Pressan - 27.12.1991, Blaðsíða 15

Pressan - 27.12.1991, Blaðsíða 15
Vissir þú að rekstraraðilar, sem skila hagnaði á þessu ári, geta gert ráð- stafanir sem slá tvær flugur í einu höggi? Með því að kaupa tölvubúnað fyrir áramót er hægt að lækka skatta umtclsvert um leið og þú bætir samkeppnis- stöðu fyrirtækisins. Af 100.000 króna tölvubúnaði fæst 19.68% til baka í virðisaukaskatti og eftir stendur kaupverð sem er kr. 80.320 og af þeirri upphœð færu 40.5% í tekjuskatt eða 32.530 krónur sem þýðir að kaupin á tölvunni kosta raunverulega 47.790 krónur þegar upp er staðið. Og þá er spurningin þessi: Borgar sig að kaupa tölvubúnað fyrir áramót? Við hjá Microtölvunni höfum nú í bráðum 11 ár þjónað fyrirtækjum með tölvur, hugbúnað, net- og sam- skiptakerfí. Við bjóðum auk tölva frá CORDATA, net- og samskiptahug- búnað frá NOVELL, netkort og tengi- einingarfrá CNET, gæðaprentara frá CITIZEN og LaserMaster, ferðatölvur frá TOSHIBA og við útvegum auk þess allan þann hugbúnað sem viðskipta- vinir óska eftir og setjum hann upp. Hafir þú gleymt fyrirtækinu þínu í jólaösinni þá er rétti tíminn til að gera ráðstafanir núna rétt fyrir áramót. Hvernig væri að hugleiðu það!

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.