Pressan - 15.11.1990, Page 32
HLUSTUM ALLAN SÓLARHRINGINN SÍMI 6818611
T
»
lú er oröið ljóst hvert Geir
Gunnarsson fer. Olafur Ragnar
Grímsson mun hafa ákveðið að
veita honum emb-
ætti Tollstjórans í
Reykjavík. Það eru
laun Geirs fyrir að
víkja fyrir Olafi á
Reykjanesi. . .
leikhúskona er helst nefnd í því
sambandi. . .
I yrirvaralaus uppsögn Hall-
dórs Guðmundssonar, sláturhús-
stjóra hjá Sláturfélagi Suðurlands á
Selfossi, hefur vakið athygli. Engar
skýringar hafa borist á því af hverju
Halldór hætti störfum og þá er ekki
vitað hver kemur í hans stað...
að er nú fastákveðið að Hall-
dór Guðbjarnason, fyrrum banka-
stjóri gamla Útvegsbankans, verði
bankastjóri Landsbankans. Halldór
fékk ákvörðun bankaráðsins um
stöðuna frestað þar til milli jóla og
nýárs. Reiknað er með að Páll Arn-
ór Pálsson, saksóknari í Hafskips-
málinu, verði þá búinn að tilkynna
hvort hann áfrýjar dómi Sakadóms
Reykjavíkur eða ekki. Halldór og
fleiri ákærðir í því máli vonast til að
Páll Arnór áfrýi ekki...
V
esturlax er nafn á fiskeldis-
fyrirtæki sem starfrækt var á Pat-
reksfirði. Fyrirtækið er gjaldþrota,
en hefur ekki verið tekið formlega
til gjaldþrotaskipta, þrátt fyrir að lið-
ið sé vel á annað ár frá því allri starf-
semi var þar hætt. Stjórnarformað-
ur og einn eigenda Vesturlax er Úlf-
ar Thoroddsen fyrrum sveitar-
stjóri á Patreksfirði. Hætta er á að
Þverárlax á Barðaströnd geti fallið
með nágranna sínum, þar sem Þver-
árlax seldi Vesturlaxi mikið af seið-
um. Þau hafa ekki fengist greidd og
staða Þverárlax því mjög slæm um
þessar mundir. . .
A
^^^ndstaða meðal kaupfélags-
manna við stofnun sex hlutafélaga á
grunni Sambandsins gerist æ há-
værari. Sigurður
Markússon, stjórn-
arformaður Sam-
bandsins, og Guð-
jón B. Ólafsson for-
stjóri munu þurfa að
heyja harða baráttu
við kaupfélagsstjór-
ana til að fá þá til að ganga til liðs
við hin nýju hlutafélög. það sem fer
mest fyrir brjóstið á kaupfélagsstjór-
unum er væntanlegt hlutafé Sam-
bandsins. Þar er um að ræða við-
skiptavild, tölvukerfi, þekkingu og
fleira og fleira. Reyndar flest annað
en reiðufé...
mji
■ ^iú velta menn alvarlega fyrir
sér hver taki við forstjórastarfi Eim-
skipafélagsins, fari Hörður Sigur-
gestsson til Flug-
leiða sem fullvirkur
stjórnarformaður er
Sigurður Helga-
son lætur af störf-
um. Sem arftaki
Harðar er einkum
nefndur Brynjólfur
Bjarnason, forstjóri Granda, en
einnig hefur verið nefndur Friðrik
Pálsson, forstjóri Sölumiðstöðvar
hraðfrystihúsanna. . .
■líkur munu hafa aukist á að Pét-
ur Sigurðsson gefi kost á sér í ann-
að sæti á lista Alþýðuflokksins á
Vestfjörðum, á eftir
Sighvati Björg-
vinssyni alþingis-
manni. Karvels-
menn þrýsta þó enn
áað fulltrúi úr þeirra
röðum taki sætið og
vísa til þess að óeðli-
legt sé að tveir Isfirðingar skipi efstu
sætin. Þeirra kandídat er Björn
Ingi Bjarnason, fiskverkandi frá
Flateyri, og eru þeir ófeimnir við
prófkjör. Ef það gengur ekki eftir
mun ekki útilokað að Karvel
Pálmason sjálfur halli sér að
Heimastjórnarsamtökunum, sem
munu hafa falast eftir honum í fyrsta
sætið fyrir vestan...
¥ap á síðustu Listahátíð losar
fjórar milljónir króna, sem er svipað
og síðast, miðað við verðlagshækk-
anir. Eins og áður
skiptist kostnaður-
inn jafnt á milli ríkis
og borgar. Sam-
kvæmt bókinni er
skrifstofa Listahátíð-
ar nú lokuð og ekk-
ert farið að huga að
næstu hátíð. Núverandi formaður,
Valgarður Egilsson skáld og
læknir, hefur ekki skilað af sér end-
urskoðuðum reikningum, en reikn-
að er með að nýr formaður, skipað-
ur af Svavari Gestssyni mennta-
málaráðherra, taki við innan
skamms. Sigrún Valbergsdóttir