Pressan - 22.08.1991, Page 8
8
FIMMTUDAGUR PRESSAN 22. ÁGÚST 1991
Nokkrir af helstu embættismönnum ríkisins hafa feng-
ið úthlutað lóðum undir sumarhús á ríkisjörðinni
Stóru-Drageyri í Skorradal. Jörðin er í eigu ríkisins, en
sumarhúsin eru á friðuðu landi sem Skógrækt ríkisins
hefur til ráðstöfunar.
Þegar Skógrækt ríkisins fékk jörðina til ráðstöfunar,
1967, var þar fyrir sumarhús, sem nú er skráð á Pál Ólaf
Pálsson, kaupmann í Garðabæ. Síðan hafa verið veitt
leyfi fyrir sumarhúsum til handa Guölaugi Þorvaldssyni
ríkissáttasemjara, Gunnlaugi Sigmundssyni, núverandi
forstjóra Þróunarfélagsins, Höskuldi Jónssyni, forstjóra
ATVR, Guðmundi Sigþórssyni, skrifstofustjóra landbán-
aðarráduneytisins, Þór Magnússyni þjódminjaverði og
Sigmundi Guðbjarnasyni, fyrrum háskólarektor. Loks
hefur Agúst Árnason skógarvörður lóðarleigusamning.
'mmmmmammmmm^mm^mmamm^mmm^m^m^mmmm
Jörðin Stóra-Drageyri er í eigu rík-
isins, en skráð á Hvanneyrarkirkju.
Jörðin fór i eyði 1966 og árið eftir
ráðstafaði þáverandi landbúnaðar-
ráðherra Skógrækt ríkisins jörðinni
til friðunar og ræktunar. Lóðarleigu-
samningum ofangreindra aðila hef-
ur í sumum tilfellum verið þinglýst,
öðrum ekki, og ekki hafa allir reist
sumarhús enn.
Skorradalurinn er að verða eitt-
hvert allra eftirsóttasta sumarhúsa-
svæði landsins. Skógræktin á lönd á
sjö jörðum eða jarðarhlutum í daln-
um, en lóðarleigusamningar ná að-
eins til Stóru-Drageyrar. Skilyrði til
skógræktar í dalnum eru mjög góð
og hafa á síðustu árum vaxið þar
upp gróskumiklir barrskógar og lúp-
ínubreiður. Það er til marks um
vinsældir Skorradals að búið er að
samþykkja lóðir undir á fimmta
hundrað sumarhús í dalnum. Það
skal hins vegar tekið fram að jörðin
Stóra-Drageyri er við sunnanvert
vatnið, en mesta sumarhúsaþyrp-
ingin hins vegar við norðanvert
vatnið.
GÖMUL MUNNLEG LOFORÐ í
TÍÐ SIGURÐAR BLÖNDAL
Ráðherraleyfi þarf fyrir úthlutun
lóða undir sumarhús á jörðum sem
Skógrækt ríksins á eða hefur til um-
ráða, en alla jafna kemur frum-
kvæðið að slíkri úthlutun frá emb-
ætti Skógræktarstjóra. Þegar Skóg-
rækt ríkisins fékk umrædda jörð var
Hákon Bjarnason skógræktarstjóri.
Þá var fyrir eitt sumarhús á jörðinni,
sem nú er skráð á Pál Ólaf Pálsson.
í desember 1965 var undirritaður
lóðarleigusamningur við Gunnar
Hrafn Agústsson og reis bústaður
hans 1981. Gunnar er nú látinn. Árið
1968 fékk Skátafélag Akraness að
byggja skátaheimili á jörðinni.
Lóðarleigusamningur Skógrækt-
ar ríkisins við Guðlaug Þorvaldsson
var undirritaður í ágúst 1971. 1972
byggði síðan Guðlaugur Þorvalds-
son lítið sumarhús. Guðlaugur var
þá nokkru áður hættur sem ráðu-
neytisstjóri í fjármálaráðuneytinu,
var orðinn prófessor við viðskipta-
deiid Háskóla íslands og var m.a.
stjórnarformaður Lífeyrissjóðs
bænda. Hann tók árið eftir við rekt-
orsembætti Háskólans. Guðlaugur
hefur verið ríkissáttasemjari frá