Pressan - 27.12.1991, Page 8
8
GULA PRESSAN
Föstudagur 27. desember 1991
Þorvaldur er nær óþekkjanlegur með gerviskegg og slaufu.
Þorvaldur Garðar Kristjánsson
Fékk sér
gerviskegg
og slaufu
og flaug
inn á þing
ekki okkar vandamál lengur, -segir
Geir Haarde, formaður þingflokks
sjálfstæðismanna
Reykjavík, 27. desember
„Þetta mál er sérstætt og
erfitt að finna einhver for-
dæmi um viðbrögð við því
í þingsögunni,“ sagði Sal-
ome Þorkelsdóttir, forseti
Alþingis, í samtali við
GULU PRESSUNA, en í Ijós
kannski segja aö ef við hefð-
um átt aö átta okkur á þessu
fyrir kosningar þá hefðum
viö svo sannarlega átt að sjá
í gegnum þetta eftir að þingið
hófst. Það hefur verið með
ólíkindum hvernig þessi Öss-
ur hefur látið."
Rafmagnið fór af Höllinni vegna trúarhita
ÉG ÆTLAÐI EKKI
AÐ GERA ÞETTA
segir Grettir Unnarsson, ungur maður í Krossinum, sem hélt að Bryan
Adams væri sendur af djöflinum
Reykjavík, 26. desember____
Nú er komið í ljós að
ástæða rafmagnsleysis í
Laugardalshöll þegar fyrri
tónleikar bandaríska popp-
söngvarans Bryan Adams
áttu að fara fram var ekki
tæknileg bilun. Niðurstöður
rannsóknar Rafmagnseftirlits
ríkisins benda eindregið til
þess. A sama tíma og þær
lágu fyrir gaf ungur maður,
Grettir Unnarsson, sig fram
við lögreglu og sagðist bera
ábyrgð á rafmagnsleysinu.
„Hann segist hafa legið á
bæn allan daginn og beðið
drottin að koma í veg fyrir
tónleikana," sagði Böðvar
Bragason, lögreglustjóri i
Reykjavík, við GULU PRESS-
UNA. „Ég veit ekki hverju á
að trúa, en þetta er sjálfsagt
allt eins góð skýring og hver
önnur."
„Ég hef áttað mig núna. Ég
veit ég gerði mistök," sagði
Grettir í samtali við GULU
PRESSUNA. „Ég taldi herra
Adams vera dauðarokkara og
sendiboða djöfulsins. Ég frétti
ekki fyrr en rafmagnið var
farið að herra Adams er trú-
rækinn maður og kominn af
trúuðu fólki. Ég biðst fyrir-
gefningar"
í yfirlýsingu sem trúfélagið
Krossinn hefur sent frá sér
vegna þessa máls segir: „Þótt
Grettir sé mannlegur og geti
gert mistök þá er Drottinn
það ekki. Hann þekkir sína
sauði og hefði varla bæn-
heyrt Gretti ef umræddur
tónlistarmaður færi á Guðs
vegum."
Grettir Unnarsson telur sig
valdan að rafmagnsleysinu í
Laugardalshöllinni þegar fyrri
tónleikar Bryan Adams áttu að
fara fram.
hefur komið að Þorvaldur
Garðar Kristjánsson, sem
felldur var út af lista sjálf-
stæðismanna á Vestfjörð-
um fyrir síðustu kosning-
ar, náði kjöri á lista AI-
þýðuflokksins í Reykjavík
undir nafninu Össur
Skarphéðinsson.
Geir Haarde. „Þetta er ekki
okkar vandamál.“
„Þetta er ekki okkar
vandamál," sagði Geir Haar-
de, formaður þingflokks sjálf-
stæðismanna, við GULU
PRESSUNA. „Við felldum
Þorvald og losnuðum við
hann. Það er ekki okkar
vandamál að hann skuli hafa
komist á þing hjá krötunum.
Það er þeirra mál, — og veröi
þeim að góðu."
„Ég segi ekki að mig hafi
grunað þetta, en þegar maö-
ur hugsar aftur var margt ein-
kennilegt við það hvernig
þessi Össur dúkkaði upp á
listanum," sagði Jón Baldvin
Hannibalsson, formaður Al-
þýðuflokksins, við GULU
PRESSUNA. „Og það má
Ofsóknir á hendur sjoppueiganda
VILJA
SKIPTA Á
STÓRFYRIR-
TÆKJUM
OG SJOPPU
Mosfellsbæ, 27.desember
„Þeir mega koma til mín
nótt eftir nótt þessir herr-
ar, en ég fer ekkert að láta
mig,“ segir eigandi sölu-
turns í Mosfellsbæ sem
hefur orðið fyrir þeirri
óskemmtilegu lífsreynslu
að helstu frammámenn í
íslensku viðskiptalífi birt-
ast honum í draumi og
bjóða stórfyrirtæki í skipt-
um fyrir sjoppuna.
„Ég skil ekki hvað vakir
fyrir þessum mönnum," segir
eigandi söluturnsins, Gott-
freð Einarsson. „Þeir reyna
að beita fortölum, en þegar
þaö dugir ekki grípa þeir til
hótana."
Meöal þeirra sem hafa birst
Gottfreð í draumi með þess-
um hætti eru Hörður Sigur-
gestsson, Óli Kr. Sigurðsson,
Herluf Clausen, Halldór H.
Jónsson og Werner Rasmus-
son, sem hefur veriö mjög
ágengur.
„Ég skil ekki hvað Werner
er að vilja, liann hlýtur að
hafa nóg með sitt," sagði
Gottfreð Einarsson sjoppu-
eigandi í samtali við GULU
PRESSUNA.
Werner lætur mig ekki í friði á nóttunni, segir Gottfreð
Einarsson sjoppueigandi.
Friðrik Sophusson
Færði
útibús-
stjóran-
um blóm
hefðum þurft að
taka upp fjárlögin
ef hann hefði ekki
stöðvað þjófinn
Hofnarfirði, 26. desember
-y~ ■" ■ ---■
„Eg ætla ekki að lýsa því
hvað mér létti þegar ég
heyrði að þjófurinn hefði
ekki náð þessum 8 til 10
milljónum. Ef það hefði
gerst hefðum við þurft að
rífa upp öll fjárlögin og
skera niður á móti þessu
tekjutapi," sagði Friðrik
Sophusson fjármálaráð-
herra þegar hann færði
útibússtjóra ÁTVR í Hafn-
arfirði blóm í gærdag.
„Án þín værum við sjálf-
sagt enn niðri á þingi og hefð-
um ekki komist í jólafrí. Með
þessum blómum fylgja kveðj-
ur frá fjölskyldum allra þing-
mannanna." sagði Friðrik.