Pressan - 27.12.1991, Side 18

Pressan - 27.12.1991, Side 18
18 GULA PRESSAN Föstudagur 27. desember 1991 Sarajevo 28. júní 1914 Franz Ferdinand erkihertogi og kona hans Soffía ganga aö bifreið sinni. Áhrifamenn fylgjast meö, þar á meðal fjármálaráðherra Bosníu. Mánuði síðar braust út heimsstyrjöld. son, menningarfulltrúi ís- lenska sendiráðsins í Lundún- um. Gekk blaðið The Sun svo langt að halda því fram að bókin væri ekki annað en áróðursbragð sem Jakob Magnússon ætlaði sér að nota til að laða erlenda ferða- menn til íslands. Jakob Magn- ússon vísar því hins vegar harðlega á bug að hann hafi haft nokkuð með bókarskrif- in að gera: „Því miður verð ég eigin- lega að segja, því eftir lestur bókarinnar er ég sannfærður um að hvert orð í henni eigi við rök að styðjast. Það kemst enginn efi að í mínum huga. Hins vegar hlýt ég að lýsa yfir vonbrigðum með að hvergi er minnst á hlut Al- þýðuflokksins. Hitt er svo annað mál,“ sagði Jakob í samtali við GULU PRESS- UNA, ,,að þessi bók er ein- hver besta landkynning sem við gætum fengið. Þar hafa bresku blaðamennirnir lög að mæla. Sendiráðinu hefur þegar borist fjöldi fyrirspurna frá fólki sem er óðfúst að sækja ísland heim og kynna sér málavöxtu af eigin raun." Davíð Oddsson forsætis- ráðherra er á öðru máli og íhugar að leita leiða til að hefta útbreiðslu bókarinnar, jafnt hér á landi sem erlendis. Hefur hann boðað til ríkis- stjórnarfundar um málið á gamlársdag: ,,Ég sé ekki að það geri landinu neitt gagn að vera bendlað við svonalagað. Við erum í djúpri kreppu og meg- um ekki við frekari skakka- föllum. Það má vel vera að allt sé satt og rétt sem stendur í bókinni, myndirnar tala sínu máli og erfitt að rengja þær beinlínis. Mér finnst hins veg- ar engin ástæða til að halda þessu á lofti meira en orðið er. Nógur er skaðinn," sagði Davíð Oddsson í viðtali við blaðamann GULU PRESS- UNNAR. GULA PRESSAN hefur ítrekað reynt að ná sambandi við höfunda bókarinnar, þá prófessor Nott og dr. Will- helm, en ekkert orðið ágengt. Janice, kona Notts, sagði í samtali við blaðið í gærkvöldi að hún teldi að eiginmaður sinn færi huldu höfði ásamt dr. Willhelm, sem er ókvæntur. Hefðu þeir sagst ætla að skreppa út á krá fáeinum dögum fyrir jól, en síðan hefði ekkert til þeirra spurst. Sagði hún það mjög bagalegt að vita ekki af manni sínum svona yfir há- tíðirnar; hann væri ákaflega gleyminn og gæti því átt í erfiðleikum með að rata aftur heim. Því fór hún þess á leit við GULU PRESSUNA að blaðið bæði lesendur sína að svipast um eftir prófessor Nott á íslandi. Er því hér me<T komið"á framfæri. Moskva 1917 Byltingartímar í Russlandi, kommúnistar taka öll völd. Lenín ávarpar utifund, Trotskí fylgist með. Verkamenn í Moskvu láta sér vel líka. Sovétríkin eru i burðarliðnum. Southampton 10. apríl 1912 Vegfarandi fylgist með þegar Titanic leggur úr höfn í jómfrúrferð sína. Tékkóslóvakía 22. júlí 1968 Vorið í Prag. Alexander Dubcek heilsar upp á vonglaða landa sína. Árið 12 þúsund f.Kr. Málverk frá steinöld þar sem nú heita Alt- amira-hellar nærri Santilla del Mar á Norður-Spáni. Um þrjú þúsund árum síðar leið menning steinaldarmannsins endan- lega undir lok. „Eg er búinn að sjá bókina, en vil sem minnst tjá mig um málið á þessari stundu," sagði Ólafur Ragnar Grímsson, for- maður Alþýðubandalagsins, þegar GULA PRESSAN ræddi við hann í gær. „Mér sýnist hins vegar að erfitt gæti reynst að vefengja niðurstöð- ur þessara ágætu vísinda- manna. Ég veit ekki betur en þetta séu fræðimenn sem njóta mikillar virðingar á sínu sviði.“ Reykjavík 21. desember 1991. Alþingi Islendinga stuttu áður en það fór i' jólafrí. New York 27. október 1929 Samkvæmisfólk í New York dansar áhyggjulaust í næturklúbbi meðan kreppan beið frammi í and- dyri. Tveimur dögum síðar hrundi verð á hlutabréfum á Wall Street.

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.