Pressan - 18.07.1991, Blaðsíða 4

Pressan - 18.07.1991, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR PRESSAN 18. JÚLÍ1991 DRAUMA DINNER PRESSAN heldur áfram að biðja fólk að bjóða í ímyndað kvöldverðar- boð, þar sem gestir mega vera skáldsagnapersónur, látnir, lifandi, frægir, vin- ir, vandamenn eða hugar- fóstur viðkomandi, allt eftir því hvað hverjum og einum sýnist. Það er STEFÁN HJÖRLEIFSSON tónlistarmaður sem býð- ur átta gestum til kvöld- verðar að þessu sinni og eru eftirfarandi á gesta- listanum: Wolfgang Amadeus Mozart: ég ætla að spyrja hann hvernig hann skipu- leggur tíma sinn Hallur Helgason: ég þarf að fá það á hreint af hverju hann henti leikfimitöskunni minni í sjóinn þegar við vorum í 14 ára bekk Daníel Ágúst Haralds- son: það er svo auðvelt að gleðja hann Pat Metheny: ég myndi deila með honum nokkrum lickum Arnaldur hjá VSK: engin sérstök ástæða Kevin Costner: ég þarf að biðja hann að hætta að hringja í konuna mína Jón Ólafsson: af því við hittumst svo sjaldan Jaco Pastorius: ég þarf að fá hann til að árita fyrir mig plöt- una Word of Mouth ISF|RÐINGVr og ævintýri hans í Reykjavík Eins og allir muna stökk Reimar til með rýting í lok síðasta kafla og risti sundur hálsæðina á föður sínum. Blóðbunan stóð út úr hálsin- um á aumingja Eika sem nú var ekki svarblár heldur hvítur. Kall með staurfót kom hoppandi á heilu löpp- inni og greip fimlega um slagæðina og stöðvaði blæð- inguna. Þá fyrst mundu menn eftir Reimari. — Leggiði drenginn í bönd, leggiði drenginn í bönd, kallaði einhver auli sem örugglega hefur verið að lesa heima hjá sér kvöld- ið áður í þeirri frægu bók ís- lenskum sakamálum á sautjándu öld. —- Nei, látiði drenginn eða eitthvað annað Það er ekki alltaf augljóst hvenær sundbolur er sund- bolur og hvenær hann er eitt- hvað annað. Mörg ,,body" líta til dæmis út eins og sundbolir, án þess þó að vera það. Og sundbolir gætu allt eins verið body, að minnsta kosti þegar maður veit ekki betur. Tísku- hönnuðirnir, sem allt þykjast vita og halda að þeir ákveði í hverju við erum, segja þetta sumarið, að maður geti alveg farið í sundbol í kvöldverðar- boð, svo lengi sem manni líði eins og maður sé á strönd- inni. Þeir eru nú heldur ekki með „fulle fem“. Eða hvað. Er þetta kannski hægt? Jú, ef maður er staddur á Costa Brava á Spáni. Þá er hægt að fara á diskótekið Rachdinge, rétt hjá Figueras (þar sem Dali-safnið er). Þar er sund- laug. Og eðlilegasti hlutur í heimi að vera á sundbol. En við erum víst á íslandi og þar mælir PRESSAN ekki með því að fara beint úr sundlaug- unum á Borgina annað kvöld. Arnór Björnsson, skemmtanastjóri á Strikinu, í góðum félags skap. - , Borgin hefur ennþá einu sinni náð því að vera eftirsóttasti skemmtistaðurinn í bænum. Þar má sjá fólk úr tískuheiminum, fjölmiðlaheiminum og öðrum heimum borgarinnar. Þau voru mætt á staðinn. Ragna Sæmundsdóttir vék ekki frá þessum herra. Guðmundur Karl. Raggi Gests og Elísabet. Lisu og Röggu leiðist greinilega ekki. Karamella til baka eiga sig, sagði sá sem stöðv- að hafði blæðinguna, hann er hetja. Hann er hetja. — Sjúkrabíl, sjúkrabíl, kallaði Reimar og einhver bílatöffari á staðnum spólaði af stað til að sinna því. Læknirinn fékk félaga sinn og kollega til að krjúpa niður og halda saman háls- æðinni, svo rétti hann úr bakinu og setti okkur hin inn í málið. Hann hafði staðið hjá sölutjaldinu og ætlað að kaupa sér eina Póló hjá Reimari, sem honum þótti besta gos í bænum en hafði ekki smakkað í háa herrans tíð, þegar hann sá Eika standa bláan í framan í fjör- unni. Hann grunaði strax hvers kyns var. Eiki átti ekki nema u.þ.b. 10 sekúndur eft- ir. Flugmaðurinn hafði tekið hann á orðinu og flogið með hann í listflug, sannkallað krúsidúllukúnstflug, sem varð þess valdandi að fitu- hnoðri losnaði í meginslag- æð Strandamannsins og lagði af stað í stökustu róleg- heitum upp til heilans. — Sennilega feitt hrossakjöt, skaut Reimar inn í. Kallinn er brjálaður í taðreykta sperðla. — Ekki ósennilegt, tók læknirinn undir. Nema hvað, ég setti drenginn inn í málið á svipstundu, því ég vissi að ég yrði ekki nógu fljótur að haltra sjálfur til sjúklingsins. — Ég sá blóðtappann fara upp hálsæðina á pabba eins og lævísan höggorm í sandi, bætti Reimar við. — Þá stökk ég tii og skar á áður en kvikindið náði að hverfa upp í heila og kála þeim gamla. Blóðtappinn skaust út og beint í augað á mér en ég gómaði hann, sagði Reimar hróðugur og sýndi okkur öll- um bleikan sakleysislegan hnoðra, blóðtappann sjálf- an. Læknirinn, sem var búinn að fá töskuna sína í hendur, hvolfdi úr magnylglasi svo blóðtappinn fengi húsaskjól og kollega hans, sem var góðglaður, gaf smávegis af læknaspíranum sínum út á. Þeir voru svo ábúðarfullir við þetta að ég strengdi þess heit að verða að minnsta kosti dýralæknir. Reimar var aftan á Mogg- anum daginn eftir og hélt á pilluglasinu góða. Halti læknirinn hélt utan um hann á myndinni og sagði að Reimar væri efni í afbragðs skurðlækni. Það sást í Strandamanninn í sjúkra- rúmi allan lurkum laminn. Hann var sagður á batavegi. Við Reimar skiptumst á að heimsækja Eika á spítalann og standa sjoppuvaktina. Reimar stillti pilluglasinu með blóðtappanum upp í sjoppunni en varð loks að taka það niður, þótt honum þætti það miður, því baukur- inn fældi frá kúnna. í hverf- inu bjó maður sem kallaður var Júlli-sífulli. Hann var giftur danskri kellingu svo það var ekkert skrítið þótt hann væri drukkinn lon og don. Júlli-sífulli kom með forláta klukku í Eikasjoppu og vildi versla við Reimar og fá rakspíra í staðinn. Reimar lét hann vitaskuld fá nokkur spíraglös. Stuttu síðar kom danska kellingin með Júlla- sífulla í togi og heimtaði á makalausri golfrönsku að fá klukkuna aftur. En Reimar sagði bara við hana. — Ég skil yður ekki, frú. Við ís- lendingarnir eru búnir að gera út um kaupin. Svo gerði hann sig grimman í framan og urraði á kellinguna; Sjer- ap, Sjerap, sem þýddi að hún ætti að koma sér. Ég ætla mér að verða ríkur, Nasi, sagði Reimar við mig. Veru- lega loðinn um lófana, skil- urðu það. Ha, ha, ha, ha, ha, ha, ha, ha. Jóhanna Steinunn Hjálm- týsdóttir, betur þekkt sem Hanna Steina, er, mikið rétt, systir Palla Hjálmtýs og Diddúar. Hún er ekki eins þekkt og þau, en er engu að síður búin að syngja í mörg ár, bara alltaf með lítt þekkt- um „underground"-hljóm- sveitum. Hún segist hafa Ég fékk líka að kynnast því að sá draumur gat vel orðið að veruleika. Reimar var hreint frábær sölumað- ur. — Eina súkkulaðibollu, sögðu börnin og skutu tú- kalli upp á glerborðið með kámugum krumlunum. — Og karamella til baka, sagði Reimar naglbítslegur í fram- an og hélt klinkinu eftir í kassanum og fleygði einni Freyjukaramellu í þau. Svo urraði hann á skrílinn: Sjer- ap. Sjerap. Djúkboxið gekk frá morgni til kvölds, já þetta voru dásamlegir tímar. Framhald. Ólafur Gunnarsson byrjað ferilinn með Tungl- skinstríóinu, sem var skóla- hljómsveit í Hagaskóla, og voru meðlimir, auk Hönnu Steinu, tveir fyrrverandi og núverandi sykurmolar, Friðrik Erlingsson og Bragi Ólafsson. Síðan hefur Hanna Steina hefur komið við í ýmsum hljómsveitum, þ.á m. Dá, Mikki Dean and the Won- derfuls og Október. Núna er hún í Orgli með Kolbeini Ein- arssyni, Ingólfi Sigurðssyni og Hermanni Jónssyni og eru þau núna búin að spila saman í eitt og hálft ár. Á sumrin gefast þó ekki mörg tækifæri til tónleikahalds, þar sem Ingólfur er lika trommuleikari með Síðan skein sól, en síðustu tónleik- ar Orgils voru samt í Rauðu myllunni fyrir viku. Næst ætlar Orgill að spila í Húna- veri, þar sem Síðan skein sól verður um verslunarmanna- helgina. Það liggur nokkurn veginn í augum uppi að Hanna Steina hefur ekki atvinnu sína af söngnum, þó hún segist vel myndu geta hugs- að sér það. „Það væri voða- lega gaman að geta það, en ég sé ekki fram á að það sé hægt." Lifibrauð sitt hefur hún af að teikna fyrir verk- fræðinga, en hún er tækni- teiknari að mennt. „Þaö á ágætlega við mig," segir hún. „Draumurinn er samt auðvit- að að syngja og fá borgað fyrir það, en ég hef ekki upp- lifað það ennþá." Og um framtíð Orgils segir hún: „Við erum rétt að byrja og ætlum alltaf að vera til. Jafnvel þó svo við tökum okkur löng frí á milli. Þetta er svo ferlega skemmtilegt."

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.