Pressan - 29.10.1992, Blaðsíða 9

Pressan - 29.10.1992, Blaðsíða 9
FIMMTUDAGUR PRESSAN 29. OKTÓBER 1992 9 Ættarveldi Einars Guðfinnssonar á Bolungarvík Eftir margra ára erfiðleika er ættarveldi Einars Guðfínnssonar á Bolungarvík komið í greiðslustöðvun. Fyrirtækið hefur ekki greitt stóran hluta opin- berra gjalda í mörg ár. Ólíklegt er talið að gengið verði til nauðasamninga en jafnframt óttast menn áhrif þess á stærstu kröfuhafa ef þeir þurfa að af- skrifa skuldir fyrirtækisins. í framhaldi þess hafa komið upp hugmyndir um að stofna nýtt félag um reksturinn. Fyrirtæki ELnars Guðfmnsson- ar hf. á Bolungarvík og dótturfyr- irtæki þess, Hólar hf„ hafa nú fengið greiðslustöðvun til föstu- dagsins 13. nóvember. Hafa stjórnendur fyrirtækisins leitað hófanna um nauðasamninga og niðurfellingu skulda. Engar tölur liggja fyrir um hve hátt hlutfall skulda yrði greitt, en ólíklegt er talið að lánardrottnar fyrirtækis- ins samþykki slíka fyrirgreiðslu. Er það einfaldlega vegna þess að síðustu árin hefur fyrirtækið feng- ið mikla niðurfellingu skulda sem ekki hefur dugað til að koma því á réttan kjöl. Ekki liggur fyrir hver kröfuhaf- anna mun hafa frumkvæði í við- ræðunum framundan, en sam- kvæmt heimildum blaðsins er ein þeirra leiða sem ræddar eru að stofha fyrirtæki um reksturinn og eignirnar — svipað og Lands- bankinn gerði með stofnun Hamla hf. um rekstur Sambands- ins. SKULDIRNAR FÆRÐAR NIÐUR UM 600 MILLJÓNIR FYRIR ÞREMUR ÁRUM Eins og áður sagði er ekki langt síðan fyrirtæki Einars Guðfmns- sonar hf. fengu mikla fyrir- greiðslu. Þetta var í kringum björgunaraðgerðir Atvinnutrygg- ingasjóðs árin 1988 og 1989. Var þá talið að skuldir fyrirtækisins hefðu verið færðar niður um 600 milljónir. Þá fékk fyrirtækið hæsta lán sem Atvinnutryggingasjóður út- flutningsgreina veitti. Það lán stendur nú í 350 milljónum króna og eftir því sem komist verður næst hefur fyrirtækið hvorki borg- Sverrir Hermannsson banka- stjóri: Landsbankinn með veð í hlutabréfum í Skeljungi. að vexti né afborganir af því, en vexti hefði átt að byrja að greiða í fyrra. Þá lagði Byggðastofnun til 52 milljónir með því að fella niður 23 milljónir og breyta 29 milljónum í víkjandi lán. Tryggingamiðstöðin og þó að- allega Skeljungur lögðu til um 35 milljónir með niðurfellingu skulda, en fjölskyldan á stóran eignarhlut í hvorumtveggja fyrir- tækjunum. Talið var að Landsbankinn hefði þá lagt til á milli 80 og 100 milljónir í björgunaraðgerðunum. Voru þá háar dráttarvaxtaskuldir strikaðar út og ýmsar aðrar skuld- ir færðar niður. Landsbankinn hefur því aldrei sett fyrirtækinu stólinn fyrir dymar og er til dæmis ekki einn þeirra aðila sem fóru ffam á uppboð á eignum fyrirtæk- isins, sem varð til þess að farið var ffam á greiðslustöðvun. Friðrik Sophusson fjármálaráð- herra: Ríkissjóður hefur ekki fengið greidd opinber gjöld frá stærsta fyrirtæki Bolungarvíkur í mörg ár. LANDSBANKINN MEÐ VEÐ í SKELJUNGSBRÉFUNUM Sverrir Hermannsson, banka- stjóri Landsbanka, vill lítið tjá sig um málefni fyrirtækisins en sagði þó að bankinn hefði sæmilegar tryggingar fyrir kröfum sínum: „Við verðum að teljast vel settir,“ sagði Sverrir. Samkvæmt heimild- um PRESSUNNAR hefur bankinn meðal annars fengið veð í eignar- hlut ættarinnar í Skeljungi og Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna, Hlýtur sú veðsetning að vekja at- hygli, sérstaklega í ljósi þess að bankinn hefur nú umsjón með hlut Sambands íslenskra sam- vinnufélaga í öðru olíufélagi, Essó. Einnig á fjölskyldan stóran hlut í Tryggingamiðstöðinni, en ekki er ljóst hvort hann hefur verið veðsettur líka. Hlutur fjölskyldunnar í Skelj- ungi er upp á fjögur til fimm pró- sent og að nafnvirði um 25 millj- ónir. Þessi hlutur hefur fært Jón- atani Einarssyni stjórnarsæti í Skeljungi. Fyrir nokkrum árum var hlutnum í Skeljungi skipt út til fjölskyldumeðlima og eiga þeir bræður Guðmundur, Guðfinnur ogjónatan hlut upp á 3,6 milljón- ir hver, aðrir fjölskyldumeðlimir minna en þó á til dæmis Einar Benediktsson, sem orðaður hefur verið sem næsti forstjóri OLÍS, um tveggja milljóna króna hlut í Skelj- ungi. Fjölskyldan hefur lengst af ver- ið umboðsaðili fyrir Skeljung á Bolungarvík en fyrr á árinu var því breytt þannig að nú hefur einn fjölskyldumeðlima umboðið per- sónulega. Þá hefur blaðið heimild- ir fyrir því að fyrirtæki Einars Guðfmnssonar skuldi Skeljungi nokkrar fjárhæðir og er þá ekki verið að ræða um olíuskuldir vegna útgerðarinnar. BÆRINN LÍKLEGA BÚINN AÐ TAPA 50 MILLJÓNUN- UM Fyrir um það bil ári stefndi enn á ný í þrot hjá fyrirtækinu. f raun fannst aldrei nein lausn á því máli, sem var að velkjast um í nokkurn tíma. Lyktir málsins urðu þær að Bolungarvíkurbær gekkst í ábyrgð fyrir 50 milljóna króna láni hjá Byggðastofhun sem yfirfært var á gamlársdag. Þetta lán fór fyrst og fremst í að koma skikki á greiðslustöðu fyrirtækisins hjá bænum, greiða skyldusparnað og hafnargjöld og standa skil á stað- greiðsluskuldum. Eftir því sem komist verður næst töldu forráða- menn bæjarins sig nánast þving- aða til að gangast í ábyrgð fyrir þetta lán, vegna þess að Lands- bankinn mun meðal annars hafa hótað lokun. Þetta átti að vera að- eins helmingur fyrirgreiðslu bæj- arins en aldrei varð af því að seinni helmingurinn væri greidd- ur út. Tryggingar fyrir láninu eru hins vegar alls ekki nógu góðar og af sumum talið fullvíst að það falli á bæinn. Einar Jónatansson, fram- kvæmdastjóri fyrirtækisins, vildi ekki taka undir neitt slíkt og sagði að tryggingar bæjarins væru góð- ar. Tryggingar annarra kröfuhafa eru einnig umdeilanlegar en Fisk- veiðasjóður, sem er einn þriggja stærstu lánardrottna, hefur þó ágætar tryggingar, enda ber þeim lögum samkvæmt að halda sig við 1. veðrétt. Helstu eignir Einars Guðfmns- sonar hf. eru togararnir Dagrún og Heiðrún ásamt kvóta. Einnig á fyrirtækið frystihús með rækju- verksmiðju og loðnuverksmiðju. Frystihúsið er yfirveðsett og ljóst að ef það færi í uppboðsmeðferð yrðu ícröfúhafar að afskrifa gífur- legar upphæðir. Það ýtir hvað mest á eftir hugmyndum um að stofna félag um reksturinn, því þá er hægt að hliðra afskriftum til. Landsbankinn og Atvinnu- tryggingadeild Byggðastofnunar (sem tók við Atvinnutrygginga- deild útflutningsgreinanna) eru hvort um sig nteð um 100 millj- óna króna veð í frystihúsinu og þá er Byggðastofnun með um 45 milljóna króna veð. Bjartsýnustu menn telja að hugsanlegt sé að fá 100 milljónir fyrir húsið eins og ástatt er nú. HAFA EKKIBORGAÐ OPIN- BER GJÖLD f MÖRG ÁR Það var ríkissjóður sem hafði farið fram á uppboð á eignum fé- lagsins nú þegar greiðslustöðvun- in gekk í gildi. Það er hins vegar ekki hægt að ásaka ríkissjóð um óþolinmæði, því fyrirtækið hefur ekki staðið skil á opinberum gjöldum í mörg ár. Árið 1990 voru opinberar skuldir fyrirtækisins settar inn á nokkur skuldabréf og var þá mið- að við skuldastöðuna eins og hún var í árslok 1989. Þessi skuld- breyting tengdist tiltekt Péturs Kr. Hafstein, sem var þá settur bæjar- fógeti á Bolungarvík. Inn á skuldabréfin voru settir ógreiddir skattar og meðal annars þinggjöld og launatengd gjöld allt aftur til ársins 1987. Má því segja að fyrir- tækið hafi ekki greitt sum launa- tengd gjöld í fimm ár. Skuldabréf- ið var upp á 50,5 milljónir króna og var í vanskilameðferð á miðju ári. Stærsta bréfið, upp á 36 millj- ónir, var gefið út af Hólum. Síðan 1990 hefur fyrirtækið safnað nýjum gjaldskuldum. Nú þegar greiðslustöðvunin hófst skuldaði Einar Guðfinnsson hf. 23 milljónir vegna opinberra gjalda og Hólar hfi 8 milljónir. Skuld Júpíters, sem ekki er í greiðslu- stöðvun, er upp á 1,8 milljónir króna. f fyrra var gert Ijárnám hjá fyrirtækinu og einhverju af kröf- unum þá þingiýst inn á eignir, meðal annars hið yfirveðsetta frystihús. Heildarskuldir fyrirtækjanna eru á bilinu 1.500 til 1.600 milljón- ir. Þrátt fyrir að rekstrarafkoman hafi verið einhverju skárri en áður fyrrihluta árs hefur ekkert gerst sem breytt hefur skuldastöðunni. Sigurður MárJónsson

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.