Pressan - 18.07.1991, Side 19
FIMMTUDAGUR PRESSAN 18. JÚLÍ 1991
19
h
Athugasemd
frá alþýdu-
flokksmönnum
á Reykjanesi
Athugasemd hefur borist frá al-
þýðuflokksmönnum á Reykjanesi
vegna skrifa í blaðinu í síðustu viku
um kostnað vegna kosningabarátt-
unnar í vor. Þar var haft eftir heim-
ildamanni að kostnaður hefði num-
ið um 14 milljónum króna. I athuga-
semdunum til PRESSUNNAR er
þessu vísað á bug og sagt nærri lagi
að kostnaður hafi verið á bilinu 6 til
7 milljónir króna, að öllu meðtöldu.
Athugasemd
blaöamanns
Eins og fram kom í grein PRESS-
UNNAR voru mjög traustar heimild-
ir fyrir því hvað kosningabarátta Al-
þýðuflokksins á Reykjanesi kostaði,
eða 14 milljónir. Svo virðist sem
þeim alþýðuflokksmönnum sem
gera athugasemd við þá upphæð sé
ekki kunnugt um tilkostnað ein-
stakra flokksfélaga, t.d. í Hafnar-
firði, Kópavogi, Keflavík og víðar.
Eftir að athugasemdin barst blaða-
manni hafa fleiri traustir heimilda-
menn, m.a. innan flokksins í kjör-
dæminu, staðfest að tala PRESS-
UNNAR, 14 milljónir, sé mjög nærri
lagi þegar allt er talið.
Hrafn Jökulsson
T
M. ímabilið 1986 til 1988 í ævi
Stöðvar 2 ætlar að verða öðrum
tímabilum frægara hjá skattinum.
Er rætt um að stjórn-
endur fyrirtækisins
á þessum tíma verði
dregnir til ábyrgðar
fyrir vantalda sölu-
skattsveltu. í upp-
hafi voru eigendur
og stjórnendur
Stöðvar 2 eftirtaldir einstaklingar:
Jón Óttar Ragnarsson, Hans
Kristján Árnason, Eyjólfur K.
Sigurjónsson endurskoðandi,
Anna S. Pálsdóttir, Unnur Frið-
jónsdóttir, Ólafur H. Jónsson,
Björg Erlingsdóttir og Aldís Elfa
Gísladóttir. Eyjólfur og Unnur
seldu sinn hlut 1987 en 1988 kom
meðal annars Páll G. Jónsson inn
í fyrirtækið um sinn .. .
A
X m.ftur og aftur hafa komið upp
umræður um að erlendir aðilar séu
að eignast kvóta hér á landi. Það
nýjasta í því sambandi er orðrómur
um að í ársreikningum þeirra er-
lendu fyrirtækja sem kaupa fersk-
fisk héðan megi sjá furðulegar
færslur fyrir útistandandi viðskipta-
skuldum á íslandi. Er því haldið
fram að með því að lána útgerðar-
fyrirtækjum hér heima til að kaupa
kvóta hafi fyrirtækin tryggt sér hrá-
efni á hagstæðu verði. Þetta mun
helst vera hjá fiskkaupendum í Eng-
landi og nema „kvótakaupin" allt að
300 milljónum króna hjá því fyrir-
tæki sem lengst hefur gengið í þessa
átt...
D
JJlaðadeilur geta stundum tekið
á sig einkennilega mynd. Fyrir
skömmu brá Ólafur Sigurðsson
matvælafræðingur
sér fram á ritvöllinn
og skrifaði lærða
grein gegn Seltzer-
drykknum, sem Sól
hf. framleiðir. Gagn-
rýnir hann auglýs-
ingaskrumið í kring-
um markaðssetningu drykkjarins.
Nú vill svo til að Davíð Scheving
Thorsteinsson, forstjóri Sólar,
heldur því fram að áðurnefndur Ól-
afur hafi boðið þjónustu sína í þágu
Sólar á ritvellinum. Þegar því var
hafnað fór Ólafur bara til Ölgerðar-
innar. Nú vakna spurningar um það
hvort við erum að eignast „mat-
vælamálaliða"...
v
▼ innuhraðinn hjá skattrann-
sóknarembættinu hefur oft vakið
athygli. Nú síðast í Stöðvar 2-mál-
inu, en þegar niður-
stöður birtust núna
um daginn hafði tek-
ið embættið þrjú ár
að fá þær — rann-
sóknin hófst í októ-
ber 1988. Það er
ekki nema von að
þeir Stöðvar 2-menn séu lítt spennt-
ir fyrir þeirri hugmynd að eiga að
fara að greiða dráttarvexti af þessu
tímabili. Þykir mörgum tímabært
að Garðar Valdimarsson, skatt-
stjóri og fyrrverandi skattrannsókn-
arstjóri, fari að herða á sínum
mönnum...
því tímabili sem skattrann-
sóknar-embættið hefur gert athuga-
semdir við hjá Stöð 2 unnu æði
margir sem fjár-
málastjórar hjá fyr-
irtækinu. Fyrstur í
röðinni var Hans
Kristján Árnason
en síðan var Ólafur
H. Jónsson „fjár-
hagsstjóri". Þá var
komið að Sigurði Kolbeinssyni að
gegna embætti fjármálastjóra, en
það var síðan Jón Sigurðsson sem
leysti hann af hólmi í lok árs
1988...
IV!
1T Aikið hefur borið á Magnúsi
Jóhannessyni siglingamálastjóra
undanfarið. Það er kannski ekki
nema von, því hann
hefur nánast gegnt
tveimur embættum.
Hann hefur verið
gerður að aðstoðar-
manni Eiðs Guðna-
sonar umhverfis-
ráðherra en
er ekki búinn að skila af sér starfi
siglingamálastjóra. Það mun hann
gera fljótlega og hefur verið ákveð-
ið að Páll Hjartarson taki við starf-
inu . ..
OPNUM
FÖSTUDAGS
BRAUÐSTOFA
SEM
BÝÐUR BETUR
Útbúum nestispakka
fyrir starfsmannahópa,
stóra sem smáa.
Pantið tímanlega.
Kaffihlaðborð frá kr. 840,-
pr. mann.
Cockteilhlaðborð frá kr. 510.-
pr. mann.
Kaffisnittur kr. 68.-. Cockt-
eilsnittur kr. 58.-.
Partýsneiðar kr. 250,-. Kransa-
tertur — Rjóma- og marsi-
pantertur o.fl. o.fl.
Tökum að okkur veislur við
öll tækifæri.
Vandað hráefni og vinna.
10% afsláttur af
brauðtertum til 1. sept.
BFIAUÐSTOFAN
Gleym mér ei
Nóatúni 17 . Sfmi 15355 . Sími eftir lokun 43740
KVÖLD
KLAPPARSTÍG 30
NÝR BAR
Á GÖMLUM
GRUNNI
•
KOMDU OG
KÍKTU
•
vennehilsen
SVENNI / TOMMI
VINNINGSHAFAR í
PRESSU-LOTTERÍI
Dregid hefur verid í fyrri-
hluta PRESSU-lotterís sölu-
barna. Eftirtaldir fengu vinn-
ing:
Lárus ívarsson hreppti
Lynx-ferðatölvu, Ásgeir Ótt-
ar Ásgeirsson fékk fjaliahól,
Ásberg Jónsson fékk reið-
námskeið í Geldingahoiti,
Jón Guðmundsson fékk
tveggja vikna dvöl í sumar-
búðum á Úlfljótsvatni og Di-
ana-íþróttatösku, Einar Niku-
lásson fékk hjólabretti og út-
tekt hjá Steinum upp á 2.500
krónur, Óli Kristján Jónsson,
Pétur Smári Tafjord og Ómar
Örn Björnsson unnu hjóla-
bretti, Ingvar Þór Guðjónsson
og Sveinn J. Einarsson fengu
úttekt hjá Tölvudeild Magna
fyrir 5.000 krónur, Jón Korn-
elíus Gíslason, Axel Tómas-
son og Karen Guðmundsdótt-
ir fengu úttekt hjá Steinum,
Hreggviður Steinar fékk 5
kassa af RC-Cola og Harry Jó-
hannsson fékk Diana-íþrótta-
tösku.
L'ORÉAL