Pressan - 18.07.1991, Page 30
Þetta var í raun hlaegilega
auðvelt, — segir Friðrik Sop-
husson fjármálaráðherra um
lausnina á vanda ríkissjóðs
Tillögur ríkisstjórnarinnar
í ríkisfjármálum
Símaskráin
seld á 150
þúsund krónur
— gefur 12 milljarða i aðra
hönd ef 80 þúsund eintök
seljast
Páll Kristjánsson er nú eftir-
lýstur af Interpol fyrir að hafa
keypt nafn Varsjárbandalags-
ins og tekið feiknarlegar upp-
haeðir að láni út á nafnið hjá
alþjóðabönkum.
íslenskur bissnessmaður
Keypti
leifarnar af
Varsjárbanda-
laginu og sló
milljónir
dollara út á
nafnid
— er nú leitað af alþjóöa-
gjaldeyrissjóönum
Gerður Unnarsdóttir, húsmóð-
ir á Stokkseyri, hefur fundið
gat á lyfsölukerfinu.
Sjötug kona á Stokkseyri
sneri á heilbrigðis-
ráðherra
Fékk sér kind
og keypti
sýklalyfin
át á hana
— fékk þrefalt verð lyfjanna
endurgreitt frá landbúnaðar-
ráðuneytinu
29. TÖLUBLAÐ 2. ÁRGANGUR
FIMMTUDAGURINN 18. JÚLÍ1991
STOFNAÐ 1990
HAFA SKAL ÞAÐ SEM BETUR HUÓMAR
HERINN ER FARINN
— munum krefja Bandaríkjamenn skýringa, — segir Jón Baldvin
Keflavík, 17. júlí
„Við munum þegar í stað
krefjast skýringa," sagði
Jón Baldvin Hannibalsson
utanríkisráðherra þegar
hann gekk um svæði varn-
arliðsins á Keflavíkurflug-
veili í morgun. Þar var allt
autt og yfirgefið en Lárus
Ragnarsson, trésmiður í
Keflavík, uppgvötvaði
þetta fyrr um morguninn
þegar hann ætlaði að fara
á öskuhauga varnarliðsins
að leita sér að einhverju
nýtilegu.
„Það eru margar vikur síð-
an ég kom hingað síðast,"
sagði Lárus. „Ég tel því að
herinn geti þess vegna hafa
farið einhvern tímann í maí
eða jafnvel fyrr.“
„Það er rétt að samgangur
okkar við varnarliðið hefur
stórlega minnkað eftir að
nýja flugstöðin var reist. Þá
var millilandaflugið skilið frá
starfsemi varnarliðsins. En ég
hefði ekki trúað því að
óreyndu að herinn gæti farið
án þess að nokkur tæki eftir
því,“ sagði Jón Baldvin.
Samkvæmt heimildum
GULU PRESSUNNAR eru get-
gátur uppi innan varnarmála-
skrifstofunnar um að banda-
ríski herinn hafi gert mistök
þegar hann flutti herliðið frá
Persaflóa heim. Það hafði
viðkomu hér og hugsanlegt
er að þeir hermenn sem voru
á Keflavíkurflugvelli hafi ein-
hvern veginn þvælst með í
heimflutningunum.
Lárus Ragnarsson trésmiður
uppgvötvaði að varnarliðið
var á bak og burt.
Steingrímur Hermannsson
Handtekinn á leiðtogafundinum
London, 17. júlí
„íslendingar verða að
leysa þetta vandamál
heima hjá sér. Vid lítum
það mjög alvarlegum aug-
um þegar við þurfum að
glíma við þetta við jafn við-
kvæmar aðstæður og eru á
leiðtogafundinum,“ sagði
George Kinley, aðstoðar-
yfirlögregluþjónn í Lund-
únum, eftir að lögreglan
hafði fjarlægt Steingrím
Hermannsson, fyrrver-
andi forsætisráðherra ís-
lands, út af fundi leiðtoga
sjö helstu iðnríkja heims.
Leiðtogarnir áttuðu sig á
nærveru Steingríms þegar
þeir stilltu sér upp fyrir
myndatöku að fundi loknum.
„Ég hélt að þessi maður
væri öryggisvörður eða túlk-
ur,“ sagði George Bush, for-
seti Bandaríkjanna.
I fréttatilkynningu ríkis-
stjórnar íslands eru leiðtog-
arnir beðnir afsökunar. Bent
er á að Steingrímur hafi verið
forsætisráðherra í fjölmörg ár
heima á íslandi og eftir kosn-
ingarnar í vor hafi farið að
bera á því að hann saknaði
starfsins.
Þegar lögreglan fjarlægði
Steingrím af fundinum kall-
aði hann á Gorbatsjov sovét-
leiðtoga til aðstoðar, en Gor-
batsjov var þá einmitt að
ganga til fundarins. Gorbat-
sjov ræddi stuttlega við Stein-
grím sem róaðist og féllst á að
ganga á brott með lögreglu-
þjónunum.
Steingrímur Hermannsson
var fjarlægður af fundi leið-
toga sjö helstu iðnrikja heims
Fiskifrœdingar gera at í ríkisstjórninni
FVLLT AF ÞORSKI ÚT VM ALLAN SJÓ
— þið hefðuö átt að sjá suipinn á Þorsteini, — segir Jakob Jakobsson fiskifrœðingur
Reykjavík, 16. júlí
„Þetta var nú bara létt
spaug hjá okkur,“ sagði
Jakob Jakobsson fiski-
fræðingur þegar hann
kynnti nýja skýrslu Haf-
rannsóknastofnunar. Sam-
kvæmt henni er nóg til af
þorski og flestum öðrum
fisktegundum.
„Það var hreint rosalegt að
sjá svipinn á Þorsteini þegar
við létum hann fá fyrri skýrsl-
una. Það hreinlega datt af
honum andlitið og um tíma
hélt ég að hann ætlaði að fara
að gráta," sagði Jakob, en
sem kunnugt er kynnti Haf-
rannsóknastofnun aðra
skýrslu fyrir rúmri viku þar
sem mælt var með umtals-
verðum samdrætti í veiðum.
„Ég verð að viðurkenna að
mér finnst þetta ekki fyndið,“
sagði Þorsteinn Pálsson í
samtali við GULU PRESS-
UNA.
„Ég hef ákveðið að loka
mötuneytinu á Hafrannsókn,
skera niður yfirvinnuna og
taka stimpilkiukku í gagnið.
Vonandi geta starfsmenn
stofnunarinnar hlegið að
því,“ bætti hann við.
Alþjóðleg keppni stjórnenda fyrirtœkja
F r amkvæmdasj óður
sló rækilega í gegn
Haag, ló. júlí
„Þessir menn eru
skáld,“ sagði Hans
Deitreckt, formaður
dómnefndar Alþjóðlegu
stjórnunarkeppninnar,
þegar hann veitti Þórði
Friðjónssyni, stjórnar-
formanni Framkvæmda-
sjóðs, sérstök verðlaun
dómnefndar fyrir
frammistöðu liðs Fram-
kvæmdasjóðs í keppn-
inni.
„Þar sem aðferðir liðs
Framkvæmdasjóðs eru jafn
óhefðbundnar og raun ber
vitni er ekki hægt að meta
frammistöðu þess á sama
mælikvarða og annarra. En
framganga þeirra bar vott
um skáldlega dirfsku, inn-
sæi og klókindi sem við
höfum ekki áður orðið vitni
að í þessari keppni," sagði
Deitreckt.
Þó Framkvæmdasjóður
hafi ekki náð langt í sjálfri
keppninni setti hann mik-
Þórður Friðjónsson og
Framkvæmdasjóður hlutu
sérstök verðlaun dóm-
nefndar í alþjóðlegri keppni
stjórnenda fyrirtækja.
inn svip á mótið. Hann varð
mjög fljótlega gjaldþrota en
sló þá lán hjá öðrum liðum.
Þegar upp var staðið hafði
hann dregið megnið af hin-
um keppendunum með sér
í gjaldþrotið, svo lið fær-
eyska bankalánasjóðsins
stóð eitt eftir. Það hreppti
því titilinn í ár.
Tölvur, prentarar, hugbúnaður, netbúnaður, samskiptakerfí, umbrotskerfi og alhliða þjónusta
MICROTOLVAN
Suðurlandsbraut 12 - sími 688944