Pressan - 18.07.1991, Page 12
12
FIMMTUDAGUR PRtSSAN 18. JÚLI 1991
700 MILLJ0N0M
Ahmmáhim
Kópavogsbær eyddi 358 milljónum króna umfram tekj-
ur á síðasta ári. Þetta er fimmta árið í röð sem reikningar
bæjarsjóðs sýna gjöld umfram tekjur og nemur upphæð
allra fimm áranna um 696 milljónum króna framreiknað
til verðlags í árslok 1990. Tap síðasta árs nemur 51,5 pró-
sentum af samanlögðu tapi allra 5 áranna.
Á löngum fundi bæjarstjórnar síð-
astliðinn þriðjudag voru reikningar
fyrir árið 1990 samþykktir.
GJALDAHLIÐIN ÚR BÖNDUM
í athugasemdum annars endur-
skoðunarmanns reikninganna, Ri-
chards Björgvinssonar, fyrrverandi
oddvita Sjálfstæðisflokksins í bæjar-
stjórn, kemur fram að gjöld umfram
tekjur ársins 1990 sem hlutfall af
sameiginlegum tekjum eða rekstr-
arafkomu eftir fjárfestingu námu
26,21 prósenti, samanborið við 3,9
prósent árið á undan, 4,5 prósent ár-
ið 1988 og 14,1 prósent árið 1987.
Veltufjárhlutfallið dugar ekki til
að standa undir skammtímaskuld-
um. Það var 0,6 um áramót, en var
0,89 árið á undan, 0,94 árið 1988 og
1,01 árið 1987.
Á síðasta ári naut Kópavogur
lækkandi verðbólgu og stöðugs
gengis, sem kom fram í því að fjár-
magnskostnaður minnkaði veru-
lega, nam 207 milljónum króna eða
um 16 prósentum af tekjum. Þetta
hlutfall hefur ekki verið minna síð-
an árið 1987.
EI'IT VERSTA ÁR
í SÖGU KÓPAVOGS
Nýr meirihluti sjálfstæðismanna
og framsóknarmanna tók við völd-
um í Kópavogi eftir bæjarstjórnar-
kosningar í fyrra. Fyrir kosningarn-
Sigurður Geirdal bæjarstjóri segir
ástæðulaust að hætta við byggingu
handboltahallar.
ar héldu þeir flokkar sem nú fara
með völd uppi harðri gagnrýni á
fjárhagsstöðu bæjarins, svo og Ri-
chard Björgvinsson, sem var oddviti
minnihlutans kjörtímabilið á undan.
Sem skoðunarmaður bæjarreikn-
ings nú gagnrýnir Richard fjármála-
stjórn nýja meirihlutans og vitnar til
ummæla forvera síns og eftirmanns,
Halldórs Jónssonar, sem gerði at-
hugasemdir við reikninga Kópa-
vogskaupstaðar árið 1989 á vordög-
um 1990.
I athugasemdum Halldórs segir:
„Um leið og ég óska nýkjörinni bæj-
arstjórn allra heilla á næsta kjör-
tímabili, þá vil ég beina þeim til-
mælum til hennar, að hún sjái til
þess að ársreikningar Kópavogs-
kaupstaðar 1994 sýni verulega
Richard Björgvinsson skoðunarmað-
ur bæjarreikninga, fyrrverandi odd-
viti sjálfstæðimanna í bæjarstjórn,
gagnrýnir harðlega fjármálastjórn
meirihlutans.
bættan hag bæjarsjóðs frá þvi sem
nú er.“
„Undir þessi tilvitnuðu orð get ég
tekið af heilum hug, hvert og eitt
einasta," segir Richard, en bætir við:
„Hins vegar bendir útkoma sl. árs
því miður ekki til að hin fróma ósk
rætist um veruiega bættan hag bæj-
arsjóðs 1994, a.m.k stuðlar hún ekki
að því að svo verði. Það sem vitað er
og ljóst er um hvert stefnir með hag
bæjarsjóðs hingað til á þessu ári
bendir því miður einnig í öfuga átt.
Svo vill til, að ég hefi fylgst með
fjárhag bæjarsjóðs og skoðað reikn-
inga hans allnáið allar götur frá ár-
inu 1964, í 27 ár, og ég held að út-
koman 1990 sé ein sú versta og tel
ég það mjög alvarlegt," segir Ri-
chard í niðurlagi athugasemda
sinna.
HVER KÓPAVOGSBÚI
SKULDAR 114 ÞÚSUND
Heildarskuldir bæjarins nema
1.854 milljónum króna. Þær jukust
um rúmar 517 milljónir króna eða
um 39 prósent frá árinu á undan.
Sama aukning varð árið 1989. Sam-
tals voru tekin ný langtímalán að
fjárhæð um 521 milljón króna og
sem hlutfali af sameiginlegum tekj-
um nema heildarskuldir 145,9 pró-
sentum. Heildarskuldir á hvern íbúa
í árslok 1990 námu 114.500 krónum.
Nettó er skuld á hvern íbúa um
68.500 krónur.
Nettóskuldir námu í árslok um 1,1
milljarði króna, eða um 87% af tekj-
um ársins. „Þetta er ískyggilega hátt
hlutfall," segir Richard í athuga-
semdum sínum, ,,og hækkun á ár-
inu 1990 er mjög mikil, um 50%, og
nálgast nú óðum „Hofsós-hlutfall".
Almennt er talið að þegar þetta
hlutfall er komið í um 60% sé full
ástæða og meira en það til að lækka
skuldir, hvað þá heldur þegar hlut-
fallið nálgast 90%, eða um 50%
hærra en hættumörk."
HALDIÐ FAST í
ÁFORM UM HANDBOLTAHÖLL
Eins og fyrr segir tók nýr meiri-
hluti við eftir kosningar á miðju síð-
asta ári og nýr bæjarstjóri, Sigurður
Geirdal, Framsóknarflokki. „Á
kosningaári eru menn svolítið
hressir og bjartsýnir," segir Sigurður
um afkomuna á siðasta ári. „Við tók-
um við þessu búi. Sumar fram-
kvæmdir voru hafnar og höfðu
reynst dýrar. Sem dæmi sundlaugin,
menn ætluðu að opna hana seinni-
part sumars og var hún komin tals-
vert fram úr áætlun. Það var jú hægt
að hætta framkvæmdum, en við
töldum rétt að ljúka dæminu þannig
að það væri hægt að opna.“
En er ekki ljóst að þið verðið
hreinlega að stöðva framkvæmdir
þegar skuldir nema 87 prósentum af
tekjum?
„Slík lögmál duga skammt."
Hvað varðar veltufjárhlutfallið
segir Sigurður að það eigi að hluta
skýringu í breyttum bókhaldsað-
ferðum. „Bókhaldið breytir hins
vegar ekki efnahagnum. Það var
töluvert af útistandandi skuldum
sem menn ætluðu sér að innheimta,
en við strikuðum einfaldlega út. Það
voru allt að 8 ára gamlar skuldir fyr-
irtækja sem voru farin á hausinn.
Það er útilokað annað en strika slíkt
út.“ Sigurður fullyrðir að veltufjár-
hlutfallið verði að líkindum 1,1 ístað
6,0 nú, meðal annars vegna lenging-
ar lána sem bærinn hefur þegar
samið um.
Á sama tíma og Kópavogsbær
glímir við fjárhagsvanda halda bæj-
aryfirvöld fast við áform um að
byggja handboltahöll fyrir heims-
meistarakeppnina árið 1994. Talið
er að kostnaður verði ekki undir
700 milljónum og komi að minnsta
kosti 300 milljónir á Kópavogsbæ.
Sigurður segir enga ástæðu til að
breyta þessum áformum.
Kristján Þorvaldsson