Pressan - 18.07.1991, Síða 31
Til sölu VOLVO - VSK bíll, árg. 1990.
Ekinn 30 þúsund kílómetra.
Upplýsingar í síma 72965 og
símboda 984-50215.
FIMMTUDAGUR PttSSSAN 18. JÚLÍ 1991
Ninja Turtles eru komnar. Hinar snjöllu og skemmtilegu skjaldbökur
eru komnar aftur meö meira grín og fjör en nokkru sinni fyrr.
Myndin er aö gera allt vitlaust erlendis.
Takið þátt í mesta kvikmyndaæði sögunnar og skellið ykkur á
Ninja Turtles 2.
Ninja Turtles fyrir fólk á öllum aldri.
Aðalhlutverk: Paige Turco, David Warner, Michelan Sisti, Leif Tilden,
Vanilla lce.
Framleiðandi: Raymond Chow.
Leikstjóri: Michael Pressman.
Sýnd kl. 5 — 7 — 9 — 11
Frumsýnir sumarsmellinn í ár
Skjaldbökurnar 2
fökum hunda í gæslu til lengri eða
jkemmri dvalar.
hundagæsluheimili
Hundavinafélags íslands og
Hundaræktarfélags íslands
ARNARSTÖÐUM, Hraungerðishreppi
801 Selfoss - Símar: 98-21031 og 98-21030
aðstandendur fyrirtækisins munu
vera í ábyrgð fyrtr hluta af þessum
skuldum ...
B
að fyrsta sem Markús Örn
Antonsson lýsti yfir þegar hann
tók við embætti borgarstjóra var að
hann ætlaði að auka
löggæslu í miðbæn-
um og siga löggunni
á unglingana og
ýmsa ribbalda sem
væru í félagsskap
þeirra í miðbænum.
Við afgreiðslu fjár-
hagsáætlunar Reykjavíkur fyrir yf-
irstandandi ár var framlag til æsku-
lýðsmála skorið niður. Það eru því
kaldar kveðjur sem unglingar fá frá
borgaryfirvöldum þessa dagana ...
K
I ú stendur yfir mikil áskriftar-
herferð á vegum tímaritsins Þjóð-
lífs. Framkvæmdin er í höndum
spútnikanna
Hrannars B. Arn-
arssonar og Helga
Hjörvar, sem
standa jafnframt í
mjög umfangsmik-
illi söluherferð á ís-
lendingasögunum,
Sturlungu og verkum Jónasar
Hallgrímssonar. Á aðeins fjórum
vikum hafa Arnarsson og Hjörvar
selt tvö þúsund áskriftir að Þjóðlífi
og eru áskrifendur nú um tíu þús-
und, sem er meira en hjá nokkru
öðru tímariti. . .
•itt af þeim fiskeldisfyrirtækjum
sem stefna í þrot er ísþór, fyrirtæki
Guðmundar G. Þórarinssonar,
fyrrverandi alþingis-
manns, og fleiri. For-
ráðamenn fyrirtæk-
isins eru nú að reyna
að semja við Iánar-
drottna þess vegna
persónulegra
ábyrgða sem þeir
eru í fyrir hluta af skuldum fyrirtæk-
isins. Alls munu veðskuldir ísþórs
nema um 400 milljónum króna og
heildarskuldir eru taldar vera hátt í
500 milljónir. Guðmundur og aðrir
"arátta Þorsteins Pálssonar
sjávarútvegsráðherra gegn veiði-
leyfagjaldinu hefur að sjálfsögðu
vakið mikla athygli
— bæði vegna bar-
áttugleði Þorsteins
og ekki síður þess
hve náið hann vinn-
ur með útgerðar-
mönnum. Menn
benda reyndar á að
þetta sé vinarbragð Þorsteins við
Kristján Ragnarsson, formann
LÍÚ, en þeir unnu náið saman á
þeim árum þegar Þorsteinn var
framkvæmdastjóri VSÍ. Þá voru þeir
tveir, ásamt Davíð Scheving Thor-
steinssyni, kallaðir „Trópíkana-
tríóið“ hjá VSÍ. Segið svo að óáfeng-
ir drykkir geti ekki fært menn sam-
an ...
k_7tjórnmálin settu strik í reikning-
inn í ökunámi Össurar Skarphéð-
inssonar síðasta vetur. Hann varð
að hverfa frá námi í
miðjum klíðum til
að taka þátt í próf-
kjörsslag, kosninga-
baráttu og stjórnar-
myndun. Enn dróst
að Össuri tækist að
ljúka prófi þegar
ökukennari hans, Gylfi Sigurðs-
son, fór í frí. Gylfi er góður og gegn
framsóknarmaður og Össur harð-
neitaði að fara til annars kennara.
En nú eru þeir búnir að taka upp
þráðinn á nýjan leik og formaður
þingflokks Alþýðuflokksins ekur
um á kennslubifreiðinni. . .
K
lú er talið ósennilegt að Jón
Sigurðsson iðnaðarráðherra
hverfi af vettvangi stjórnmálanna á
yfirstandandi kjör-
tímabili. Um tíma
var búist við að
hann tæki að sér
embætti seðla-
bankastjóra þegar
Jóhannes Nordal
lætur af störfum og
hleypti þannig Guðmundi Árna
Stefánssyni, bæjarstjóra Hafnfirð-
inga, á þing. Jón hefur hins vegar
einbeitt sér að innanflokksstarfi upp
á síðkastið og ýmsir alþýðuflokks-
menn þykjast sjá þess merki að
hann sé að undirbúa sig fyrir flokks-
þing alþýðuflokksmanna á næsta
ári. Þá er talið að hann muni bjóða
sig fram gegn Jóni Baldvin . . .
LITLA BÓNSTÖÐIN SF.
Síðumúla 25 (ekið niöurfyrir)
Sími 82628
Alhliöa þrif á bílum
komum inn bílum af
öllum stæröum
Opið 8:00—19:00 alla daga
nema sunnudaga
f