Pressan - 18.07.1991, Side 18
18
FIMMTUDAGUR PRESSAM 18. JÚLÍ 1991
smaa
letrið
Nú er Islandsmótið i knatt-
spyrnu nákvæmlega hálfnað
ug Fram er i efsta sæti með 19
stig en Vesturbæjarljónin i KR
eru aðeins einu stigi á eftir. i,
fyrra voru Valsmenn i efsta
sæti þegar 9 umferðum var lok-
ið, einmitt með 19 stig, og
KR-ingar voru þá lika með 18
stig. Fram lúrði i þriðja sæti
með 16 en varð engu að siður
íslandsmeistari þegar upp var
staðið: Fékk 38 stig. Það fengu
KR-ingar líka en töpuðu á
markahlutfalli. Valur hrapaði
hins vegar niður i fjórða sæti.
(ÍBV náði þá þriðja sætinu.) í
hittifyrra, árið 1989, voru Vals-
menn líka I efsta sæti eftir
hálfnað mót en Fram, FH, KA
og KR fylgdu fast á eftir. Og þá
náðu Akureyringar islands-
meistaratitlinum en Valur end-
aði i fimmta sæti. (Væri
kannski rétt að stytta íslands-
mótið fyrir Valsarana?) Ef við
bökkum enn eitt ár aftur í tim-
ann, til 1988, sjáum við að lín-
urnar voru mjög skýrar. Fram
var langefst eftir 9 umferðir
með 25 stig, hafði unnið átta
leiki og aðeins gert eitt jafntefli.
Valsarar vpru i öðru sæti með
17 stig og ÍA (lið i annarri deild)
var þá i þriðja sæti. Þessi röð
breyttist ekkert, ekki einu sinni
þótt Valur ynni tólf leiki i röð.
Svekkjandi, maður!
En mörkin? Núna er Hörður
Magnússon úr FH á mikilli sigl-
ingu og hefur skorað 7 mörk,
eins og Steindór Elison Breiða-
bliki. Guðmundur Steinsson
er skammt undan með 6 mörk.
Þegar mótið var hálfnað i fyrra
voru þeir Guðmundur og Hörð-
ur báðir búnir að skora 6 mörk
en Hörður var drýgri í seinni
hlutanum og varð markakóng-
ur með 13 mörk. Guðmundur
og Ragnar Margeirsson úr KR
komu næstir með 10. Hörður
og Guðmundur hljóta að hafa
fastan kvóta þvi ihittifyrra voru
þeir lika báðir búnir að skora 6
mörk eftir 9 umferðir. Þá vann
Hörður líka, með 12, en Guð-
mundur skoraði alls 9, eins og
Pétur Pétursson úr KR.
Annars er Guðmundur að
nálgast hundrað marka múr-
inn. Hann er búinn að skora 86
mörk i fyrstu deild. Efstur frá
upphafi er þingmaður Reykvík-
inga, Ingi Björn Albertsson,
sem skoraði alls 109 mörk. Nú
þjálfar hann Valsara og þeim
gengur einmitt bölvanlega að
koma tuörunni i netið. Kannski
fer Ingi Björn að dusta rykið af
takkaskónum?
En nú stefnir semsagt i ein-
vigi Fram og KR.Þáerágætt að
vita þetta: Fram hefur til þessa
leikið 603 leiki i fyrstu deild.
unnið 267, gert 138 jafntefli en
tapað 198 sinnum. Liðið hefur'
skorað 1.034 mörk en fengið á
sig 916. KR hefur leikið alls 611
leiki, unnið 262, gert 161 jafn-
teflien tapað 188 sinnum. Fram
hefur þannig örlitið forskot á
Vesturbæingana. Eitt enn:
Stærsta deildartap KR i sam-
anlagðri sögu félagsins var
gegn Fram. Það var rótburstið
mikla, eða hrunið eins og
gamlir KR-ingar kalla leikinn
þegar Fram vann KR 7—0. Það
var að visu árið 1922 en sárin'
eru ekki að fullu gróin ennþá...
Tvifarakeppni PRESSUNNAR
— 4. hluti
Tvifarar vikunnár eru tveir al-
íslenskir alvörugefnir menn:
Kristinn Sigtryggsson og Jó-
hann Ársœlsson. Kristinn lenti
Arnarflugi en er nú kominn i
poppbransann, en Jóhann er
þingmaður gleðiflokks Alþýðu-
bandalagsins. Þeir eru báðir
langleitir, með skeggkraga og
dreymandi augnar: i og vottar
fyrir skáldlegum trega i fasi
þeirra.
Þaö er rökkvað inni á
staðnum en innrétting-
arnar eru í bandarískum
sveitastíl. Gömul vagnhjól
lýsa upp loftin og á stól-
unum eru þykkir feldir.
Frá hljómsveitinni fram-
an við lítið dansgólf
hljómar bandarísk sveita-
tónlist og seiðandi rödd
Önnu Vilhjálmsdóttur
læsir sig um hjörtu við-
staddra. Á dansgólfinu
líður fólk áfram í þröng-
um gallabuxum með kú-
rekahatta. Hér er enginn
að reyna að vera tiltölu-
lega gáfaður eða smart,
lífið líður áfram eins og í
sápuóperu og allir eru
stjörnur sem það vilja á
annað borð.
Sendiferðabílstjóri,
iklæddur gallabuxum og
/Cánfathji
gi&r ÍDMila.gtr&tina.
Ingþór og Kalla Lóa, gestgjafar í Borgarvirkinu, ásamt Olgu Dís kántrísöng
konu sem stendur hægra megin viö barinn.
yarúað
Þóra Kristín Ásgeirsdóttir
hálfermabol, líður um gólfið
með skrifstofustúlku í fang-
inu. Hann hvíslar að stúlk-
unni að hann eigi heima á
Hvolsvelli, enda er sögu-
sviðið ekki Nashville, höfuð-
borg sveitatónlistarinnar,
heldur Borgarvirkið,
skemmtistaður við Banka-
strætið í Reykjavík.
Það er ekki ýkja langt síð-
an Hallbjörn Hjartarson á
Skagaströnd ætlaði að inn-
leiða kántrí í íslenska þjóð-
menningu og tókst það
næstum því með sínu eigin
sniði. Þjóðin taldi ekki eftir
sér að tralla við Lukku-Láka
og fleiri sveitasöngva ætt-
aða af Skagaströnd og
Kántríbær Hallbjarnar vakti
stormandi lukku hjá öllum
nema Skagstrendingum,
sem í smásálarskap sínum
létu illa af staðnum.
LÍKT OG SLITIÐ ÚR
ÚTLENDU BRJÓSTI
Undanfarin ár hefur orðið
bylting í skemmtanalífi ís-
lendinga. Hvarvetna spretta
upp nýir skemmtistaðir eins
og gorkúlur og bráðum þarf
íslenska þjóðin að vera á
stanslausu fylleríi til að
halda uppi öllu heila batter-
íinu. í menningarmálum
þjóðarinnar vinnast ótrúleg-
ustu stórvirki, eins og þegar
Halli sagði við Gumma vin
sinn: „Heyrðu ég fékk rosa-
lega frumlega hugmynd."
Gummi vinur sagði: „Hver
er hún?“ „Við ættum að
stofna skemmtistað," svaraði
Halli og saman stofnuðu
hinir óbilandi bjartsýnis-
menn Gummi og Halli
skemmtistað. Það fylgir því
aðeins ein þraut að stofna
skemmtistað. Þeir þurfa að
vera skemmtilegir og nú
hefur þjóðin leikið lausum
hala innan um leöjuslag,
nærfatasýningar, fegurðar-
samkeppnir, blautbols-
keppnir, dragdrottningar,
rokkhátíðir, blús og nú síð-
ast kántrídansa og kántrí-
tónlist. Líkt og Doddi væri
alltaf í Leikfangalandi velt-
ast Reykvíkingar áfram inn
og út af skemmtistöðum og
ekkert lát virðist ætla að
verða á skemmtanafíkn
borgarbúa.
Gestir hins nýja kántrí-
staðar Borgarvirkisins hafa
engu frekar við kántrímenn-
inguna að bæta. Þeir teyga
hana af stút og innihaldið
rennur ljúflega niður kverk-
arnar. Og kántríhjartað það
slær í Borgarvirkinu líkt og
slitið úr útlendu brjósti. ..
nafn sem sveitasöngkona í
Maine. Það var þarna gefin
út plata með upprennandi
sveitasöngvurum og ég
söng eitt lag á þeirri plötu.
Upp úr því var mér boðið
að taka þátt í keppni milli
efnilegra sveitasöngvara í
borginni New Hampshire.
Þá sló maðurinn minn í
borðið og bannaði mér að
fara.
soT'%^ ha„s
ÓnnJ'te',' ^efst Tue Ne<-
l,ne á sin.
úm
tirn a.
Þegar Anna fór fyrst til
Bandaríkjanna, tuttugu og
fimm ára gömul, varð hún
svo fræg að gera fimmtíu
ára útgáfusamning við
bandaríska fyrirtækið MGM.
Skömmu eftir það skildi
leiðir hennar og umboðs-
mannsins og Anna fór aftur
til Islands. Samkvæmt því er
Anna Vilhjálms samnings-
bundin MGM þar til hún er
sjötíu og fimm ára gömul.
„Þeir ætluðu að gera úr
mér kántrístjörnu, breyta á
mér nefinu og lita á mér
hárið," sagði Anna. „Mér
var líka uppálagt að vera
góð við þennan og hinn. Ég
vildi hinsvegar frekar halda
í gamla nefið mitt og vera
kántrístjarna á Islandi. Ég
reyndi því ekki að hafa uppi
á umboðsmanninum þegar
ég fluttist til Bandaríkjanna
og sé ekki eftir því. Ég var
einfaldlega ekki tilbúin að
fórna prinsippmálum mín-
um í skiptum fyrir þetta."
„Það hefur engum ís-
lenskum stað tekist að
skapa þessa stemmningu
sem Borgarvirkið hefur gert
núna. Hótel ísland ætlaði að
reyna þessa sömu hluti, en
mistókst, enda reyndu þeir
ekki til hlítar að skapa við-
eigandi stemmningu. Við
vildum til dæmis fá hnakk
og búninga til að fá rétt
andrúmsloft inn á staðinn.
Borgarvirkið er tvímæla-
laust sveitalegasti staðurinn
í bænum," sagði Anna Vil-
hjálms að lokum.
„Það var bara að kýla á
kántrí,“ sögðu þau Ingþór
Björnsson og Kalla Lóa
Karlsdóttir í samtali við
PRESSUNA. Þau hjónin reka
staðinn og breyttu honum í
núverandi horf. Ingþór átti
áður hlut í veitingahúsinu
Argentínu, en seldi þann
hlut og keypti Borgarvirkið
ásamt chileskum vini sín-
um. Vinurinn dró sig síðan í
hlé og þau hjónin eru nú
einu gestgjafarnir í Borgar-
virkinu.
Kalla Lóa lætur sig síðan
ekki muna um að hlaupa
frá afgreiðslustörfunum og
syngja nokkur lög ef því er
að skipta:
„Þetta hófst i raun þannig
að ég fór að hlusta á kántrí-
þætti í útvarpinu og fannst
margt af því efni sem ég
heyrði mjög gott,“ sagði Ing-
þór. „Það stendur þessu þó
fyrir þrifum hve erfitt er að
nálgast góða kántrítónlist
hér uppi á íslandi. Áhuginn
er til staðar hjá fólki; það
höfum við fundið mjög
glöggt þennan rúma mánuð
sem kántríböllin hafa verið.
Við tókum síðan þá stefnu
list sem höfðar til allra ald-
urshópa. Það er líka eins og
fólk taki svo miklu beinni
þátt í tónlistinni. Þetta er
ekki bara fyllerí heldur er
fólk meðvitað að skemmta
sjálfu sér. Þetta gerir það að
verkum að við fáum betra
og huggulegra fólk á kántrí-
kvöld en annars."
Það liggur nú eiginlega
beint við að spyrja Köllu
Lóu hvenær hún hafi farið
að syngja sveitatónlist?
„Ég er betri djasssöng-
kona en kántrísöngkona og
það er tiltölulega stutt síðan
ég uppgötvaði kántrí. Kántrí
er ekki lengur jafn sér-
bandarískt og það var. Þetta
er orðið meira evrópskt, til
dæmis
kántrírokk og
kántrídjass;
þetta hefur alls
kyns sveiflur
og útúrdúra."
Hefur
Hallbjörn
Hjartarson
sveitasöngvari
komið og litið
á þennan nýja
Kántríbæ?
„Take Me Home Country Road.
að hafa lifandi tónlist. Anna
Vilhjálms hefur verið aðal-
söngkona staðarins ásamt
kántríbandinu."
HALLBJÖRN í
KÚRTEISISHEIMSÓKN
„Anna er toppmanneskja
og hefur allt sem þarf til að
syngja gott kántrí," sagði
Kalla Lóa. „Röddin hennar
er eins og sköpuð til að
syngja þessa tónlist. Það
verður ekkert annað en
kántrítónlist hér í framtíð-
inni og uppákomur henni
tengdar, til dæmis kántrí-
dansar. Ég held að fólk sem
hefur ekki enn uppgötvað
kántrí finni líka eitthvað fyr-
ir sig. Þetta er þægileg tón-
„Hann hefur aðeins einu
sinni komið hingað og þá
ásamt Johnny King. Hall-
birni fannst staðurinn ágæt-
ur að vissu marki en gerði
ýmsar athugasemdir. Eg
held að þessi staður bjóði
tvímælalaust upp á bestu
sveitasöngkonu á íslandi
þar sem Anna Vilhjálms er
og þar gæti enginn Hall-
björn komið í staðinn,"
sagði Ingþór að lokum.
KANARNIR KVÖDDU
ÖNNU MEÐ TÁRUM
„Ég syng ýmist sveitatón-
list eða rokk. Sveitatónlistin
stendur þó hjartanu næst
núna, en í henni fæ ég svo
mikla útrás fyrir tilfinning-
Tvær vinkonur á góðri stundu.
arnar," segir Anna Vil-
hjálms, fyrsta og tvímæla-
laust besta sveitasöngkona á
íslandi, en Anna byrjaði að
syngja sveitatónlist í her-
mannaklúbbum á vellinum
1970.
„Það er alltaf viss staður
uppi á velli þar sem ein-
göngu er leikin sveitatónlist
og það er alltaf ein hljóm-
sveit eingöngu í því. Á þess-
um tiltekna stað logaði allt-
af allt í slagsmálum og eng-
in kona mátti koma þar inn
fyrir dyr. Ég var þar undan-
tekning, því að þegar ég
söng sátu þeir hljóðir eins
og englar og hlustuðu á tón-
listina. Þegar ég hætti að
syngja á vellinum og fluttist
til Bandaríkjanna á sínum
tíma kvöddu þeir mig með
tárum og færðu mér gjafir.
Á þessum stað, þar sem ég
söng fimm kvöld í viku,
kynntist ég bæði manninum
mínum og sveitatónlist.
Ég fluttist til Maine ásamt
bandarískum eiginmanni
mínum. Fyrst vann ég bara
heima og fór þá gjarnan á
milli veitingahúsa og fékk
að syngja eitt og eitt lag.
Þannig komst ég í hljóm-
sveit og tókst að skapa mér