Pressan - 18.07.1991, Page 10
10
FIMMTUDAGUR PRESSAN 18. JÚLl' 1991
UPPGJÖF HJÁ
« Ofi NUNNI
BOOIB FYBIRT/BOB
TUKAUPS
Nú standa yfir úrslitatilraunir til þess að bjarga Al-
menna bókafélaginu. Staða fyrirtækisins er mjög slæm
þrátt fyrir umfangsmiklar björgunaraðgerðir sem stór-
fyrirtæki á borð við Eimskip tóku þátt í. Undanfarnar
vikur hafa staðið yfir viðræður milli forráðamanna AB
og Jóns Karlssonar í Iðunni og á næstu dögum ræðst
hvort Iðunn tekur AB yfir.
sem forlagið hafði lagt út fyrir. Að
lokum tókst dómsátt milli AB og
þrotabús Svarts á hvítu sem fól í sér
greiðslur upp á rúmlega tvær millj-
ónir. Skuldabréf var gefið út og var
AB greiðandi en Árni Daníel og Jón
Ólafur voru látnir skrifa upp á sem
ábyrgðarmenn. Skuldabréfið var til
eins og hálfs árs og gjaldféll í des-
„STAÐAN ER VONLAUS“
Á aukaaðalfundi AB síðasta haust
var stjórninni veitt umboð til stór-
felldrar hlutafjáraukningar, allt að
140 milljónum. Síðan þá hefur verið
róinn lífróður til að bjarga fyrirtæk-
inu. Húseign þess í Austurstræti var
seld og sömuleiðis Eymunds-
son-bókabúðirnar fimm sem AB
rak. Prentsmiðjan Oddi hf. keypti
bókabúðirnar en seldi Iðunni þær
skömmu síðar. Margt bendir nú til
þess að AB lendi líka í höndum Jóns
Karlssonar. Þrátt fyrir firnasterka
bakhjarla er AB svo djúpt sokkið í
skuldafen að staða þess er „von-
laus“ að mati stjórnarmanns í fyrir-
tækinu.
HLUTAFÉÐ UPPURIÐ
Hlutaféð sem inn kom er uppurið
og söluandvirði eignanna sem seld-
ar voru á síðasta ári fór í skuldir en
dugði hvergi nærri til. Stjórnar-
maður í AB sagði í samtali við
PRESSUNA að útlitið væri mjög
dökkt og síðustu vikur hefði það
„verið látið síast út“ til útgáfufyrir-
tækja að einhvérs konar sameining
eða sala fyrirtækisins kæmi til
greina. Einu bókaútgáfurnar sem
hafa bolmagn til þess að yfirtaka AB
eru Iðunn og Mál og menning. Af
pólitískum og sögulegum ástæðum
er útilokað að Mál og menning taki
AB yfir. Þessi forlög voru iengst af
hvort á sínum kantinum: Mál og
menning var vígi vinstrimanna en
innan AB hafa sjálfstæðismenn ráð-
ið mestu eins og sést ennþá á stjórn
félagsins. Þar sitja nú þrír þingmenn
Sjálfstæðisflokksins.
„MIKLIR PENINGAR TAPAST“
Jón Karlsson hefur aukið umsvif
Iðunnar til mikilla muna á síðustu
árum. Auk Eymundsson-búðanna
fimm keypti hann bókaforlagið Lög-
berg af Sverri KriStinssyni, Bókabúð
Braga og Prentsmiðju Friðriks Jóels-
sonar en seldi hana skömmu síðar.
Jón Karlsson i Iðunni hefur aukið umsvifin til muna á síðustu árum. Keypti Ey
mundsson-bókabúðirnar, Bókabúð Braga, prentsmiðju og Lögberg.
Þá rekur Iðunn einnig íslenska
bókaklúbbinn.
Að sögn stjórnarmanns í AB er
fyrirsjáanlegt að „miklir peningar
tapast" við þá óumflýjanlegu upp-
stokkun sem bíður Almenna bóka-
félagsins. Það tap lendir á hluthöf-
unum, fyrst og fremst þeim sem
lögðu til aukið hlutafé.
GJALDÞROT VOFIR
YFIR HÖFUNDUM
Vegna lausafjárerfiðleika AB vofir
nú gjaldþrot yfir tveimur af höfund-
um forlagsins sem eru ábyrgðar-
menn á skuldabréfi sem AB átti að
greiða.
Þegar Bókaforlagið Svart á hvítu
fór á hausinn hafði staðið yfir undir-
búningur að útgáfu á söguatlas í rit-
stjórn tveggja ungra sagnfræðinga,
Arna Daníels Júlíussonar og Jóns
Ólafs fsbergs. Þeir fóru með verkið
til Almenna bókafélagsins sem tók
útgáfuna að sér. Svart á hvítu fór í
mál fyrir stuld á hugverki og krafð-
ist þess að fá þann kostnað greiddan
ember án þess að AB borgaði
krónu. I vor var málið dómtekið hjá
bæjarþingi Reykjavíkur. Bústjóri
þrotabús Svarts á hvítu, Halldór Þ.
Birgisson, gerði árangurslausar til-
raunir til að fá skuldina greidda en
hún nemur nú um þremur milljón-
um.
Samkvæmt heimildum PRESS-
UNNAR mun Björn Bjarnason, al-
þingismaður og stjórnarformaður
AB, hafa sagt að skuidin yrði gerð
upp fyrir síðustu mánaðamót. Það
var ekki gert.
Skuldabréfið er enn í vanskilum
og bústjóri þrotabús Svarts á hvítu
telur ábyrgðarmennina tvo líklegri
til að greiða hana en AB. Þeir Árni
Daníel og Jón Ólafur eiga þannig á
hættu að verða gjaldþrota vegna
vanskila AB.
flótiti frá forlaginu
Fyrir skömmu lét Sigurdur G. Val-
geirsson af störfum sem útgáfustjóri
hjá AB og fór yfir á Bylgjuna. í orði
kveðnu verður hann forlaginu inn-
an handar á næstunm en í raun er
það án útgáfustjóra. Sigurður vann
hjá AB í fimm ár en hefur verið
þröngt sniðinn stakkur vegna stöðu
fyrirtækisins. Hann mun hafa verið
ákveðinn að hætta um síðustu ára-
mót en lét undan þrýstingi og var
áfram í þeirri trú að bráðlega rofaði
til.
Fyrir skömmu yfirgaf Þórunn
Valdimarsdóttir AB en árið 1989 gaf
forlagið út bók hennar um Snorra á
Húsafelli sem seldist vel og hlaut
mikið lof. í haust var fyrirhugað að
fyrsta ljóðabók Þórunnar kæmi út
hjá AB og höfðu samningar verið
undirritaðir. Þórunn fékk ávísun frá
fyrirtækinu sem fyrstu greiðslu fyrir
verkið en bankar neituðu að taka
við ávísuninni. Niðurstaðan varð sú
að Þórunn yfirgaf AB og hefur nú
gengið frá samningum við Forlagið
um útgáfu bókar sinnar. PRESS-
UNNI er kunnugt um fleiri höfunda
AB sem hafa átt í miklum erfiðleik-
um með að fá greiðslur fyrir verk
sín.
TOPPAR í STJÓRNINNI
Stjórn Almenna bókafélagsins er
skipuð þekktum mönnum úr við-
skiptaiífinu og stjórnmálunum. For-
maður er Björn Bjarnason alþingis-
maður. Aðrir í stjórn: Eyjólfur Kon-
ráö Jónsson alþingismaður er vara-
formaður, Davíd Olafsson, fv. seðla-
bankastjóri, er ritari en meðstjórn-
endur eru Brynjólfur Bjarnason,
forstjóri Granda, Gylfi Þ. Gíslason,
fv. ráðherra, Hördur Sigurgestsson,
forstjóri Eimskips, og Ingimundur
Sveinsson, forstjóri Heklu. í vara-
stjórn sitja Davíd Oddsson forsætis-
ráðherra, Geir G. Zoéga fram-
kvæmdastjóri og Kristján Loftsson,
forstjóri Hvals hf.
EKKERT SVIGRÚM
Óli Björn Kárason varð fram-
kvæmdastjóri Almenna bókafélags-
ins á síðasta ári og tók við af Krist-
jániJóhannssyni. Oli Björn vann áð-
ur á viðskiptablaði Morgunblaðsins
og honum var ætlað það hlutverk
að koma fyrirtækinu upp úr öldu-
dalnum. „Staða fyrirtækisins var
ennþá verri þegar Óli Björn tók við
en látið hafði verið í veðri vaka.
Hann hefði aldrei tekið starfið að
sér ef hann hefði vitað hversu von-
laus staða fyrirtækisins var,“ sagði
heimildamaður PRESSUNNÁR sem
þekkir vel til innan AB.
Óli Björn þykir hafa staðið sig vel
í mjög erfiðri stöðu en hann hefur
nánast ekkert svigrúm haft. Hverjar
sem lyktir verða á málum AB er tal-
ið fullvíst að Óli Björn ætli að hætta
sem framkvæmdastjóri.
Björgunaraðgerðir margra helstu við-
skiptajöfra landsins vegna AB hafa
verið árangurslausar.
AB EKKI í GJALDÞROT -
„AF PÓLITÍSKUM ÁSTÆÐUM"
Þrátt fyrir stöðu Almenna bókafé-
lagsins er talið útilokað að fyrirtæk-
ið verði látið fara í gjaldþrot, „af pól-
itískum ástæðum" eins og heimilda-
maður innan bankakerfisins orðaði
það. Líklegast er talið að samningar
takist við Jón Karlsson og að AB
verði rekið sem útibú Iðunnar fyrst
um sinn, en til greina kemur einnig
að Iðunn nýti tap AB til skattaaf-
sláttar. Iðunn getur einnig hagnýtt
sér Bókaklúbb AB, sem er stærsti
bókakiúbbur landsins, og sameinað
hann eigin klúbbi.
Á síðustu vikum hafa ÓIi Björn og
Jón Karlsson farið yfir stöðuna og
fyrr í vikunni hittust helstu hluthaf-
ar og stjórnarmenn í AB. Á allra
næstu dögum skýrist svo hvort Al-
menna bókafélagið verður einn
þátturinn enn í veldi Jóns Karlsson-
ar eða hvort viðskiptajöfrarnir í
stjórn AB þurfa að halda áfram líf-
róðrinum.
Hrafn Jökulsson