Pressan - 27.12.1991, Page 21
Föstudagur 27. desember 1991
GULA PRESSAN
21
Ungur maður í Breiðholti setti hraðsuðuketil í samband
FÉKK 3.500
VOLTA
SPENNUí
GEGNUM
SIG OG
LIFÐIAF
hafði greitt of mikið til Rafmagnsveitnanna
Reykjavík, 4. apríl
„Við höfum verið að
þangað til að fá að vera í
reyna að hækka þjónustu-
stigið hjá fyrirtækinu.
Einn liðurinn í því er að
láta fólk ekki eiga neitt
inni hjá okkur. Þegar þessi
greiðsla barst inn á reikn-
ing mannsins hjá okkur
fannst okkur eðlilegt að
láta hann fá það sem hann
hafði greitt fyrir,“ sagði
Karl Armannsson, vakt-
stjóri hjá Rafmagnsveitum
ríkisins, í samtali við
GULU PRESSUNA eftir að
ungur maður í Breiðholti
fékk í sig 3.500 volta
spennu á heimili sínu.
„Auðvitað þykir okkur
miður að svona fór,“ sagði
Karl. „Við teljum þetta hins
vegar skárri kost en þann að
sitja sífellt undir því að við sé-
um að hlunnfara kúnnann
eins og ríkisfyrirtæki hafa
þurft að gera.“
Vegna mistaka hjá ÍSAL fór
greiðsla félagsins fyrir raf-
orku fyrir síðustu þrjá mán-
uði ársins óvart inn á við-
skiptareikning unga manns-
ins í Breiðholti. Eins og áður
sagði settu starfsmenn Raf-
magnsveitnanna þá aukinn
straum á hús mannsins með
fyrrgreindum afleiðingum.
„Eg veit ekki hvað skal
segja," sagði ungi maðurinn,
Bárður Ingvarsson, í samtali
við GULU PRESSUNA. „Ég er
bæði reiður yfir því hvernig
fór og eins er ég feginn að ég
átti ekki neitt inni hjá Hita-
veitunni. Ég væri þá eflaust
bæði soðinn og drukknaður
þar sem ég ligg hér.“
Markaðsmaður ársins 1988
Man ekki
hvað nýjasta
fyrirtækið
mitt heitir
segir Hjalti Pálsson viðskiptajöfur, en
fjármálaveldi hans er nú týnt
Garðabæ, 26. desember
„Það er alveg sama hvað
ég reyni að hugsa, ég get
ómögulega munað hvað ég
skírði fyrirtækið síðast,“
sagði Hjalti Pálsson við-
skiptajöfur, sem leitar nú
logandi ljósi að fyrirtæk-
inu sínu.
Forsaga málsins er sú að
Hjalti hefur reglulega losað
um skuldir fyrirtækja sinna
með því að skipta um nafn á
þeim og skilja skuldirnar eft-
ir. Þetta hefur gengið vel fram
til þessa og honum tekist
þetta í einum nítján tilfellum.
Síðast skipti hann um nafn á
fyrirtækinu á Þorláksmessu.
„Ég gleymdi mér hins veg-
ar um jólin. Þegar ég ætlaði
að senda út reikninga og ann-
Hjalti Pálsson ásamt syni sínum Páli Hjaltasyni.
að slíkt á annan í jólum var
gersamlega stolið úr mér
hvað ég hafði skírt fyrirtækið.
Það eina sem ég man var að
það byrjaði á K-i,“ sagði
Hjalti.
Að sögn starfsmanna hluta-
félagaskrár geta þeir ekki lið-
sinnt Hjalta. Þeir segja það
lágmarkskröfu að aðstand-
endur fyrirtækja viti hvað
fyrirtækin þeirra heiti.
„Þetta er grábölvað. Það
var enn margt gott eftir í
þessu fyrirtæki; uppsafnað
skattalegt tap, nokkuð af úti-
standandi skuldum og fleira
gott,“ sagði Hjalti.
„Strakarmr okkar“ hafa veitt mer margar anægjustundir,
-segir Ævar Sæberg.
Aldraður heiðursmaður í Grindavík
BÝÐST TIL AÐ HALDA HM í
HANDBOLTA HEIMA HJÁ SÉR
Grindavík, 26. desember
„Eg hef fylgst með
„strákunum okkar“ í
mörg ár og þeir hafa veitt
mér marga ánægjustund-
ina. Því lít ég á það sem
skyldu mína að leggja
þeim lið þegar aðrir
bregðast sem ættu að
standa þétt að baki hand-
knattleikslandsliðinu. Það
er þjóðarskömm. Hér
heggur sá er hlífa skyldi.“
Svo mælir Ævar Sæberg,
aldraður heiðursmaður í
Grindavík, sem hefur sent
stjórn Handknattleikssam-
bands íslands bréf þar sem
hann býðst til að halda
heimsmeistarakeppnina í
handknattleik 1995 heima
hjá sér,- Ævar starfaði um ára-
bil hjá fiskverkun Hópsness í
Grindavík, en síðar á skrif-
stofu fyrirtækisins. Hann er
nú kominn á eftirlaun.
í samtali við GULU PRESS-
UNA sagði Ævar að hann
hefði átt viðræður við Jón
Hjaltalín Magnússon, for-
mann HSÍ, og hefði hann sýnt
hugmyndinni mikinn áhuga.
Aðspurður sagði Ævar Sæ-
berg að heimili sitt væri
reyndar ekki sérlega rúm-
gott, eða tvö herbergi, eldhús
og bað. „Ég er hins vegar
einn í heimili, svo várla ætti
fólkið að vera að þvælast fyr-
ir handboltastrákunum. Þeim
er velkomið að halda keppn-
ina heima hjá mér ef þeir
vilja,“ sagði þessi mikli hand-
knattleiksáhugamaður að
lokum.
Davíð vonast til að geta orðið
nýr og betri maður.
Davíð Oddsson
forsætisráðherra
ÉG VEIT ÉG
HEF BREYTT
RANGT
lofar bót og betrun
Reykjavík, 25. desember
„Eftir að hafa átt erfiða
nótt hef ég ákveðið að
snúa við blaðinu. Héðan í
frá mun ég reyna að auðga
líf samferðamanna minna
og hugsa minna um sjáifan
mig,“ segir í yfirlýsingu
sem Davíð Oddsson for-
sætisráðherra sendi frá
sér á jóladagsmorgun.
I henni kemur fram að ráð-
herrann hafi haft erfiðar
draumfarir þar sem honum
hafi birst ýmsar táknmyndir
sem allar stóðu fyrir einhvern
þjóðfélagshóp sem hann
hafði beitt hörku; ein stóð
fyrir sjómenn, önnur stúd-
enta, þriðja barnafólk, sú
fjórða háskólakennara, sú
fimmta Guðmund Malmquist
og svo framvegis.
„Þegar ég vaknaði hafði ég
áttað mig. Þetta fólk hafði
ekkert gert mér en ég reynst
því illa. Ég get ekki ætlast til
þess að þeir sem ég hef beitt
ranglæti fyrirgefi mér. Ég get
aðeins vonað að mér takist
að bæta fyrir brot mín,“ segir
í yfirlýsingu ráðherrans.