Pressan - 15.08.1991, Blaðsíða 2
2
^jlESSAN 15. ÁGÚST 1991
Pað er alltaf gaman að fá
góða vinl og listamenn í
heimsókn á gamla Frón.
PIERRE LA PRINCE
tískuhönnuður (Beverly
Hills, París, Tókýð) valdi
ísland til að leita að
innblæstri fyrir haustlínuna
árin 1992 og 1993. Hann
ætlar meðal annars að
Islensku módelstelpurnar skara ekki bara
framúr hvað fegurð snertir heldur eru þær
líka þær hraustustu. Við tökur á auglýsingu
fyrir Cosmo óð Sigríður Stefánsdóttir ekki
sjaldnar en tuttugu sinnum út í helkaldan
sjóinn fyrir utan Búðir á Snæfellsnesi. Og
brosti sínu blíðasta.
styðjast við hátisku
þjóðveldisaldar; þeirra
Gunnars og Njáls.
Pierre la Prince hefur verið
í miklu uppáhaldi hjá
Hollywood-leikkonum og
hástéttarfrúm í París. Hann
hefur til dæmis hannað föt
á ekki ómerkilegri skrokk
en Soniu Braga (K/'ss ofthe
Spiderwoman).
Brynhildur Þorgeirsdóttir kvaddi H
i Korpúlfsstaói með skemmtilegri H
\ uppskeruhátíð undir berum
\ himni, eins og henni einni er ™
i \ lagið. Sjón var að sjálfsögðu
i \ mættur en einnig heill
11 \ hellingur annarra. Meðal li
\ annarra Gíjó (Guöjón
■ \ Petersení.Katrín Hall
\ ballerína í Köln, Keli og I
\ fjölmargir
\ hljóðfæraleikarar
\ skemmtu. I’ar á meðal sá
\ sexýasti af þeim öllum;
\ hann Einar
HH \ básúnuleikari.
Hildur Hafsteitt slær í
gcgn enn einn ferðitm.
Miss Veröld, Miss
Pacha og nýjnsti titillinn
er Miss Ibiza.
&lce$Mnttin ^ffönclun oq.
"ítycut&un SeevcUdo.-
tUftUn,, ííneddtr dci
ocutcLec, íúttén euL Kceío,
úén í eéttcr
Aoxct., — ci étx oicL.
Michel Perry
Klein A Kammer
Maud Frizon
Michel Perry
LÍTILRÆÐI
af andstreitu
Munuð þið nokkuð
senda frá ykkur annað
en nauðarsamninga
fyrir jólin, Óli Björn?
„Ætlist þiö til aö ég svari
svona fíflaskap?"
Óvíst er um útgáfu Almenna
bókafélagsins fyrir jólin.
Félagið skuldar um 200
milljónir króna umfram eignir
og ætlar að reyna að ná
nauðarsamningum við
lánardrottna félagsins á
næstu vikum. Öli Björn
Kárason er framkvæmdastjóri
Því fylgja mikil umbrot að
breytast úr sjálfstæðis-
manni, laumukomma eða
krata í framsóknarmann en
þetta eru óumflýjanleg
örlög manna sem flytja úr
Reykjavík og gerast sveita-
menn.
Sálin og líkaminn þurfa að
„ryðja sig“ og enginn veit
nema sá sem reynt hefur
hverjar aukaverkanir fylgja
slíkum hamskiptum.
Roðinn í austri, frjálst
framtak og sósíaldemókrat-
ísk þrá eftir hlutdeild í Evr-
ópumarkaði víkja fyrir sam-
vinnuhugsjón og fölskva-
lausri ást á kaupfélaginu, en
dagblaðið Tíminn verður
stórisannleikurinn í lífi
manns.
Og það var semsagt í Tím-
anum um daginn sem ég
höndlaði stórasannleikann
um lausn á heilbrigðisþjón-
ustuvanda íslensku þjóðar-
innar.
Nú er frá því að segja að
landsmenn hafa lengi verið
afar stoltir af tryggingalög-
gjöf hins opinbera sem af
sumum var talin fullkomnari
á íslandi en annarstaðar á
byggðu bóli.
Kjörorðið: Lúxus að veikj-
ast.
Meðul til að lina þjáningar
og spítalalega hafa til
skamms tíma verið á kostn-
að hins opinbera og tannvið-
gerðir eru ókeypis fyrir börn
þartil þau hafa náð þeim
aldri að tennurnar í þeim
fara að skemmast og Trygg-
ingastofnunin sér líka um að
greiða tannviðgerðir fyrir
gamalmenni sem búin eru
að missa tennurnar.
Nú eru hinsvegar blikur á
lofti í tryggingamálum því
ráðamönnum er farið að
finnast það réttlætiskrafa að
sjúkt fólk greiði fyrir þann
lúxus að fá að vera veikt.
En fátt er svo með öllu illt
að ekki boði nokkuð gott.
Nú les ég í málgagni mínu,
Tímanum, að þeir sem ekki
hafi ráð á því að veikjast á ís-
landi geti sem hægast veitt
sér þann munað í Búlgaríu
þar sem maður er ekki bara
veikur fyrir slikk heldur
verður líka alheilbrigður
nánast gratís.1
Það var semsagt í ágúst-
byrjun að Tíminn birti ítar-
lega grein um heilbrigðis-
þjónustuna í Búlgaríu og
hvernig okkur hér á hjara
veraldar stendur hún til
boða.
Satt að segja fæ ég ekki
betur séð en líkamsheill ís-
lensku þjóðarinnar væri
best komin í Búlgaríu, eftir
lestur greinarinnar.
Boðið er uppá tannlækn-
ingar með þýskum tækjum
og búlgörsk gleraugu, leir-
böð, vatnsböð, horun, snyrti-
meðferð, hreystiprógramm,
andstreitumeðferð og lang-
lífismeðferð.
Þar sem heilbrigðisþjón-
usta snýst nú öðru fremur
um það að halda lífinu í fólki
er langlífisþjónusta Búlg-
ara auðvitað sú grein sem ís-
lendingar ættu öðru fremur
að nota sér, en um hana seg-
ir í Tímanum:
Þessi áætlun er hugsuð
sem forvörn og meðferð
gegn öldrun.
Og í sem stystu máli fær
maður tíu sprautur af Geri-
cain og tólf pakka af Geri-
cain-töflum til að taka með
sér heim.
Og verður allra kalla elst-
ur, eða lifir jafnvel dauðann
af.
Hreystiprógrammið er
afturámóti samþjappað
hreystiprógramm fyrir
hraust fólk og auðvitað
sjálfsagt að gera einhvern-
tímann eitthvað fyrir þá sem
ekki eru dauðans matur.
Andstreitumeðferðin
vekur líka mikla forvitni og
þó einkum nýyrðið „and-
streita" sem eðli málsins
samkvæmt mun þýða „ró-
legheit" og á sama hátt væri
þá „andfýla" sama og
„gleði".
Jafnan þegar ég les blaðið
okkar, Tímann, opnast augu
mín fyrir einhverju, og við
lestur þessarar greinar akk-
úrat því, að íslensk heil-
brigðisþjónusta á hvergi
heima nema í Búlgaríu.