Pressan - 07.01.1993, Blaðsíða 20
20
FIMMTUDAGUR PRES$AN 7. JANÚAR 1993
E R L E N T
TVÍadwr
vikunnar
Það væri synd að segja að
Jiirgen Möllemann hafi notið
mikilla vinsælda sem ráðherra.
Honum hefur lengi verið iegið
á hálsi fyrir að vera óhemju
valdagráðugur og hvergi vand-
anum vaxinn. Og nú hefur
hann neyðst til að segja af sér
sem efhahagsmálaráðherra
Þýskalands, allt út af greiða-
semi við frænda konunnar
sinnar. Óvinsældir Mölle-
manns eru ekki nýjar af nál-
inni. Veturinn 1988 var hann
úthrópaður sem menntamála-
ráðherra af þýskum háskóla-
nemum. Ástæðan var áform
ráðherrans um að koma á stór-
auknum skólagjöldum íhá-
skólum landsins. Tillagan
mæltist ekki vel fyrir meðal há-
skólastúdenta og um allt
Þýskaland létu þeir í ljós vand-
lætingu sína með því að efha til
fjölmennra mótmælagangna
og mæta ekki í skólann í rúma
viku. Nemendur kröfðust þess
meðal annars að aðbúnaður í
stærstu háskólunum, sem allir
eru yfirfullir, yrði stórbættur.
Möllemann beindi þá þeim
hrokafullu tilmælum til stúd-
enta að þeir veldu sér fámenn-
ari skóla, þar sem nóg væri af
stólum og námsbókum, svo
sem eins og í Bielefeld. Þegar
Möllemann var skömmu síðar
boðið á fund í Ludwig-Maxim-
ilian-háskólanum í Munchen
svöruðu nemendur honum
með þvf að grýta hann tómöt-
um. Þýskt námsfólk nánast rak
tunguna framan í Möllemann
og til marks um óvinsældir
hans lifði kaldhæðnislegt slag-
orð stúdenta „Allir til Biele-
feld“ lengi á eftir. Þýskum há-
skólastúdentum var fúlasta al-
vara þá, rétt eins og þýsku
þjóðinni nú, sem knúið hefur
Möllemann til að rýma stólinn
sinn vegna óheilinda.
Að baki brottrekstri Palestínumannanna
Hamas varð að ósk sinni
Tiltölulega óþekktum öfgasam-
tökum Palestínumanna, Hamas,
hefur tekist að koma bæði ísraels-
stjórn og Frelsissamtökum Palest-
ínu, PLO, í ótrúlega klípu. Á
fimmta hundrað Hamas-menn
norpa enn á einskismannslandi á
milli fsraels og Líbanons eftir
brottrekstur frá herteknu svæð-
unum, Vesturbakkanum og Gaza-
svæðinu. Þar er snjór og kuldi, en
Palestínumennirnir geta yljað sér
við að hafa unnið pólitískan stór-
sigur.
Hamas eru fimm ára gömul
samtök íslamskra bókstafstrúar-
manna sem urðu til þegar intif-
ödn-uppreisnin hófst á herteknu
svæðunum. Þau eru nú önnur
stærstu samtök Palestínumanna,
næst á eftir El Fatah-fýlkingunni
innan PLO. Tilgangur Hamas er
einfaldur: að útrýma Israelsríki og
ná Palestínu úr höndum gyðinga.
Virkustu liðsmenn þess eru ungir
Palestínumenn sem hafa ekki lif-
að öðruvísi en undir hernámi
ísraelsmanna; þeir taka ekki við
skipunum frá PLO, sem þeir telja
hafa svikið málstað sinn með
undanlátssemi. Samtökin hafa
barist gegn friðarviðræðunum í
Washington og njóta fjárhagslegs
stuðnings frá fran og Súdan.
Á nokkrum dögum um miðjan
desember drápu Hamas-menn
fimm ísraelska hermenn og einn
landamæravörð. Sá síðastnefndi
var lögreglumaðurinn Nissim
Toledo, sem Hamas rændi og skil-
aði skömmu seinna dauðum með
stungusár á hálsi og brjósti. Við
morðin sló óhug á ísraelsmenn,
ekki síst vegna þess að Hamas-
samtökin létu til skarar skríða
innan landamæra fsraels, ekki
eingöngu á herteknu svæðunum.
Og Hamas-menn vissu hver við-
brögðin yrðu.
RABIN OG ARAFAT f VANDA
Ríkisstjórn fsaks Rabin er sú
friðsamasta sem setið hefur í ára-
raðir í ísrael. Rabin byrjaði valda-
feril sinn í sumar með því að aft-
urkalla ákvörðun fýrri ríkisstjórn-
ar um brottrekstur Palestínu-
manna og sleppa úr haldi fjölda
pólitískra fanga. f friðarviðræðum
hefur hann þegar gefið Sýrlend-
ingum ádrátt um að þeir geti
fengið Gólan-hæðir og hann er
búinn að samþykkja sjálfstjórn
Palestínumanna sem fýrsta skref í
átt til friðar. Allt er þetta umdeilt
mjög innan fsraels og Rabin hefur
legið undir gagnrýni fýrir linkind
gagnvart aröbum.
Þetta ásamt ógninni sem Ham-
as tókst að skapa í desember er
skýringin á því að meiri hluti rík-
isstjórnar Rabins virðist hafa
misst stjórn á sér. Brottrekstur
Palestínumannanna er til tveggja
ára og það bendir enn fremur til
þess að Rabin hafi viljað kaupa sér
tíma til að ná árangri í friðarvið-
ræðunum í Washington með því
að taka úr umferð helstu leiðtoga
Hamas. Viðbrögð umheimsins
in: Leiðtogar Hamas-
u hver viðbrögð (sra-
elsmanna yrðu.
5:lje 9iem Zirnc*
Vandinn eykst í Kambódíu
Sameinuðu þjóðirnar eru í vanda staddar með metnaðarfulla áædun
sína um endurreisn Kambódíu. Eins og venjulega eru það rauðu Khmer-
arnir sem veita vopnaða andspyrnu, en ofbeldisöfl tengd ríkisstjórninni í
Phnom Penh stofna frjálsum kosningum einnig í hættu með árásum og
morðum á stjómarandstæðingum. Sameinuðu þjóðimar ættu að sækj-
ast eftir víðtækara umboði til að tryggja ffiðinn, en hika þess í stað við að
nota það vald sem þær hafa nú þegar.
Það er SÞ nauðsynlegt að herða tökin á báðar hliðar. Ef rauðu Khmer-
arnir reyna áffam að sleppa undan eftirliti verður friðargæslan að taka á
sig beinskeyttari mynd. Undirbúningur kosninga á að byrja í lok janúar,
en því verður að ffesta ef öryggisráðið herðir ekki tökin á næstu vikum.
Ef Sameinuðu þjóðunum mistekst þarf kambódíska þjóðin enn að þola
ofbeldi af hálfu rauðu Khmeranna. Og það myndi auka þrýstinginn á
Bandaríkin að leysa þetta og svipuð vandamál annars staðar. Þá er betra
að viðhalda og styrkja Sameinuðu þjóðirnar í aðgerðum sínum.
sýna að þetta var vanhugsuð og
fljótfæmisleg ákvörðun. Og Rabin
situr uppi með andsnúið aímenn-
ingsálit í heiminum og pólitíska
kreppu í ríkisstjórn sinni.
En hann er ekki einn um vand-
ann. Frelsissamtök Palestínu,
PLO, vilja ekkert með keppinaut-
inn Hamas hafa. Ákvörðun PLO
um að viðurkenna tilvemrétt ísra-
els og leggja óbeint blessun sína
yfir friðarviðræður hefur styrkt
Hamas í sessi, enda virðist stefha
PLO litíu eða engu ætla að skila
Palestínumönnum. Með brott-
rekstrinum hefur ísraelsstjórn
gert píslarvotta úr leiðtogum
Hamas og um leið styrkt stöðu
samtakanna sem forystuafls Pal-
estínumanna. Með því veikist
staða PLO enn og er því svo kom-
ið að hagsmunir ísaks Rabins og
Yassirs Arafats fara saman: báðir
óska Hamas-samtökunum út í
hafsauga.
Þessi valdabarátta meðal Pal-
estínumanna hefur sett mark sitt á
friðarviðræðurnar. Palestínu-
menn eru klofnir og leiðtogalausir
og virðast ekki hafa umboð til að
semja. Löng seta við samninga-
borð virðist oft vera að skila efnis-
legum árangri, en klofningur
meðal Palestínumanna kemur í
veg fýrir raunverulegt samkomu-
lag.
Þarna gætí Yassir Arafat hjálp-
að. Forveri Rabins, fsak Shamir,
aftók með öllu að PLO ætti sæti
við samningaborðið, en ráðherrar
í ríkisstjórn Rabins eru nú farnir
að ráðleggja honum að tala við
PLO. Það er eina aflið sem sam-
einar Palestínumenn og eini
samningsaðilinn sem hugsanlega
mætti ná árangri með. Arafat má
reyndar heldur ekki sýnast of
samningsfús, en hann vill líka
koma í veg fýrir frekari uppgang
Hamas-samtakanna. í því liggur
vonin, en jafnframt vandinn um
hvernig spila má framhaldið.
Ef PLO tekur upp viðræður við
fsrael án þess að vandi útlaganna
leysist verða samtökin sökuð um
enn frekari svik við málstað Pal-
estínumanna. Ef útlagamálið er
hins vegar látið ráða úrslitum um
gang mála eru Hamas færð meiri
völd og áhrif en nokkur kærir sig
um.
CLINTON OG CHRISTOPHER
LEGGJAÁRÁÐIN
Það vildi líklega til happs að út-
lagamálið kom upp nánast á milli
forseta í Bandaríkjunum. Það hef-
ur gefið diplómötum meiri tíma
en ella og vakið vonir um að Bill
Clinton gefist tækifæri til að
höggva á hnútinn í Miðaustur-
löndum. Clintön hefur lýst skiln-
ingi sínum á öryggisvanda fsraels-
manna, en jafnframt áhyggjum yf-
ir brottrekstrinum. Væntanlegur
utanríkisráðherra Bandaríkjanna,
Warren Christopher, er reyndur í
málefnum Miðausturlanda og
nýtur trausts þar. Til góðra verka
mundi hann njóta stuðnings ar-
abaríkja á borð við Sádi-Arabíu,
Jórdaníu, Egyptaland, Túnis og
Alsír, sem beijast sjálf gegn upp-
gangi bókstafstrúarmanna heima
fýrir.
Palestínsku útlagarnir eru
menntamenn, trúarlegir og pólit-
ískir leiðtogar Hamas-samtak-
anna. Ofbeldismennirnir ungu
leika enn lausum hala á herteknu
svæðunum og innan Israels. Á
meðan leiðtogar þeirra skjálfa í
fjöllunum í Suður-Líbanon og
engin bót fæst á aðstæðum á her-
teknu svæðunum eru engar líkur
á að þeir dragi úr ofbeldinu. j
Næstu vikurnar reynir því líka á
stjórnvisku Rabins og Arafats,
sem báðir þurfa að draga úr
spennunni og sýna fram á
raunverulegan ffiðarárang-
ur — án þess að virðast
hafa gefið eftir.
Öfgasamtökunum Hamas varð að ósk sinni þegar
ísraelsmenn gerðu Palestínumennina burtræka frá
ísrael. Þeim tókst að eyðileggja friðarviðræðurnar í
Washington og sýna styrk sinn gagnvart Frelsissam-
tökum Palestínu, PLO. Hvort tveggja er ills viti fyrir
friðarhorfur í Miðausturlöndum.