Pressan - 27.12.1991, Page 4

Pressan - 27.12.1991, Page 4
4 GULA PRESSAN Föstudagur 21. desember 1991 Friðrik Sophusson kynnir nýjan aöstoðarmann sinn, ívar Hauksson. ívar heldur á verðlaunum í innanhúsmóti stjórnarráðsins í golfi, en hann vann þau á fyrsta starfsdeginum. Ungur maður í Kópavogi Fékk nthlut- að 960 tonna kvóta fvrir misskilninö —^— seldi hann, skildi við konuna og flutti til Mallorka IVAR HAUKSSON RÁÐINN AÐSTOÐAR- MAÐUR FRIÐRIKS vænti góðs af störfum hans, -segir Friðrik Sophusson Reykjavík, 27. desember „Ég hef lengi haft auga- stað á Ivari og viljað fá hann til starfa hér í ráðu- neytinu. Ég vænti því mik- ils af störfum hans,“ sagði Friðrik Sophusson fjár- málaráðherra þegar hann kynnti mannabreytingar í ráðuneyti sínu. Steingrím- ur Ari Arason, sem verið hefur aðstoðarmaður Friðriks, er hættur en ívar Hauksson, vaxtarræktar- maður og rukkari, hefur verið ráðinn í hans stað. „Ég tel að maður eins og Ivar geti lyft grettistaki. Van- skil á sköttum hafa verið að hrannast upp og ef við sitjum aðgerðalaus þá heldur ástandið einfaldlega áfram að versna," sagði Friðrik. Rétt fyrir jólin var ívar sýknaður af ákæru um hótan- ir um líkamsmeiðingar við innheimtustörf vegna skorts á sönnunum. Friðrik sagði að vissulega hefði ákæran haft sín áhrif þegar liann var að íhuga að ráða ívar. „Eftir að ég las ákæruna sannfærðist ég um að þetta var maðurinn sem við þurft- um,“ sagði Friörik. Ivar vildi lítið tjá sig við blaðamann GULU PRESS- UNNAR. Hann sagðist vilja láta verkin tala. Fjögurra manna fjölskylda finnst í Seðlabankahúsinu Kópavogi, 26. desember „Þetta er lýsandi dæmi um hvernig kvótakerfið hefur leikið þjóðina,“ sagði Matthías Bjarnason þingmaður þegar GULA PRESSAN óskaði eftir áliti hans á mistökum sjávarút- vegsráðuneytisins við út- deilingu kvóta fyrir næsta ár. Vegna mistaka fékk ungur maður í Kópavogi, Kári Unn- arsson, úthlutað 960 tonna kvóta. Hann seldi Samherja kvótann, skildi við eiginkon- una og er fluttur af landi brott. Samkvæmt heimildum GULU PRESSUNNAR fékk hann tæpar 150 milljónir fyr- ir kvótann. „Svona leikur kvótinn þjóðlífið og fjölskyldurnar í landinu," sagði Matthías. Eiginkona Kára, Vilborg Hreinsdóttir, vildi lítið tjá sig um þetta mál í samtali við GULU PRESSUNA. „Ég óska Kára alls hins besta. Við vorum að hugsa um að skilja, enda var hann næstum hættur að koma heim. Þetta er kannski ekki verri leið en hver önnur," sagði Vilborg. Kári Unnarsson datt í lukkupottinn; fékk kvóta, skildi við konuna og flutti til Spánar. Ég á búrin og er tilbúinn í slaginn, -segir Hlynur Rögnvaldsson bóndi og vill hefja ræktun á rjúpu. Hlynur Rögnvaldsson bóndi VILL RÆKTA RJÚPU landbúnaðarráðherra býðst til að borga honum 10 milljónir fyrir að gleyma því Landbúnaðarráðherra hef- ur tekiö dræmt í óskir Hlyns um styrk fyrstu starfsárin. „Hann minntist á þetta við mig í hófi um daginn," sagði Halldór Blöndal. „Ég sagði honum að ég skyldi borga honum 10 milljónir strax ef hann gleymdi þessu. Það er stefna ráöuneytisins í svona málum." Halldór benti á fordæmi frá fiskeldi og loödýrarækt. Báö- ar þessar atvinnugreinar hafa farið á hausinn með miklum skell. „Það er betra að taka út smærri skell strax en stóran seinna," sagði Halldór. Laugarvatni, 27. desember „Mér datt þetta í hug fyr- ir jólin,“ sagði Hlynur Rögnvaldsson, bóndi á Hofi í Skorradal, í samtali við GULL PRESSUNA, en hann hefur uppi áform um að hefja umfangsmikla rjúpnarækt. „Það hefur verið skortur á fuglinum undanfarin ár. Verðið hefur þotiö upp. Hag- fræðingar hjá bændasamtök- unum hafa slegið á þetta fyrir mig og þeir segja að það séu góðar líkur á ávinningi. Ég á enn búr frá því ég var í refa- ræktinni og er því klár í slag- inn," sagði Hlynur. Jóhannes Nordal leit til fjölskyldunnar þegar hann átti leið í bankann í morgun. þangað til að fá að vera í friði." Jóhannes Nordal. banka- stjóri Seðlabankans. vildi lítið tjá sig urn þetta mál í morgun. Hann sagði að engin ákvörð- un hefði verið tekin um hvað gera skyldi við fjölskylduna. „Ég hef litið inn til þeirra og þetta er ágætisfólk. Konan er líka fantagóður kokkur." sagði Jóhannes. Reykjavík, 26. desember Húsvörður í afleysingum fann heimili fjögurra manna fjölskyldu í Seðla- bankanum á jóladag. Fjöl- skyldan bjó á þriðju hæð hússins og segir heimilis- faðirinn, Olafur Finnsson, 56 ára gamall rafvirki, að þau hafi fengið að vera óáreitt allt síðan þau fluttu inn árið 1978. „Þaö er ekki mikill um- gangur á þessari hæð," sagði Olafur í samtali við GULU PRESSUNA. „Við fluttum fyrst inn á fjórðu hæöina en þar,var meira ónæöi. Sérstak- lega þegar það voru hóf í bankanum. Þá leitaði fólk

x

Pressan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.