Pressan - 22.08.1991, Blaðsíða 27
FIMMTUDAGUR PRESSAN 22. ÁGÚST 1991
27
hpósið
.. .fær Rolf Johansen
fyrir að hafa fært okkur
allar góðu sígaretturn-
ar og fallegu dæturnar
ÁÐUR ÚTI NÚNA INNI
Þótt þetta sé kannski ekki
rétti timinn til að endurtaka
þau almæltu sannindi að
ferðaiög austur fyrir járn-
tjaidið séu í tísku er ef til vill
rétt að hnykkja á því þegar
þetta margfræga tjald hefur
verið endurreist. (Þetta á þó
ekki við sumarhús á Krím-
skaga.) Það er ekki bara að
ferðir austur fyrir tjald bjóði
upp á ánægjulegri heimkomu,
þar sem hægt er að slá um sig
sem sérfræðingur í málefnum
viðkomandi þjóðar (það er
ekki hægt að selja neinum
sérfræðinga í Spáni eða Ital-
íu), heldur er matur og drykk-
ur mun ódýrari þarna fyrir
austan. Við, negrar norðurs-
ins, getum því slegið um okk-
ur eins og prinsar og prins-
essur. Og það segja fróðir
menn að sé eitt af því holiasta
sem hægt er að gera, — finna
til yfirburða sinna gagnvart
meðbræðrunum.
ÁÐUR INIMI NÚNA ÚTI
Gleraugu. Ekki sem hjálpar-
gagn heldur sem aðalskrautið
á andlitinu. Ævintýraleg lög-
un og litir eða þykkir svartir
kassar eru því úti. Gleraugu
eru einfaldlega á of viðkvæm-
um stað til að fólk geti reynt
að tjá sig í gegnum Iögunina.
Og þau eru líka á of viðkvæm-
um stað til að fólk geti verið
að auglýsa mjög áberandi inn-
stæðuna á heftinu. Augun eru
spegill sálarinnar og það fyr-
irbrigði er of merkilegt til að
lúta í lægra haldi fyrir vesk-
inu eða stíiæfingum tisku-
hönnuða. Því segjum við:
Húrra fyrir Cary Grant.
KROSSGÁTAN »———
LÁRÉTT: 1 þrútna 6 fána 11 feiti 12 óráð 13 úldið 15 hrufur 17 for-
föður 18 skinnbfelgur 20 erlendis 21 urg 23 óhróður 24 kjötbitar 25
rani 27 andvarp 28 heimska 29 myrkur 32 hljóðuðum 36 eggjárn 37
lón 39 kvelji 40 kraftur 41 tannstæði 43 kvabb 44 brydding 46 telja
48 rýra 49 nudda 50 harmar 51 keyrandi.
LÓÐRÉTT: 1 deyja 2 stjórastreng 3 vatn 4 blekking 5 sníkjudýrið 6
losti 7 silakeppi8þraeta9 holóttu 10 jarðhrun 14 uppi 16auk 19auð-
æfi 22 nægtir 24 deilur 26 óðagot 27 fönn 29 handarhalds 30 am-
boða 31 skjögrar 33 siðurinn 34 ánægja 35 sigtaði 37 krókar 38 nirfill
41 maður 42 ráf 45 atorku 47 flökta.
ÍÓIN
tLICE HÁSKÓLABÍÓI
■nn reynir WoodyAllen að gera meistaraverk. Og enn getum við sker
\r yfir tilraunum hans.
\mt okk-
LÍFIÐ ER ÓÞVERRI Life Stinks BÍÓHÖLLINNI
Hreint ótrúlega vond mynd; nánast ekkert fyndin, drepleiðinleg, væmin og
vemmileg. Hún er óþverri (It Stinks).
Þeireru engum líkir, VinirDóra og adrir íslenskir blúsarar sem hafa haldið dúndurtón-
leika trekk í trekk upp á siðkastið. Og nú er enn ein blúshelgin framundan: Vinir Dóra
verða á Púlsinum á föstudagskvöldið og Blúsmenn Andreu troða upp á sama stað
kvöldið eftir.
SJÓNVARPIÐ
VEITINGAHÚSIÐ
Uppáhalds
vínið
Ingi Bjöm
Albertsson
alþingismaflur og
knattspyrnuþjálfari
..Hennessy XO er mitt uppá-
haldsvín og hefur verid það
lerigi. Þaö er númer eitt, tvö
og þrjú hjá mér. Það er dýrt
vín, en gœdi eru oft dýr-
keypt.“
Birgitta Osk Oskarsdóttir
opnar Ijósmyndasýningu í Ás-
mundarsal við Freyjugötu á
fimmtudaginn kl. 18. Myndirnar
eru svarthvítar, 40x50 sm að
stærö, áritaðar, númeraðar og í
mjög takmörkuðu upplagi. Birg-
itta var við nám í Bandaríkjun-
um og hefur meðal annars hald-
ið sýningar í New York.
HÚSRÁÐ
Eger nýkomin heim úr sum-
arbústaðnum mínum og er
nær dauða en lífi af þreytu.
Þótt ég hafi ekki verið þar
nema sex daga í þetta sinn
held ég að ég hafi tekið á
móti um sautján ættingjum.
Ég vissi ekki einu sinni að
sumir þeirra væru til, —
hvað þá skyldir mér. Eg
gerði því lítið annað en hella
upp á könnuna fyrir þetta
fólk, búa um það og horfa á
lambakótiletturnar mínar
hverfa niður um kokið á því.
Ef mér tekst ekki að finna
ráð til að losna við þetta fólk
held ég að ég neyðist til að
selja bústaðinn. Það væri
synd því mér þykir vænt um
hann og hef ekki alveg misst
trúna á að ég geti hvílst í
honum. Hvað á ég að gera?
Aður en þú ferð í bústaðinn
skaltu tilkynna öllum sem
vilja heyra að þú ætlir að
stækka rotþróna og gætir
vel þegið hjálp. Það ætti að
tryggja að enginn komi í
heimsókn.
VIÐ MÆLUM MEÐ
Að næst þegar fólk verður
skotið í einhverjum falli það
fyrir maka sínum
það er auðveldara og hefur
ánægjulegri eftirköst
Bumbu-, rass- og læra-
leikfimi
fyrir stærstan hluta karl-
þjóðarinnar
Að fólk hætti að tuða yfir
tryggingaiðgjöldum
það er engum til gagns, veit-
ir takmarkaða útrás og er
öðrum til leiðinda
Gjaldþrotum fyrirtækja
slík hundahreinsun er for-
senda þess að þúsundir
nýrra bióma fái að blómstra
Að Silli Pétur reyni að tjá
sjálfsimynd sína á nýjan hátt
ekki fyrir það að sú gamla
(Hann er alveg ofboðslega
frægur. . . sjúddirallilei
sjúddirallilei. . . og svo nýja í
næstu höfn) sé röng heldur
bara helst til of oft kveðin
Enn auglýsum við eftir veit-
ingahúsi. Nú viljum við fá há-
degisstað þar sem hægt er að
borða almennilegan mat án
þess að þurfa að bíða eftir
honum í hálftima og annað
eins eftir reikningnura. Stað
með fáum réttum þar sem
maður borgar matinn um leið
og maður pantar og hægt er
að gripa appelsínu á leiðinni
út til að borða þegar komið er
í vinnuna.
MYNDLISTIN_________________
Nordic Light og Hafnarborg
opna sýningu á teikningum, bak-
grunnum og hlutum úr teikni- og
hreyfimyndum frá íslandi, Dan-
mörku, Sviþjóð, Finnlandi, Eist-
landi, Lettlandi og Litháen föstu-
daginn 23. ágúst kl. 18. í Hafnar-
borg verða sýndar teikningar úr
teiknimyndum en í Bæjarbíói
verða sýndar teiknimyndir.
Þarna verður fjörið — Hafnar-
fjörður er orðinn Mekka allra
lista á þessu tandi. Við þangað.
LJÓÐIÐ_____________________
I kvöld á Borginni: Ari Gísli
Bragason, Elísabet Þorgeirs-
dóttir, Guðbergur Bergsson,
Gunnhildur Sigurjónsdóttir,
Jónas Þorbjarnarson, Nína
Björk Árnadóttir, Steinunn
Ásmundsdóttir og Valgarður
Bragason. Kynnir er Sæmund-
ur Norðfjörð. Upplögð Ijóðræn
lending inn í helgina.
Athuganir hafa leitt í Ijós að
skegg þeirra karlmanna sem
eru í föstu sambandi vex ör-
litlu hraðar en hinna ein-
hleypu. Það vex því örlitlu
hraðar en sem nemur hálfri
tommu á mánuði. Að meðal-
tali hefur hver karlmaður um
30 þúsund skegghár. Saman-
lagt framleiöir þvi meðalkarl-
inn um 96 mílur af skegghár-
um á ævinni.
POPPIÐ
Og svo verður blúsað og blús-
að. Á föstudagskvöldið mæta
Vinir Dóra og á laugardags-
kvöldið eru það Blúsmenn
Andreu; þeir voru líka á ferð um
síðustu helgi og þá var dúndur-
stuð.
NÆTURLÍFIÐ
Það verður rokkað á Tveimur
vinum um helgina. Á fimmtu-
dagskvöldið verður þar stór-
sveitin Síðan skein sól með
Helga Björnsson í broddi fylking-
ar. Sólin verður á Tveimur vinum
næstu þrjú fimmtudagskvöld.
Sem sagt bókað stuð.
Á föstudags- og laugardags-
kvöldið verður Loðin rotta í að-
alhlutverki — er það ekki ennþá
sætasta bandið í bænum?
Jæja! Nú verða allir að byrja að
undirbúa sig fyrir stórhátíðina
PIPARINN ’91 sem haldin verður
á Akureyri helgina 13. og 14.
september. Þetta er í þriðja skipti
sem piparsveinar koma saman
með lúðraþyt og söng og nú tek-
in upp sú nýbreytni að pipar-
myntur slást í hópinn. íslenski
piparsveinninn á fátt sameigin-
legt með kollegum sínum í sið-
menntuðum löndum og er yfir-
leitt margfráskilinn. Þess vegna
getur nánast hver sem er sótt Ak-
ureyrarhátíðina og menn ættu
að byrja að æfa sig strax um
helgina. Munið bara þegar á bar-
ina er komið: Hinn sanni pipar-
sveinn er ekki slefandi tlólgur
sem reynir að taka hverja ein-
ustu dömu á löpp. Hann er sið-
fágaður, prúður, skemmtilegur
heimsborgari — og hann verður
ekki „ástfanginn" klukkan hálf-
þrjú að nóttu. Gangi ykkur vel,
drengir!
óiatan
MOCK TUfíTLES
— TWO SIDES
Eitt besta nýja breska
bandið sem fram hefur
komiö siðustu ár. Undir
sterkum Bitla-Birds-
Kinks-Doors-áhrífum en
með sterkum danstakti.
Góð plata! Við gefum
henni 7 af 10.
Það er mikil fótboltahelgi fram-
undan: Á laugardag kl. 14 verður
bein útsending frá úrslitaleik
kvenna í bikarkeppninni. Þar
eigast við ÍBK og ÍA, en Keflavík-
urstúlkurnar leika í 2. deild.
Áfram stelpur! Á sunnudag kl. 16
verður svo sýnt frá úrslitaleik
Vals og FH (ekki bein útsend-
VINSÆLUSTU
MYNDBÖNDIN
1. Reversal of Fortune
2. Memphis Belle
3. Almost an Angel
4. Rookie
5. Navy Seals
6. Havana
7. Funny About Love
8. Narrow Margin
9. Don't tell Her it's Me
10. Neverending Story II
ing). Þá fáum við að vita hvort
Hörður Magnússon stendur
við stóru orðin um að skora í öli-
um bikarleikjum FH í sumar.
STÖÐ 2_______________________
Zúlú-stríðsmennirnir Zulu
laugardagskvöldið kl. 23.00. Hér
segir frá viðureign Breta og Zúlú-
manna í snotru frumskógar-
drama þar sem Michael Caine
er í aðalhlutverki. Myndin fær
þrjár stjörnur af fjórum hjá Malt-
in.
Það verður líka nóg um að
vera á Púlsinum. Á fimmtudags-
kvöldið treður Fríða sársauki
upp: athyglisvert band.
Það er svona skipað: Andri Örn
Clausen söngur, Páll Ólafsson
gítar, Guðmundur Höskulds-
son gítar, Friðrik Sturluson
bassi, Eðvarð Vilhjálmsson
f)
1 r-i b- j
trommur. Það er mikill meyjar-
blómi í kringum Fríðu sársauka:
Kristjana Stefánsdóttir og
Hanna Dóra Sturludóttir
syngja bakraddir og Aðalheiður
Þorsteinsdóttir spilar á hljóm-
borð. Hljómsveitin leikur frum-
samin lög við eigin texta. Við
mælum með þeim.