Pressan - 18.07.1991, Blaðsíða 25

Pressan - 18.07.1991, Blaðsíða 25
LISTAPOSTURINN I AIN’T GOT NO HOME Talaö uiö Halldór Bragason um blús, Vini Dóra og tannlœkna Einn góðan veðurdag þurfti Chicago Beau að fara til tannlœknis. Biðstofum tann- lœkna svipar alls staðar sam- an og Chicago Beau stytti sér stundir með því að blaða í tímaritum. Hann rakst meðal annars á bandarískt tímarit sem honum fannst óvenju vel prentað. Chicago Beau var sjálfur að setja nýtt tímarit á laggirnar og hann var ekki fyrr sloppinn frá tannsa en hann setti sig t samband við prentsmiðjuna góðu: Oddi, Iceland. Skömmu síðar kom hann til Islands og einhver í prentsmiðjunni Odda ságði við Chicago Beau: Þú ert blúsmaður. Þú œttir að tala við hann Halldór í vinum Dóra. Og það gerði hann. Hver er Chicago Beau? Hann er frægur blúsari, út- gefandi, fyrirlesari og ýmis- legt fleira. Hann sló á þráðinn til Halldórs Bragasonar í febrúar og spurði hvort hann gæti ekki komist á blústón- leika á íslandi. Halldór bað hann að hringja aftur eftir hálftíma og var þá búinn að skipuleggja tónieika fyrir Chicago Beau. Þetta var fyrir fimm mánuðum og nú er kominn út geisladiskur með Vinum Dóra, Chicago Beau og öðrum blússtórmeistara til, Jimmy Dawkins, sem heit- ir því skemmtilega nafni, Blue lce. Vinir Dóra hafa ver- ið helstu boðberar blústón- listar á íslandi síðustu ár: Halldór Bragason gítar og söngur, Andrea Gylfadóttir söngur, Guðmundur Péturs- son gítar, Ásgeir Óskarsson trommur og Haraldur Þor- steinsson bassi. Þeir eru göldróttir tóniistarmenn. Á Blue Ice rugla Vinir Dóra og heimsfrægir blúsmenn sam- an reytum sínum. EINS OG FYRIR SKÁLD AÐ HITTA SHAKESPEARE Vinir Dóra eru nýkomnir frá Chicago þar sem þeir tóku þátt í árlegri blúshátíð. Um síðustu helgi héldu þeir þrenna dúndurgóða og vel sótta tónleika í Reykjavík. Og Vinirnir verða aftur á ferð- inni um helgina: Á Púlsinum á laugardagskvöldið. Það voru þau Halldór, Guð- mundur og Andrea Gylfa- dóttir sem fóru til Chicago en hún syngur eitt lag á Blue Ice. í Chicago hittu þau holdi klæddar goðsagnir blússög- unnar: „Þetta Vcir eins og skáld færi á rithöfundaþing og rækist þar á Shakespeare," segir Halldór alias Dóri, þeg- ar PRESSAN hitti hann á kaffihúsi. Til þess að eyða öllum mis- skilningi í upphafi: því hefur verið haldið fram að hvítir menn geti ekki spilað blús enda eigi hann rcetur meðal svartra þrœla. „Það eru aðallega hvítir menn sem halda þessu fram,“ segir Dóri. „En íslendingar hafa allar forsendur til að spila — og skilja — biúsinn. Þetta er tónlist sem túlkar til- finningar, segir frá daglegu lífi, ákveðnum atvikum, sög- um. Hvað voru íslendingar að dunda sér við gegnum hin- ar myrku aldir, meðan þeir voru undirokaðir, einangrað- ir og kúgaðir? Jú, þeir voru að gera nákvæmlega þetta sama: þeir sögðu sögur og kváðu rímur. Blúsinn er al- þýðutónlist og þekkir engin landamæri, tilfinningar manna eru alls staðar þær sömu.“ Halldór afhendir Johnny Shines nýja geisladiskinn. Hann er einn af gömlu snillingunum, en hann og goðsögnin Robert Johnson ferðuðust saman og spiluðu á fjórða áratugnum. Hápunktur blús- hátíðarinnar í Chicago var þegar Shines vottaði minningu Johnsons virðingu sína og lék nokkur lög eftir hann. 77 ÁRA SNILLINGUR NÆSTUR Á DAGSKRÁ Eftir að hafa fengið saman- burð við það besta í Banda- ríkjunum, er þá hœgt að tala um sérstaka tegund af ís- lenskum blús? „Já, við spilum öðruvísi blús. Við höfum ákveðinn ferskleika og auk þess er sam- heldnin meiri hér. Við kom- um fram sem heild en í Bandaríkjunum eru þetta misstórar stjörnur með undir- leikara." Verður framhald á sam- starfi ykkar við Chicago Beau? „Samstarf okkar við hann er líklega tryggt næstu árin. Hann vill fá okkur með sér á blúshátíðir víða um heim. Það eru komin tilboð á borð- ið hjá okkur sem við erum að vinna úr. Og svo ætlum við líka að halda áfram tónleika- útgáfu með Chicagomönnun- um, þessum gömlu goðsögn- um blússins. Næsta verkefni er að reyna að fá Pinetop Perkins til landsins en hann er einn af fremstu blúsmönn- um sögunnar. Hann er orðinn 77 ára en sturtar ennþá í sig viskíi og eltist við konur. Hann er óborganlegur! En það er ýmislegt sem Pinetop kann sem enginn annar kann og við viljum að það verði til eftir hans dag.“ Halldór hitti Pinetop Perk- ins í Chicago á blúshátíðinni um daginn. En hvernig kom- ust Vinir Dóra frá sínu? „Borgin bókstaflega iðaði af blús. Við spiluðum á götu- festívali með þremur öðrum hljómsveitum og var mjög vel tekið og komum svo fram sem gestir í nokkrum klúbb- um. Guðmundur Pétursson kom meðal annars fram með Larry MacCray sem er talinn einn efnilegasti blúsgítarleik- ari heims. Hann var til dæmis að gera plötusamning við Virgin-útgáfuna. En Guð- mundur er sennilega einn af betri blúsgítarleikurum í heiminum og þeir tveir áttu mjög vel saman. Það mátti sjá augu MacCrays verða að und- irskálum yfir fimi okkar manns. Áhorfendur risu úr sætum og fögnuðu þessum undramanni norðan úr höf- um, Gúmmí Youngblood, eins og hann var kallaður. Eftir þessa ferð veit ég að íslenskur blús stendur mjög vel. íslendingar hafa ákveðna tilhneigingu til að gera lítið úr sér. Það er bæði galli og kost- ur: menn reyna fyrir vikið alltaf að gera betur og eru aldrei ánægðir. En blúsinn er búinn að skjóta varanlegum rótum á íslandi. Áheyrendur hafa aldrei látið sig vanta þau tæpu þrjú ár sem við höfum spilað. Óg það eru þeir sem eiga mestan þátt í því að skapa séríslenskan blús. Þeir gera kröfur til okkar — og við til þeirra. Þannig hafa skapast ákveðnar hefðir í stemmn- ingu og stemmningin skapar blúsinn. Við fundum það líka á tónleikunum um síðustu helgi að við höfðum margt lært í ferðinni til Chicago og við gátum komið því strax til áheyrenda. Stemmningin hefur aldrei verið betri og það kom talsvert af fólki sem ekki hefur sótt blústónleika hingað til. Það komu sumir til mín og sögðu undrandi: Og ég sem hélt að blús væri svo leiðinlegur...“ HLUTVERK BLÚSMANNSINS Heldur einhver að blús sé leiðinlegur?! „Sumir hafa haldið það, já. Þangað til þeir kynnast blúsnum . .. Sjáðu til. Blús- maður er maður sem getur staðið uppi á sviði og sagt sögu af sjálfum sér á þann hátt að fólk geti tengt það við sjálft sig. Samband blús- mannsins og áheyrandans er svipað og hjá ræðumanni eða prédikara og söfnuði. Blús- maðurinn hefur ákveðnu hlutverki að gegna í því að segja sögu og ná sambandi við fólk.“ Eigum við til einhver ís- lensk blásskáld? „Já! Mikið af skáldskap okkar er hreinræktaður blús. Taktu til dæmis frægustu fer- skeytluna okkar. Hún er ekk- ert annað en blús.“ Það er að segja? „Yfir kaldan eyðisand, einn um nótt ég sveima. Nú er horfið Norðurland, nú á ég hvergi heima ...“ Dóri slær taktinn með fingrunum. „Nú á ég hvergi heima: I ain’t got no home. Þetta er blús!“ Rómeó og Júlía í Þjód- leikhúsinu Nú stendur til að setja upp Rómeó og Júlíu hjá Þjóðleik- húsinu. Það er þríeykið Guð- jón Pederson leikstjóri og þeir Hafliði Arngrímsson og Grétar Reynisson leikmynda- teiknari sem hafa mun veg og vanda af sýningunni. Ekki hefur verið ákveðið hverjir leika hina ólánsömu elskend- ur.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.