Pressan - 27.12.1991, Blaðsíða 37
Föstudagur 27. desember 1991
GULA PRESSAN
37
,,Menn eiga ekki aö líöa fyr-
ir aö vera borgaraflokks-
menn.“
ÓLI Þ. GUÐBJARTSSON
í mai aö rökræða embættisveiting-
ar sinar sem dómsmálaráðherra.
„Þad sem þarna fer fram á
ekkert skylt vid náttúru-
lœkningar heldur er þetta
kukl og hindurvitni."
SNORRIINGIMARSSON
þáverandi yfirlæknir Heilsuhælis-
ins í Hveragerði, í maí. Sagt um
Heilsuhælið.
„Eg vil ekki taka undir þaö
ad afturkippur hafi ordid í
álversmálinu."
JÓN SIGURÐSSON
álmálaráðherra í maí.
„En ég er mjög svekktur út
í ríkissjónvarpid."
EYJÓLFUR KRISTJÁNSSON
eurovisionfari í mai, eftir að Nína
lenti í fimmtánda sæti i keppninni
í Róm.
„Ég var dálítill kvennamað-
ur á tímabili. Ég er orðinn
gamall og hef dofnað med
árunum."
STEFNIR ÓLAFSSON
bóndi í Laugardal, í maí.
„Þeir eru 35 sem hafa
kœrt mig og því eru þetta
150 þúsund krónur á
hvert eista."
PÉTUR PÉTURSSON
læknir á Akureyri, um kæru vaxt-
arræktarmanna á hendur honum í
maí.
V'/ð íslendingar erum negr-
ar norðursins."
HALLDÓR BRAGASON
blúsari i júli.
„Eru menn ekki alltaf að
spá og spekúlera?"
GUÐMUNDUR ÁRNI STEFÁNS-
SON
bæjarstjóri í Hafnarfiröi, í maí. Um
hvort rétt væri að hann færi á
þing á miðju kjörtímabili í stað
Jóns Sigurðssonar.
Jóhanna
Kristjónsdóttir
„Ef þetta var víti þá er ég
páfinn."
GUÐNI BERGSSON
knattspyrnumaður eftir að dæmd
var á hann vítaspyrna i landsleik
gegn Wales í maí.
„Þetta er ekki óskapnaður
heldur þjóðþrifafyrirtœki."
KARL RAGNARS
forstjóri Bifreiðaskoðunar Islands,
svarar gagnrýni á fyrirtækið í mai.
„Eg hef fundið fyrir mjög
miklum og sterkum stuðn-
ingi innan borgarstjórnar-
flokksins og meðal flokks-
manna."
ÁRNI SIGFUSSON
í mai þegar hann langaði til að
verða borgarstjóri.
„Þetta er talið mjög heilsu-
samlegt."
ÓMAR SMÁRI ÁRMANNSSON
aðstoðaryfirlögregluþjónn í maí,
tjáir sig um það að lögreglumenn
fá að fara í sund þegar þeir eru á
vakt.
Hetja ársins er Jóhanna
Kristjónsdóttir, blaðamaður á
Mogganum. Þegar allar
bjargir virtust bannaðar fór
hún ein síns liðs til íraks og
náði í hann Gísla gísl. Jón
Baldvin hjálpaði henni ekk-
ert. Hann þvældist bara fyrir
og um tíma leit út fyrir að
hann væri með Saddam í ráð-
um. En Jóhanna sá við hon-
um og kom Gísla heim. Þá fór
allt púður úr málinu. Um leið
og Gísli kom heim missti
þjóðin áhugann á honum.
Það gerðist fimm mínútum
eftir að fyrsta viðtalið hófst.
Þjóðin sá í gegnum hann.
Hún var ekki tilbúin að eyða
meðaumkun sinni á mann
sem vildi ekki yfirgefa bílinn
sinn, myndbandstækið og
persnesku teppin. Og enn síð-
ur vildi hún eyða peningum
sínum í bók um málið.
Akademía
Eins og venjulega á kosn-
ingaári voru flestar deilur
eyðilagðar af pólitík. Heiðar-
legar undantekningar voru
þó á þessu:
9 Leifur Sveinsson lög-
fræðingur skrifaðí marga
pistla og stutta um hve vondir
menn stjórnuðu borginni.
Enginn nennti að svara hon-
um nema dr. Gunnlaugur
Þórðarson, sem sagði að
Leifur væri svo leiðinlegur að
hann tæmdi meira að segja
heita pottinn á háannatíma.
• Bjarni Dagur Jónsson
fór í frægustu bíóferðina og
lenti í hörkuritdeilu við
nokkrar hafnfirskar stúlkur
sem átu poppkorn með látum
í sætaröðinni fyrir framan
Bjarna.
9 Örn Ólafsson gagnrýn-
andi lenti í deilu við Árna
Blandon gagnrýnanda. Svo
skemmtilega vill til að þeir
gagnrýna báðir á DV. Árni
byrjaði en Örn endaði. Þræt-
an snerist meðal annars um
hvor væri betra doktorsefni.
9 Sigmundur Ó. Steinars-
son deildi við knattspyrnu-
mennina Þorgrím Þráins-
son og Lárus Guðmunds-
son um hvort svindlað hefði
verið í kjöri um knattspyrnu-
mann ársins. Af því að mað-
urinn sem Sigmundur hélt
með vann ekki fannst honum
líklegt að það hefði verið
svindlað.
9 Ólafur Ragnar Gríms-
son lenti í banvænni deilu
við lækna um samninga-
tækni þeirra, sem Ólafur taldi
í stuttu mál i ganga út á að láta
sjúklingana deyja. Þetta end-
aði á því að formaður lækna-
félagsins, Högni Óskars-
son, sagðist ætla að kæra Ól-
af. Skömmu síðar missti Ólaf-
ur Ragnar völdin, kæran
týndist og sjúklingarnir fá að
deyja í friði.
9 Magnús Steinþórsson er
eini maðurinn sem lenti í
deilu út af Rolls Royce á síð-
asta ári. Hann flutti inn einn
slíkan sem keyrði um með
ástfangið fólk sem setti upp
hringana frá bróður hans,
Sigurði Steinþórssyni. Sí-
vakandi tollverðir sáu í gegn-
um þetta og stöðvuðu svín-
aríið. Bíllinn og Magnús hurfu
úr landi.
9 Rafn Geirdal teppti Vel-
vakanda Morgunblaðsins í
nokkra mánuði með nýaldar-
deilum. Snerist deilan meðal
annars um það hvort Guð
væri nýaldarmaður eða ekki.
Guð hefur ekki enn skrifað í
Velvakanda undir nafni,
þannig að ekki er búið að
■segja amen.
9 Pétur Pétursson læknir
hóf eina kröftugustu deilu
ársins með því að segja að
eistun á sumum kraftlyftinga-
mönnum væru lítil, ræfilsleg
og rýr. Síðan hefur Ólafur
Sigurgeirsson (stundum
kallaður Óli sterki) skrifað
margar síður. Siðaðir læknar
segja að Pétur hafi verið of
kjarnyrtur og hann er bara
ánægður með það.
9 Björn Bjarnason á heið-
ur skilinn fyrir að reyna að
halda lífi í kommadeilum eft-
ir að Berlínarmúrinn hrundi.
Honum tókst til dæmis að
skrifa grein sem hét ,,Árni
Bergmann og Sovétríkin".
Það er kannski tímanna tákn
að engmn svaraði þessu
nema Ögmundur Jónas-
son.
fyrir nýríka
Örvæntingarfullar tilraunir
Herlufs Clausen til að fá að
vera með í félagsskap betri
borgaranna í Reykjavík héldu
áfram á árinu. Því þótt Herluf
sé dálítill leynimaður vill
hann absolútt fá að teljast í
hópi þeirra máttarstólpa
þjóðfélagsins sem láta mynda
sig með ráðherrum, nafntog-
uðum listamönnum, frægum
útlendingum og helst forset-
anum sjálfum. Herluf datt í
hug snjallræði: Fyrst honum
er ekki boðið i neinn fínan
klúbb ákvað hann að stofna
sinn eigin, Akademíu Café
Óperu. Þangað stefndi hann
hópi bissnissmanna og fáein-
um menningarvitum sem
þykja nauðsynlegar skraut-
fjaðrir í akademíum af þessu
tagi. Allt kom fyrir ekki. Fé-
lagarnir í Akademíunni voru
flestir álíka nýríkir og Herluf
og komnir þangað í þeim er-
indagjörðum að hitta kúltúr-
menn og gamalgróna brodd-
borgara sem ekki eru nýríkir.
í staðinn hittu þeir sínar eigin
spegilmyndir í ýmsum gerð-
um. Enn verður Herluf því að
bíða þess að sér verði boðið í
forsetaveislurnar, að minnsta
kosti um sinn.
9 Carl J. Eiríksson skot-
maður hlýtur að teljast þraut-
seigasti deilumaður íþrótta-
heimsins. Það er reyndar
aldrei hægt að skilja upp eða
niður í deilum hans, sem
kemur þó ekki í veg fyrir að
alltaf verður einhver til að
svara honum.
9 Lára Halla Maack lenti í
deilu út af réttargeðdeildinni
á Sogni. Sighvatur Björg-
vinsson sagði að hún hefði
ætlað að hugsa sig um í 9
mánuði og rak hana svo um-
hugsunarlaust.
Erlendir ferðamenn
Eru þeir að stela landinu?
Óvinir þjóðarinnar númer
eitt á árinu voru Austurríkis-
mennirnir sem staðnir voru
að verki við að stela steinum
sem þeir ætluðu síðan að
smvgla úr landi. Þrátt fyrir
viðleitni vfirvalda tókst ekki
að stöðva þennan ljóta leik
fullkomlega. Sumir túrist-
anna sluppu úr landi með
fullar töskur af steinum.
En hver var hættan?
Kannski sú að útlendum tú-
ristum takist smátt og smátt
að stela landinu. stein fyrir
stein. hnullung fyrir hullung.
ef við ekki spyrnum við fót-
um? Er ekki rétt að grípa til
aðgerða áður en það gerist.
nú þegar.
Island er 103.000 ferkíló-
metrar að stærð. Hæð lands-
ins er að meðaltali um 500
metrar. Landið er því um
51.000 rúmkílómetrar.
Hver rúmsentimetri er um
2.8 grömm og hver rúmkíló-
metri því um 2,8 milljarðar
tonna. Landið vegur því um
150.000 milljarða tonna frá
efsta fjallstindi og niður í
flæðarmál.
Á hverju ári koma um 142
þúsund ferðamenn til lands-
ins. Vilji þeir vera lausir við
að borga yfirvigt í flugvél
mega þeir ekki taka þyngri
farangur héðan en sem nem-
ur 20 kílóum. Ef hver ferða-
maður skildi allar pjönkur
sínar eftir hér á landi og fyllti
ferðatöskurnar yrðu Islend-
ingar um 2.800 tonnum af
grjóti fátækari á hverju ári.
Gerum ráð fyrir að þessi
tala ferðamanna haldist stöð-
ug næstu ár og áratugi, það
er vissulega ekki fráleitt. Ger-
um líka ráð fyrir að þeir haldi
áfram að ásælast íslenskt
grjót. Þá yrðu þeir um
52.816.901.000 ár (tæplega
53 milljarða ára) að klára
landið. ísland yrði horfið af
yfirborði jarðar árið
52.816.902.991 (eða 52
milljarðar 816 milljónir 902
þúsund 991 eftir Krists burð)
Þá tæki síðasti túristinn síð-
asta steininn og ekkert yrði
eftir nema beljandi úthafið.
DEILUR OG
ALVÖRUMÁL
ÁRSINS