Pressan - 07.01.1993, Blaðsíða 4
4
FIMMTUDAGUR PRESSAN 7. JANÚAR 1993
F R E M S T
BÆTIFLÁKAR
BERTHA MARÍA WAAGFJÖRÐ
er fyrirsæta af alþjóðlegri
stærðargráðu. Starfhennar
rekur hana út um allan
heim en stærstum hluta frí-
tíma síns ver hún hins veg-
ar á heimili sínu í LA. Eins
og hendir marga sem halda
af landi brott hefur Bertha
María hlotið sinn fasta sess
í gróusögum landsmanna
og segist telja að það komi
til af því að fólk hafi lítið
annað betra að gera. Hún
hefur verið stödd hér yfir
hátíðirnar en heldur brátt
út aftur til starfa. Hversu
lengi hún endist í því veltur
á ýmsu.
Best að
halda ró
sinni og
vera
Jón A. Kristinsson, bakara-
meistari hjá Myllunni: „Það
hefur um nokkurn tíma staðið
til hjá Myllunni að hefja fram-
leiðslu á pylsubrauði úr heil-
hveiti og ég reikna með að við
látum af því verða á þessu ári.
Við höfum vissulega fengið
nokkrar fyrirspurnir varðandi
hollari gerð pyisubrauðs en samt
held ég að markaðshlutdeild
pylsubrauðs úr heilhveiti geti
aldrei orðið mjög stór. Islend-
ingar vilja almennt hafa pylsuna
með gamla laginu. Þó eru sumir
sólgnari í gróft brauð og auðvit-
að reynum við að fara að þörf-
um og óskum neytenda. Enda á
pylsubrauð úr heilhveiti ekkert
síður rétt á sér en annað gróft
brauð.“
HEILÓG
KVÖLDMÁLTÍÐ
„Það er einriig staðföst skoð-
un Víkverja að draga mœtti úr
því sundurlyndi sem svo tnjög
einkennir allt þjóðlíf og mann-
leg samskipti hér ef menn gœfu
sér betra nœði til að njóta mat-
ar. Það hafa veriðfcerð rökfyrir
þvíað hin mikla samheldni jjöl-
skyldna í t.d. Frakklandi eða
Ítalíu og Spáni megi rekja til
þess að hin sameiginlega kvöld-
máltíðjjölskyldunnar er heilög í
hugum fólks. Þrátt fyrir stress
hversdagsins gefurfólk sér tíma .
til að njóta sameiginlega matar
ogþá um leiðfélagsskaparhvert
annars. Þetta er sorglega sjald-
gceft á íslenskum heimilum.“
Víkverji Morgunblaðsins.
Þorvaldur Karl Helgason,
forstöðumaður Fjölskyldu-
þjónustu kirkjunnar: „Eg get
ekki annað en verið sammála
Víkverja, enda er þetta skoðun
sem ég hef sjálfur haldið stíft á
lofti. Ég hef oft velt því fyrir mér
hvort það sé ekki sjaídgæft í dag-
legu lífi fólks að allir fjölskyldu-
meðlimir hittist í einu og eigi
stund saman. Borðhaldið er að
mínu viti kjörin athöfn til að
safna fjölskyldunni saman á
einn stað, þar sem fólk getur
EINA í GRÓFU
„Mér er til efs að jafn lítið
haft verið komið til móts við
þarflr nokkurra viðskiptavina
ogokkarsem kaupum hina vin-
sœlu „eina með öllu“. Ég á að
sjálfsögðu við pylsusala lattds-
ins — í svipinn minnist ég ekki
neins sem býður t.d. gróft pylsu-
brauð í stað hins hvíta teygju-
og klísturkennda hveitibrauðs.
Það mœtti a.m.k. bjóða við-
skiptavinum að velja á milli
tegunda. Aukinheldur er það
án efa stórþáttur ísparnaðifyr-
ir hið opinbera að œfleiri noti
gróft brauð nteð pylsunni. Það
stuðlar að betri meltingu ogþar
tneð sterkari innyflum, sem aft-
ur þýðir minni líkur á sjúkra-
húsvistvegna iðrakvilla."
P.J. í DV.
rætt saman í rólegheitum og
notið nærveru hvert annars.
Sameiginleg kvöldmáltíð leysir
kannski ekki allan okkar vanda,
en það væri engu að síður ákjós-
anlegt að íslenskar fjölskyldur
reyndu að temja sér að borða
saman að minnsta kosti eina
máltíð á dag.“
Krónan arðbæra
„Ég þarf ekki að hafa áhyggjur af
þessu ári, því næsta eða því þar-
næsta.“
Gísli Örn Lárusson
kaupahéðinn.
Hógværi Íslendingurin’n
„Á næsta ári vænti ég áframhaldandi
sigurgöngu."
Kristján Jóhannsson stórsöngvari.
Tilbreytingarleysi
„Áramót íborginni eru
orðin eins og venjuleg
helgi — eða venjuieg
helgi eins og áramót.“
Guðmundur Einarsson lög-
regluvarðstjóri.
- Og á næsta ári skipti ég um sundskýlu
„Það sem er minnisstæðast hjá mér er að ég skipti um sundiaug."
Pétur Reimarsson forstjóri.
KANN EKKI
AÐ SKJÓTA
„Etttt einu sinni hefur stjórn
Skotsambands Islands orðið að
athlœgifyrir val sitt á íþrótta-
tttanni ársins í skotfimi. Iþetta
sinn var valinn einn af stuðti-
ingsmönnum stjómar skotsam-
bandsins. Árangurittn sem
hann náði var 174 stig í hagla-
byssu, Skeet, sem er mjög slakur
árangur og er langt fyrir neðan
neðsta tnann á alþjóðlegu stór-
móti skv. samanburðartöflu...
Forráðamenn íþróttasambands
fslands láta sig hafa það ár eftir
ár að heiðra þá menn sem
stjórn skotsambandsins velur
eins og þeir vœru bestu skot-
tnenn ársins þótt þar sé bara
verið að heiðra slaka skot-
íþróttamenn sem eru vinir og
stuðningsmenn skotsambands-
ins.“
Carl J. Eiríksson í DV.
Þorsteinn Ásgeirsson, for-
maður Skotsambands ís-
lands: „Ég er hjartanlega sam-
mála PRESSUNNI urn það að
Carl J. Eiríksson sé þrætupúki
aldarinnar. Hann hóf deilur sín-
ar við íslenska skotmenn árið
1972 og þeim er ekki enn lokið.
Málið er reyndar komið á það
stig að skotmenn yrðu almennt
mjög undrandi ef Carl tæki einn
góðan veðurdag upp á því að
hætta öllum aðfinnslum við þá.
Líkast til mundu menn halda að
eitthvað hefði komið fyrir
hann.“
ánægður
Þú ert búin að vera ífríi héryf-
irjólin. Hvað tekur við hjá þér að
því loknu?
„Ég flýg aftur til Los Angeles á
þriðjudag og fer trúlega að vinna í
Karabíska hafinu fyrir Cosmopo-
litan. Hvað við tekur eftir það veit
ég ekki nákvæmlega, en það fellur
alltaf eitthvað til.“
Bertha María hefur verið fengin
í einstök verkefhi og er því ekki á
föstum samningi. Hún þvælist
víða en frítíma sínum eyðir hún
að mestu heima hjá sér í LA, þar
sem hún býr ásamt kærastanum
sínum, fasteignasalanum Emer-
son Glazer, sem er töluvert eldri
en hún sjálf. Hún segir þau búa vel
en þó ekki í.neinni lúxusvillu.
Þú ert ekki að upplifa ameríska
drauminn?
„Nei, nei, en það er auðvitað
voðalega fi'nt að búa í LA. Lífið er
miklu betra þar en annars staðar
þar sem ég hef verið, það er bæði
auðvelt og ódýrt. Veðrið skemmir
heldur ekki fyrir.“
Svo þú ert eitts og blómi í eggi?
„Já, það er ég. Þó hef ég hugsað
mér að drífa mig til New York og
vera þar næstu mánuði.“
f New York bjó hún í tvö ár áð-
ur en hún fékk sig fullsadda á
borginni. Síðan hefur hún snúið
þangað aftur af og til, en einungis
skamman tíma í senn.
Fólk setn þú umgengst. Eru
það einhverjarfrægar stjörnur?
„Maður sér þær inn á milli en
við erum ekkert að þvælast með
því. Við umgöngumst mest venju-
legt fólk, sem er langbest."
Þetta eru því ekki stöðug
veisluhöld eins og ætla mætti og
glanstilveran víðs Qarri.
„Við reynum bara að lifa okkar
venjulega lífi.“
Eitthvað hlýtur viðmótfólks að
hafa breyst hér heima eftir að
hún varð eftirsótt ogfór að birtast
á síðum helstu tískublaða heitns?
„Ég hef lítið farið en þegar ég er
á ferðinni horfir fólk mikið á
mann. Það er mjög skrítið. Ég hef
sjálf ekkert breyst — það þýðir
ekkert — aðeins fuilorðnast."
Við erum þekkt fyrir að vera
ötul í gróusögunum. Hefurðu
orðiðvörviðþcer?
„Allt er blásið út héma og fólk
hefur jafnvel hringt heim til
mömmu og spurt hvort það væri
ekki rétt að ég hefði fengið 15
milljónir fyrir störf mín hjá Play-
boy. Blaðri um eiturlyf hef ég líka
orðið fyrir. Þannig átti ég að vera
komin í pillurnar, vera farin að
sprauta mig og einhver gaur, sem
ég hef hvorki séð né þekki, hélt því
fram í boði að hann hefði selt mér
kókaín og gæti jafnvel staðfest það
við foreldra mína. Þegar ég kom
heim voru allir mjög hissa á því
hvað ég leit vel út eftir alia þessa
neyslu! Þetta er óttaiega leiðinlegt
og fólkið sem kjaftar svona er ein-
faldlega fólk sem ekki kemst burt
frá íslandi og hefur ekkert annað
betra að gera.“
UMMÆLI VIKUNNAR
„Einnig álykta ég að Davíð Oddsson
gangi með valdasýki á háu stigi og
hannfinni alls ekki tilþeirrar miklu
ábyrgðar að vera forsœtisráðherra,
enda tala verkin. Síðan hann tók við
er atvinnuleysi, gjaldþrot og allskonar
leiðindi, ásamt hjónaskilnuðum, og
fólk styttir sér aldur í ríkum mœli eftir
því sem mér er sagt. “
REGlNA THORARENSEN, FRÉTTARITARI DV
Var það kreppukókíð?
„Mér er minnisstæðastur frá árinu
frábær árangur okkar í Vífilfelli
þrátt fyrir samdráttinn í efhahags-
lífinu."
Páll Kr. Pálsson
efnahagsundur.
Bertha María byrjaði að vinna
sem fyrirsæta þegar hún var 16
ára, hætti í tvö ár en byrjaði svo
aftur 18 ára. Nú er hún 21 árs.
Sérðu fyrir þér hvað þú endist
lengi í starfinu?
„Það fer eftir því hvað mig
langar til að gera. Ég hef stundað
fyrirsætustörf í fjögur ár og er orð-
in svolítið þreytt á þeim. Þetta em
stöðugar breytingar, uppákomur
em ailtaf einhverjar og mig hefur
ekki langað tii að ferðast eins mik-
ið eftir að ég byrjaði að vera með
kærastanum mínum. Ég gæti
haldið áfram fram að þrítugu en
það fer eftir útlitinu.
Þegar ég byrjaði var ég allt of
ung, hætti og fór í skólann í tvö ár
áður en ég byrjaði aftur. Mér
fannst mjög sniðugt að taka mér
frí og finnst að fólk eigi alls ekki að
byrja svona ungt. Það getur alitaf
eitthvað gerst því maður veit ekk-
ert í sinn haus sextán ára gamall.“
Það eru flestir forvitnir um
hvaðjýrirscetur þéna.
„Það er mjög misjafnt en allir fá
sömu laun fyrir vinnu á blöðum
og eru það 10 þúsund krónur á
dag. Það er fastur taxti og geta vart
talist góð laun. Svo skiptir miklu
hvort unnið er mikið eða lítið og
fyrir hvaða kúnna.“
Hvaða verkefni eru það þá sem
gefa mest i aðra hönd?
„Það er kallað „advertising“,
það em auglýsingar af ýmsu tagi,
til dæmís fyrir snyrtivömfýrirtæki
eða annað. Svo má þéna vel á
tískusýningunum. En það er
hlaupin kreppa í þessa grein eins
og aðrar.“
Þúfinnur fyrir henni?
„Hér áður fyrr fékk maður til
dæmis að fljúga til og frá á fyrsta
farrými en nú er lítið um það. Það
er allt að dragast sarnan."
Þú þreytist ekkert á satnkeppn-
inni?
„Það er ekkert sem ég velti fyrir
mér og er því voðalega afslöppuð
gagnvart því. Ef maður vonast eft-
ir einhverju verða einungis von-
brigði ef það mistekst. Það er best
að halda ró sinni og vera ánægður
með verkefhin sem maður fær.“
Er leyndarmál hvað þú hefur
þénað fyrirstcerri verkefni?
„Ég vil ekkert um það segja.“
En er hœgt að segja að þú sért
hœst launaða íslenska fyrirscet-
an?
„Ég hef litla hugmynd um
hvaða stelpur eru í þessu hér og
kann því ekki svar við þessu. ÆtH
það sé ekki bara ykkar að komast
að því!“