Pressan - 14.03.1991, Side 12
12
FIMMTUDAGUR PRCSSAN 14. MARS 1991
Athugasemd
frá Flugleiðum
Pressunni barst eftirfarandi
grein frá Einari Sigurðssyni,
blaðafulltrúa Flugleiða:
„í forsíðufrétt fyrir viku spáir
Pressan því að verð Boeing 737-400
flugvéla kunni að lækka um 20%. í
fyrirsögn greinarinnar segir: VERÐ
FLUGVÉLA FLUGLEIÐA HRAPAR
UM 1400 MILLJÓNIR. Þessi spá
byggir á eftirfarandi setningu sem
höfð er eftir Birki Baldvinssyni, sem
þekkir vel til á markaði með eldri
flugvélar: „Aftur á móti með nýrri
vélar eins og 737-400 og 737-500 er
því spáð að um 500 vélar verði á
markaðinum seinna á árinu.
Það . . . verður sjálfsagt verðhrun
fyrst til að byrja með fyrir þá sem
verða að seljá'. Síðan er vitnað til
þess að Birkir spái 20% verðfalli á
minni vélum. Þetta umreiknar
blaðamaðurinn síðan til 1400 millj-
ón króna verðfalls á 737 flota Flug-
leiða og leiðir getum að því að vél-
arnar séu ofmetnar í bókum félags-
ins.
Boeing verksmiðjurnar hafa
framleitt 8 gerðir af 737 flugvélum.
5 þeirra heyra til eldri kynslóð þess-
ara véla og eru ýmsar undirgerðir af
Boeing 737-100 og Boeing 737-200.
Þessar vélar komu fyrst á markað
fyrir 27 árum og smíði þeirra var
hætt fyrir tveimur árum. Verð þess-
ara flugvéla hefur stórlækkað und-
anfarið og flestir gera ráð fyrir að sú
þróun muni halda áfram eitthvað á
þessu ári.
Um yngri kynslóð Boeing 737
flugvéla gegnir allt öðru máli. Það
eru Boeing 737-300, 737-400 og
737-500. Þær eru búnar nýrri gerð
sparneytnari hreyfla og eldsneytis-
eyðsla á hvert sæti er um 30—40%
minni en í eldri gerðum flugvéla.
Verð þeirra hefur farið hækkandi.
Boeing 737-400 hækkaði um 5,3% á
sama tíma og eldri kynslóð Boeing
737 flugvéla lækkaði í verði um
20—43%.Nú er nýlokið fjármögnun
Boeing 737-400 flugvélar sem Flug-
leiðir kaupa í vor. Bankar sem lána
um 85% af fé til kaupanna nfteð veði
í vélinni sjálfri spá því að verðmæti
hennar haldist.
Enn þann dag í dag hafa ekki ver-
ið smíðaðar 500 vélar af 737-400 og
737-500 gerðum heldur 200 stykki.
Allar 737 vélar af nýrri og spar-
neytnari kynslóð eru nú 850 talsins.
Engum heilvita manni dettur í hug
að yfir 60% af þeim flota verði til
sölu í haust.
í greininni má svo lesa eftirfarandi
klausu. „í ársskýrslu Flugleiða fyrir
árið 1989 eru bókfærðar tvær vélar
af gerðinni 737-400. Þar er bókfært
verð 27,2 milljónir dollara miðað
við gengi í dag. Það vekur upp
spurningar um hvort þessar vélar
séu ef til vill of hátt skráðar í bókum
félagsins en ýmis teikn eru á lofti
um iækkun á markaðsverði þeirra."
Til upplýsingar fyrir blaðamanninn
er rétt að benda á að um þessi ára-
Öll tœkin eru sjálfstœöar einingar og fullkomin fjarstýring stjórnar öllum aögeröum stœðunnar.
Magnarinn er 160 wött meö tengingu fyrir "surround" hátalara.
Útvarpið er með 28 stööva minni (FM/LB/MB) og innbyggðri klukku ("timer").
Tvöfalda segulbandiö er bœöi meö hraðyfirfœrslu og raöspilun, auk þess sem annaö lœkiö
spilar I báöar áttir.
Plötuspilarinn er alsjálfvirkur meö T4P tónhöfði.
Hátalararnír eru bœöi fallegir og sérlega hljómgóðir.
Geislaspilarinn er 18 bita og meö 20 laga minni.
er tjarstýrð samstœða sem sómir sér vel I hvaöa herbergi sem er.
Magnarinn er IOO wött og meö fimm banda tónjafnara.
Útvarpið er meö 24 stöðva minni (FM/LB/MB).
Tvöfalda segulbandiö er boeði meö hraöyfirfœrslu og raöspilun.
Plötuspilarinn er hálfsjálfvirkur.
Hátalararnir sem eru sérlega vandaöir. er I viöarkassa.
18 bita geislaspilari.
er snofurt, létt og lipurt stereo ferðaútvarp með segulbandi. Það
er með innbyggðum hljóðnema, FM stereo og miðbylgju. Tengi
fyrir heyrnatœki.
Þetta Sony tœki er á frábœru verði,
iHMWwi
er kraftmikið stereo ferðaútvarp með segulbandi. Það er 20 wött og
með fjórum hátölurum. Það er með innbyggðum hljóðnema, þriggja
banda tónjafnara og fjórum útvarpsbylgjum (FM/MB/LB/SB/).
Verð á þessu kraftmikla tœki er
JAPIS
TECHNICS X-IOCD
PANASONIC SG-HM35CD
SONY CFS-204
PANASONIC RXFS420
KRJUSvéðÖ^slgr. KR 9980 - stgr.
9 * . , ' .
•Cv'.f;-
mót voru nýjar vélar af þessari teg-
und metnar á 30 milljónir dollara,
fyrir ári voru þær metnar á 28,5
milljónir dollara. Bókfært verð
fyrstu tveggja Boeing 737-400 flug-
véla Flugleiða í ársskýrslu fyrir árið
1990 verða 26,3 milljónir dollara og
26,4 milljónir dollara. Allar vanga-
veltur með ársskýrsluna fyrir 1990
til hliðsjónar um að þessar vélar séu
of hátt skráðar í bókum félagsins
eru firra. Bókfært verð flugvélanna
er lægra en viðurkennt markaðs-
verð þeirra.
Loks segir í Pressugreininni:
„Flugleiðamenn segjast fá 14 millj-
ónir dollara í leigugjald (fyrir Boe-
ing 757 vél sem leigð verður til Brit-
annia í tvö ár (innsk. mitt)) en menn
í flugheiminum eru vantrúaðir á þá
upphæð — telja hana of háa.“ Ég fæ
ekki betur séð en blaðamaðurinn sé
að væna fyrirtækð um að ljúga þess-
ari tölu. Hann hafði ekki fyrir því að
bera þessa „vantrú" manna úr flug-
heiminum undir þá sem veittu hon-
um upplýsingar um leiguupphæð-
ina heldur reynir algjörlega raka-
laust að varpa rýrð á þessar upplýs-
ingar. í þessu samhengi getur til-
gangurinn vart verið annar en að
læða því að lesendum blaðsins að
orðum þessara „Flugleiðamanna"
sé tæpast trúandi í umræðu um flug-
flota félagsins.
Sigurður Már Jónsson er blaða-
maður. Á því sviði selur hann sér-
þekkingu. Gengi blaðamanna er
gjarnan metið með hliðsjón af siða-
reglum og vönduðum vinnubrögð-
um. Gengi Sigurðar Más Jónssonar
hefur hrapað.
Einar Sigurðsson
blaðafulltrúi Flugleiöa.“
PRESSAN hefur engu að bæta við
grein þá er birtist í blaðinu í síðustu
viku og hefur enga ástæðu til að ef-
ast um ágæti heimildarmanna
sinna, sem eru þaulkunnugir mál-
um í flugheiminum. Vegna ummæla
Einars er rétt að benda lesendum á
að starf hans felst í áróðursstarfsemi
fyrir Flugleiðir. Þykir PRESSUNNI
miður að Einar skuli Ieggjast svo
lágt að sverta orðstír blaðamanns-
ins með þeim hætti sem hann gerir.
Ritstj.
rgentinskt
eldhús
a islenska vísu
STEIKHUS
irónsstíg lla & 19555