Pressan - 29.10.1992, Blaðsíða 37
FIMMTUDAGUR PRESSAN 29. OKTÓBER 1992
37
LfFIÐ EFTIR VINNU
%
eftir sig slóð af vísbendingum til
lausnar falinnar gátu. Þetta gerir
að verkum að það getur verið erf-
itt að fylgja honum eftir og hann
hefur enga eirð í sér til að teyma
þá áfram sem eru tregir í taumi.
En þeir sem hafa fylgst með
Hannesi munu sjá margt sem
kemur kunnuglega fyrir sjónir,
því tákn, minni og form eru end-
urtekin í sífellt nýjum tilbrigðum.
Eitt af því sem er orðið nokkurs
konar aðal hans er hinar rómuðu
ausur sem hann tálgar í tré. Á sýn-
ingunni er stórt verk sem saman-
stendur af þijátíu og þremur aus-
um, allar tálgaðar úr jafnstórum
viðarbútum, málaðar hver í sín-
um litnum og raðað í beinni röð á
vegg. Samt eru ausurnar jafnólík-
ar innbyrðis og litirnir sem þær
eru málaðar í. Sumum kann að
virðast þetta frekar undarlegt við-
fangsefni og ekki sérstaldega há-
fleygt, að tálga ausur. Það stafar
þó ekki af áhuga á nytjahönnun.
Ausur eru, í hugum okkar, hvers-
dagslegir nytjahlutir, en eiga líka
uppruna sinn í íslenskri alþýðu-
menningu, ekki síst þegar um er
að ræða hluti sem eru tálgaðir
með einföldum eggjárnum íbirki-
tré. Hannes leikur sér með slíkar
skírskotanir í íslenska arfleifð.
Ausumar em síðan útfærðar í ótal
tilbrigðum með tilvísunum í ýms-
ar áttir sem gefa til kynna þau
margvíslegu áhrif sem íslensk
menning hefur tekið inn á sig í
nútímanum.
Aususmíðar Hannesar leiða
hugann að því viðhorfi sem hann
leggur til grundvallar, að mynd-
listarmenn verði að gera sér grein
fyrir kringumstæðum sínum og
þeim öflum sem ríkja í kringum
þá og leyfa vissum hlutum að
dafna en öðmm síður. Islenskum
myndlistarmönnum hafa staðið
til boða tveir valkostir, að hans
dómi, sem birtast í tveimur goð-
sögnum, annars vegar í Kjarval,
ímynd listamannsins, sem er
sprottinn úr ómengaðri þjóðarvit-
und og einangrun, og hins vegar
Erró, sem kemur færandi hendi
með fjársjóði módernískrar al-
þjóðahyggju að utan og viður-
kenningu og metorð í farteskinu.
Báðir eru þeir til staðar á sýning-
unni í formi tveggja flennistórra
dagblaðamynda með áletruninni
„Aftur Aftur“, sem er jafnframt
yfirskrift sýningarinnar. Að dómi
Hannesar er hvorugur kosturinn
góður og enn síður að blanda
þeim saman. Þriðja leiðin er að
víkja sér undan þessum valkost-
um með gagnrýninni sjálfsvitund
og tefla sérkennum íslenskrar
menningar hverju gegn öðru.
Þetta hljómar kannski alvöru-
þrungið, en Hannes beitir gjarnan
kímni, kjánaskap og sjálfsháði,
þannig að myndlist hans verður
aldrei drunganum að bráð.
Þeir sem eru hræddir um að
vera ekki með á nótunum þurfa
ekki að hafa áhyggjur; sýningin er
heillandi hvernig sem á hana er
litið og ausurnar hreint augna-
yndi.
Gunnar J. Árnason
Kafka
samtímans
BOHUMIL HRABAL
ALVEG GLYMJANDIEINVERA
LESHÚS 1992
★★★★
Bohumil Hrabal er
Itékkneskur höfundur
sem lengstum varð að
þola að sjá bækur sínar á bann-
lista í heimalandinu, en skrifræð-
inu þar þótti hann óþægilega
gagnrýninn. Hrabal hélt þó
ótrauður áffam að gefa bækur út í
neðanjarðarútgáfum og tæplega
áttræður lifir hann nú að sjá verk
sín lofuð og þýdd á fjölmörg
tungumál. Það verk sem hann tel-
ur vera sitt besta, Alveg glymjandi
einvera, kemur nú út í íslenskri
þýðingu og bókmenntaunnendur
ættu ekki að láta það framhjá sér
fara.
„Aðal Hannesar er hinar
rómuðu ausursem
hann tálgar í tré. “
GUNNAí; J, ÁRNASON
Hrabal hefur verið líkt við Ja-
roslev Hasek og Franz Kafka. Al-
veg glymjandi einvera mun ekki
vera dæmigerð fyrir aðrar bækur
Hrabals sem flestar munu búa yfir
meiri léttleika. Samanburður við
Kafka á vel við í umræðu um þetta
magnaða bókmenntaverk sem er
fullt af ógn og drunga um leið og
það býr ýfir áberandi napurri
kímni.
Aðalpersónan Hantja hefur í
þrjátíu og fimm ár haft þann
starfa að setja í ruslapappírs-
pressu þær bækur sem ritskoðun-
in hefur ákveðið að óhæfar séu til
lestrar. Það er þetta starf sem gef-
ur lífi Hantja tilgang og hann fær
ekki lengur skilið á milli hugsana
sinna og þeirra hugsana sem hann
hefur numið af texta þeirra bóka
er hann síðan eyðir. Og þar finnst
skýring á þeirri þversögn að per-
sóna sem er fær um að álykta af
skarpskyggni og næmi um rang-
læti og miskunnarleysi skuli ekki
efast nægilega um gildi þess ógeð-
fellda starfs sem hún vinnur held-
ur kjósa að farast fremur en segja
skilið við það.
Þetta er svartsýnt verk. Alls
staðar blasir við hnignun og eyði-
legging, ekki einungis í kompunni
þar sem meistaraverkum bók-
menntasögunnar er eytt ásamt
músahreiðrum meðan fiskiflugur
suða umhverfis. f holræsum Prag
geisar blóðugt stríð milli holræsa-
rottanna og bæjarrottanna og of-
anjarðar einkennast samskipti
manna af skilningsleysi og skorti á
meðaumkun. Manneskjan lifir í
niðurlægingu og deyr í einsemd.
Hrollfengnustu kaflar bókarinnar
fjalla um mannslát. Ösku móður-
innar er dreift yfir grænmeti sem
hún ræktaði og það síðan étið
með bestu lyst af fjölskyldumeð-
limum. Frændi Hantja deyr og
finnst ekki fyrr en eftir langan
tíma og það er Hantja sem skefur
upp rotið lík hans („... langmesta
nostrið var að ná rauðum hár-
lubbanum upp úr línóleumdúkn-
um“).
Verkið lýsir þjóðfélagi sem
óskapnaði þar sem atferli hins
dæmigerða manns er vélrænt,
snautt að hugsun eða nokkru því
sem kenna mætti við hugsjón. Því
er bókmenntaverkum eytt og
kennslukonur koma með skóla-
börn í ruslapappírspressuna til að
kenna þeim að rífa bækur.
Það eru fjölmargar bækur sem
hafa þau áhrif að lesandinn hrífst
ekki einungis af þeim heldur einn-
ig af höfundinum sem skóp þær.
Það á við um þessa bók. Það er
mikil hugsun og gnægð af visku
sem býr að baki þessu verki - og
svo vitaskuld lífsreynsla sem
mann grunar að hafi stundið verið
æði sár.
Olga María Franzdóttir og Þor-
geir Þorgeirson þýddu bókina
sem er vonandi ekki sú eina sem
verður þýdd effir Hrabal. I’ þýð-
ingunni var ég sífellt að njóta um
orðið „þanneginn" sem mér þykir
hljóma afar illa og tilgerðarlega.
Prentvillur rata í flestar bækur og
það er smásálarlegt af gagnrýn-
anda að nöldra yfir örfáum slíkum
en hér eru þær óhóflega margar.
Kolbrún Bergþórsdóttir
Söngvar úr
syndabœli
ÝMSIR FLYTJENDUR
SÓDÓMA REYKJAVlK
SKfFAN
★★★
Það er farin að skapast
hefð fyrir íslenskum
kvikmyndaplötum. Tón-
listin úr Veggfóðri hefur mokast
út og tónlistin úr Sódómu er ný-
lega komin út þótt tónlist sé ekki
jafnáberandi í þeirri mynd.
Sigurjón Kjartanson, innsti
koppur í búri hljómsveitarinnar
HAM, er skrifaður fyrir tónlist
Sódómu. Eins og Máni Svavars í
Veggfóðri leysir Siguijón verkefni
sitt skemmtilega. Eðli góðrar
kvikmyndatónlistar er að maður
verði sem minnst var við hana á
meðan á myndinni stendur, hún á
að undirstrika atburðina á tjald-
inu. Sigurjóni tekst þetta vel; úr
myndinni man ég bara eftir
„FIafnarfjörður/Reykjavík“-kafl-
anum sem tekur sig verulega
glæsilega út við kaggakeyrsluna.
Þetta stef er annars orðið að nýju
frábæru HAM-lagi. Stef Siguijóns
„Mamma“ og „Sódóma Reykja-
vík“ eru hins vegar ekki upp á
marga fiska svona ein og sér —
minna í mesta lagi á Hilmar Örn á
slæmum degi.
HAM á þrjú lög. Hljómsveitin
er með frábærustu rokksveitum
landsins og á tónleikum standast
þeim fáir snúning. Það er orðið
skelfilega langt síðan HAM gaf út
efni síðast en lögin þrjú eru þó
HAM-istum að góðu kunn, nógu
lengi hefur hljómsveitin hjakkað á
þeim á tónleikum. „Partýbær" og
„Animalia“ hafa lengi verið helstu
tromp sveitarinnar — frábær
aulaþungarokklög — en „Mani-
festo“ er síðra og minnir á öll leið-
inlegu lögin á „Buffalo Virgin",
einu breiðskífu HAM til þessa.
Það ætti að vera á kröfulistum
næstu kjarasamninga að HAM
fari að gefa út nýja plötu.
Funkstrasse, grínfönkflokkur-
inn fíni, flytur tvö lög og sem fyrr
er það Óttarr Pr, fyrirgefiði, Pró-
fessor Pimp sem heldur uppi
stuðinu með spéi sínu. Meira
fönk!
KK-band flytur tvö lög. Björk
syngur með í „Ó borg mín borg“
og er útsetningin ffekar áreynslu-
laus þótt örugglega hýrni yfir
eldra fólki. Utsetning KK á
„Slappaðu af‘ er slöpp og nær litlu
af sjarma Flowers-útgáfunnar.
Björk og Þorvaldur úr Ajax eiga
ekki afleitt niðursuðudanslag og
gaman væri að heyra meira frá
þeim dúett. Til viðbótar eru svo
lögin „Sódóma“ með Sálinni og
„Hótel Haförninn“ með Júpíters;
bæði ffábær lög og með þeim allra
bestu sem gefin voru út á plötum
sveitanna nú í sumar.
„Sódóma Reykjavík“ er fyndn-
asta íslenska bíómynd sem gerð
hefur verið og tónlistin úr mynd-
inni ætti einnig að koma öllum í
gott skap; hún er virkilega
skemmtileg.
Gunnar Hjálmarsson
18.00 Stundin okkar £
18.30 Babar
18.55 Táknmálsfréttir
19.00 Úr ríki náttúrunnar. Með ís fyrir þak. Undraveröld
undir íshellu Suðurskautslandsins.
19.30 ★ Auðlegð og ástríður
20.00 Fréttir.
20.40 fþróttasyrpan. Körfubolti, handbolti og Ragnheiður
Runólfsdóttir heimsótt í sundlaugina á Akranesi.
21.20 Skuggsjá. Ágúst Guðmundsson fer í bíó.
21.40 ★★ Eldhuginn. Flottur karl James Earl Jones.
22.30 Austrið heillar. Ævintýri íslenskra fjallgöngumanna í
Pamírfjöllum ÍTadshikistan. Sigrún Stefánsdóttir hef-
ur umsjón. Kleif hún líka tindinn?
23.00 Fréttir.
23.10 Þingsjá
^Tiuinin—■
17.40 Þingsjá. E
18.00 Hvar er Valli? Teiknimyndaflokkur, byggður á vin-
sælum bókum.
18.30 Barnadeildin
18.55 Táknmálsfréttir
19.00 Magni mús
19.25 Skemmtiþáttur Eds Sullivan Fyrst þeir eru farnir
að sýna þessa þætti hljóta Bítlarnir bráðum að slá í
gegn.
20.00 Fréttir.
20.35 Kastljós
21.05 ★★ Sveinn skytta. Gunguhöfðinginn berst við
rottur á loftinu.
21.35 ★★ Matlock
22.25 Þolinmæðin þrautir vinnur... Bresk þáttaröð
byggð á sögum eftir belgíska höfundinn Georges Si-
menon. Það hafa margir spreytt sig á að leika Mai-
gret lögregluforingja, Jean Gabin var einna bestur,
en hér er það breski leikarinn Michael Gambon sem
leikur lögreglumanninn með pípuna.
23.45 Tónleikar prinsins. Góðgerðartónleikar þar sem
koma meðal annars fram snillingar á borð við Van
Morrison, Eric Clapton, Paul McCartney og George
Harrison. E
LAUGARDAGUR
14.25 Kastljós. E
14.55 Enska knattspyrnan. Bein útsending frá leik Chels-
ea og Sheffield United í London.
17.00 íþróttaþátturinn. Smáþjóðaleikar í skvassi og ís-
landsmótið í körfubolta.
18.00 Ævintýri úr konungsgarði
18.25 Bangsi bestaskinn
18.55 Táknmálsfréttir
19.00 ★ Strandverðir
20.00 Fréttir
20.35 Lottó.
20.40 ★★ Leiðin til Avonlea Næstsíðasti þáttur, að
minnsta kosti í bili.
21.30 ★ Æskuár Einsteins. Young Einstein. Áströlsk,
1988. Gamanmynd sem er ekki næstum því eins
sniðug og höfundurinn og aðalleikarinn Yahoo
Serious hélt að hún yrði. Einstein finnur ekki bara
upp afstæðiskenninguna heldur er líka frumkvöðull
rokksins, Frekar þreytandi.
23.00 Strengleikar. Það er dagur tónlistar og Sigrún Eð-
valdsdóttir, Guðný Guðmundsdóttir og Selma Guð-
mundsdóttir leika Navarra eftir Sarasate.
23.10 ★★★★ Sök bítur sekan. John Thaw leikur Morse
lögregluforingja, Kevin Whately leíkur Lewis aðstoð-
armann hans. Þeir rannsaka dularfullt dauðsfall í
fangelsi.
—^—TOTrri^gin^—■
14.40 Stjörnuskin. Bandarísk sjónvarpsmynd um ævintýri
barna í sumarbúðum.
15.55 Mengun í Norðurhöfum Heimildamynd um
mengun sjávar og sjónum meðal annars beint að
kjarnorkuvá sem að okkur stafar frá Kólaskaga. Um-
sjón Egill Helgason, dagskrárgerð Þiðrik Ch. Emils-
son. E
16.45 Skandinavía. Seinni hluti. Sjóleiðin frá sænska
skerjagarðinum til Lófóten í Noregi.
17.45 Sunnudagshugvekja
18.00 Stundin okkar
18.30 Sjoppan
18.40 Birtingur E
18.55 Táknmálsfréttir.
19.00 Tréhesturinn
19.30 ★ Auðlegð og ástríður
20.00 Fréttir
20.35 Á slóðum norrænna manna á Grænlandi Fyrri
þáttur. Árni Johnsen alþingismaður stjórnaði leið-
angri um slóðir norrænna manna á Suðvestur-Græn-
landi, en sigld var 700 mflna leið á 24 dögum.
22.10 Dagskrá næstu viku
22.20 ★ Vínarblóð. í síðasta þætti varð Strauss byltingar-
maður en ekki samdi hann vals.
22.10 Sögumenn. Sjálfur Abbi Patrix frá Frakklandi.
22.20 Ferð út í bláinn. Spænsk gamanmynd um leikara í
farandleikflokki. Meðal leikara er Laura del Sol sem er
íðilfögur og lék meðal annars í Carmen eftir Saura.
mr
S’.TI
17.00. Eyja hinna útskúfuðu. Á eyjunni Leros undan
Grikklandsströndum uppgötvaði heimurinn eitt-
hvert óhugnanlegasta geðveikrahæli sem vitað er af.
E
18.00 Cloister-safnið. Sá hluti Metropolitan-safnsins sem
inniheldur rómanskan og gotneskan stfl. E
18.30 Furstasafnið í Liechtenstein Listmunir þaðan E
SUNNUDAGUR
17.00 Skýjakljúfar. Síðasti þáttur. E
18.00 Dýralíf. Fjallað um fugla sem kunna ekki lengur að
fljúga.
Æi&i
y.
16.45 Nágrannar
17.30 Meö afa E
19.1919.19
20.15 Eiríkur.
20.30 ★★ Eliott-systur. BreskurframhaldsmyndaflokEjr.?‘
21.25 Aðeins ein jörð
21.35 Laganna verðir
22.25 ★ Föðurarfur. Miles from Home. Bandarísk, 1988.
Fyrirmyndarbúgarður fer á hausinn á þrjátíu árum.
Bóndasonurinn leitar hefnda. Richard Gere leikur svo
óvenjuilla að áhorfandinn fær ósjálfrátt samúð með
vondu körlunum.
00.05 ★★ Vopnasmygl A Casualty ofWar. Bresk, 1990.
Það hefur reynst misjafnlega farsælt að gera myndir
eftir sögum höfundarins Fredericks Forsyth. Þessi
njósnamynd er í meðallagi. E
FÖSTUDAG U R
16.45 Nágrannar
17.30 Á skotskónum.
17.50 Litla hryllingsbúðin.
18.10 Eruð þið myrkfælin?
18.30 Eerie Indiana E
19.1919.19
20.15 Eiríkur
20.30 Sá stóri. Fyrsti þáttur. Breskur framhaldsmyndaflokk-
ur um mátulega hreinláta konu sem leigir bandarísk-
um rithöfundi íbúð. Þau fara í taugarnar hvort á
öðru.
21.00 ★ Stökkstræti 21
21.50 ★ Kveðjustund. Every Time We Say Goodbye. Amer-
ísk/ísraelsk, 1986. Tom Hanks leikur bandarískan
flugmann sem verður ástfanginn af gyðingastúlku í
Jerúsalem. Þegar reynt er að skilja þau sundur grípur
hann til sinna ráða. Algjör sápa.
23.25 ★★★ Betri blús. Mo' Better Blues. Amerísk, 1990.
Mynd um djassara og kvennabósa, úr smiðju Spikes
Lee. Ekki besta myndin hans, en tónlistin er góð og
persónurnar skemmtilegar.
01.25 ★ Skólastjórinn. Principal. Amerísk, 1987. Þeir sem
hafa gaman af því að láta illa í skóla njóta kannski
þessarar myndar en þarna leikur James Belushi
kennara sem lendir í allslæmri skólastofnun. E
L A U G A R D A G U R
09.00 Með afa
10.30 Lísa í Undralandi
10.50 Súper Maríó-bræður
11.15 Sögur úr Andabæ
11.35 Merlín
12.00 Landkönnun National Geographic
12.55 Visasport E
13.25 Hvítar lygar. Bandarísk sjónvarpsmynd um elskend-
ur sem byggja samband sitt á hvítum lygum.
15.00 Þrjúbíó. Draugasögur. Teiknimynd byggð á verkum
eftir Charles Dickens.
15.50 Gerð myndarinnar Beauty and the Beast, sem
þykir einhver snjallasta teiknimynd síðari ára.
16.10 Elton John. Gamalt brýni talar við gamla brýnið Dav-
id Frost. E
17.00.Hótel Marlin Bay. Þar dugar ekkert nema örþrifa-
ráð.
17.50 Genesis. Allir eru hljómsveitarmenn orðnir misjafn-
lega sköllóttir, en þeir eru enn að. E
18.40 ★★ Addams-fjölskyldan
19.19 19.19
20.00 ★ Falin myndavél
20.30 Imbakassinn.
20.50 ★★ Morðgáta
21.40 ★★ Hans hátign. KingRalph. Atnerísk, 1991. Stór-
leikarinn John Goodman heldur þessari mynd uppi,
án hans væri hún lítilfjörleg. Hann leikur amerískan
plebba sem reynist vera erfingi bresku krúnunnar.
Peter OToole hjálpar honum.
23.15 6 Þrumugnýr. Impulse. Amerísk, 1990. Fjarskalega
þunn lögreglumynd þar sem Theresa Russel, ein-
staklega vond leikkona, þarf að þykjast eiga í sam-
viskustríði vegna þess að hana langar til að selja sig.
Kynórarnir eru líka slappir.
00.45 ★★ Sakborningurinn. Suspect. Amerísk, 1987.
Cher er kannski ekki mjög trúverðug sem lögfræð-
ingur, en samt gerir hún þetta ágætlega. Ekki mjög
minnisstæð mynd, en í lagi. E
S U N N U D A GUR
09.00 Regnboga-Birta
09.20 Össi og Ylfa.
09.45 Dvergurinn Davíð
10.10 Prins Valíant
10.35 Maríanna fyrsta
11.00 Lögregluhundurinn Kellý.
11.30 Blaðasnáparnir
12.00 Fjölleikahús. Heimsókn í fjölleikahús í útlöndum.
13.00 NBA-deildin. Spjallað við liðsmenn í þessari frægu
körfuboltadeild.
13.25 ítalski fótboltinn. Bein útsending frá stórleik Inter
Milan og Juventus.
15.15 Stöðvar 2-deildin. Handbolti, íslandsmótið í þeirri
íþrótt.
15.45 NBA-körfuboltinn. Snillingar spila körfubolta. Einar
Bollason er líka fjári góður lýsari.
17.00 Listamannaskálinn. Breski kvikmyndaleikstjórinn
Ken Russel. Hann hefur gert þokkalegar myndir, en
flestar eru þær þó fjarskalega vondar. E
18.00 Bandarísku forsetakosningarnar. Breski sjón-
varpsmaðurinn David Frost ræðir við varaforsetaefn-
in Dan Quayle og Al Gore. En hvar er James Stock-
dale?
18.50 Aðeins ein jörð. E
19.19 19.19
20.00 ★ Klassapíur Hressar en leiðinlegar.
20.30 ★★ Lagakrókar. LA Law.
21.20 Ákafamaður. Anthony Quinn leikur málara sem er
fullur af lífsgleði og orku. Hlutverki hans þarna er líkt
við Grikkjann Zorba — kannski hefur Quinn endur-
tekið það einum of oft.
22.55 Gítarsnlllingar. Helstu gítarleikarar heims troða
upp í Sevilla.
23.50 ★ Að eilífu. For Keeps. Amerísk, 1988. Molly Ringw-
ald verður ófrísk og þarf að takast á við lífsbaráttuna.
Hún er ósköp sæt, en myndin hefur ekki miklu meira
til síns ágætis. Frá hnignunarskeiði unglingamynd-
anna.E
★★★★Pottþétt ★★★Ágætt ★★Lala ★Leiðinlegt 9 Ömurlegt E Endursýnt efni