Pressan


Pressan - 07.01.1993, Qupperneq 22

Pressan - 07.01.1993, Qupperneq 22
22 FIMMTUDAGUR PRESSAN 7. JANÚAR 1993 Fyrst neyddu konur 5 karla í kvenhlutverkin. Létu þá þrífa í kringum sig í stað þess að láta húshjálpina, eiginkon- una eða mömmu um það. Þær þröngvuðu þeim til að strauja skyrt- urnar sínar sjálfir (og urðu þess valdandi að kynsystur þeirra í þvottahúsunum misstu vinnuna). Þær heimtuðu að þeir skiptu á börnum og væru góðir við þau — jafnvel annarra manna börn. Og þær vildu ráða umræðuefninu; hefð- bundið daður vék fyrir skilningsríkri samkennd um tilfinningaflækjur, drauma, bamauppeldi og sjáifsvitund. Eftir þetta stóðu karlarnir eftir ósjálfbjarga. Þeir höfðu ver- ið leiddir inn í heim sem var þeim framandi. Það voru engar líkur til þess að þeir gætu lifað af án leiðsagnar kvenna. Þeir þekktu leyndardóma tíðahringsins sem umlék þessa veröld. Og þegar karlarnir stóðu þama; áttavilltir og vansælir, yfirgaf kon- an þá og tók með sér piparsveina- formið. Fiún gerðist karríerkona, fékk meiri áhuga á starfsframan- um en heimilinu og fór að búa ein. Hún vildi stjórna lífi sínu sjálf, vera ffjáls og engum háð í einka- lífinu. Um leið og hún hafði selt karlinum veröld sína yfirgaf hún hana og lét hann sitja einan uppi með hana. Svona var þetta náttúrulega ekki. En samt. Vansælir karlar og öruggar konur Hvað er til dæmis langt síðan það hefur sést almennilegur pip- arsveinn í bíómynd? Varla síðan Roger Moore tók við hlutverki James Bond. Ef karl í bíómynd býr einn er hann vansæll. Annaðhvort er hann örvinglaður Wall Street- uppi sem hefur farið yfir um á vinnu, kóki, konum og háum lífs- staðli og mun tortíma sér ef hann hittir ekki fljótt skilningsríka konu sem flytur með hann í sveit, róar hann niður og kynnir fyrir honum hin raunverulegu gildi í lífinu. Eða þá að hann er tilfinningalega rót- laus og úttaugaður vesalingur sem vafrar um í ólæknandi söknuði eftir mömmu. Gangandi dæmi um miskunnarleysi karlaveraldar- innar og sönnun þess að hún er ekki síður vond við karlana sjálfa en konur og börn. Konur sem búa einar í bíó hafa það hins vegar fi'nt. Þær eru klár- ari en starfsfélagarnir, smartari en borðfélagarnir, hreinskilnari og blygðunarlausari en bólfélagarnir og ráða þúsund sinnum betur við að skila öllum sínum hlutverkum upp á hundrað en nokkur karl- anna í aukahlutverkunum. Stund- um undrar mann að þeir skuli muna setningarnar sínar. Heimska ljóskan og pipar- sveinninn sldpta um hlutverk Svona hefur þetta snúist við á aðeins tuttugu árum eða svo. Konumar hafa stolið Sean Conn- ery af körlunum og skilið þá eftir í hlutverki heimska einkaritarans, sem þó má alltaf hlæja að og jafn- vel gamna sér við ef sá gállinn er á konunum. Það unga fólk sem leitar sér í Hollywood að fyrirmyndum að sjálfstæðum einstaklingum verður Piparsveinum er nauðsynlegt að ... hafa á sér smokka ... líta út fyrir að h'ða vel í smóking ... drekka mjög þurran martíní ... vita hvemig á að blanda mjög góðan martím' ... vita hvemig galdra á firam góðan málsverð á 15 mínútum ... vita um gott þvottahús ... þekkja bestu restaurant- ana ... þekkja bestu barina ... vera beðnir að vera svaramenn ... eiga uppþvottavél ... muna eftir afimælisdegi mömmu ... fá alltaf borð á Ömmu Lú ... geta losað um brjósta- haldara með annarri hend- inni því að afskrifa karlana. Þeir ungu sveinar sem finnst freistandi að pipra í framtíðinni eru þess sinnis vegna þess að þeir hafa heillast af einhverri kvenhetjunni og vilja Ifkjast henni. Þannig er mýtan um pipar- sveininn komin í hring. 007 og Philip Marlowe eru ekki lengur fyrirmyndir ungra drengja. Þeir voru fyrirmyndir ungra kvenna fyrir tíu árum og þessar konur eru aftur orðnar einu nothæfu fyrir- myndir drengjanna í dag. Afturhvarf til sjöunda áratug- arins Ungu konumar á uppleiðinni í dag eru einna líkastar piparsvein- i

x

Pressan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.