Pressan - 27.12.1991, Blaðsíða 34

Pressan - 27.12.1991, Blaðsíða 34
34 GULA PRESSAN Föstudagur 27. desember 1991 án&ivt&' £ná /4 tcí ö hann var líka sýndur í því kanadíska hugsaði þjóðin sem svo, að þetta gæti ekki verið svo slæmt. Þegar Þjóðverjar tóku hann síðan upp í sinni dagskrá var hverju barni orðið það ljóst að hér var góð land- kynning á ferðinni sem slagaði hátt upp í hálfa Vig- dísar-heimsókn. T anuar Janúar hefur alltaf verið hörmungar-mánuður en aldrei eins og síðustu ár. Greiðslukortin breyttu þar engu um. Það gerðu hins vegar kreppan og fylgi- fiskar hennar. Og því harðar sem kreppti að því djöfullegri varð eyðslan fyrir jólin. Og það hafa aldrei verið haldin eins brjáluð jól og árið 1990, fjórða kreppuárið í röð. Janúarmánuður ársins 1991 var því ógeðslegur. Það átti ekki nokkur maður aur. Afnotagjöldin komust í vanskil, símanum var lokað, maðurinn hjá rafmagnsveitunni hótaði að loka og rukkararnir urðu óðir. Þeir voru nefnilega líka blankir. Eina fyrirbrigðið sem sótti ekki að heim- ilunum í landinu og krafðist síðustu krónunnar var Hitaveita Reykjavíkur. Hún rukkaði ekki. Þess í stað blandaði hún vatnið vitlaust svo mynduðust úrfelling- ar sem stífluðu vaska og sprengdu rör. Það bættist við aðrar hörmungar í janúar. Þjóðin var blönk, köld og sá eftir hverri krónu sem hún eyddi í jólin árið 1990. I^olkrabbinn Það versta við kolkrabbann er hvað fólk varð upp- tekið af honum á árinu. Sjálfur gerði hann fátt eitt af sér. Hann skrapp meira að segja saman í hluta- bréfahruninu í lok ársins. Sá sem á sök á að hann skaut aftur upp kollinum í kokkteilboðunum er Styrmir Gunnarsson, ritstjóri Morgunblaðsins. Þátt- ur hans í endurvakningu kolkrabba-kenninganna er álíka stór og þáttur Ulfars Þormóðssonar í hug- myndinni um fjölskyldurnar fjórtán í kringum 1970. Úlfar kom fram þegar gamlir peningar urðu fínir eftir holskeflu nýríkra á viðreisnarárunum. Styrmir fór af stað þegar gamlir peningar urðu fínir á ný eftir að góðærið hafði étið yngstu börnin sín í lok níunda áratugarins. í slíku umhverfi komast gamlir peningar og ættgengt ríkidæmi í tísku. Á slíkri tíð á kolkrabbinn fjórar jólabækur, sautján Reykjavíkurbréf og alla bestu tímana í kokkteilboðunum. Þá hættir Halldór H. Jónsson að vera gamall kall, verður eð- alborinn, og heimili hans við Ægisíðuna verður fast- ur þáttur í sunnudagsbíltúr almúgans. Það eitt að sjá glasi lyft bak við rúðu eða horn af málverki rétt- lætir ferðina. Leifur heppni 1991. Árið sem Leifur rieppni týndi Ameríku end- anlega. Aldrei aftur mun nokkur Ameríkani sættast á að Leifur hafi fundið Ameríku á undan Kólumbusi. Aldrei. Og þá skiptir engu þótt bókum um grimmd- arverk Kólumbusar og karakterbresti hafi rignt yf- ir heimsbyggðina fyrir 500 ára afmæli siglingar hans. Það skiptir engu þótt í ljós hafi komið að hann var nauðgari, grimmur húsbóndi, heimskur og hroka- fullur, stærilátur og óþolandi í partíum. Þegar Mezzoforte spilaði popp-jazz á haínarbakkanum varð að engu vonin um að Ameríkanar köstuöu Kólumb- usi fyrir róða. Þeir lögðu dæmið niður fyrir sér. Þeir sögðu: „Það er sama hvað verður sagt um kallinn hann Kólumbus. Þaö er sama hverju menn vilja klína á hann. Aldrei, aldrei skal ég taka þetta fram yfir hann. Aldrei.“ Og leiknum var tapað. Verkið var síðan fullkomnað með ferð Gaiu og plötu Valgeirs Guðjónssonar. Allt þetta íslenska stöff gátu Amerík- anar keypt í Bloomingdale’s. Kólumbus hafði hins vegar eitthvað hættulegt og fornt við sig. Valiö stóö á milli þess að Ameríka hefði fundist fyrir fimm hundruð árum eða um hádegi í gær. Draumar þjóðarinnar um sölu lambakjötsins til út- landa rættust í Mexíkó á árinu. Það kom í Ijós að Arið hjá Markúsi Erni An- tonssyni var eins og stutt- mynd með Clint Eastwood. Hann rauk inn á skrifstofu borgarstjórans og lýsti því yfir að hann ætlaði að hreinsa til i miðbænum. „Ribbaldana úr miðbænum," sagði hann. Síð- an fór hann í kynnisferð um miðbæinn / lögreglufylgd, heilsaði vegfarendum og hvarf út í nóttina. Það vantaði flétt- una, hasarinn og uppgjörið. Fólk var rétt byrjað að kynnast hetjunni þegar stafirnir fóru að rúlla upp eftir tjaldinu. Eftir á man enginn eftir Markúsi Erni. Hann kom og hann hvarf. Það eina sem lifir i minning- unni er að hann var áberandi verst klæddi maðurinn á ár- inu; sláandi púkó og eins og hengdur upp á herðatré. Allír í heimspeki Allt í einu var heimspeki komin í ekki þetta litla tísku. Ungt fólk flykktist í Háskól- ann aö reyna að fá einhvern botn i Aristóteles, Kant, Desc- artes og Schopenhauer. Kannski var það ekki bara rekið áfram af fróðleiksfýsn, heldur líka af þeim fleygu ummælum Ólafs Jóhanns Öl- afssonar að það flökraði ekki lengur að stórfyrirtækjum að ráða viðskiptafræðinga í toppstööur — þeim væri skutlað beint í bókhaldið —, heldur leituðu stórkapítalist- ar logandi Ijósi að hugmynda- ríku og hugsandi fólki með húmaníska menntun; tungu- mál og þó einkum og sérílagi heimspeki. Annars er þetta bara enn eitt dæmið um það hvað heimurinn er orðinn öfug- snúin. Hér á árum áður var heimspekinám absolútt til vinstri, í hana sóttu úlpu- kommar og sófaróttæklingar. Nú er heimspeki hægra meg- in í tilverunni, eins og reynd- ar ýmislegt fleira sem áður var til vinstri en er núna til hægri: döffelcoat, Volkswag- en-bjöllur, hornspangagler- augu og pizzur. Hins vegar varð ekki séð af blaðagreinum ýmissa ungra heimspekinema á árinu að fræðigreinin væri nauðsyn- lega ávísun á skýra hugs- un . . . Ótrúlega margir urðu að þjóðfél- agsafli Þaö er eins meö kosningar og fótboltaleiki. Þær eru spennandi á meöan þær standa yfir. Eftir á skipta þær engu máli. Gömul kosninga- úrslit eru álíka áhugaverð og staðan í hálfleik í leik Brasilíu og Honduras i Sao Þaulo í nóvember 1967. Það sem var hins vegar skemmtilegt við síðustu kosningar var aðdragándinn. Otrúlegasta fólk fann allt i einu innra með sér að það var þjóöfélagsafl. Það var kom- inn tími til að tekiö yrði tillit til þess. Til urðu flokkar með fólki sem enginn vissi að væri til og um málefni sem enginn hafði taliö að skiþtu neinu máli. Það varð sprenging. Vöruúrvalið í kjörklefanum var orðið álíka og í Kringl- unni. Slíkt var framboðið. Kftirspurnin hafði hins veg- ar ekki aukist að sama skapi. Það vissu líka þeir sem haföi verið hafnað í kosningum áð- ur. Þeir reyndu jrví að rotta sig saman á lista fyrir síðustu kosningar. Hugmyndin var að slá fallkaiidídötum frá Borgaraflokknum. Flokki mannsins og Þjóðarflokkn- um saman við menn sem hraktir höfðu verið frá gömlu flokkunum. Guðmundur G. var á leið í framboð og sömu- leiöis Þorvaldur Garöar. Og saman við þetta átti að blanda ýmsum sent höfðu ný- verið fengið þingmanninn í magann; Heimastjórnarsam- tökunum, Græningjum, Verkamannaflokknum og mörgu öðru. Þetta átti að verða einskonar útsölulisti. samansafn þess sem ekki hafði selst og þess sem Ijóst var að aldrei mundi seljast nema verðið dúnkaði niður í ekki neitt. Því miður tókst þetta ekki. Óánægjan með gömlu flokkl ana skreið því frarn í mörgum farvegum fvrir kosningarnar. fláA77ælið endurlífgað Fyrir þónokkrum áratug- um efndi þjóðin til einhverrar mestu herferðar í íslandssög- unni. herferðarinnar til að út- rýma flámælinu. Flámælt fólk var hundelt. ofsótt. það var haft að háði og spéi í rev- íum. bókum og á mannamót- um. Það þorði helst ekki að opna munninn. Flámælið var lítmálað sem hámark útúr- boruháttar og afdala- mennsku. Herferðin skilaði glæsilegum árangri: hinu út- breidda flámæli var útrýmt á skömmum tíma. rétt eins og berklunum og sullaveikinni. Eftir það þóttust flestir vissir um að aldrei mundi hevrast i flámæltum manni á Islandi framar. Ekki svo. Flámælið er kom- ið aftur. Og nú er það ekki upprunnið í afdölunum. held- ur í sjálfri hringiðu höfuð- borgarinnar. miðbænum. Breiðholtinu. En helstu boð- berar nýflámælis á íslandi eru náttúrlega poppsöngvar- ar með þá Eyjólf Kristjánsson og Stefán Hilmarsson í farar- broddi. Hlustiði bara á þá . . .

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.