Pressan - 07.01.1993, Blaðsíða 18

Pressan - 07.01.1993, Blaðsíða 18
18 FIMMTUDAGUR PRESSAN 7.JANÚAR1993 T V f F A R A R Tveir fulltrúar jaðarlista eru tvífarar vik- unnar. Ragnheiður Jónsdóttir biskups- frú var á sínum tíma þekktfyrirhann- yrðir sínar og Skúli Hansen er einn kunnasti matreiðslu- maður lands- ins. Bæði hann- yrðirnar og mat- reiðslan hafa verið kallaðar Ustir en aldrei al- mennilega notið sömu virð- ingar og bókmenntir, myndlist, tónlist og allt það. Þrátt fyrir virðingarleysi hannyrðanna komst Ragnheiður með tímanum á 5.000-kallinn. Kannski kemst Skúli þangað líka. Hann hefiir til þess nokkur hundruð ár. Smáa letrið Þá er Ijóst hver er maður ársins 1992. Það er Sigrún Huld Hrafnsdóttir, þroskahefta sund- konan. Það er í útvarpinu. Á DV er það hins vegar Helgi Jónsson, sem bjargaði barni úr Ölfusá. Og Sophía Hansen er kona ársins á Nýju lífi. Og Þorgeir Baldursson í Odda á Stöð 2 og i Frjálsri versl- un. Og Bill Clinton í Time. Einhverjum kann að finnast þetta ruglandi og spyrja; hver var eiginlega maður þessa árs? Og ef allt þetta fólk getur verið menn ársins; var þá ekki nokk- urn veginn hver sem er maður síðasta árs? Líklega. Að minnsta kosti flýgur það manni í hug þegar skoðað er hverjir fengu tilnefningar í kosningu Rásar 2 (og þá er ekki átt við allar mömmurnar, frænd- urna og alla þá sem fengu eitt atkvæði frá þeim sem halda að sjónvarpið virki í báðar áttir. Að það sem gerist þeirra megin skjásins hafi álíka víðtæka þýð- ingu og það sem gerist hinum megin glersins.) Ingi Björn Albertsson fékk til dæmis rúmlega 20 atkvæði. í fyrra fékk hann 140 atkvæði. Þetta er í sjálfu sér mikið fall en Ingi Björn hlýtur að geta vel við unað. Fyrir áramótin 1991/1992 hélt hann margar ræður og fagrar um nauðsyn björgunar- þyrlu handa öllum sjómönnun- um sem Davíð Oddsson og ríkis- stjórnin vildu ekki rétta lida fing- ur til að bjarga. Og fékk 140 at- kvæði fyrir. Fyrir þessi áramót hélt hann hins vegar bara eina svona ræðu og uppskar 20 at- kvæði. Hann getur því sjálfum sér um kennt. En Ingi Björn ætti nú að þekkja trixið. Fyrir áramót- in 1999/2000 heldur hann ábyggilega 100 ræður um þyrl- una (hans pabba sins, Ifklega) og fær 2.000 atkvæði í kjöri um mann aldarinnar. Og í raun er það ekki svo galið, að Ingi Björn sé maður aldarinn- ar. Það er einhvern veginn gott á þessa öld. Annar sem kann lagið á þessari kosningu er Ögmundur Jónas- son. Árið 1991 stóð hann uppi ( hárinu á viðsemjendum sfnum og lék stórt hlutverk í Rúg- brauðsgerðinni við Borgartún. Hann leiddi samningana og Ás- mundur og A5Í fengu það sama og Ögmundur hafði samið um. Um áramótin 1991/1992 fékk hann síðan 38 atkvæði í kjöri Rás- ar 2 um mann ársins. Síðasta ár vildi hins vegar enginn tala við Ögmund né nokkurn opinberan starfsmann. Það var þjóðarsátt um að láta þá opinberu hafa það sem frjálsi vinnumarkaðurinn fengi. Ógmundur sýndi ólund fram eftir ári en þagnaði svo. Hann mælti meira að segja með miðlunartillögu sáttasemjara. í kjörinu um mann ársins nú fyrir áramótin fékk hans síðan 97 at- kvæði. Ef Ögmundur dregur lær- dóm af þessu og steinþegir á þessu ári verður hann örugglega maðurársins 1993. Ef við höldum áfram að bera þessar tvennar kosningar saman koma fleiri töfralausnir í Ijós. Það er til dæmis öruggt til óvinsælda að selja Hagkaup hluta í fyrirtæk- inu sínu. Jóhannes í Bónus var ofarlega á lista yfir mann ársins 1991 en sést hvergi árið 1992. Sigurður Pétur Harðarson (Silli Pétur) hvarf líka um leið og hann hætti á útvarpinu. Hjalti Úrsus féll á hormónaprófi og er horf- inn. Enginn man lengur eftir Ól- afi Jóhanni Ólafssyni. En þetta hjálpar ef til vill ekki þeim sem vilja verða menn árs- ins 1993. Ef til er einhver töfra- formúla er hún svona; vinnið gull á Olympíuleikum (ekki endi- lega þeim stærstu heldur bara einhverjum Ólympíuleikum), hímið við ár og vötn og bíðið eftir að börn falli út i, farið í for- ræðismál sem nær yfir landa- mæri og helst yfir menningar- svæði, erfið stórfyrirtæki og sigr- ið Bush. Ekkert af þessu er auð- velt — nema ef til vill það síð- asttalda. Það getur hver sem er. Meira að segja Saddam Hussein, þótt það hafi ekki orðið honum til vinsælda. ...færÓliH. Þórðar hjá Umferðarráði. Hann var svo innilega sæll með 15 millj- óna króna aukafjárveitinguna á þriðjudaginn (sem fengin er með skattlagningu á skoðun og skráningu bifreiða) að hann sagðist strax ætla að skoða hvað hann gæti gert við hana. Þeir sem ákváðu fjárveitingu (sem Óli hafði ekki einu sinni hugsað um í hvað ætti að fara) fá hins veg- arekki hrós. Hvers vegna var 1992 ekki eins og það átti að vera? Völvurnar spáðu 1992 að diplómat á fslandi yrði kærður fyrir kynferðislega áreitni í kokkteilboði svo og rólegu ári fyrir Madonnu. Amy Engilberts hallaðist að því um síðustu áramót í tímarit- inu Nýju lífi að kona yrði næsti forseti Bandaríkjanna — ef ekki forseti þá í það minnsta varafor- seti. Spá Amyar má kannski túlka sem svo að sjálfsagt muni gæta kvenlegra áhrifa í forseta embættinu í ríkari mæli nú en oft áður. Að minnsta kosti hefur Bill Clinton, verðandi forseti Banda- ríkjanna, gefið yfirlýsingar um að hann ætli að hafa eiginkonu sína, Hillary, þétt upp að sér í forseta- stólnum. Og svona hljóðaði spá Amyar fyrir árið 1992 um Davíð Oddsson forsætisráðherra: „Þetta verður þreytandi vinnu- ogátakaár í lífi Davíðs Oddssonar þar sem allt mun snúast um starfið. Fjölskyld- an og heimilið sitja því á hakan- um á næstunni. Hann þarf að sýna mikla þolinmæði ef honum á að takast að sigrast á erfiðleikun- um...“ Þetta hefði hver heilvita maður getað sagt sér sjálfur. Áramótaspár (glans)tímarit- anna eru jafnan mjög loðnar og auðvelt að túlka þær á marga vegu eins og ofangreint dæmi sýnir; einkum þó spár Amyar Engil- berts, sem er ekki eins afdrátt- arlaus í vitleysunni og völvur Vikunnar og Heimsmyndar. Elsta völva landsins, Völva Vikunnar, hefur þó jafnan vakið athygli langt út fyrir landsteinana og um hana hafa verið skrifuð greinarkom í blöð á Norðurlönd- unum, sem slá því gjarnan upp sem spáð hefur verið á erlendum vettvangi. Ekki er þó allt kolvit- Spá Amyar má kannski túlka sem svo að sjálfsagt muni gæta kvenlegra áhrifa í forseta- embættinu í ríkari mæli nú en oft áður. laust sem frá þeim kemur, eins og dæmið um erfiðleika- tíma hjá ríkis- stjórninni, vax- andi atvinnu- leysi (reyndar hefði mátt lesa það út úr þjóð- hagsspám) og svalan vetur. VÖLVUVIT- LEYSA VIKUNNAR Minnist þess einhver að ör- yrkjar og sam- kynhneigðir hafi tekið höndum sam- an á síðasta ári og boðað komu sína á stjórnmála- sviðið með stofnun nýs flokks, eða séð reglu- gerð um að selja megi létt vín og bjór í matvöruverslunum? Enginn minnist þess að Elizabeth Tayior hafi skilið við nýja manninn né að sendiherraskipti hafi orðið í París. Var gerð misheppnuð tilraun til að bola núverandi formanni Al- þýðuflokksins úr formannsstóli? Ef sú tilraun var gerð fór hún að minnsta kosti mjög leynt og var algerlega misheppnuð. Eða man einhver eftir leynilegum fundum Davíðs Oddssonar og áhrifa- manna innan Evrópubandalags- ins í tengslum við hvað íslending- ar væru tilbúnir að gera í stað verulegrar efnahagsaðstoðar? Hvar eru þessar geysilega vin- sælu hellaferðir meðal erlendra ferðamanna á íslandi? Opinberaði íslensk stúlka, með heldur ófögr- um Iýsingum, samband sitt við er- lendan tónlistarmann? Hvað varð um erlenda diplómatann sem átti að vera í heimsókn hér á landi og var kærður fýrir áreitni við konu í kokkteilboði? Hvorki Ieit nýtt ást- arsamband alþingismanna á önd- verðum meiði dagsins ljós né komst upp um léttúðugan prest, þótt því væri spáð. Enginn ís- lenskur ráðherra dró sig heldur í hlé og olli miklu fjaðrafoki með yfirlýsingu tengdri þeirri ákvörð- un. Minnist þess nokkur að bisk- upinn yfir íslandi hafi heimsótt Páfagarð og fallið þar vel í kramið? Ekki réttu Danir okkur hjálpar- hönd í málefnum tengdum Evr- ópubandalaginu. Man nokkur eft- ir fféttum af reimleikum í bústað Danadrottningar? HRYGGÐARSPÁ HEIMSMYNDAR Völva Heimsmyndar hljóp heldur betur á sig með spádómi sínum um batnandi hjónaband Karls og Díönu. Hún hélt því blá- kalt ffam að prinsessan yrði óff ísk á árinu og líða færi að því að Karl tæki við konungstign. Ennffemur að Fergie vekti á sér athygli á ár- inu, ekki þó vegna hins umtalaða ástarsambands heldur vegna hæfíleika sinna á ritvellinum. Hún sá einnig einhvers kottar rimla eða frelsisskerðingu hjá Boris Jeltsín og mjög rólegt ár fram- undan hjá Madonnu (líklega hef- ur aldrei verið meira fjör hjá Madonnu en einmitt á nýliðnu ári). Völva vikunnar og Heims- mynd voru sammála um að brest- ir kæmu í hjónaband Elísabetar Taylor. Þótt svo hafi reyndar ekki verið hefði ekki þurft völvu til að spá því að enn eitt hjónaband Ta- ylor færi út um þúfur. Spá um einn sögulegasta ff éttaatburð á ár- inu reyndist einnig alröng, því Völva Heimsmyndar spáði áffamhaldandi setu repúblikana í bandaríska forsetastólnum. Hún spáði því einnig að Einar Oddur Kristjánsson yrði áffam formaður Vinnuveitendasambandsins og Vigdís fengi mótframbjóðanda sem hefði það að markmiði að vekja athygli á sérstökum málum (það er auðvelt að spá löngu liðn- um atburðum). Er Nýr stormur Guðna í Sunnu að breytast í vorhret? Beðið eftir Storminum Marga rekur minni til stórr- ar yfirlýsingar Guðna Þórðar- sonar í Sunnu um útkomu nýs vikublaðs, Nýs storms. Síðan hefur hvorki sést haus né sporður af blaðinu og lék PRESSUNNI forvitni á að vita hvort fyrirætlanirnar væru foknar út í veður og vind. Að sögn Guðna er undirbúningur- inn í fullum gangi, hann hafi einfaldlega tekið lengri tíma en áætlað var. Aðspurður hvenær landsmenn mættu eiga von á blaðinu fullyrti Guðni að það kæmi út fyrir vetrarlok, — með hækkandi sól. Af þessu er ljóst að enn verður einhver bið á því að Guðni stormi inn í íslenskan fjölmiðlaheim. Jólahreingerning á Bergstaðastræti 28? Pósturinn endursendur tólf árum seinna Hann skilar sér, pósturinn, þótt seint sé stundum. Um áramótin var bókaklúbbi Almenna bókafé- lagsins endursent fréttabréf sem eldd hafði komist í hendur viðtak- anda. Og það var ekki seinna vænna. Fréttabréfið var sent út í október 1980 og var því rúmlega tólf ár á leiðinni aftur til útgáfunn- ar. Og þó var leiðin ekki ýkja löng. Fréttabréfið var stflað á heimilis- fangið Bergstaðastræti 28 í Reykjavík, en Almenna bókafélag- ið var þar til fyrir stuttu til húsa í Austurstræti 18. Hvort tveggja heimilisfangið heyrir undir póst- húsið í Pósthússtræti. Töfin er þó varla starfsfólki þess að kenna. Líklegasta skýringin er að einhver íbúa hússins hafi rekist á frétta- bréfið við jólahreingerningar og lagt það þar sem bréfberinn sæi um að koma því til skila. Ef fólkið er ekki þeim mun samviskusam- ara má leiða líkur að því að það hafi ekki tekið eftir ártalinu sem þó er greinilegt ffaman á bréfinu. Bréfberinn hefur af samviskusemi límt viðeigandi miða á bréfið og merkt við reitinn „þekkist ekki“. Að sögn Axels Sigurðssonar, deildarstjóra í pósthúsinu í Póst- hússtræti, er ekki einsdæmi að gamall póstur finnist með þessum hætti, þótt sjaldgæft sé. Nefndi hann sem dæmi að fyrir nokkrum árum hefði fundist mikill fjöldi bréfa hjá einstaklingi sem hafði einfaldlega safnað saman pósti sem ekki rataði í réttar hendur. Annar starfsmaður nefndi að fyrir nokkrum árum fannst seðlaveski sem stungið hafði verið í póst- kassa. í því voru engir peningar, en ávísanaheffi og voru tíu ár liðin frá því síðast var skrifað út af því. Aðalbók bókaklúbbs AB í októ- ber 1980 var Fylgsnið eftir Corrie ten Boom. Meðal nýrra platna á þessum tíma var Meira salt með Áhöfhinni á Halástjömunni.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.