Pressan - 18.07.1991, Side 16
16
,'ITUDAGUR PRESSAN 18. JÚLÍ 1991
FJÖLMIÐLAR
Slúöur og hálfkveönar vísur
Ásgeir Friðgeirsson skrifar
vikulega hugleiðingar sínar á
fjölmiðlasíðu Morgunblaðs-
ins. Reyndar gerir Ásgeir
meira af því að þýða brot af
erlendri umræðu um fjöl-
miðla en leggja mikið til sjálf-
ur. Framlag hans er aðallega
fólgið í hálfkveðnum vísum
þar sem hann ýjar að því að
„sum blöð“ hérlendis séu
litlu betri eða jafnvel verri en
þau erlendu blöð sem þýdda
greinin fjallar um.
Nú síðast var Ásgeir að
skrifa um uppdiktað viðtal
ísraelskrar útvarpsstöðvar
við Norman Schwarzkopf, en
bætti við að „sum blöð" á ís-
landi sæju ástæðu til að við-
halda gróusögunni með því
að birta sífellt smáfréttaslúð-
ur. Auk þess rakti hann sögu
einhvers bissnessmanns sem
sagt var að væri á leið á haus-
inn og hefði síðan lent á hon-
um. Ekki vegna þess að biss-
nessmaðurinn stæði illa held-
ur vegna þess að lánardrottn-
ar hans hefðu dregið að sér
hendurnar þegar fréttir bár-
ust um kröggur hans.
í PRESSUNNI birtist svo-
kallað slúður. Nafngiftin er
ekki okkar heldur hafa þess-
ar smáfréttir verið kallaðar
slúður frá því Helgarpóstur-
inn hóf göngu sína 1979. Við '
á PRESSUNNI höfum sætt
okkur við þessa nafngift og
ekki reynt að berjast gegn
henni. Það er ekki vegna þess
að við lítum á smáfréttirnar
sem slúður. Slúður er ósann-
indi. Það eru smáfréttirnar
okkar ekki.
Ef bissnessmaður á í krögg-
um segjum við hins vegar frá
því. Og auðvitað bregðast
þeir misjafnlega við. Það er til
dæmis mjög algengt að þeir
saki okkur um ófarirnar.
Hengi boðbera illra tíðinda.
En eitt reynum við að forð-
ast, á sama hátt og við reyn-
um að greina ekki rangt frá
hlutum, en það er að ýja að
hinu og þessu. Við segjum
ekki að sumir hafi nú gert sitt-
hvað og séu svona og svona.
, Þar skilur á milli okkar og
Ásgeirs Friðgeirssonar._____
Gunnar Smári Egilsson
„Byggingin stendur undir nofni
og vekur hughrif gleðinnar. Hún
opnar augu okkar enn frekar
ffyrir fegurð borgarinnar, sem er
til að effla ættjarðarúst og
útthagatryggð."
1 SÉRA ÞÓRIR STEPHENSEN VIÐ BLESSUN PERLUNNAR.
préSSBR
Útgefandl:
Blað hf.
Framkvæmdastjóri:
Hákon Hákonarson
Ritstjórar:
Gunnar Smári Egilsson,
Kristján Þorvaildsson.
Auglýsingastjóri:
Hinrik Gunnar Hilmarsson.
Ritstjórn. skriístoíur og
auglýsingar: Hverfisgötu 8-10, sími
62 13 13. Faxnúmer: 62 70 19.
Eftlr lokun sklptlborós:
-Ritstjórn 621391. dreiíing 621395,
tæknideiid 620055.
Áskriftargjald 550 kr. á mánuöi.
Verö í lausasölu 170 kr. eintakiö.
Veiðileyfagjald
Nú virdist margt benda til að flestir
ráðherrar ríkisstjórnarinnar séu að
fallast á að taka upp veiðileyfagjald.
Helsti andstæðingur þess innan
stjórnarinnar er Þorsteinn Pálsson
sjávarútvegsráðherra. Á undanförn-
um mánuðum hefur hann trekk í
trekk látið hafa eftir sér ummæli þar
sem hann leikur sér að því að láta líta
út fyrir að veiðileyfagjald sé skattur á
bágstaddan sjávarútveginn. Þor-
steinn bregður þessum blekkingum á
loft til að vernda hagsmuni skjólstæð-
inga sinna. Þeir eru forsvarsmenn
fyrirtækja í sjávarútvegi en ekki fólk-
ið í landinu, í hvers umboði Þorsteinn
starfar.
Veiðileyfagjald snýst ekki um skatt-
heimtu. Með því að taka það upp er
hægt að lagfæra eitt helsta mein ís-
lensks efnahagslífs. Ef gengi krón-
unnar yrði fellt um til dæmis 15 pró-
sent og samhliða sett á 10 prósent
veiðileyfagjald stæði sjávarútvegur-
inn á sama stað eða betri á eftir. Aðrar
atvinnugreinar mundu hins vegar fá
þá vítamínsprautu sem þær þurfa til
að tryggja þjóðinni þau lífskjör sem
sjávarútvegurinn stendur ekki lengur
einn undir. í framtíðinni er síðan
hægt að hækka og lækka veiðileyfa-
gjaldið í takt við afkomu sjávarút-
vegsins. Uppsveifla í sjávarútvegi
mun því ekki drepa aðrar útflutnings-
og samkeppnisgreinar, eins og gerst
hefur reglulega á mörgum undan-
förnum áratugum. Þetta er ein af
helstu ástæðum þess að sjávarútveg-
urinn er jafndrottnandi í íslensku at-
vinnulífi og raun ber vitni. Hann hef-
ur einfaldlega slegið allt annað at-
vinnulíf kalt með reglulegu millibili.
Leiðin út úr þessu er upptaka veiði-
leyfagjalds.
. ÍSLAND VERÐUR KJURRT
„fsland mun áfram gegna
mikilvægu varnarhlutverki í
framtíðinni. Landið mun
hcilda sinni pólitísku stöðu
sem miðdepill milli
Bandaríkjanna og Evrópu í
þessu sambandi."
Manfred Wörner framkvæmdastjóri
NATO.
'Vrxn firúL eáái fietta. iem
SttíMyúntun {). oeupli?
„Svín eru mjög vanmetin.
Þau eru afar greind og þeirra
stærstu mistök voru að láta
manninn gera sig að
húsdýri."
Robert Mugford dýrasáltræðingur.
3ortfargtióragúririr
Áýðir á kifflana
„Það er dásamlegt að enda
ferilinn með þessum hætti.
Hér eru mörg hundruð
manns viðstaddir og segja
má að húsið sé fullkomnað."
Davfð Oddsson fyrrverandl
borgarstjóri.
Umræðumálaráðherra
„Við ætlum að fara á svæðið
og ræða við fólk. Einnig er á
dagskrá að fljúga yfir
svæðið.“
Eiður Guðnason
umhverfismálaráðherra.
Það á ekki að
dreifa góðu tapi
„Ég vildi sjá fyrirtækið áfram
í þeirri mynd sem það er, ég
er á því að fyrirtæki í þessum
iðnaði, eins og fiskiðnaði
almennt, eigi frekar að vera
stór en smá.“
Jón Reynir Magnússon
tramkvæmdastjóri Síldarverksmiðja
rfklslns.
„Þessir strákar eru mjög
sóðalegir í umgengni og illa
lyktandi og þeir líkjast ekki
skátum að því leyti.“
Úlfar Jonsson Ibgregluvarðstjórí á
Egílsstöðum.
Námsmennirnir
Námsmenn héldu á dögun-
um útifund til þess aö and-
mæla breytingum á lánskjör-
um úr Lánasjóði íslenskra
námsmanna. Sannleikurinn
er hins vegar sá, að námslán
eru hér á Islandi komin langt
fram úr því, sem talist geti
hófsamlegt. Námsmenn eru
að verða forréttindastétt, og
hávaðinn í þeim minnir
stundum helst á hrín í dekur-
börnum, svo að vitnað sé í
fleyg orð Jóns Baldvins
Hannibalssonar.
Lárus Jónsson, stjórnarfor-
maður Lánasjóðs íslenskra
námsmanna, benti á það í
Morgunblaðinu 12. júní síð-
astliðinn, að fyrrverandi
menntamálaráðherra, Svav-
ar Gestsson, hefði komið fyr-
ir tímasprengju í sjóðnum.
Svavar bætti lánskjör sífellt
án þess að útvega neitt fé til
þess úr ríkissjóði. Lánasjóð-
urinn varð fyrir vikið að taka
fé að láni á 6—9% vöxtum til
þess að endurlána náms-
mönnum það vaxtalaust.
Með þessu hugðist Svavar
kaupa sér atkvæði náms-
manna. Reikninginn áttu ein-
hverjir aðrir að greiða ein-
hvern tíma.
Núverandi menntamála-
ráðherra, Olafur G. Einars-
son, er að reyna að aftengja
þessa tímasprengju með því
að færa lánskjörin nær veru-
leikanum. Kjarni málsins er
þó ekki bókhald Lánasjóðs-
ins, heldur til hvers má ætlast
af almennum skattgreiðend-
um.
Ekki virðist teljandi ágrein-
ingur um það, að enginn skuli
hverfa frá framhaldsnámi
vegna fjárskorts, sé hann
hæfur til þess að stunda það.
En þessu markmiði má ná án
þess að ausa svo fé í náms-
menn, að við háskólakennar-
ar komumst varla að skrif-
stofum okkar fyrir bílum
stúdenta. Ég nefni nokkrar
hugmyndir um breyttar regl-
ur.
í fyrsta lagi er fráleitt að
veita öðrum lán eða styrki en
þeim, sem sýna full afköst í
námi. Ella eru skussarnir
verðlaunaðir eða menn öllu
heldur hvattir til að gerast
skussar.
í öðru lagi ber að skilja
styrki frá lánum. Nú er rúmur
helmingur námslána að með-
altali styrkur, en tæpur helm-
ingur raunverulegt lán. Þar
eð ekki er greint á milli styrks
og láns hneigjast menn til
þess að taka allt lánið.
í þriðja lagi á að tengja
styrkina námsárangri og tak-
marka tölu þeirra. Það er
ólíkt mannúðlegra en að tak-
marka tölu nemenda (numer-
us clausus): Menn eiga til
dæmis að fá að stunda leik-
listar- eða læknanám, þótt
þeir séu ekki í hópi útvalinna,
en þá á eigin kostnað.
Hamhleypa í hamskiptum
Nú hafa kratar beitt Guð-
rúnarbragðinu á kjaftaskinn
Össur Skarphéðinsson. Eins
og allir vita hafði Guðrún
Helgadóttir verið mjög
óþekkur þingmaður í ein tíu
ár þegar hún var gerð að for-
seta Alþingis. Við það rann af
henni öll óþekkt. Hún varð
stilltust þingmanna.
Svipaða sögu er að segja af
Össuri eftir að hann var gerð-
ur að formanni þingflokks
krata. Eftir að hafa verið al-
þýðubandalagsmaðurinn í
kratahópnum í stjórnar-
mynduninni og andstæðing-
ur viðreisnar er Össur nú orð-
inn kaþólskari en páfinn.
Hann er orðinn öfgafyllri
hægrikrati en sjálfur Jón Sig-
urðsson.
En kannski hefur Össur
ekki þurft á Guðrúnarbragð-
inu að halda til að taka ham-
skiptum. Pólitískur ferill hans
hefur verið saga slíkra ham-
skipta og í raun liggur púpan
I fjórða lagi má veita lán á
markaðskjörum samhliða
slíkum styrkjum. Eðlilegt er,
að bankar annist það, þótt
hið opinbera taki hugsanlega
að sér að ábyrgjast endur-
greiðslu slíkra lána með svip-
uðum hætti og húsbréf.
í fimmta lagi er brýnt að
taka upp skólagjöld í Háskóla
íslands og öðrum framhalds-
skólum. Þeir, sem fá mennt-
unina, eiga að greiða fyrir
hana, en ekki hinir, sem ekki
fá hana. Stúdentar munu þá
líka leggja harðar að sér.
Námsmenn mega aldrei
gleyma því, að hagsmunir
þeirra sem námsmanna eru
aðeins tímabundnir, en hags-
munir þeirra sem skattgreið-
enda varanlegir.
af Össuri um allt á vinstri
væng stjórnmálanna.
Það er til dæmis erfitt að
ímynda sér að Össur sé sá
hinn sami Össur og hélt jóm-
frúarræðu sína á þingpöllum
fyrir um fimmtán árum, reið-
ur, heitur og tindrandi for-
maður Stúdentaráðs. Nú situr
annar Össur niðri í gryfjunni
og samþykkir niðurskurð á
framlögum til námsmanna.
Ef ekki í orði þá í þögninni.
Og sömu leið hafa her-
námsandstaðan og allir aðrir
fylgihlutir allaballans farið.
Honum virðist meira að segja
standa á sama um verkalýðs-
hreyfinguna og dugleysi
hennar, en það var helsti
óvinur hans sem ritstjóra
Þjóðviljans um árið.
Og einhver hamskipti hef-
ur það kostað gamla allaball- -
ann að innleiða prófkjörsbar-
áttu í sjálfstæðismannastíl í
Alþýðuflokkinn. Um áramót-
in veggfóðraði Ámundi
Ámundason bæinn með pla-
kötum af Össuri svo rótgrónir
kratar héldu að Cirkus Arena
væri að koma í bæinn. En
það og samkomulag við
B-listamenn í Dagsbrún (sem
síðar varð ekkert úr) tryggði
Össuri þingsætið.
Eitthvað hlýtur það að hafa
kostað.
En metnaður Össurar var
dýrmætasta framlagið. Og
sjálfsagt hefðu kratar misst
þingsætið ef hamhleypan
Össur hefði ekki komið með
þennan metnað. Það sýndi
sig í baráttunni í Reykjavík að
það þarf hungraða menn til
að standa í kosningabaráttu.
Gömlu brýnin, Jón Baldvin
og Jóhanna, eru fyrir löngu
orðin of södd fyrir kosningar.
En nú er Össur á beinni
braut. Hann mun smátt og
smátt öðlast frekari völd. Og
þegar hann hefur fengið þau
mun hann fara með þau eins
og aðrir hamskiptamenn.
Hann mun fyrst og fremst
halda þeim.
ÁS
\ifVf\N U&i SZ Bi/Uí tiáfjfJS
rÁiPÁPSTÖFMUAJ í APfcfKU
P- HAMA/ öEPUP- iNM -
rPÞU/U fTfAMGA BiLP
MTAK/WaM
jpETTÁ e8 Fíhá l/f;í>! K HéfíNA v»wiAp KeyPrw
Nr SEÞLuáI oo A€)RA FI&KlM1
ALLifL ELSW '
bEp.
eeu MCLftA AÐ SEC3A Ab PEiíA
þe&AB. wmm&m styttur. mcr t/l H&Þiœs