Pressan - 18.07.1991, Page 7
FIMMTUDAGUR PRESSAN 18. JÚU 1991
7
Gjaldþrot heildsölufyrirtækis Ólafs H. Jónssonar
FJÖLSKYLOAN
KEYPTIINNBUI
fasteignabrask eru
öðru fremur talin hafa
grafið undan
viðskiptaveldi Ólafs H.
Jónssonar.
RETT FYRHH
GJRLDPRRTHI
Gjaldþrot Hags hf. teygir anga sína víða
enda áttu fyrirtækið og aðaleigandi þess,
Ólafur H. Jónsson, hlut í mörgum öðrum
fyrirtækjum.
Er ljóst að fara verður
yfir ýmis þau
kaup sem fyrirtæki í
eigu Qölskyldumeðlima
Ólafs hafa átt við
hið gjaldþrota fyrirtæki á
síðustu mánuðum.
Þriðjudaginn 9. júlí óskaði Ólafur H. Jónsson verslun-
armaður eftir því að heildsölufyrirtæki hans, Hagur hf.,
yrði tekið til gjaldþrotaskipta. Gjaldþrotið er stórt, enda
var rekstrartap fyrirtækisins 43 milljónir á síðasta ári.
Það gerist þrátt fyrir að Hagur hafi selt mikið af eigum
fyrirtækisins, svo sem hlutafé í Stöð 2 og þrjú fyrirtæki.
Engar fasteignir finnast í þrotabúinu, sem virðist eignalít-
ið. Rétt fyrir gjaldþrotið keypti fyrirtæki í eigu fjölskyldu
Ólafs innbúið af Hag hf. Bústjóri þrotabúsins mun athuga
hvort ástæða er til að höfða riftunarmál út af þessum
samningum og einnig sölu á fyrirtækjum í eigu Hags í lok
síðasta árs.
Dugguvogur 12 er heimkynni fjölmargra fyrirtækja í kringum fjölskyldu-
veldi Ólafs H. Jónssonar.
Það er ljóst að verslunarveldi Ól-
afs H. Jónssonar er nú hrunið, en
um leið og gjaldþrot Hags hf. ber að
höndum bendir margt til þess að Ól-
afur verði kallaður til ábyrgðar
vegna skattrannsóknar á Stöð 2.
Eins og komið hefur fram telur
skattrannsóknardeild ríkisskatt-
stjóra að söluskattsskyld velta
Stöðvar 2 hafi verið vantalin um 157
milljónir króna árin 1986, 1987 og
1988. Allan þann tíma var Ólafur
einn aðaleigenda fyrirtækisins og
einn af stjórnendum þess. Hefur
komið fram að núverandi stjórn
Stöðvar 2 telur þetta vera vandamál
fyrrverandi stjórnarmanna, ef um
refsivert athæfi reynist vera að
ræða.
1986 var Ólafur framkvæmda-
stjóri Stöðvar 2, 1987 var hann fjár-
hagsstjóri og 1988 var hann sjón-
varpsstjóri. Hann var skráður per-
sónulega fyrir einhverju hlutafé í
byrjun, en það var þó fyrst og fremst
Hagur sem átti hlutafé hans, sem
allt var selt fyrir gjaldþrotið.
GÍFURLEGT TAP ÞRÁTT
FYRIR EIGNASÖLU
Hlutafélagið Hagur hf. var stofnað
á gamlársdag 1987. Tilgangur fyrir-
tækisins var inn- og útflutningur,
heildsala og smásala ásamt rekstri
fasteigna. Hlutafé var 5,1 milljón
króna. Stofnendur voru Ólafur H.
Jónsson, kona hans, Gudrún Árna-
dóttir, Jón Pétur Jónsson, bróðir Ól-
afs, Jónína Rútsdóttir, kona Jóns, og
Einar Marinósson. Ólafur, Jón Pétur
og Einar mynda stjórn félagsins.
Tap af rekstri Hags hf. á síðasta ári
var upp á 43 milljónir króna. Um
leið og þetta mikla rekstrartap átti
sér stað seldi fyrirtækið mikið af
eigum sínum. Þar skal fyrst nefnt
hlutafé í Stöð 2 upp á 63,9 milljónir
króna, en hluturinn var seldur
Kaupþingi í desember síðastliðnum.
í apríl í fyrra keypti Hagur hf. reið-
hjólaverslunina Örninn. Orninn var
síðan seldur aftur í nóvember síðast-
liðnum og er Jón Pétur fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins og einn
aðaleigenda.
Sömuleiðis var verslunin Vestur-
röst seld og aðalsmerki Ólafs, Hum-
melbúðinn í Ármúla. Hummielbúðin
í Ármúla 40 var rekin af fjölskyldu-
fyrirtækinu Piróla hf., sem stofnað
var 1938 og er með hlutafé upp á
275 krónur. Það var Gísli Óskars-
son, verslunarstjóri Hummelbúðar-
innar, sem keypti búðina.
Hvað varð um andvirði þessarar
fyrirtækjasölu er eitt af því sem bú-
stjóri þarf að fá úr skorið. Það er Páll
Arnór Pálsson hrl. sem hefur verið
skipaður bústjóri, en skiptaráðandi
er Gréta Baldursdóttir. Páll sagðist
ekki geta tjáð sig um fjárhag búsins
en játaði að allir samningar fyrir-
tækisins yrðu vandlega athugaðir.
Sem kunnugt er þá er hægt að
rifta sölusamningum sem gerðir eru
innan 6 mánaða frá gjaldþroti, en ef
um fjölskylduaðila eða aðra ná-
tengda er að ræða má fara allt að
tveimur árum aftur í tímann ef bú-
stjóri telur það nauðsynlegt til að
vernda hagsmuni búsins.
FJÖLDI FYRIRTÆKJA
í KRINGUM HAG
Eitt af verkum skiptaráðanda og
bústjóra verður að greiða úr því fyr-
irtækjakraðaki sem verið hefur í
kringum Hag. Fyrst má nefna þrota-
bú Skóhúss H.J. Sveinssonar, sem er
einnig í eigu Ólafs og sýndi rekstrar-
tap á liðnu ári upp á 10,7 milljónir
króna. Nákvæmlega sömu aðilar
stóðu að stofnun Skóhússins og
Hags. Þrotabú Skóhússins fellur nú
inn í þrotabú Hags.
Þá má geta þess að á vegum Hags
var um tíma rekin verslunin Lífsstíll
í Kringlunni, en að sögn Jóns Péturs
var þeim rekstri hætt þegar ljóst
varð að hann stæði ekki undir sér.
Það munu ekki vera nema nokkrar
vikur síðan þeim rekstri var hætt,
en þar var meðal annars verslað
með skíðafatnað sem seldist ekki
mikið af í vetur.
í apríl 1990 keypti Ólafur rekstur
Sportklúbbsins í Borgartúni 32. Það
gerði hann í samvinnu við Sigurð
Sveinsson handknattleiksmann.
Þeir Ólafur og Sigurður gátu ekki
staðið við skuldbindingar sínar
vegna kaupanna og 16. maí síðast-
liðinn leysti fyrri eigandi, Óskar
Kristjánsson, staðinn til sín. Sam-
kvæmt heimildum PRESSUNNAR
átti Sigurður að sinna rekstri staðar-
ins, en það datt uppfyrir þegar hann
gerði samning við Atletico Madrid á
Spáni. Mun reksturinn hvorki hafa
verið fugl né fiskur í höndum þeirra
félaga.
Á seinni hluta síðasta árs keypti
Óskar síðan verslunina Vesturröst af
Ólafi og stofnaði Sportvöruverslun-
ina Vesturröst hf. um reksturinn, en
fyrirtækið var stofnað í desember
síðastliðnum. Vesturröst var stofnuð
af föður Ólafs og hafði verið lengi í
eigu fjölskyldunnar.
Eins og áður hefur komið fram á
Hagur hf. engar eignir heldur leigði
húsnæði í Dugguvogi 12. Um þá
húseign hafði verið myndað eignar-
haldsfélagið Dugguvogur 12, stofn-
að 12. mars 1988. Stjórn fyrirtækis-
ins skipa þau Ólafur, Jónína, Einar,
Jón Pétur og Guðrún.
FJÖLSKYLDUFYRIRTÆKI
KONU ÓLAFS KEYPTIINNBÚIÐ
Þeir samningar sem vekja hvað
mesta athygli eru viðskipti fyrirtæk-
isins Hans Eide hf. við Hag rétt fyrir
gjaldþrotið. Hans Eide hf. var stofn-
að á sjöunda áratugnum og er skráð
fyrir 300 króna hlutafé.
Skömmu fyrir gjaldþrotið var það
síðan endurvakið, nánar tiltekið 28.
mars síðastliðinn eða rúmum þrem-
ur mánuðum fyrir gjaldþrot Hags.
Stjórn fyrirtækisins mynda Guðrún
Árnadóttir, kona Ólafs, Einar Marin-
ósson og Ólafía K. Kristjánsdóttir,
kona Einars, en hún er jafnframt
skráður framkvæmdastjóri. Fyrir-
tækið er skráð á heimili þeirra Ölaf-
íu og Einars en hefur aðsetur í
Dugguvogi 12.
Fyrirtækið Hans Eide keypti ýmsa
iausafjármuni, svo sem lager og inn-
bú, af Hag hf. skömmu fyrir gjald-
þrotið.
Ólafur hefur einnig reynt fyrir sér
í kaupum og sölum á fasteignum og
keypti til dæmis Vesturgötu 6 og 8,
þar sem meðal annars veitingastað-
urinn Naustið er rekinn. Voru þau
kaup skráð á Hag, en eftir því sem
komist verður næst voru eignirnar
seldar skömmu fyrir gjaldþrotið en
höfðu áður meðal annars verið aug-
lýstar til nauðungarsölu. Er það
hald margra, sem til rekstrar Ólafs
þekkja, að það hafi verið fasteigna-
brask hans og hlutafjárkaup í Stöð 2
sem fyrst og fremst hafi grafið und-
an veldi hans.
Ekki hefur enn unnist tími til að
auglýsa eftir kröfum í búið, en kröfu-
lýsingafrestur er tveir mánuðir. Ekki
náðist í Ólaf H. Jónsson, sem að
sögn bróður hans er á ferðalagi um
landið.
Sigurður Már Jónsson