Pressan - 22.08.1991, Síða 32
..tkyggvagotu
cTWAVURjT)
0- ' v‘* v 3 1 m UVVK I A\/Ik'
s^STAURÍ^.
101 RKYK.IAVIK
SÍMl 15520
Laugardaga 10-17
Sunnudaga 14-17
TM-HUSGÖGN
SÍDUMÚLA 30 SÍMÍ 686822
É Íreentínskt
1/9/ eldhús
vSö5=^OC^5s2/
-á íslenska uísu
HLUSTUM ALLAN SÓLARHRINGINN SÍMI 621373
ið sögðum frá því í síðasta
blaði að vegna þess að Guðmund-
ur G. Þórarinsson, fyrrum þing-
maður, væri orðinn
úrkula vonar um að
verða aðstoðarfram-
kvæmdastjóri Fram-
kvæmdasjóðs hefði
hann stofnað nýja
verkfræðistofu. Eitt-
hvað eru málin þó
flóknari. Nú hefur fengist staðfest að
Guðmundur hefur verið ráðinn til
starfa hjá Landsbanka íslands. Guð-
mundur starfar í deild sem heitir
„útlánastýring", en hún var stofnuð
á síðasta ári og er forstöðumaður
hennar Þór Þorláksson. Sá aðal-
bankastjóri sem fer með viðkom-
andi svið er hins vegar Halldór
Guðbjarnason, flokksbróðir Guð-
mundar. Það hljómar óneitanlega
einkennilega að Guðmundur skuli
vera farinn að stýra útlánum hjá
Landsbankanum. Ekki er langt síð-
an Landsbankinn tók fyrir lán til
fiskeidisfyrirtækisins lsþórs í Ölfusi,
þar sem Guðmundur er meðal hlut-
hafa, og í kjölfarið lenti ísþór í erfið-
leikum sem nýlega leiddu til þess að
fyrirtækið fékk greiðslustöðvun. . .
Inn er óvíst hver verður næsti
þjóðgarðsvörður á Þingvöllum. Til
þessa hafa aðallega þrír prestar sýnt
áhuga sinn; séra
Guðrún Edda
Gunnarsdóttir,
sem er eiginkona
séra Einars Sigur-
björnssonar pró-
fessors, séra Baldur
Kristjánsson, sókn-
arprestur á Höfn, og séra Kristján
Björnsson, sóknarprestur á
Hvammstanga. Þá hefur og heyrst
að séra Þórir Stephensen, staðar-
haldari í Viðey, hafi áhuga. Það er
verk Þingvallanefndar og biskups-
ins, herra Ólafs Skúlasonar, að til-
nefna í embættið en kirkjumálaráð-
he/rann, Þorsteinn Pálsson, skipar
í gtöðuna. Umsóknarfrestur er til
tólfta september...
lí þeim þremur sem þykja lík-
legust til að fá embætti þjóðgarðs-
varðar á Þingvöllum hefur séra
Kristján Björnsson einn starfað í
þjóðgarðinum. Hann sker sig úr hin-
um tveimur þar sem hann hefur að-
eins eitt háskólapróf. Séra Baldur
Kristjánsson er bæði guðfræðingur
og félagsfræðingur og séra Guðrún
Edda Gunnarsdóttir er guðfræð-
ingur og jarðfræðingur. Veðjað hefur
verið á að séra Sigurður Sigurðar-
son, sóknarprestur á Selfossi, sæki
um Þingvelli. Það er talið ólíklegt,
þar sem hann mun hafa meiri áhuga
á að verða vígslubiskup í Skálholti,
en séra Jónas Gíslason vígslubisk-
up lætur af embætti innan fárra
M. réttir vikunnar hafa komið frá
Sovétríkjunum. Vestrænir fjölmiðl-
ar hafa kappkostað að greina frá
andspyrnu Boris
Jeltsíns og félaga.
Dagblaðið Tíminn,
undir stjórn Indriða
G. Þorsteinssonar,
tók hinsvegar öðru-
vísi á málunum. 1
opnu blaðsins á
þriðjudag var risamynd af Kreml og
undir henni var birt yfirlýsing átt-
menningakjíkunnar á kjarnyrtri ís-
lensku. Áttmenningarnir hafa
sennilega hvergi á Vesturlöndum
fengið aðra eins þjónustu og velvild
og hjá íslenska dagblaðinu Tíman-
um. . .
Go lf verður sífellt vinsælli
íþróttagrein. Golfklúbbur Reykja-
víkur er hættur að taka á móti nýj-
um félögum, að minnsta kosti um
sinn. Þeir sem óska inngöngu verða
að fá tvo félaga til að mæla með um-
sókninni, en eins og áður sagði er
ekki nóg að fá meðmælendur þar
sem nýir félagar eru ekki teknir
inn. . .
MT að var margt fyrirmanna í af-
mælisveislu Matthíasar Bjarna-
sonar í Bíldudal í síðustu viku. Þar
-sem afmælisveislan
var haldin utan al-
faraleiðar urðu flest-
ir gestanna að hafa
talsvert fyrir því að
mæta. Flugvél Flug-
málastjórnar flutti
landbúnaðar- og
samgönguráðherrann, Halldór
Blöndal, vestur á Bildudal og Þor-
steinn Pálsson sjávarútvegs-,
dóms- og kirkjumálaráðherra var
staddur á Grænlan di fyrr um daginn
og kom með leiguvél þaðan. Mikil
umferð var um flugvöllinn á Bíldu-
dal þennan dag og hefur ekki áður
verið meiri. . .
Jftir þetta keppnistímabil lætur
Ásgeir Elíasson af störfum sem
þjálfari Fram, en eins og kunnugt er
er Ásgeir orðinn
landsl iðsþjálfari.
Ekki mun ákveðið
hver tekur við af
honum sem þjálfari
Fram. Tvö nöfn
heyrast oftast í því
sambandi; nafn
Marteins Geirssonar, þjálfara
Fylkis og fyrrum fyrirliða Fram og
landsliðsins, og nafn fyrirliða Fram,
Péturs Ormslev. Þegar er ákveðið
að Marteinn hætti sem þjálfari Fylk-
is í haust, enda hefur árangur liðsins
valdið miklum vonbrigðum. . .
Budweiser
UMBOÐIÐ
Verðlauna-
peningar
bikarar
FANNAR
LÆKJARTOROI - O 16488
MT að eru fleiri en Davíð Odds-
son sem viljasetjast við hreint borð.
Eins og kunnugt er lét hann ríkis-
endurskoðun gera
úttekt á þeim sjóð-
um sem heyra undir
ráðuneyti hans. Nú
hefur nýráðinn
borgarstjóri í
Reykjavík, Markús
Orn Antonsson,
fyrirskipað að gerð verði úttekt á
Perlunni, þ.e. hversu mikið hefur
verið farið fram úr áætlunum á
þessu ári. Þá hefur borgarstjórinn
fyrirskipað að allri vinnu við Perl-
una verði hætti þar til niðurstöður
liggja fyrir. Davíð var ekki fyrr bú-
inn að fá úttekt á verkum Stein-
gríms Hermannssonar en Mark-
ús fyrirskipaði úttekt á verkum Dav-
íðs. . .
■1—Jnn segir af Almenna bókafé-
laginu. Eftir að PRESSAN birti frétt
um erfiðleika félagsins hafa margir
haft samband við
blaðið. Flestir eru
undrandi á því að al-
menningshlutafélög
eins og Eimskip, Sjó-
vá/Almennar og
Skeljungur skuli
hafa tekið þátt í að
auka hlutafé í Almenna bókafélag-
inu. Eimskip jók sinn hlut um 20
milljónir króna, Sjóvá/Almennar
um tíu milljónir og Skeljungur um
fimm milljónir króna. Menn hafa
bent á að Hörður Sigurgestsson,
forstjóri Eimskips, er í stjórn Al-
menna bókafélagsins, og honum
hafi því átt að vera kunnugt um að
mjög vafasamt væri að fjárfesta í
fyrirtækinu. Á það skal einnig bent
að Eimskip er meðal stærstu hlut-
hafa bæði í Sjóvá/Almennum og
Skeljungi...
Ms
Leðal knattspyrnuáhuga-
manna ganga margar sögur um
KR-liðið. Ein þeirra er á þá leið að á
meðan leikmenn annarra liða
slöppuðu af þegar keppnin stöðvað-
ist um verslunarmannahelgina hafi
leikmenn KR verið sendir til sál-
fræðings. Hver leikmaður á að hafa
verið í eina klukkustund hjá sála.
Eins og kunnugt er töpuðu KR-ingar
fyrsta leiknum eftir verslunar-
mannahelgi en í næsta leik rúlluðu
þeir yfir Blikana. Hvort sálfræðing-
urinn á einhvern þátt í góðri
frammistöðu liðsins í síðasta leik
skal ósagt látið. . .
Umhyggja. Sólveig Eggerz
Gleðistund
íglæsilegu umhverfi
ómantísk stund eða glæsilegur viðskiptamálsverður? Gullni Haninn sérhæfir
sig í að uppfylla væntingar þínar um öndvegis veitingar og úrvals þjónustu
í glæsilegum húsakynnum þar sem ekkert hefur verið til sparað. Gullni Haninn er
sem nýr í hólf og gólf, en andrúmsloftið og veitingamar bera enn aðalsmerki
fagmennsku og þjónustu í fremstu röð.
Við sérstök tækifæri er sjálfsagt að gera kröfur - Gullni Haninn uppfyllir þínar
óskir og gerir stundina ógleymanlega.
aífniL.
ctninTL’i
SIMI 67 99 67
LAUGAVEG 178 - 105 REYKJAVÍK