Pressan - 22.08.1991, Síða 10
10
FIMMTUDAGUR PRESSAN 22. ÁGÚST 1991
Loft í þremur frystiklefum sem
Teiknistofa Sambandsins hannaði hafa
hrunið, auk þess sem loft í einum
klefa til viðbótar var endurbyggt.
Grunur leikur á að um
hönnunargalla sé að rœða og
hætta sé á að loft í fimmtán
klefum til viðbótar geti
hrunið með
ófyrirsjáanlegum
afleiðingum.
FRYSTKUHM
HYNJII naui UGI
Teiknistofa Sambandsins hannaði á árunum 1974—84
tuttugu frystiklefa fyrir jafnmörg fyrirtæki. Frá árinu
1987 hafa loft í þremur af þessum tuttugu klefum hrunið;
fyrst á Drangsnesi, síðan Þingeyri ’87, og nú síðast í Hrað-
frystihúsinu í Grundarfirði. Einnig þurfti Osta- og smjör-
salan að gera verulegar endurbætur á sambærilegum
klefa sem Teiknistofan hannaði fyrir fyrirtækið eftir að
þakið var farið að síga undan ísingu.
Fyrir hrunið í Grundarfirði hafði klefinn verið yfirfar-
inn og taldi framkvæmdastjóri hússins að ekki stafaði
hætta af honum. Mikil mildi var að óhappið átti sér stað
um verslunarmannahelgina þegar vinna lá niðri í hús-
inu.
Nýja teiknistofan, ádur Teiknistofa Sambandsins, aö Siðumúla 20.
Loftin, sem um ræðir, hafa þann
galla að rakavarnarlagið gefur sig
og einangrunin, sem er í flestum til-
fellum steinull, safnar smám saman
í sig raka sem frýs og margfaldar
þyngd sína, með þeim afleiðingum
að loftið hrynur. Deildar meiningar
eru á milli aðila í málinu um hvort
um er að ræða hönnunargalla af
hálfu Teiknistofunnar eða mistök
við uppsetningu klefanna. Arið
1986 var Teiknistofu Sambandsins
breytt í nýtt hlutafélag, sem ber
nafnið Nýja teiknistofan og er nú í
meirihlutaeign einstaklinga, en auk
þess SÍS og sambandsfyrirtækja.
SEXTÁN SLÍKIR KLEFAR
ENN í NÖTKUN
Auk ofantalinna klefa sem Teikni-
stofa Sambandsins hannaði eru nú
sextán klefar í notkun. Vinnueftirlit-
ið sendi bréf, þar sem vísað var til
óhappanna á Þingeyri og Drangs-
nesi, og gaf hlutaðeigandi aðilum
frest til að fyrirbyggja frekari óhöpp
fram til fyrsta september á þessu ári.
„Við rituðum bréf til þeirra fyrir-
tækja sem hlut eiga að máli og gerð-
um grein fyrir slysahættunni," sagði
Gudjón Sólmundsson hjá Vinnueft-
irliti Vesturlands. „Gefinn frestur
rennur út í september."
Guðjón kvaðst ennfremur ekki
geta svarað því hver viðbrögð
Vinnueftirlitsins yrðu ef fresturinn
yrði hunsaður. Að sögn Sigfúsar Sig-
urdssonar hjá Vinnueftirliti ríkisins
verður efni dreifibréfsins sem sent
var út ítrekað með heimsóknum í
fyrirtækin og eftirliti.
Efni bréfsins var í meginatriðum
þau tilmæli til eigenda og rekstrar-
aðila viðkomandi vinnslustöðva að
þeir létu opna loftin og skoða ísingu.
I bréfinu er greint frá hruninu í
frystiklefum Kaupfélags Dýrfirð-
inga og í Hraðfrystihúsinu á Drangs-
nesi og þeirri slysahættu sem af
þessu stafaði. í einu tilfellinu, í Nið-
ursuðuverksmiðjunni hf. á ísafirði,
þótti eftirlitsmanni ástæða til að
ítreka kröfuna, þar sem ísing var þar
orðin ískyggilega mikil í lofti.
FJÓRTÁN AÐRIR KLEFAR
Onnur fyrirtæki sem fengu sent
bréf voru:
Haförn hf. á Akranesi, Fiskiðjan
Skagfirðingur hf., Sláturhús Kaupfé-
lags Austur-Skaftfellinga, Hrað-
frystihúsið Oddi hf. á Patreksfirði,
Sláturfélag Suðurlands vegna
tveggja klefa á Kirkjubæjarklaustri
og Hvolsvelli, Fjallalamb hf. á Kópa-
skeri, Fiskiðja Raufarhafnar hf., Bú-
landstindur hf. á Djúpavogi, Slátur-
hús Kaupfélags Þingeyinga, Fisk-
iðjusamlag Húsavíkur hf., Sláturhús
Kaupfélags Vestur-Húnvetninga,
Sláturhúsið á Svalbarðseyri, sem
var í eigu Kaupfélags Svalbarðseyr-
ar sem nú er komið á hausinn, og
sláturhúsið á Norðfirði.
í sumum þessara klefa hefur
ástandið verið kannað og í fáeinum
öðrum þykir ekki ástæða til að-
gerða, þar sem einangrað er með
múrhúð og plasti. Enn aðrir hafa
ekki gripið til neinna ráðstafana þó
að gefinn frestur renni út fyrsta sept-
ember.
SLYSAHÆTTA FYRIR HENDI
En nú eru flestir þessir klefar enn-
þá í notkun. Skapar þetta ekki gífur-
lega slysahættu fyrir starfsmenn?
„Jú, hún er auðvitað fyrir hendi,"
sagði Guðjón Sólmundsson. „En
það er þó tiltölulega lítil umferð um
klefana; það eru mest lyftarar og til-
tölulega lítið um að menn séu þar á
gangi, þótt auðvitað sé það til í
dæminu. Fiskinum eða kjötinu eftir
atvikum er síðan staflað upp á
bretti, oft alveg upp undir loft, og
það hefur auðvitað sitt að segja um
slysahættuna ef loftið hrynur. Þá er
frágangur einnig misjafn og misjöfn
umgengni um klefana og það getur
haft sitt að segja líka um hvort raki
myndast. Það kostar sitt að skipta
um klæðningu í lofti og fyrirtæki
gera það ekki nema að vel athug-
uðu máli.“
KLEFINN í GRUNDARFIRÐI
HAFÐI VERIÐ YFIRFARINN
í samtali við Guðjón kom einnig
fram að loftið í frystiklefa Hrað-
frystihúss Grundarfjarðar hafði ver-
ið kannað áður en það hrundi nú
um verslunarmannahelgina. Megin-
áherslan var þá lögð á hvort raki
hefði myndast við útskipunarhurð,
þar sem mestar líkur þóttu á að
hann gæti myndast. Ekki þótti nein
ástæða til aðgerða þá.
1 samtali við PRESSUNA sagði Atli
Vidar Jónsson, framkvæmdastjóri
Hraðfrystihúss Grundarfjarðar, að
hann hefði kannað klefann sjálfur
eftir að hann heyrði um óhappið á
Drangsnesi:
„Það sem núna stendur uppi er
akkúrat það svæði sem ég yfirfór,"
sagði Atli. „Skömmu eftir að ég
hafði yfirfarið þetta eftir bestu vit-
und fékk ég bréf frá Vinnueftirlitinu,
en þótti þá ekki ástæða til frekari
aðgerða."
ÁSTÆÐA TIL AÐ KANNA
UPPTÖKIN
En hvað heldur þú að valdi þessu?
Er um hönnunargalla að ræða hjá
Teiknistofu Sambandsins eða stafar
þetta af frágangi við uppsetningu
klefanna?
„Það er erfitt að segja," sagði Atli
Viðar Jónsson. „Það þarf mjög lítið
frávik í frágangi til að út af bregði.
Ég held að menn hafi ekki almennt
farið fram á bætur, en það er ástæða
til að upptökin séu könnuö og það
eina sem ég get sagt er að málið er
í skoðun. Eg prísa mig sælan að
vinna lá niðri í húsinu þegar þetta
átti sér stað, annars er ómögulegt að
segja til um hvernig hefði farið. Ég
held að þungamiðjan í þessu máli sé
ekki sú að finna einhvern sökudólg,
heldur koma í veg fyrir að slys á
mönnum hljótist af,“ sagði Atli Við-
ar.
ENGAR BÓTAKRÖFUR
Á HENDUR SÍS
Að sögn Gudmundar Sigmunds-
sonar hjá Nýju teiknistofunni hf.
hafa Sambandinu ekki borist neinar
bótakröfur vegna þessa. Hann sagði
ennfremur að í einu tilviki, þegar
einangrun og klæðning úr lofti klef-
ans á Þingeyri hrundu, hefðu fulltrú-
ar frá Rannsóknastofnun byggingar-
iðnaðarins verið kallaðir til, en
hann vildi ekki segja til um niður-
stöður rannsóknarinnar í fljótu
bragði.
Heimildir PRESSUNNAR herma
að deildar meiningar séu um raun-
verulegar orsakir þess að loftin í
klefunum gefa sig, en eftir því sem
fleiri klefar sigli í kjölfarið aukist lík-
urnar á að um hönnunargalla sé að
ræða. Viðmælandi PRESSUNNAR
sagði ennfremur að Teiknistofan
hefði borið fyrir sig slæman frágang
verktaka við uppsetningu klefanna,
en slíkt er hæpin skýring þar sem
um marga verktaka er að ræða. Þá
er einnig álitamál hvort nægilega
vel hafi verið gengið frá því í hönn-
un klefanna hvernig setja ætti upp
rakavarnarlagið.
Samkvæmt heimildum PRESS-
UNNAR var það Kaupfélag Dýrfirð-
inga sem óskaði eftir rannsókn
vegna hugsanlegrar bótakröfu, ann-
aðhvort á hendur verktakafyrirtæk-
inu er annaðist uppsetninguna, sem
nú er farið á hausinn, eða Teikni-
stofu Sambandsins. Málum lyktaði
þannig að Kaupfélag Dýrfirðinga
lagði ekki fram bótakröfu og fékk
ekkert út úr tryggingunum. Hrað-
frystihús Grundarfjarðar hf. hafði
allar hefðbundnar tryggingar, en
engin þeirra nær yfir það tjón sem
hlaust á frystiklefanum um verslun-
armannahelgina.
Það er útgjaldasamt fyrir fyrir-
tækin að skipta um klæðningar í
lofti klefanna og kann það aö vera
skýringin á seinaganginum. Einnig
er óhægt um vik að tæma klefana í
smærri plássum þar sem enginn
annar frystiklefi er á staðnum, en
það er nauðsynlegt til að viðgerð
geti farið fram.
Þóra Krístín Ásgeirsdóttir