Pressan - 27.12.1991, Blaðsíða 11

Pressan - 27.12.1991, Blaðsíða 11
Föstudagur 27, desember 1991 GULA PRESSAN 11 Ríkisstjórnin HYGGST BJÓÐA ÚT VEITINGU NÁMSLÁNA Viljum losna viö námslánin, — segir Friörik Sophusson. Reykjavík, 27. desember Ríkisstjórnin ákvað á fundi sínum í morgun að bjóða út veitingu náms- lána. Þeir sem hafa áhuga á að lána námsmönnum geta sent tilboð til fjár- málaráðuneytisins. ,,Við erum að reyna að losna við ýmislegt út úr rekstri ríkissjóðs. Námslánin eru eitt af því sem við vildum helst af öllu koma af okkur," sagði Friðrik Sophusson fjar- málaráðherra í samtali við GULU PRESSUNA. Hefur ráðherrann trú á þvi að einhver vilji taka lánin að sér? ,,Mér hefur heyrst á fólki að það vilji allt frekar en náms- menn missi lánin sín. Það ætti því að vera vandræða- laust að finna einhvern sem getur lánað þeim. Við getum það ekki," sagði Friðrik. Alþýðublað- ið friðað Reykjavík, 26. desember Á síðasta fundi þjóð- minjanefndar fyrir jól var ákveðið að friða Alþýðu- blaðið, málgagn Alþýðu- flokksins — Jafnaðar- mannaflokks íslands. ,,Það er fleira þjóðminjar en rústir torfbæja," sagði Þór Magnússon þjóðminjavörður, þegar GULA PRESSAN bar undir hann ástæður friðunar- innar. „Auðvitað hefði komið til greina að friða ýmsa aðra fjölmiðla," sagði Þór. „Svo verð ég að viðurkenna að okkur í nefndinni fannst Al- þýðublaðið einfaldlega skemmtilegasta blaðið og sá fmvinniifniD» „Við erum furðu lostnir'' Alþýöublaöið mun líta svona út um ókomna tíð eftir ákvörð- un þjóðminjanefndar. fjölmiðill sem við vildum síst sjá á eftir. Eins töldum við rétt að byrja smátt." Dúfum fækkar á Tjörninni vegna skorts á rjúpu. Rjúpnaskortur fyrir jólin Mikið skotið af dúfum og mávum við Tjörnina verður að grípa til aðgerða, -segir Jóhann Óli tjarnarvörður Reykjavfk, 26. desember____ „Það er hryllilegt að lenda í þessu önnur jólin í röð,“ sagði Jóhann Óli tjarnarvörður í samtali við GULU PRESSUNA, en mik- ið var um að menn skytu sér rjúpur og máva í mat- inn fyrir þessi jól vegna rjúpnaskorts. ..Ég hef ekki talið fuglana. Það er nóg að líta vfir Tjörn- ina til að sjá að það hefur mikið af fugli horfið. Það verður að stemma stigu við þessum drápum fvrir jólin." sagði Jóhann. Ungur maður sem GULA PRESSAN ræddi við sagði að nær væri að gera eitthvað til að fjölga rjúpunni. „Þetta eru önnur jólin sem við fjölskyldan höfum dúfu. Auðvitað hefðum við miklu frekar kosið að borða rjúpu eins og við erum vön, en verðið á henni er komið upp úr öllu valdi. Og ef okkur tekst að skrapa fyrir henni er hún orðin uppseld," sagði maðurinn. Þótt hann vildi ekki láta nafns getið sagðist hann ekki skammast sín fyrir að hafa skotið dúfu í jólamatinn. „Það er skárra en að leggjast í hamborgarhrygginn," bætti hann við. Gunnar Jóhannsson vill fá 35 milljónir frá ríkinu og 2 milljónir frá Kópavogsbæ fyrir að halda ekki Evrópumót í borðtennis. Borðtennissambandið VIII 35 MIIIJ- ÓNIR FYRIR AÐ HALDA F.KKI BORÐ- TF.NNISMOT Reykjavík, 27.'desember_ Borðtennissamband Is- lands hefur sent mennta- málaráðherra bréf þar sem sambandið fer fram á að fá greiddar 35 milljónir fyrir að halda ekki Evr- ópumót í borðtennis á ís- landi. „Það hefur reyndar aldrei komið til tals að halda Evr- ópumótið hér á landi,“ segir Gunnar Jóhannsson, formað- ur Borðtennissambandsins. „Við sjáum okkur hins vegar ekki fært að ábyrgjast að sú hugmynd komi ekki til tals einhvern tíma á næstunni. Þess vegna viljum við ganga hreint til verks og afstýra því að málið komist á umræðu- stig. Það gæti sparað ríkis- sjóði mikið fé. Þetta finnst okkur satt að segja skynsam- legasti kosturinn fyrir alla aðila." Gunnar segir að sam- kvæmt áætlunum Borðtenn- issambandsins sé kostnaður- inn við að halda mótið ekki hér á landi um 35 milljónir. Öllu lægri upphæð sé ekki viðunandi fyrir sambandið. „Það sér hvert mannsbarn að ef við léðum máls á að halda mótið yrði um miklu hærri fjárhæð að ræða, bæði fyrir sambandið og ríkissjóð,“ sagði Gunnar Jóhannsson. Borðtennissambandið hef- ur einnig gert þá kröfu til Kópavogsbæjar að hann greiði sambandinu tvær millj- ónir fyrir að halda mótið ekki í Kópavogi. þægilegur matseðill Pizzur eins og þær eiga að vera Laugavegi 126, sími 16566 - tekur þér opnum örmum Moulin Rouge hváð annáð?

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.