Pressan - 22.08.1991, Blaðsíða 19
FIMMTUDAGUR PRESSAN 22. ÁGÚST 1991
19
s
•s-Jérstakt leyfi þarf til að dreifa
bjór og öðru áfengi í veitingahús og
verður að greiða þokkalegt gjald
fyrir slíkt leyfi. Þeg-
ar Páll Jónsson í
Polaris átti og rak
Sanitas/Viking
missti hann leyfið
vegna vanskila og
dreifði ÁTVR þá
áfenginu sjálft. Það
þykir miður gott, því að dreifingar-
þjónusta stofnunarinnar er seinvirk.
Werner Rasmusson keypti fyrir-
tækin af Páli, sem kunnugt er, en
einhverra hluta vegna hefur honum
ekki tekist að gera upp þessi mál.og
því enn ekki fengið dreifingarleyf-
ið.. .
• •
o ruggt er talið að stjórn Kaup-
félags Langnesinga verði að sækja
um framlengingu á greiðslustöðvun
þeirri sem fyrirtækið fékk í vor. Þá
fékk Kaupfélagið þriggja mánaða
greiðslustöðvun, sem rennur út um
næstu mánaðamót. Ætlunin er að
sækja um tvo mánuði í viðbót en
það hefur komið í hlut nýs kaupfé-
lagsstjóra, Garðars Halldórsson-
ar, að semja. Óvíst er hvort fram-
lenging fæst, því lítið hefur gengið
að breyta skuldum fyrirtækisins.
Helst að menn sjái breytingu í því að
verslunninni á Raufarhöfn var lok-
að, við litla hrifningu staðarbúa...
F
JL lestir bjuggust við tilþrifalitlu
þingi ungra sjálfstæðismanna á ísa-
firði á dögunum, en annað kom á
daginn. Afar vand-
ræðalegar uppá-
komur urðu á síð-
asta degi þingsins
þegar gengið var til
stjórnarkosninga.
Þá kom í ljós að sæti
þeirra þingfulltrúa,
sem ekki mættu, höfðu verið fyllt af
öðru fólki og greinilegt að smalað
hafði verið í auðu sætin og nýjum
mönnum afhent kjörbréf. Þannig
kom það mönnum til dæmis
spánskt fyrir sjónir að eiginkona
Arna Sigfússonar, borgarfulltrúa
og fundarstjóra síðasta daginn, var
mætt á svæðið — sem fulltrúi Dala-
manna! Talið er að allt að fjórðungi
fulltrúa á þingið hafi þannig komið
síðasta daginn á fölskum forsend-
SÍMI13303
um. Ýmsir þingfulltúar brugðust
ævareiðir við og kröfðust þess að
stjórnarkosningin yrði lýst ógild.
Eftir mikið japl, jaml og fuður varð
Árni Sigfússon við því og eftir að
kjörbréf allra fulitrúa höfðu verið yf-
irfarin var hinum nýju fulltrúum
gert að yfirgefa þingið og stjórnar-
kosningin var endurtekin...
L'OREAL
Verskjnln _
HUéMBÆR
HUÓMBÆJARHÚSINU HVERFISGÖTV
25 S'*
all purpose grind
^AHINO
rp r-p
wihsa
frESH NATURAL FLAVOR
vacuum packéd
Net vvt. íe 02:.<454 g)
■
Skútuvogi 10a - Sími 686700
Valkvætt fjórhjóladrif
Hátt og lágt drif
Vökvastýri
Samlæstar hurðir
Rafstillanlegir speglar
Þriggja ára ábyrgð
Hreint frábært verð 1.186.000.- stgr.
Bílasýning laugardag og sunnudag kl. 1400-1700.
Ingvar
Helgason hf.
Sævarhöföa 2
sími 91-674000
SUBARU STATION 1.8DL4WD