Pressan - 15.08.1991, Blaðsíða 15
FIMMTUDAGUR PRESSAN 15.ÁGÚST 1991
15
SEDLABANKIREISIR
SJÖTTA SUMARHÚSID
,,Pad var keypt í sumar
spilda undir sumarhús í
Grímsnesinu," sagdi Birgir ís-
leifur Gunnarsson, banka-
stjóri í Sedlabankanum, þeg-
ar hann var spurður hvort
Seðlabankinn vœri að undir-
búa byggingu sumarhúss í
Grímsnesinu.
„Bankinn á töluvert af
sumarhúsum fyrir starfsfólk.
Þau eru á Þingvöllum, Borg-
arfirði, Varmahlíð í Skaga-
firði og Múlastekk á Austur-
landi. Það hefur verið mikil
pressa frá starfsmannafélag-
inu að auka þessa þjónustu.
Þar við bætist að Þjóðhags-
stofnun er með starfsfólk hér
í húsinu sem fær jafnvel að-
gang að sumarhúsunum okk-
ar. Seðlabankinn greiðir
hluta af rekstri Þjóðhags-
stofnunar. Þetta er reyndar
með þeim fyrirvara að eftir er
að semja um þetta endanlega
við starfsmannafélagið. Það
er búið að leita lengi að
heppilegum stað og nú er bú-
ið að finna hann. Uthlutun á
þessu húsi verður með sama
hætti og á öðrum sumarbú-
stöðum; hún byggist á
punktakerfi, þar sem meðal
annars verður farið eftir hve-
nær fólk fékk síðast leigt hús
og svo framvegis," sagði Birg-
ir ísleifur.
— Er ekki rétt að til standi
að byggja stórt hús sem á að
kosta átta til tíu milljónir
króna og það verði eingöngu
leigt æðstu starfsmönnum
bankans?
,,Það er ekki búið að teikna
húsið og ekki búið að gera
neinar áætlanir. Það er ekki
rétt að húsið verði fyrir fáa
starfsmenn. Því verður út-
hlutað á sama hátt og öðrum
sumarhúsum,1' sagði Birgir ís-
leifur Gunnarsson banka-
stjóri.
„Ég hef heyrt af þessu, en
veit ekkert frekar um þessa
fyrirhuguðu byggingu. Ég
veit ekki hvort búið er að
teikna hús. Ég held það geti
ekki verið," sagði Anton Holt,
formaður Starfsmannafélags
Seðlabankans.
Birgir ísleifur Gunnarsson
bankastjóri segir að landið í
Grímsnesinu hafi ekki síst ver-
ið keypt vegna pressu frá
starfsmannafélaginu.
Bankaeftirlitið
Fylgist meö Holiday
Inn og íslandsbanka
Bankaeftirlitið hefur fylgst
með gangi sölutilrauna á
Holiday Inn-hótelinu. Hótelið
er í eigu fslandsbanka og fjár-
mögnunarfyrirtœkisins Glitn-
is, sem er dótturfyrirtœki ís-
landsbanka. ílögum um við-
skiptabanka er ekki gert ráð
fyrir að þeir séu í atvinnu-
rekstri, öðrum en bankastarf-
semi, og eins er ekki gert ráð
fyrir að þeir eigi húseignir
aðrar en þœr sem til þarffyrir
eigin rekstur.
Ragnar Hafliðason, að-
stoðarforstöðumaður banka-
eftirlitsins, sagði að vissulega
fylgdist bankaeftirlitið vel
með þegar bankarnir yfir-
tækju fasteignir og jafnvel
heilu fyrirtækin. Hann sagði
að Holiday Inn-málið væri
erfitt og hann vildi ekki tjá sig
um það frekar, en vissulega
hefði bankinn þurft að láta
bankaeftirlitið fylgjast með
sölutilraunum sínum.
í lögum um viðskiptabanka
er heimild til bankanna um
að þeir megi eiga fyrirtæki
eða fasteignir, hafi þeir þurft
að leysa þær til sín. Þó ber
þeim að losa sig út úr rekstri
eða selja eignir eins fljótt og
auðið er. Bankastjórnir hafa
samt nokkurt svigrúm. Þær
geta haldið eignunum eða
fyrirtækjunum í eign bank-
anna þar til þær telja hag-
stætt að selja, til að hagsmun-
um bankanna sé best borgið.
í samtali við PRESSUNA
staðfesti Björn Björnsson,
bankastjóri íslandsbanka, að
sölutilraunir hefðu verið í
gangi en ekki borið árangur.
Hann sagðist þó vongóður
um að þær gerðu það í fyll-
ingu tímans.
Björn sagði einnig að bank-
ar yrðu að verja sig áföllum
og mörg dæmi væru til um að
bankar hefðu átt fyrirtæki
lengur en íslandsbanki er bú-
inn að eiga Holiday Inn.
Hann sagði að ávallt væri það
svo að bankar ættu eignir um
einhvern tíma, þ.e. eignir sem
þeir leystu til sín vegna gjald-
þrota og annarra skuldamála
viðskiptamanna sinna. Flest-
ar þessara eigna seldust fljótt
aftur, en samt væri alltaf eitt-
hvað um eignir sem væru erf-
iðar í sölu.
— Heimir Stoinsson, prestur og þjóðgarösvöröur á Þingvöllum, var í síðustu viku ráöinn i stöðu útvarpsstjóra Ríkisútvarpsins.
„Heimir er ákveðinn og vel lærður. Hann er
hreinn og beinn og hefur ekki minnimáttar-
kennd fyrir einum né neinum," segir séra Sig-
urður Haukur Guðjónsson. „Heimir er af-
bragð annarra manna. Sem þjóðgarðsvörður
hefur hann verið í svipuðu hlutverki og lögsögu-
mennirnir forðum, fræðandi fólk um náttúru og
sögu staðarins. Það hefur hann gert með glæsi-
brag," segir Hjörleifur Guttormsson, nefnd-
armaður í Þingvallanefnd. „Heimir var af-
burðanámsmaður, dúx í skóla og skáldmæltur.
Hann er vel gefinn og traustur á allan hátt. Mér
finnst hann vel að þessu starfi kominn þótt ég
eigi eftir að sjá eftir honum af vettvangi kirkj-
unnar," segir Jón Einarsson, prófastur og
fyrrum skólafélagi Heimis. „Hann er marg-
fróður og menntaður. Á létt með að rita skýran
texta og tala góða íslensku. Hann hefur mótaðar
skoðanir og fylgir þeim fram af festu en hóg-
værð," segir Olafur G. Einarsson, formaður
Þingvallanefndar. „Hann hefur ótrúlega
stjórnunarhæfileika og fer aldrei með neina vit-
leysu," segir Stefán Steinsson, bróðir Heim-
is. „Hann er vel fallinn til mannaforráða. Stál-
greindur og hefur mikla þekkingu til að bera.
Hann er traustur vinur vina sinna," segir séra
Bolli Gústavsson, skólafélagi Heimis og vin-
ur.
Heimir Steinsson útvarpsstjóri
M* ** F***7 *** **** ’'-*** j ****** ****
tíðleikinn fer stöku sinnum fram úr hófi,“
segir Stefán Steinsson, bróðir hans. „Hann er
skapheitur og tilfinningaríkur," segir Hjör-
leifur Guttormsson. „Ungur þótti hann
grimmur, en það fylgir kraftmönnum. Hann
hefur mildast með árunum,“ segir séra Sig-
urður Haukur Guðjónsson. „Heimir er vel
máli farinn og ritfær, en beinir pennanum
of hvasst stundum," segir Jón Einarsson, pró-
fastur og skólafélagi hans. „Sumum kann að
þykja sem hann skreyti eða fyrni mál sitt
um of,“ segir Ólafur G. Einarsson, formaður
Þingvallanefndar. „Hann er metnaðargjarn,
en hefur líka vel efni á því,“ segir Jón Einars-
son. „Hann er geðríkur, en hefur þroskast
vel á þann veg að hafa góða stjórn á því
mikla skapi,“ segir séra Bolli Gústavsson.
UNDIR
ÖXINNI
Halldór
Jónatansson,
forstjóri
Landsvirkjunar
Hafið þið reiknað út
hvað þið eigið eftir að
tapa miklu á næstu
árum, ef álverð helst
óbreytt?
,Það er ekki hægt að
svara svona spurn-
ingu. Það er ekki reikn-
að með tapi, heldur
gerð áætlun um af-
komu fyrirtækisins.
Það er ekki hægt að
gefa neinar upplýsing-
ar um niðurstöður
þeirra útreikninga fyrr
en þeir hafa verið lagð-
ir fyrir stjórn Lands-
virkjunar til umfjöllun-
ar og formlega í þing-
inu af iðnaðarráð-
herra."
Hvaða áhrif á óbreytt
álverð eftir að hafa á
raforkuverðið?
„Þetta er spurning
sem ekki er hægt að
svara íeinu stuttu sím-
tali. Það er mismun-
andi verð á mismun-
andi tímabilum og við
byggjum áætlun okkar
á þróun álverðs langt
fram í tímann. Ekki því
hvað það er í það og
það skiptið."
Hve lengi þolir Lands-
virkjun óbreytt ál-
verð?
„Við verðum að gefa
okkur ákveðnar for-
sendur, sem byggja á
því að það eru sveiflur
á álverði frá ári til árs.
Þetta eru nokkuð
reglulegar sveiflur,
venjulega fimm ára, og
verðtoppnum er þá
náð á fimm ára fresti.
Þar á milli eru lægðir
og það má kannski
segja að nú gangi yfir
óvenjudjúp lægð. Sér-
fræðingar, sem þekkja
þróunina á undanförn-
um árum, segja að ál-
verð eigi eftir að fara
hækkandi. Útreikning-
ar á því hver afkoma
Landsvirkjunar verður
eru byggðir á meðal-
italsverði á áli miðað
við þessar sveiflur."
Álverð hefur verið mjög lágt und-
anfarið og samfara þvi hefur raf-
orkuverð lækkað. Til að virkjunar-
framkvæmdir standi undir sér
þyrfti raforkuverðið að vera nær
helmingi hærra.