Pressan - 27.12.1991, Side 5
Föstudagur 21. desember 1991
GULA PRESSAN
5
Um leið og við þökkum frábærar móttökur, þá viljum við óska hlustendum okkar og
viðskiptavinum árs og friðar.
Aðalstöðin er stöð bjartsýni og framfara. Af því tilefni helgum við dagskrá stöðvarinnar um
áramót framtíðinni, bjartsýni, von og kærleik.
„Sjá dagar koma"
Á gamlársdag kl. 13.00 mun Ingvi Hrafn Jónsson ræða við fulltrúa stjórnmálaflokkana um
framtíðarsýn þeirra. Hvert stefnir í íslenskum atvinnumálum, menningarmálum og hvernig sjá
þeirframtíð þjóðarinnar. Þátttakendur í þessum umræðum verða: Steingrímur Hermannsson,
Svavar Gestsson, Geir Haarde, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Össur Skarphéðinsson
„ Leðurblakan "
Kl. 20.00 á gamlárskvöld verður á dagskrá Óperettan Leðurblakan eftir Jóhann Strauss. Það er
víða hefð í óperuhúsum að flytja Leðurblökuna á gamlárskvöld. Aðalstöðin ætlar að tryggja
sanna Vínarstemmningu þetta kvöld með flutningi þessarar skemmtilegu óperettu.
„Nýárstónleikar"
Við viljum benda sérstaklega á Nýárstónleika Aðalstöðvarinnar, sem hefjast kl. 10.00 á
nýársdag. Þar verður m.a. flutt „Klukkusinfónía“ Haydn's og Óratorían Sköpunin eftir sama
höfund. Séra Karl Sigurbjörnsson flytur ritningaorð.
„Ávarp forseta Islands"
Ávarp forseta íslands frú Vigdísar Finribogadóttur verður útvarpað á Aðalstöðinni kl. 13.00 á
nýársdag. Það er Aðalstöðinni kærkomið að flytja áramótaávarp frú Vigdísar.
„Framtlðarspá"
Aðalstöðin lætur sér framtíð þjóðarinnar miklu skipta og hefur sýnt það í verki í þáttum sínum.
Á nýársdag að loknu ávarpi forseta íslands munu nokkrir valinkunnir menn flytja sína
framtíðarspá í samnefndum þætti. Meðal þeirra sem fram koma eru: Sigurjón Sighvatsson,
Sigríður Dúna Kristmundsdóttir, Brynjólfur Bjarnason, Jóhannes Kristjánsson, Gunnar Helgi
Hálfdánarson, Orri Vigfússon og Sveinbjörn Björnsson.
„ Framtíðarsýn "
Ríkisstjórn íslands á úr vöndu að ráða í efnahags- og atvinnumálum. Forsætisráðherra Davíð
Oddsson mun í sérstökum þætti “Framtíðarsýn", sem hefst kl. 14.30 ræða um það hverjum
augum hann lítur framtíðina. Stjórnandi þáttarins er Óskar Magnússon.
„La Boheme"
Að lokum viljum við benda á að kl. 18.00 á nýársdag verður á dagskrá óperan La Boheme
eftir Puccini og flytjendur ekki af verri endanum m.a. Luciano Pavarotti og Mirella Freni.
Af þessu má sjá að Aðalstöðin leggur metnað sinn í vandaða dagskrá. Við munum á nýju ári
bæta um betur og vanda dagskrá stöðvarinnar eftir megni.
Adalstödin óskar
hlustendum sínum og
viðskiptavinum
gleðilegs árs og þakkar
ánægjulegar
samverustundir
á liðnu ári.