Pressan - 17.12.1992, Side 4
4
FIMMTUDAGUR PRESSAN 17. DESEMBER 1992
BÆTIFLÁKAR
í FÓTSPOR
GRÓU
„En í hita leiksins eignar
Hannes mér dálítið sem hann
getur ekki hugsanlega staðið
við. Hann segir um mig: „Nú
beinir hann brandi sínurn að
Davt'ð Oddssyni forsœtisráð-
herra. Hann segir afar óvið-
kunnanlegar sögur af drykkju-
skap hans, sem ég veit að eru
allar rangar." Ekki dreg ég í efa
að Hannes vœri í stakk búinn
að vitna um hugsanlegt sann-
leiksgildi allra sagna um efnið
sem hann tilgreinir hér að
framan. En svo bregðast kross-
tré sem önnur tréþvíþannig vill
til að drykkjusögurnar um
þennan tiltekna mann, sem
Hannes vill kveða niður, er ekki
aðfmna ígrein minni í Heims-
mynd. Þœr hefur hann, eins og
aðrir, sjálfsagt heyrt atmars
staðar.“
Örnólfur Árnason (Kjallara DV.
Hannes Hólmsteinn Giss-
urarson dósent:,, Þótt Ömólfur
Árnason sé hér sakleysið upp-
málað mælir hann gegn betri
vitund. Hann reyndi í grein
sinni í Heimsmynd að flýja frá
fullri ábyrgð á hinum ósönnu
slúðursögum, sem hann sagði
þar, með því að láta einhvern
sögumann sinn segja þær, en
gangast ekki sjálfur við þeim.
Gróa á Leiti sagði einmitt alltaf,
að ólyginn hefði sagt sér, en ekki
mætti bera sig fyrir því. Örnólfur
Árnason fetar í fótspor hennar.
Hann er slúðurkerling, sem
reynir að bera illt á milli manna.
Hann er hin glottandi flærð, hin
hvíslandi illgirni, sem reynir að
fela sig á bak við einhverja nafn-
leysingja, enda á hann auðvitað
best heima í skúmaskotum.
Þessi maður hefur nú sem oft
áður orðið sjálfum sér til
skammar. Það segir margt um
Heimsmynd, að hann skuli vera
þar fastur penni.“
TJÓÐRUM
BÖRNIN
„ F y r i r
skömmu var
sagt frá því í
fréttum Morg-
unblaðsins, að
talsvert vœri
um óhöpp og
jafnvel slys, þegar ungbörn
dyttu út úr innkaupakerrum í
verzlunum. Sigldur kunningi
Víkverja sagði afþví tilefhi, að í
Bandaríkjunum vœru höfð ör-
yggisbeltijyrir börn í innkaupa-
kerrunum. Víkverja finnst sjálf-
sagt, að íslenzkir kaupmenn
taki þá bandarísku sér tilfyrir-
myndar, hvaðþetta varðar."
Víkverji Morgunblaðsins
Bjami Finnsson, formaður
Kaupmannasamtaka fslands:
„Ábending Víkverja er vissulega
góðra gjalda verð. Auðvitað þarf
fyrst og fremst að brýna fyrir
foreldrum að gæta barna sinna í
verslunum. Þó geta alltaf orðið
óhöpp og þess eru nokkur dæmi
hér að börn hafi dottið úr inn-
kaupakerrum. Kaupmannasam-
tökin eru að sjálfsögðu hlynnt
því að fyllsta öryggis sé gætt í
þessum efhum og mundu fagna
því, ef boðið yrði upp á slík ör-
yggisbelti hér á landi. Þess utan
er ég sannfærður um að börnum
fyndist það spennandi að hafa
slíkan útbúnað á innkaupakörf-
unum.“
MÓÐGANDI
MYNDLIST
„Enn einn furðufuglinn er
komirin íheimsókn til Islands til
þess að sýna fólki hér framlag
sitt til menttingarinnar. Það
stendur ekki á fölmiðlum að
lofsyngja snillingintt. Viðburð-
inum eru gerð sltk skil að það er
eins og hér sé áferðinni eitm af
hinum ódauðlegu utan úr hin-
Jón Baldvin
Hannibalsson
B E S T
Jón er með skarpgreindari
stjórnmálamönnum, fljót-
ur að hugsa, raunsær pól-
itikus en þó harður bar-
áttumaður. Hann er um-
bótasinni að eðlisfari, læt-
ur ekkert tækifæri ónotað
til að ota stefnumálum
sinum fram og er ekki
bundinn neinum hags-
munahópum. Hann hefur
endurnært og endurbyggt
Alþýðuflokkinn úr rjúk-
andi rústum. Jón er einn
besti ræðumaður samtím-
ans, skynjar rómantikina i
pólitik, er feiknagóður
sögumaður og á auðveit
með að hrifa fólk með sér.
V E R S T
Jón er fljótfær, ósvifinn og
hrokafullur „ besserwiss-
er" sem hefur enga þolin-
mæði gagnvart þvi sem
hann álitur vitlausar
skoðanir. Hann er undir-
förull og falskur og vilar
ekki fyrir sér að fórna
mönnum og málefnum á
altari pólitiskra klækja. Af
þessum ástæðum á hann
sér fáa nána samstarfs-
menn sem treysta honum.
Hatur hans á Alþýðu-
bandalaginu og gömlu
kommunum er ekki heil-
brigt.
um stóra heimi. Ástceðan fyrir
því að ég sting niður penna er
að égfór ásamt fjölskyldunni á
Kjarvalsstaði til að berja augum
sýningu Jean-Jacques Lebel og
bjóst við að sjá vandaða sýn-
ingu. öll jjölskyldan varðfyrir
sárum vonbrigðum. Okkur
fannst lítið til sýningarinnar
koma og tengdapabbi, sem er
mikill áhugamaður um mynd-
list, sagði að það vœri ekki að-
eins tímasóun heldur hrein og
bein móðgun að bjóða fólki
svona nokkuð. í sannleika sagt
var okkur ofboðið er við höjðum
grandskoðað hvert einstakt
verk.“
Jóhann í DV
Kristín Guðnadóttir, safn-
vörður Kjarvalsstaða: „í verk-
um sínum er listamaðurinn Je-
an-Jacques Lebel að fjalla um
pólitík, erótík og húmor og
vissulega eru verkin ögrandi.
Það staðfestir aðeins styrk
þeirra, að þrjátíu árum eftir að
þau eru unnin skuli þau enn
velcja viðbrögð.“
I
F Y R S T
F R E M S T
KJÖTBÚR PÉTURS
dregur nafn sitt af eigandanum, Pétri Péturssyni, sem hefur verið viðloðandi kaupmennsku í nær
tvo áratugi. Hann sendir hundruð matarpakka utan um hver jól og ekki allt jafn fyrirsjáanlegt sem
ofan í þá fer. Stöðugt fleiri bætast í hóp þeirra sem kaupa villibráð, hreindýr, hamborgarhrygg, kalk-
ún, aliönd og feitan sauð í litlu hornbúðinni á Laugaveginum.
„Við gefum okkur mikið út fyr-
ir að vera með villibráð og reyn-
um að sinna því eins og kostur er.
Hreindýrakjötið, villtar gæsir og
rjúpur eru því mikið keyptar en
sömuleiðis hamborgarhryggir,
kalkúnar og aliendur. Salan í
hangikjötinu er þó alltaf mest.“
Eru menn ekkert fyrir óvenju-
lega rétti?
„Villiendur, stokkendur, há-
vellur og fleiri andategundir eru í
auknum mæli að ná vinsældum,
en við fáum aldrei nóg af villibráð-
inni og hún klárast mjög fljótt.“
Þú hefur ekki orðið var við fyr-
irspumir gegnum tíðina sem þig
hefursett hljóðan við?
„Maður hefur heyrt nánast
hvað sem er og það er fátt sem
getur komið á óvart. I gegnum ár-
in höfum við verið með sveita-
reykt kjöt á ekta gamaldags máta,
þá helst af veturgömlum sauðum
sem hafa verið geltir. Fjöl-
margir vilja þá helst fá
„feita síðu af vænum
sauð“. Eitt sinn var ég beð-
inn um álft. Það var að
vísu útlendingur og hann
skildi engan veginn að ekki
væri hægt að kaupa hana
hér á landi. Það hefúr líka
verið beðið um lóur, en
það er mjög vinsæll matur
á meginlandinu.“
Er einhver munur d
fólkinu sem kaupir rjúpur
og því sem kaupir ham-
borgarhryggi?
„Fólk sem borðar þenn-
an mat kemur úr öllum
þjóðfélagsstigum og það
virðist enginn stigsmunur
á því hvort það er banka-
stjóri, verkamaður eða
annar. Sem betur fer hefur
hver sinn smekk.“
Holdafarið gefur ekkert
til kynna?
„Nei, nei, nei... enda er
elckert spurt um holdafar
þegar við erum í veislu-
matnum."
Er nóg til af rjúpu
núna?
„Það er til nóg af rjúpu í
landinu en salan á henni
hefur breyst töluvert og
veiðimenn eru farnir að
selja manna á milli. Stöð-
ugt hefur staðið styr um
verð rjúpunnar, en hún
hefur alltaf verið dýr jóla-
matur. Hún má svo sem
alveg vera það en það er
óþarft að hafa verðlag svo
hátt að aðeins örfáir hafi
ráð á að kaupa hana. Und-
anfarin ár hefur rjúpan
hins vegar verið það dýr að
fólk hefur söðlað um og
fengið sér aðra villibráð
eða annan mat. Sumir eru
til í að borga hvað sem er en við
höfum lagt metnað okkar í að
halda henni í því verði sem flestir
geta ráðið við, því öllum þykir
hún góð og vilja leggja töluvert á
sig til að fá hana.“
Eru þetta mikið sömu við-
skiptavinirnir sem til ykkar
koma?
„Ár eftir ár kemur fólk til okk-
ar. Það er merki þess að maður
haldi sínu og gott betur.“
BEÐIÐ
UM
ÁLFT,
LÚU UG
FEITAN
SAUÐ
Þið sendið ógrynni af matar-
pökkutn til útlanda. Forvitna
dauðlangar að vita hvað er í
þeim.
„Það fer aðallega í þá Húsavík-
urhangikjöt og villilax, en það er
með ólíkindum hversu fínt það
þykir að vera með hann á erlend-
um jólaborðum. Víðast hvar í
heiminum er hægt að fá eldislax
en það er ekki eins hlaupið að því
að fá villilax.“
Fer ekkert skritið ofan í pakk-
ana?
„Það er ýmislegt sent og maður
veit stundum ekki hvort verið er
að hrekkja vini og kunningja. Sí- K
vinsælar eru til dæmis grænar |
baunir frá Ora, fiskbollurnar frá g
sama fyrirtæki, mikið fer af Che- |
erios og Cocoa Puffs til Norður- 5
landanna og Ópal og Prins Póló er S
sent til barnanna. Dæmi eru um
að við höfum sent fólki kók til
Englands og í auknum mæli fer
malt og appelsín. Hákarlinn og
harðfiskurinn svíkur svo engan.
Svo má benda á að áður fyrr var
mikið reynt að smygla dönskum
hamborgarhryggjum inn til lands-
ins en nú fer það ört vaxandi að sá
íslenski sé sendur utan.“
En hvað kaupirfólk til að hafa
á borðum yfir hátíðirnar hér
heima?
Jahjarna, hvað hefur Vésteinn verið að bralla? — Jæja, aftur til vinnu
og... Lúðvík... vilt þú vera svo vænn að gramsa í glósunum hans og
reyna að endurtaka tilraunina.
TVÍFARAR
ar líklegastþekktastur fyrirþað að Hallgrímur Thorsteinsson
hefurstolið flestum bestu hugmyndunum úrþœtti hans til af-
nota í Reykjavík síðdegis. Hannes Hólmsteinn Gissurarson er
ekki síðri jjölmiðlamaður en David Letterman og eins og
Letterman er hann þekkturfyrir að láta andstœðinga sínafá
það óþvegið með vélbyssukjafti sínum. Með tvíförum vikunn-
arer reyndar ekki nema rétt svipur, þegar borin eru saman
eintök afholdi og blóði. Annað er hins vegar upp á teningn-
um þegar litið er á málaða mytid afLetterman og hún borin
saman við Ijósmynd afHannesi, þvímyndin ermun líkari
Hannesi en Letterman.