Pressan - 22.08.1991, Síða 30
Tel óeðlilegt að ríkissjóður borgi
fyrir símtöl Steingríms í lukkulín-
una, — segir Davíð Oddsson
Forsætisráðuneytið
BIRTIR LISTA
YFIR SÍMTÖL
STEINGRÍMS
ÚR FORSÆTIS-
RÁÐUNEYTINU
— hringdi heim að meöaltali
2,4 sinnum á dag og hreint
ótrúlega oft í lukkulínuna
Niðurstöður rannsókna
við Háskólann
Náttföt eru vörn gegn stööumaela-
sektum
KARLMENN
SEM SOFA í
NÁTTFÖTUM
FÁ SÍÐUR
STÖÐUMÆLA-
SEKTIR
— Ingi Ú. Magnússon gatna-
málastjóri segir að reynt
verði að hanna stöðumæla til
að ná einnig í náttfata-menn-
ina
Böðvar Guðmundsson segist ekki
geta saett sig við nöglina á hvirfl-
inum né geta lært að klippa hana
og ætlar því i mál
Enn verða mistök á Borg-
arspítalanum
GRÆDDU TÁNÖGL Á
HVIRFIL MANNS
SEM KOM í
SKALLAMEÐFERÐ
— ástæðuna má rekja til
þess hversu óskýrmæltur
sjúklingurinn var, — segja
læknarnir
34. TOLUBLAÐ 2. ARGANGUR
FIMMTUDAGURINN 22. AGUST 1991
STOFNAÐ 1990
HAFA SKAL ÞAÐ SEM BETUR HUÓMAR
AFPÖNTUNUM RIGNIR YFIR
ALLAR FERÐASKRIFSTOFURNAR
— taliö að um sé að rœða áhrif frá atburðunum í Sovétríkjunum
Reykjovík, 21. ógúst.
Strax og fréttir bárust
um fall Gorbatsjovs í Sov-
étríkjunum fór afpöntun-
um að rigna yfir ferða-
skrifstofurnar í Reykja-
vík.
„Síminn hefur verið rauð-
glóandi hérna hjá okkur,"
sagði Helgi Jóhannsson hjá
Samvinnuferðum-Landsýn.
„Fyrst hringdi Davíð Odds-
son og afpantaði Grikklands-
ferðina sína. Síðan hringdi
Jón Baldvin og dró til baka
pöntun sína á Brussel-ferð og
núna rétt áðan hringdi meira
að segja Steingrímur Her-
mannsson þótt hann eigi
enga ferð pantaða."
Helgi sagðist ekki í vafa um
að forystumenn í stjórnmál-
um hugsuðu sig tvisvar um
Eftir hið mislukkaða sumarfrí
Gorbatsjovs hafa stjórnmála-
menn afpantað ferðir sínar hjá
ferðaskrifstofunum.
áður en þeir færu í sumarfrí
eftir það sem hefði gerst í
Sovétríkjunum. Þeir váeru
auðsjáanlega hræddir um að
tækifærið yrði notað til að
velta þeim úr sessi.
„Það sýnir best að þetta er
ekki úr lausu lofti gripið að
Svavar Gestsson hringdi
hérna áðan og pantaði ferð til
Mallorka fyrir Ólaf Ragnar
Grímsson," sagði Helgi.
ELVIS SAGBI MER AB
ALLT VÆRI í LAGI
— segir Steingrímur Hermannsson, sem hitti rokkkónginn í Hvalfirði
Akranesi, 22. ágúst.
„Hann kom að mér þar
sem ég stóð fyrir utan bíl-
inn minn á meðan verið
var að fylla á hann. Hann
lagði höndina á öxiina á
mér og sagði: Steingrímur,
hafðu ekki áhyggjur. Þetta
er allt í lagi,“ sagði Stein-
grímur Hermannsson, for-
maður Framsóknarflokks-
ins, þegar hann kom til
Akraness í gær. Stein-
grimur sagðist hafa hitt El-
vis Presley í Hvalfirðinum
í gær.
Aðspurður sagðist Stein-
grímur trúa að Elvis væri á
lífi.
„Þetta var ekki vofa sem ég
sá. Þetta var maður af holdi
og blóði,“ sagði Steingrímur.
Hann sagði að þeir Elvis
hefðu spjallað saaman um
stjórnmál, bæði hér heima og
eins alþjóðamál.
„Mér fannst eins og Elvis
fylgdist vel með okkur hér.
Því varð mér hlýtt um hjarta-
rætur þegar hann sagði að
þetta væri allt í lagi. Þetta
ætti eftir að blessast allt sam-
an,“ sagði Steingrímur.
Elvis birtist Steingrími í Hval-
firði og sagði honum að hafa
ekki áhyggjur. Allt væri að
snúast til betri vegar.
Pompidou-safnið kaupir Miklalax
— kaupverðið ekki gefið upp en talið skipta milljörðum
Skagaströnd, 21. ágúst.
Um leið og fréttist að
Museum of Modern Art í
New York hefði ákveðið að
setja upp sýningu á verk-
um Matthíasar Bjarnason-
ar hófst mikið kapphlaup
margra stærstu listasafna
heims um að krækja sér í
verk eftir hinn nýuppgötv-
aða listamann. I gær
keypti til dæmis franska
listasafnið sem kennt er
við George Pompidou fyr-
irtækið Miklalax fyrir
stjarnfræðilega upphæð.
„Auðvitað fögnum við
þessu," sagði Guðmundur
Malmquist, forstjóri Byggða-
stofnunar, en sú stofnun var
aðaleigandi Miklalax. Guð-
mundur sagði að eftir sölu
Miklalax og nokkurra ann-
arra fiskeldisfyrirtækja til er-
lendra listasafna stæði
Byggðastofnun ótrúlega vel.
„Við erum í raun að
drukkna í peningum," sagði
Guðmundur. „Við höfum set-
ið undir ámæli fyrir að styðja
við list Matthíasar, meðal
annars frá núverandi forsæt-
isráðherra, en ég vona að all-
ir hafi nú áttað sig á hvað við
vorum að gera. Þegar upp er
staðið býst ég við að þetta
verkefni skili meiru í þjóðar-
búið en þreföld útfærsla land-
helginnar á sínum tírna."
Matthías Bjarnason. Nýja stjarnan í listaheiminum
Museum ofModern Art í New York
Opnar sýningu á list
Matthíasar Bjarnasonar
— Matthías hefur brotið blað í sögu land-art,
— segir listfrœðingur safnsins
New York, 22. ágúst.
„Eftir að hafa skoðað
verk Matthíasar Bjarna-
sonar kemst maður að
því að listasagan verður
ekki söm á eftir. Menn á
borð við Christo eru eins
og lærlingar við hlið
þessa íslenska risa í list-
inni,“ sagði Ken Kinley,
aðallistfræðingur Muse-
um of Modern Art í New
York, þegar hann kynnti
fyrirhugaða sýningu á
verkum íslenska lista-
mannsins Matthíasar
Bjarnasonar í gær.
Matthías Bjarnason er
sjötugur þingmaður á þjóð-
þingi Islendinga sem hefur
barist fyrir uppbyggingu
risastórra listaverka í fjöl-
mörgum fjörðum á strönd
íslands.
,,i raun fær maður ekki
notið þessara verka nema
með augum gervitungla.
Þau eru svo stórfengleg að
manni er hætt við að týnast
í þeim ef maður nálgast
þau á jörðu niðri,“ sagði
Kinley.
Nokkrar deilur hafa orð-
ið um list Matthíasar á ís-
landi. Honum hefur tekist
að afla fjár til að stunda list
sína með formennsku í
Byggðastofnun, sem ætlað
er að styðja við atvinnuþró-
un í dreifðari byggðum
landsins.
„Sá styr sem stendur um
list Matthíasar á íslandi
sannar að enginn er spá-
maður í sínu föðurlandi.
Það er sorglegt til þess að
vita að hann hafi þurft að
láta líta út fyrir að hann
hygðist rækta fisk í þessum
risastóru keröldum sem
hann hefur stillt upp við
firðina. En það sýnir snilli
hans að þegar grannt er
skoðað eykur það gildi
verkanna þegar fiskarnir
eru í kerjunum," sagði Kin-
ley.
Tölvur, prentarar, hugbúnaður, netbúnaður, samskiptakerfi, umbrotskerfí og alhliða þjónusta
MICROTÖLVAN
Suðurlandsbraut 12 - sími 688944