En það er nú önnur saga. Kunnasti fjármálamaður ís- lands í dag er án efa Herluf Clausen. Það vita hins vegar færri að hann byrjaði feril sinn á því að flytja inn steiktan lauk og tertubotna og er sagður hafa grætt ágætlega á því. Hvort tveggja smakkast sjálfsagt betur en bráðið gull. STEINGRÍMUR HERMANNSSON í BISSNESS MEÐ PÁLMA í HAGKAUP Peningar geta fært saman ólík- ustu menn. Þannig var það með þá kumpána Steingrím Her- mannsson og Pólma Jónsson í Hagkaup, sem ráku saman Is- borg í Austurstræti. Þetta mun hafa verið snemma á sjötta ára- tugnum en leiðir þeirra lágu sið- an hvor í sína áttina. Segir sagan að þeir hafi vaxið hvor frá öðr- um, meðal annars vegna þess að Pálmi var svo hugmyndaríkur í innflutningnum að Steingrími hafi þótt nóg um. Einhvern tím- ann var Pálmi til dæmis búinn að fylla allt lagerplássið í ísbúð- inni af litríkum skyrtum! Pálmi sendi Steingrím síðan til Ameríku til að kaupa ísvélar, enda Steingrímur menntaður til þess. Þeir félagar fengu hins veg- ar ekki að setja vélina í gang vegna andstöðu framsóknar- valdsins í mjólkuriðnaðinum. „Það er eins og sumir menn séu jafnfátækir hvað mikla peninga sem þeir eiga." STEINN STEINARR SKÁLD 1958 „Það verður að halda pen- ingum út til beitar, hvernig sem viðrar." HERLUF CLAUSEN KAUPAHÉÐINN 1988 Vélin safnaði því bara ryði eftir að hún kom til landsins. Skömmu síðar gekk Steingrímur framsóknarvaldinu á hönd en Pálmi stofnaði Hagkaup. Það má segja að þeir hafi veðjað hvor á sinn hestinn til að afla peninga en báðum vegnað vel. SJOPPURNAR ORÐNAR AÐ SPILAVÍTUM Peningar stjórna flestum en hafa algjört ægivald yfir spilafíkl- unum. Að sögn sálfræðings sem PRESSAN ræddi við hefur þeim fjölgað mjög hér á landi að und- anförnu. Hann sagði ástæðuna að mun auðveldara væri að falla í freistni. Með tilkomu lottósins og skafmiðanna væri hver sjoppa orðin að spilavíti. Peningar hafa spilað stóra rullu í lífi Hrafns Bachmann kaup- manns. Til eru nokkrar ævin- týralegar sögur af veðmálum hans. Til dæmis er sagt að þegar rukkarar komu í heimsókn til hans hafi hann boðið þeim að leggja undir. Ef krónan kæmi upp myndi hann tvöfalda reikn- inginn en ef skjaldamerkið kæmi upp þyrfti hann ekkert að greiða. í dag er sjálfsagt hægt að fá Hrafn til að veðja upp á ham- borgara, tvöfalda eða einfalda, en hann rekur nú hamborgara- stað. Hann heitir að sjálfsögðu Bónus-Borgarinn. ÞJÓÐIN BROSIR í GÓÐU PENINGAÁRI Sigurjón Björnsson prófessor benti á hvaða áhrif peningar hafa á þjóðfélagið í heild sinni. Sagði Sigurjón að í góðu ári, þegar efnahagslegt öryggi þjóð- IFramsóknarmenn leita nú log- andi ljósi að einhverjum til að skipa annað sætið á lista þeirra á Reykja- nesi. Það sæti skipar nú Jóhann Ein- varðsson. Fram- sóknarmenn munu ekki vera allt of spenntir fyrir því að stilla honum aftur upp á eftir Stein- grími Hermannssyni, sérstaklega í ljósi þess að aðrir flokkar hafa gert róttækar breytingar á listum sínum. Hafa menn verið að horfa til Sig- urðar Geirdals, bæjarstjóra í Kópa- vogi, sem mun vera spenntur fyrir að fylgja í fótspor þeirra Davíðs Oddssonar og Guðmundar Árna Stefánssonar og gera þing- mennsku að aukastarfi. Deildar meiningar munu þó vera um það meðal framsóknarmanna hvort Sig- urður sé rétti maðurinn... liyfsölurisarnir Pharmaco og Delta standa í stórræðum þessa dag- ana, en þeir hafa keypt hvert fyrir- tækið af öðru síð- ustu vikurnar. Sami maður er aðaleig- andi bæði Pharm- aco og Delta, en það er Werner Rasm- usson, apótekari í Ingólfsapóteki. Þeir sem ráða þessum stóru lyfjafyrir- tækjum eru farnir að óttast að breyt- ingar verði gerðar á fyrirkomulagi lyfsölu hér á landi og því séu breyttir og. erfiðari tímar framundan. . . I* yrir skömmuvarJón Sigurðs- son ráðherra staddur á flokksþingi spænskra jafnaðarmanna, þar sem hann notaði tæki- færið og ræddi við Felipe Gonzales forsætisráðherra og fleiri ráðamenn um sérmál íslands gagn- vart EB. Með Jóni í för var Magnús Gunnarsson, framkvæmdastjóri SÍF og sérfræðingur í fiskveiðimál- um. Svo vildi til að flokksþingið var lokað öðrum en sérstaklega tilskip- uðum þingfulltrúum úr röðum evr- ópskra krata og því góð ráð dýr að tryggja Magnúsi aðgang að fundin- um. Jón dó ekki ráðalaus og var Magnús umsvifalaust „innritaður" í Alþýðuflokkinn — Jafnaðarmanna- flokk íslands. Magnús er því bókað- ur sem krati.. . w% ýralæknislaust er nu 1 ein- angrunarstöðinni í Hrísey eftir að Sigurborg Daðadóttir dýralæknir sagði upp störfum. Sigurborg sagði upp 8. maí vegna launaágreinings og átti að hætta 1. september. Hún ákvað að fresta því til 1. október á meðan landbúnaðarráðuneytið væri að reyna að bjarga málunum. Ekkert gerðist og hefur Sigurborg ákveðið að fara að starfa sjálfstætt. Það sem vekur kannski mesta at- hygli í þessu máli er að það er lög- brot að hafa ekki dýralækni í Hrísey. í síðasta BHMR-verkfalli máttu til dæmis ekki tveir dýralæknar á landinu fara í verkfall vegna mikil- vægis þeirra. Yfirdýralæknir og dýralæknirinn í Hrísey...

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.