Pressan - 22.08.1991, Qupperneq 9
FIMMTUDAGUR PRESSAN 22. ÁGÚST 1991
9
Guðlaugur Þorvaldsson ríkissátta-
semjari. Lóðarleigusamningur hans
var undirritaður í ágúst 1971 og lítið
sumarhús byggt 1972. Guðlaugur var
þá nokkru áður hættur sem ráðu-
neytisstjóri í fjármálaráðuneytinu og
orðinn prófessor við viðskiptadeild
Háskóla fslands.
Guðmundur Sigþórsson, skrifstofu-
stjóri landbúnaðarráðuneytis. Að
frumkvæði Sigurðar Blöndal var und-
irritaður samningur um lóðarleigu til
handa Guðmundi Sigþórssyni í des-
ember 1983. Liðlega mánuði áður tók
Guðmundur við embætti skrifstofu-
stjóra. Hann hefur enn ekki reist
sumarhús sitt.
1979. Sumarhús Guðlaugs er sem
fyrr segir lítið, aðeins um 55 rúm-
metrar eða vart meira en 25 fer-
metrar.
Það var hins vegar í tíð Sigurðar
Blöndal sem skógræktarstjóra (1977
til 1990) að gengið var frá nokkrum
munnlegum samningum um lóðir
undir sumarhús, sem risið hafa á
undanförnum árum eða eiga enn
eftir að rísa. Samningar þessir voru
nokkrir lengst af aðeins munnlegir,
en á síðustu tveimur til þremur ár-
um hefur verið gengið frá skrifleg-
um samningum um leigu á umrædd-
um lóðum.
ÞRÍR FYRRUM YFIRMENN í
FJÁRMÁLARÁÐUNEYTINU
Fimm úthlutanir frá þessum tíma
vekja sérstaka athygli. Nú er nýrisið
sumarhús í eigu Höskuldar Jónsson-
ar, forstjóra Áfengis- og tóbaksversl-
unar ríkisins. Lóðarleigusamningur
Skógræktarinnar við hann var und-
irritaður í desember 1983. Þá var
Höskuldur ráðuneytisstjóri fjár-
málaráðuneytis.
Þá er í byggingu sumarhús í eigu
Þórs Magnússonar, sem verið hefur
þjóðminjavörður frá því 1968. Lóð-
arleigusamningur við hann var und-
irritaður í apríl 1990.
' í uppsiglingu eru framkvæmd-;.
ir vegna byggingar sumarhúss í eigu
Sigmundar Guðbjarnasonar, fráfar-
andi háskólarektors. Þó hefur lóðar-
leigusamningi vegna hans ekki ver-
ið þinglýst. Ekki er ljóst hvenær
samningur um lóðarleiguna var
gerður upphaflega, en formlega
mun hafa verið gengið frá honum
fyrir tveimur eða þremur árum.
í júlí 1981 var undirritaður lóðar-
leigusamningur við Gunnlaug Sig-
mundsson, núverandi forstjóra Þró-
unarfélags íslands. Á þeim tíma var
Gunnlaugur deildarstjóri gjalda-
deildar fjármálaráðuneytisins.
Gunnlaugur Sigmundsson, forstjóri
Þróunarfélags Islands. í júlí 1981 var
undirritaður lóðarleigusamningur
við Gunnlaug, sem þá var deildar-
stjóri gjaldadeildar fjármálaráðu-
neytis. Hann tók skömmu síðar við
stöðu aðstoðarmanns aðalfram-
kvæmdastjóra Alþjóðabankans í
New York og hefur enn ekki byggt
sumarhús.
Þór Magnússon þjóðminjavörður.
Lóðarleigusamningur við hann var
undirritaður í apríl 1990. Fram-
kvæmdir við sumarhúsið standa nú
yfir.
Höskuldur Jónsson, forstjóri ÁTVR.
Nú er nýrisið sumarhús Höskuldar,
en lóðarleigusamningur Skógrækt-
arinnar við hann var undirritaður í
desember 1983. Þá var Höskuldur
ráðuneytisstjóri fjármálaráðuneytis-
ins.
Sigmundur Guðbjarnason, fyrrver-
andi háskólarektor. Ekki er Ijóst hve-
nær samningur var gerður við Sig-
mund, en framkvæmdir vegna bygg-
ingar sumarhúss munu standa fyrir
dyrum.
Nokkrir af
nafntoguðustu
embœttismönn-
um ríkisins hafa
fengið sérstaka
lóðarúthlutun
undir sumarhús
innan girðingar
Skógrœktar
ríkisins á landi
Stóru-Drageyrar
við
Skorradalsvatn
Hann tók skömmu síðar við stöðu
aðstoðarmanns aðalframkvæmda-
stjóra Alþjóðabankans í New York
og virðist enn ekki hafa hafið sum-
arhússframkvæmdir.
Sama dag og lóðarleigusamning-
urinn var undirritaður við Höskuld
Jónsson, eða í desember 1983, var
undirritaður samningur um lóðar-
leigu til handa Guðmundi Sigþórs-
syni, skrifstofustjóra landbúnaðar-
ráðuneytis. Liðlega mánuði áður en
samningurinn var undirritaður tók
Guðmundur við embætti skrifstofu-
stjóra. Hann var áður deildarstjóri
við ráðuneytið.
í HÓPI 25 ÚTVALINNA
EINSTAKLINGA
Á þessu friðaða landi Skógræktar
ríkisins er því að rísa sumarhúsa-
kjarni útvalinna embættismanna
•ríkisins. Þar af voru Höskuldur og
Gunnlaugur yfirmenn í fjármála-
ráðuneytinu og Guðlaugur nýlega
hættur sem slíkur. Úthlutanirnar
eru í öllum tilfellum til þessara
manna sem einstaklinga, en ekki
þeirra stofnana sem þeir veita eða
veittu forstöðu.
PRESSAN hefur áður fjallað um
lóðaúthlutanir á jörðum Skógrækt-
ar ríkisins til útvalinna einstaklinga.
Skógrækt ríkisins á tæplega 60 jarð-
ir eða lönd og samkvæmt upplýs-
ingum stofnunarinnar eru alls um
45 leyfi fyrir sumarhúsum á þeim.
í um helmingi tilfella er það stofn-
unin sjálf sem hefur afnot af leyfun-
um, en í hinum tilfellunum er um að
ræða leigusamninga við einstakl-
inga. Á síðari árum hefur mjög
dregið úr samþykkt slíkra lóðar-
leigusamninga stofnunarinnar. Að
líkindum hafa um 10 slíkir samning-
ar verið gerðir á síðustu 5 árum. Það
eru því alls um 25 einstaklingar sem
hlotið hafa lóðir undir sumarhús á
friðuðum landspildum Skógræktar
ríkisins. Þeirra á meðal eru ofan-
greindir embættismenn.
AÐRIR ÚTVALDIR:
HALLDÓR H., JÓN INGVARS
OG KENNEDY-BRÆÐUR
Áður hefur meðal annars verið
bent á sérstakar úthlutanir til handa
Jóni Inguarssyni, stjórnarformanni
Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna,
og Halldóri H. Jónssyni, stjórnarfor-
manni Eimskipafélagsins, í Jafna-
skarðslandi við Hreðavatn.
Þá fjallaði PRESSAN í desember
síðastliðnum um lóðarúthlutun til
Birgis Ágústssonar, eins hinna svo-
nefndu „Kennedy-bræðra", í friðuðu
landi Skógræktarinnar í Þórðar-
staðaskógi í Fnjóskadal. Þar kom
fram að samningurinn hefði verið
gerður til að losna við stóra skuld
Skógræktarinnar við bílaleigufyrir-
tæki bræðranna. Þetta var í raun
staðfest af Sigurði í kjölfarið á grein
í Morgunblaðinu, en hann sagði að
samningur við Birgi hefði verið
gerður sumarið 1987 og Birgir hefði
sýnt þakklæti sitt með því að fella
niður skuld við Skógræktina „sem
nam hátt í 400 þús. kr.“. Að núvirði
hljóðar slík upphæð upp á um 700
þúsund krónur.
SIGURÐUR BLÖNDAL:
VAR AÐ FRAMFYLGJA
GÖMLUM LOFORÐUM
Sigurður Blöndal, fyrrverandi
skógræktarstjóri, sagði í samtali við
PRESSUNA að hér væri á engan
hátt um óeðlilegar úthlutanir að
ræða.
„Flestallir þessir samningar voru
byggðir á gömlum loforðum frá því
fyrir míná tíð. Ég hafði sjálfur frum-
kvæði að því að úthluta lóðum til
Ágústar Árnasonar skógarvarðar,
sem er eðlilegt og sjálfsagt, og til
Guðmundar Sigþórssonar í land-
búnaðarráðuneytinu, sem ég hafði
haft mikil og góð samskipti við. Aðr-
ar úthlutanir voru vegna gamalla
loforða. í minni tíð voru efnd gömul
loforð vegna Höskuldar Jónssonar
og Þórs Magnússonar. Ég skal ekki
segja hvernig þessar eða aðrar út-
hlutanir komu til, sumar eru frá tíð
forvera míns og aðrar vegna loforða
frá því áður en Skógrækt ríkisins tók
við jörðinni. í einhverjum tilfellum
var það séra Gísli Brynjólfsson sem
kom að máli við mig, en hann var
lengi forstöðumaður jarðeigna-
deildar landbúnaðarráðuneytisins,"
sagði Sigurður.
Sem fyrr segir hafa um 25 ein-
staklingar fengið lóðir undir sumar-
hús á löndum Skógræktar ríkisins,
án þess að slíkar úthlutanir hafi ver-
ið auglýstar. Að sögn Sigurðar eru
leiguskilmálar vegna Stóru-Drag-
eyrar, sem og vegna annarra sumar-
húsalóða á jörðum Skógræktarinn-
ar, mjög mismunandi. „Þetta er upp
og ofan og mótast stundum af þeim
skilmálum sem fyrir voru. Ég mót-
aði enga meginreglu í þessu sam-
bandi, en samningarnir síga, hvað
leiguna varðar, í það sem er algengt
á markaðinum."
NÚVERANDI SKÓGRÆKTAR-
STJÓRI: ÉG ER Á MÓTI ÞESSU
Jón Loftsson, núverandi skóg-
ræktarstjóri, er þessa dagana stadd-
ur í Sovétríkjunum. Þegar PRESSAN
ræddi við hann nýlega ítrekaði
hann að slík mál hefðu legið á borð-
inu þegar hann tók við embættinu,
sem var í upphafi árs 1990.
„Ég er sjálfur mjög íhaldssamur í
þessum efnum og ætla ekki að fara
út í úthlutun sumarbústaðalóða inn-
an girðinga Skógræktar ríkisins í
stórum stíl. Ég er satt að segja á móti
slíku og verð lítið til tals um úthlut-
anir af þessu tagi,“ sagði Jón.
Friðrik Þór Guðmundsson
s
»s-rérkennileg uppakoma atti ser
stað fyrir utan Bónusborgarann í
Ármúla fyrir stuttu, en sá staður er
sem kunnugt er rek-
inn af Hrafni Bach-
mann. Það mun
hafa verið um há-
degisbilið sem kom
til átaka milli
tveggja hópa. Tókst
ekki að stilla til frið-
ar fyrr en lögreglan kom og skakk-
aði leikinn. Ekki fékkst uppgefið
hver hleypti átökunum af stað en
fremstur í flokki annars hópsins var
enginn annar en ívar Hauksson,
vaxtarræktarmaður og fyrrverandi
starfsmaður Morgunblaðsins, sem
nú er orðinn umsvifamikill inn-
heimtumaður...
JL að kom ekki öllum á óvart þeg-
ar Þjóðviljinn þurfti að grípa til þess
ráðs að óska eftir greiðslustöðvun.
Þeir sem höfðu fengið greitt frá
blaðinu um síðustu mánaðamót áttu
t.d. von á ýmsu. Ástæðan var sú að
ekki var hægt að skipta þeim ávís-
unum, sem Hallur Páll Símonar-
son framkvæmdastjóri og félagar
höfðu gefið út, yfir í peninga þar
sem búið var að loka ávísanareikn-
ingnum. Viðskiptabanki Þjóðviljans
er Landsbankinn, sem á síðasta ári
lánaði Þjóðviljanum tugi milljóna
tryggða með veði í þingflokkn-
um...
Ml egar vetrardagskrá Ríkisút-
varpsins tekur gildi, 1. október,
verða talsverðar breytingar á dag-
1—------—— skránni. Bjarni Sig-
tryggsson, for-
stöðumaður RÚV á
Akureyri, ætlar að
breyta morgunþætti
svæðisútvarpsins og
gera hann að dæg-
urmálaþætti, svip-
aðan þættinum Dagskrá á rás tvö...
N
A ^ u er altalað að Margeir Mar-
geirsson, sem rekur Keisarann við
Laugaveg, sé að fara að opna ek.
spilavíti við Skipholt. Staðurinn er í
raun tilbúinn, búið að innrétta allt
og kaupa rúllettuborð frá Bretlandi.
Margeir er þó ekki búinn að opna,
því hann hefur enn ekki fengið svör
frá dómsmálaráðuneytinu við fyrir-
spurn um hvað sé leyfilegt og hvað
ekki. Eftir því sem næst verður
komist bíður Margeir ennfremur
átekta í ljósi þess að spilaklúbbarnir
tveir við Súðarvog hafa keypt sam-
svarandi borð og ætlar Margeir að
sjá til hvort þeir verða stöðvaðir...
*
Isfirðingar eru lítt hrifnir af þeirri
ákvörðun Þorsteins Pálssonar að
skipa Pétur Hafstein bæjarfógeta í
embætti hæstarétt-
ardómara. Ástæðan
er ekki sú að ísfirð-
ingar séu hræddir
um að þurfa að
mæta honum fyrir
Hæstarétti, heldur
hefur Pétur notið
' mikillar virðingar sem fógeti og
heimamenn látið vel af störfum
' hans...