Pressan - 22.08.1991, Qupperneq 29
FIMMTUDAGUR PRESSAN 22. ÁGÚST 1991
29
NAMUSTERI A
STA ALDURSÁRI
JÓHANNES NORDAL sedlabankastjóri erannálaðurfagurkeri og segja sumirað
vel sé við haefi að hann sé andlit bankans. Fyrir það fær hann 801.000 krónurá
mánuði. Hér er hann glaður á góðri stund ásamt öðrum bankastjóra, Tómasi
Árnasyni.
Hvaö íer eiqinIeqa íram í Seöía-
bANI<aHÚSÍNU? HvaÓ ERU þESSÍR 2 50
MENN, SEM þAR STARfA, Að qERA? SuMÍR
SEqjA AÖ NAqA blýANTA, AðRÍR pRENTA
seöÍa oq enn aörír IhaIcIa aö ^aöan SÉ
EÍNAlrAqslífi ÍANdsÍNS STjÓRNAð. ENqÍNN
VÍRÖÍST VÍTA þAÖ fyRlR VÍST, SEM ER SyNd,
því þETTA ER ÁN eÍa EÍTT MEST SpENNANdi
IhÚS Á ÍANdÍNU. Oq INNANdyRA ER
MARqT AÖ SjÁ; MÁÍVErI<, MATSTAð,
bljÓðÍÆRÍ, TÍMARÍTAÚTqÁÍu Oq SÍÖAST EN
Ekki SÍST; qullfoRðA lANdsMANNA.
milljónum króna en jöröina fékk
hann á 4,2 milljónir. Eins og kom-
ið hefur fram hér í PRESSUNNI
var einn aðstoðarbankastjóra
bankans, Björn Tryggvason, í sveit
þar og er það ein af ástæðum
kaupanna.
JÓHANNES BANKASTJÓRI
FRÁ UPPHAFI
í augum landsmanna er gjarnan
sett samasemmerki á milli Seðla-
bankans og Jóhannesar Nordal
bankastjóra. Það er ekki nema
von; hann hefur verið bankastjóri
Seðlabankans frá upphafi og fær
fyrir það 801.000 krónur á mánuði
— inni í þeirri tölu eru þó líklega
þóknanir fyrir nefndarstörf, sem
ekki eru ófá hjá Jóhannesi.
Fyrir þá sem trúa á skúffukenn-
inguna um Seðlabankann má
segja að Jóhannes hafi stokkið úr
skúffunni, því hann byrjaði feril
sinn hjá Landsbankanum. Þar
varð hann hagfræðingur á miðjum
sjötta áratugnum eftir að hafa
stundað nám við LSE (London
School of Economics), þar sem
fjölmargir íslendingar hafa stund-
að nám. Meðal annars annar fræg-
ur fjármálamaður, Ármann Reynis-
son, en hann og Jóhannes voru
einmitt saman í stjórn félags fyrr-
verandi LSE-nemenda.
Jóhannes hófst fljótlega upp í
stöðu bankastjóra hjá Landsbank-
anum. Þegar Seðlabankinn varð
til tók Jóhannes við honum og
hefur verið þar síðan. Það hefur
verið sótt að honum, eins og fræg
fyrirheit Jóns Baldvins Hannibals-
sonar sýna, en Jón hafði á orði að
reka ætti Jóhannes. Ekkert hefur
orðið af því ennþá.
HELMINGUR GULLSINS
GEYMDUR í ÚTLÖNDUM
Og auðvitað á Seðlabankinn
gull. í lok síðasta árs var gulleign
Seðlabankans 48.589 únsur. Þær
voru metnar samkvæmt verð-
skráningu Alþjóðagjaldeyrissjóðs-
ins og samkvæmt því er verðgild-
ið um 133 milljónir, en í raun er
ekkert að marka það verð. Ef
Seðlabankinn seldi gullið á frjáls-
um markaði fengi hann líklega um
milljarð fyrir það.
En ekki er allt gullið geymt í
fjárhirslum Seðlabankans. Um
20.000 únsur eru geymdar erlend-
is, en það sem er geymt hér er í
norskum gullkrónum og gulldoll-
urum frá 1908. Þetta sýnir ef til
vill hve miklir smekkmenn eru í
Seðlabankanum, því þetta er auð-
vitað mun listrænna gull en þessar
hefðbundnu stangir sem aðrir
seðlabankar notast við.
Sigurður Már Jónsson
VAR Seðlabankinn einu sinni ofan i
skúffu íþessu húsi?
FLYGILLINN góði sem Seðlabankinn
keypti á 2,5 milljónir króna í apríl í vor.
Þótti mörgum það vel við hæfi, um
leið og píanóleikarinn Birgir ísleifur
Gunnarsson settist í stól bankastjóra.
Ekki spillir fyrirstemmningunni að fyr-
ir ofan flygilinn má sjá olíumálverkið
Kindur eftir Louisu Matthíasdóttur.
s
l^^vo virðist sem nu seu serstakar
afmælisgjafir í tísku. Davíð Odds-
son forsætisráðherra tilkynnti um
bága stöðu Byggða-
stofnunar sama dag
og Matthías
Bjarnason, stjórn-
arformaður Byggða-
stofnunar, varð sjö-
tugur. Þjóðviljinn er
kominn með
greiðslustöðvun og hefur sagt upp
öllu starfsfólki og þar með frétta-
stjóranum, Sigurði Friðþjófssyni,
sem varð fertugur í gær. Þetta eru
huggulegar afmælisgjafir eða hitt
þó heldur. . .
lÍankaeftirlit Seðlabankans hef-
ur veitt Fjárfestingarfélagi íslands
blessun sína eftir að hafa skoðað yf-
irlit um innlausnir hlutdeildarskír-
teina dagana fyrir gengislækkun
bréfanna, sem leiddi til 180 milljóna
króna rýrnunar þeirra. Augu banka-
eftirlitsins beindust ekki síst að því
hvort helstu eigen dur Fjárfestingar-
félagsins, starfsmenn og vensla-
menn hefðu innleyst bréf í stórum
stíl út frá vitneskju um trúnaðarmál,
þ.e. vitað um gengislækkunina fyrir-
fram. Þórður Ólafsson, forstöðu-
maður eftirlitsins, komst að þeirri
niðurstöðu að svo væri ekki. Við
heyrum að það hafi þvert á móti
vakið furðu manna að nokkrir
starfsmenn fyrirtækisins keyptu
hlutdeildarskírteini daginn fyrir
gengislækkunina. . .
s
k-rtjorn Veitustofnana Reykjavík-
urborgar hefur ráðið Martin Peter-
sen til að stjórna fræðslumálum
Rafmagns-, Hita- og
Vatnsveitna borgar-
innar. Martin var um
langt árabil yfirmað-
ur hjá Loftleiðum,
Flugleiðum og ís-
cargó, rak um skeið
heildsölu og starfaði
hjá Upplýsingamiðstöð ferðamála
við Ingólfsstræti...
F
JL ram hefur komið í frettum að
fyrirtækið Vatnsberinn hefur náð
samningum við bandaríska aðila
um kaup á miklu magni íslensks
vatns, svo milljörðum króna nemur.
Um leið stendur y fir hlutafjársöfnun
hjá fyrirtækinu og á að safna 150
milljónum króna. Ekki veitir af, því
sem stendur eru eigendur fyrirtæk-
isins aðeins tveir, Þórhallur Gunn-
laugsson og Berta Richter, og
hlutaféð aðeins 400 þúsund krónur.
Eftir fréttunum að dæma mætti ætla
að útflutningsmál þessi væru sama
sem frágengin og er haft eftir Þór-
halli að bæjaryfirvöld í Hafnarfirði
hafi tekið vel í mál fyrirtækisins
varðandi aðstöðu fyrir tankskip og
vatnstöku í Kapelluhrauni. Ekki
munu mál þó vera alveg svo einföld.
Bæjaryfirvöld hafa auðvitað tekið
Vatnsberanum kurteislega, en hafa
engu viljað lofa. Þannig mun nefni-
lega hátta til, að aðrir aðilar hafa
leitað til Hafnarfjarðar um vatnsút-
flutning í enn meira mæli en hjá
Vatnsberanum, og ræður endanleg-
um úrslitum hvernig gögn koma til
með að líta út um fjármögnun,
tryggingar og fleira. . .