Pressan - 27.12.1991, Blaðsíða 33

Pressan - 27.12.1991, Blaðsíða 33
Föstudagur 27. desember 1991 GULA PRESSAN 33 Ingólfur Margeirsson Það sannaðist á Árna Gunnarssyni á árinu að sjald- an er ein báran stök. Hjá hon- um var árið samfella af mis- tökum og ótrúlegri óheppni. Árni er svokallaður eins kjör- tímabils-maður. Hann á auð- velt með að kynnast fólki en hins vegar erfiðara með að halda kunningsskapnum við. Þegar hann fann hvernig far- ið var að fjara undan honum á Norðurlandi flutti hann sig yfir í Suðurlandskjördæmi og ætlaði að fljúga inn á þing á því að hafa verið þar í sveit sem krakki. Því voru allir búnir að gleyma og Árni kol- féll. Sigbjörn Gunnarsson fékk hins vegar gamla sætið hans Árna þótt hann tapaði stærstum hluta atkvæðanna. Eftir að hafa jafnað sig á áfall- inu datt Árna í hug að fella Jón Hjaltalin Magnússon og gerast formaður Handknatt- leikssambandsins. Stuttu síð- ar kom í Ijós að HSÍ var á leið í risagjaldþrot. Þá réð Árni sig til Slysavarnafélagsins og um leið sameinuðust Hjálpar- sveitir skáta og flugbjörgun- arsveitirnar og tóku foryst- una í björgunarmálunum. Núna vill hann verða fasta- fulltrúi hjá Sameinuðu þjóð- unum. en því embætti ætlar Jón Baldvin að halda volgu fram á næsta vor fyrir Stein- grím Hermannsson. Ingólfur Margeirsson fór i frí sem ritstjóri Alþýðublaðsins og gaf út metsölubókina í ár. Hún seldist i um ellefu þúsund eintökum. Það er tuttugu og tvöfalt upplag Alþýðublaðs- ins. Bókin er 350 siður. Al- þýðublaðið er fjórar. í bókinni eru þvi87,5 sinnum fleiri siður en i Alþýðublaðinu. Þegar þetta tvennt er lagt saman, upplagið og blaðsíðufjöldinn, kemur i Ijós að Ingólfur seldi jafnmargar siður í jólabóka- flóðinu og hann hefði getað búist við að selja á sjö árum, fjórum mánuðum og 24 dög- um sem ritstjóri Alþýðublaðs- ins. Efhann byrjaði i dag næði hann sjálfum sér 20. júni árið 1999. Ingólfur er því á uppleið — en jafnframt á útleið frá Al- þýðublaðinu. I haus blaðsins stendur (i starfsleyfi) við nafn Ingólfs. Síðustu mánuði ársins var það gefið út af þremur blaðamönnum og einum i frii. Arni (jmnW'SSon Menningin ívar Valgarðsson Sannaði að það er sem betur fer ennþá hægt að hneyksla. Fór í Byko, keypti spýtur og málningardósir og raðaði snyrtilega upp á Kjarvalsstöð- um. Fáir voru tilbúnir að fall- ast á að þetta væri líka list. . . Súsanna Svavarsdóttir Skrifaði leikdóm um upp- færslu Leikfélagsins á Dúfna- veislunni. Huguð kona. Hing- að ti.l hafa flestir krítíkerar látið bugast. Stenst hún reiði leikarastéttarinnar til fram- búðar? Hilmar Örn Hilmarsson Hreppti alþjóðleg verðlaun fvrir kvikmyndatónlist og var heimsfrægur í 15 mínútur úti í Berlín. Við tökum fagnandi allri heimsfrægð sem okkur hlotnast — hversu lítil sem hún er. Sigurbjörn Aðalsteinsson Færði heim sanninn um að kvikmyndir þurfa ekki að vera tveggja tíma langar, rán- dýrar og mannaðar leikara- stóði. Stuttmyndin Okunn dufl er kannski ekki besta mynd ársins en örugglega sú sem kom skemmtilegast á óvart. Sigrún Eðvaldsdóttir Stúlkan sem þjóðin elskar að elska. Falleg, fjörug, skemmtileg og kannski kom- in langleiðina með að verða mesti afburða hljóðfæraleik- ari sem við höfum eignast. Langvinsælasta leikrit árs- ins var þrjátíu ára gamall söngleikur; hálf þjóðin fór og sá Söngvaseið í Þjóðleikhús- inu, rétt eins og öll þjóðin sá Julie Andrews í bíómyndinni Sound of Music fyrir aldar- fjórðungi. Tónskáld ársins lést fyrir tæpum mannsaldri; tónlistarmenn voru í óða önn að reyna að fá botn i hvað Jón Leifs var að fara með verkum sínum. Fáar myndlistarsýn- ingar voru eftirminnilegri eða bitastæðari en sýning á verkum Sigurðar Guðmunds- sonar í Listasafni íslands; það voru mestanpart myndir gerðar á árunum 1960—70. Poppstjarna ársins, Rúnar Júlíusson, var líka popp- stjarna ársins 1970. Hinir poppararnir létu sig flestir dreyma tuttugu ár aftur í tím- ann. Líkt og í öðrum greinum mannlífsins horfðu listamenn um öxl á þessu ári, ekki reiðir, heldur fullkomlega sáttir. Lítum framan í nokkra listamenn og menningarvita. Flestir þeirra áttu velgengni að fagna á árinu, aðrir kunna ef til vill að minnast þess með hryllingi. Arngunnur Ýr Gylfadóttir Sýning á Kjarvalsstöðum, ógnvekjandi og óhugnanlega fallegar my ndir sem minntu á að það er ekki nema næfur- þunn himna milli lífs og dauða. Sigrún Hjálmtýsdóttir Söngdrottning íslands. Var óborganleg sem Gilda í Rigol- etto, aftur sem Papagepa í Töfraflautunni og enn aftur í hlutverki Næturdrottningar- innar. Sigurður Guðmundsson Kannski mestur íslenskra listamanna, mældur í hreinu skemmtanagildi. Dásamlega fyndinn, tvíræður, skáldleg- ur, mátulega gegnsær, en um leið listamaður sem vinnur vinnuna sína af alvöru og vandvirkni. Tómas R. Einarsson Tómas er himnasending fyrir íslenskan djass, hvort heldur er sem skipuleggjandi, spilari eða tónsmiður. Platan hans, íslandsför, er frábærilega áheyrileg, hugsanlega tíma- mótaverk. Guðmundur Andri/ Thors- son Andri setti sér það mottó að skrifa helst ekki neitt nema honum þætti það skemmti- legt sjálfum. Það reyndist vit í því. Kæra Jelena Enn einu sinni setti Þjóðleik- húsið upp sýningu sem varð til vandræða; í þetta sinn sök- um þess að hún var svo prýði- leg að aðsóknin riðlaði öllum áætlunum. Yoko Ono Kannski engin tímamótasýn- ing, en fór langleiðina með að slá aðsóknarmet á Kjar- valsstöðum. Var ekki líka rétt mátulegt að fá hingað ekkju Johns Lennon á þessu ári enduruppgötvana. Söngvaseiður Tugþúsundir íslendinga sáu þessa sýningu. Kannski var hún bara svona góð og skemmtileg, kannski líka af því leikstjórinn var rekinn stuttu fyrir frumsýninguna. Jón Leifs Gekk aftur með offorsi á ár- inu og er ekkert á leiðinni burt aftur. Við spáum þvi að næsta ár verði líka árið hans. Kolbrún Bergþórsdóttir Reyndi að segja okkur að við ættum að lesa það sem stend- ur í bókum, ekki það sem við viijum að standi í þeim. Gerði í tímaritsgrein ærlega tilraun til að slá á þá hugmyndafræði kvennabókmenntafræðinga að mestallar bókmenntirnar fjalli um heimsstyrjöld milli karla og kvenna. Börn náttúrunnar Friðriki Þór tókst ætlunar- verk sitt; að fá liðið sem fer á sýningar hjá Leikfélaginu í bíó. Þar að auki; loksins ís- lensk mynd sem verðskuld- aði lofið sem hún fékk. Sigrún Stefánsdóttir Fjölhæfasta kona ársins. Kenndi í Háskólanum, las fréttir og gerði sjónvarps- þætti um arkítektúr, Snorra Sturluson og leikfimi. Perlan „Manndrápsperlan með dauðalyftunni kostaði 1.300 milljónir — 12.754.089 kaffi- pakka," skrifaði einn óvinur þessarar miklu byggingar. Samt verður því varla neitað að arkítektúrinn er góður og sniðugur, alveg burtséð frá gagnsemi hússins. Hrafn Gunnlaugsson Teygði sig of langt. Eftir Hvíta víkinginn nennir þjóðin varla lengur að láta Hrafn fara í taugarnar á sér. Kjartan Ragnarsson Lengi þótti eitt alveg víst í ís- lensku leikhúsi; að alþýða manna flykktist á kassa- stykkin hans Kjartans. Eftir sýningu Þjóðleikhússins á Gleðispili er það langt í frá ör- uggt- Ryð Það kom í ljós að þjóðin er búin að fá yfir sig nóg af myndum um ruglað lið sem manni skilst að búi í gleymd- um afkimum sveitanna. Meira að segja gulldrengnum Sigurjóni Sighvatssyni tókst ekki að breyta því. Dúfnaveislan Annaðhvort er Halldór Lax- ness vont leikskáld eða sýn- ingin vond. Nema hvort tveggja sé. Það fannst þó ekki Silju Aðalsteinsdóttur sem uppgötvaði nýja Laxnesstúlk- un þarna um kvöldið í Borg- arleikhúsinu; að pressarinn og allir hinir meinhægu ta- óistarnir hans Halldórs hefðu ef til vill verið örgustu fýlu- pokar og leiðindagemsar. Sjónvarpið Hreina satt, það var ekkert í því á árinu. Fjaðurpenna var skipt út fyrir sjálfblekung, vaðmálstreyju fyrir vesti, sauðskinnsskóm fyrir lakk- skó, lýsingin stillt ögn, og þáttur þar sem Árni Magnús- son paufaðist við að koma sér að verki breyttist í þátt um Jó- hann Jónsson. Fólkið sem velur kvikmyndirnar á föstu- dags- og laugardagskvöldum ersvoekki meðrétturáði . . . Islenski dansflokkurinn Þraukaði, en ekki nema rétt svo, þrátt fyrir að danshöf- undurinn Guy Verendon seg- ið að dansmeyjarnar væru of gamlar og ættu í erfiðleikum með vigtina. ,,Auk þess var litnum á bíln- um sem ég fór med í burtu ekki rétt lýst.“ FANGI AF LITLA-HRAUNI gagnrýnir fréttaflutning af stroki sínu frá fangavörðum i DV i janúar. ,,Ég hef enga ákvördun tek- ið um það hvort ég tek sœti á listanum en hef þó ekki gefið það írá mér enn." LINDA PETURSDÓTTIR i janúar, aðspurð hvort hún ætlaði í framboð fyrir Framsókn i Reykja- vík. „Þetta er slœmt því nýi eig- andinn keypti auðvitað hús- ið með trjánum sem nú er búið að saga niður." ÖRN ÞÓRHALLSSON i febrúar, eftir að nágranni hans hafði tekið sig til og sagað niður tré i garði Arnar. „Það er fjarri öllu lagi að kunningsskapur minn við Gorbatsjov og andstaða mín við að styggja hann eigi ein- hvern þátt t að við hikum við að viðurkenna sjálfstœði Litháens." STEINGRÍMUR HERMANNSSON i febrúar. „Það eru eftir allt saman við sem eigum peninga og höfum menn á þingi.“ JÚLÍUS SÓLNES að reyna að heilla smáflokka til liðs við Borgaraflokkinn í febrúar. „Okkur fannst þetta vera orðið í meira lagi." GÚSTAF LILLENDAHL fangelsisstjóri á Litla-Hrauni, um hassneysluna á Hrauninu eftir að fimmtíu grömm af hassi fundust í einum klefanum í febrúar. „Við vonumst til að samn- ingsgerð verði lokið innan þriggja mánaða." JÓN SIGURÐSSON álmálaráðherra í febrúar. „Menn hafa vissulega rœtt þetta við mig.“ DAVÍÐ ODDSSON febrúar um líkurnar á þvi að hann færi í formannskjör i Sjálfstæðis- flokknum. „Ég hef ekkert heyrt um þetta." ÞORSTEINN PÁLSSON í febrúar, um hugsanlegt framboð Davíðs. „Eg kýs að kalla mig far- andverkamann." JÓHANNESJÓNSSON kaupmaður í Bónus, i febrúar. „Sem einn af frumbyggjun- um í efra Breiðholti, og eini þingmaður Reykvíkinga sem býr í hverfinu, tel ég mig vera í góðum tengslum við fólkið þar.“ ÁSGEIR HANNES EIRÍKSSON í febrúar að útskýra áform sín um sérstakt Breiðholtsframboð.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.