Pressan - 19.05.1993, Page 11
F R ETT I R
Miðvikudagurínn 19. maí 1993
PRESSAN 11
HESIMRASKID HRIINDI
EFTIR RRUDL UG OREIBU
MORASTAÐIR í KiÓSARHREPPi Hreppsnefndin varaði Þorstein og fé-
laga við: Tryggið að hrossin fái næga beit og hey. Starfsfólk
Morastaða hefur gefist upp, nýverið hættu þrír tamningamenn
sem ekki fengu laun sín gerð upp. Jörðin og fasteignirnar eru fal-
ar fyrir tæpar 15 milljónir, en áhvílandi veð hljóða upp á svipaða
tölu.
ÞORSTEINN GARÐARSSON
Ætlaði sér stóra hluti við
ræktun og útflutning á
hrossum. Keypti um hundrað
hross, að mestu á pappírum
sem að stórum hiuta eru í
vanskiium. Bauö nýverið
tvær til þrjár milljónir í grað-
hest og falaðist eftir verð-
mætri jörð í Skagafirði.
Hestafyrirtæki Þor-
steins, Mori hf., var
meö um eöa yfir
hundrað hross á
jörö sem tók fjöru-
tíu til fimmtíu hesta
á beit. Hreppsnefnd
Kjósarhrepps var
með Morastaði und-
ir smásjánni vegna
vanfóðrunar. Fjöl-
margir hestar hafa
að undanförnu verið
færðir yfir á nafn
sonar Þorsteins og
annarra vanda-
manna.
Hestaræktar- og útflutn-
ingsfyrirtækið Mori hf. á
Morastöðum í Kjósarhreppi
er komið til gjaldþrotaskipta
og er þriðja hlutafélag Þor-
steins Garðarssonar á örfá-
um dögum sem fer á höíúðið.
Mori verður þá í hópi með
gamla Hljómco (Faxakaupum
hf.) og TölvuspUum og eins og
með þau félög hafa undanfar-
ið átt sér stað tilfærslur á eign-
um Mora og Þorsteins sjálfs.
Viðmælendur PRESSUNNAR
eru yfirleitt á einu máli um að
orsakir ófaranna séu ekki síst
óreiða og bruðl í fjármálum
og tíðir árekstrar Þorsteins við
meðeigendur og starfsfólk.
Vekur það og sérstaka athygli
viðmælenda blaðsins hversu
mikla og góða fyrirgreiðslu
Þorsteinn og félög hans hafa
fengið í Búnaðarbanka og ís-
landsbanka, allt framundir
það síðasta, að reikningum
var lokað þann 6. maí. Koma
þar við sögu afgreiðslustaðir í
Reykjavík, Hafnarfirði og á
Hellu.
Þrísvar til útlanda það
sem af er árinu
ítarlega var fjallað um mál-
efni gamla Hljómco og Tölvu-
spila í síðasta blaði. Meðal
annars var greint frá því að á
aðeins rúmum tveimur árum
hefðu fimmtán prókúruhafar
verið skráðir hjá félögunum,
sem flestir hættu eftir stuttan
tíma. „Það ílengdist enginn
þarna vegna óreiðu eigandans
í fjármálum, yfirgangs hans og
hroka gagnvart starfsfólkinu.
Svo einfalt er það,“ sagði einn
af þeim fjölmörgu prókúru-
höfum sem hrökkluðust úr
fyrirtækinu eftir skamma
dvöl.
Samkvæmt heimildum
blaðsins voru skilin á milli
fjármála hlutafélaganna og
fjármála Þorsteins sjálfs vægt
sagt ógreinileg og í því sam-
bandi nefndu ófáir viðmæl-
enda blaðsins tíðar og kostn-
aðarsamar utanlandsferðir
Þorsteins. Aðeins það sem af
er þessu ári hefur Þorsteinn
farið til Svíþjóðar, Danmerkur
og Bandaríkjanna. Þar og
reyndar hér á landi hefur Þor-
steinn lifað hátt og gengið
greitt um gleðinnar dyr.
Eins og ffam kom í síðustu
viku hafa orðið umfangsmikl-
ar tilfærslur á eignum Þor-
steins og hlutafélaganna að
undanförnu, þar sem til að
mynda átján ára sonur Þor-
steins, Garðar Þorsteinsson,
hefur eignast 375 fermetra
einbýlishús Þorsteins og konu
hans á Arnarnesinu, en Garð-
ar stofnaði nýtt Hljómco
ásamt Haraldi Gunnarssyni,
spilavítisrekanda með meiru.
Tilfærslur á eignum virðast
einnig viðloðandi væntanlegt
gjaldþrot Mora hf.: Félagið
sjálft og Þorsteinn persónu-
lega voru skráðir fýrir um eða
yfir hundrað hrossum, sem
mörg hver eru nú komin á
nafn Garðars og annarra
vandamanna Þorsteins.
Búnaðarbankinn með
ótryggan veðrétt á
Morastöðum
Mori hf. var stofhað síðasta
sumar af Þorsteini (51 pró-
sent), Hjalta Geir Unnsteins-
syni (25%) og Guðjóni
Hannessyni (24%), en Guð-
jón er einnig hluthafi í
Hljómco/Tölvuspilum hf.
Hjalti Geir fór fljótlega út úr
fyrirtækinu eftir ágreining.
Mori hf. eignaðist Mora-
staði með afsali síðasta haust
og kaupverðið var 12,5 millj-
ónir króna. Aðeins 43 þúsund
krónur fóru á milli seljanda og
kaupenda, því nær allt kaup-
verðið var fólgið í yfirtöku
skulda, þar sem 11,3 milljónir
töldust í skilum, en rúm millj-
ón í vanskilum.
Samkvæmt nýju þinglýs-
ingarvottorði hvíla á Mora-
stöðum veð á níu veðréttum
og nema uppreiknaðar eftir-
stöðvar vegna þessa tæplega
15 milljónum króna. Jörðin er
nú boðin til sölu hjá Fast-
eignamiðstöðinni í Reykjavík
og er hún föl á 14,9 milljónir
króna. Vottorðið ber með sér
að íslandsbanki og Búnaðar-
banki hafi verið að lána
og/eða skuldbreyta hjá Mora
að undanförnu; Islandsbanki
er með samtals 4,5 milljónir á
öðrum og þriðja veðrétti
vegna lána, að líkindum
skuldbreytinga, frá því í októ-
ber síðastliðnum, en sérstaka
athygli vekur að Búnaðar-
bankinn er með 2,5 milljóna
króna lán eða annars konar
fýrirgreiðslu á níunda og síð-
asta veðrétti. Virðist það í
hæsta máta ótryggt veð seljist
jörðin á minna en 15 milljón-
ir. Viðskipti Þorsteins í Bún-
aðarbankanum heyrðu sam-
kvæmt heimildum blaðsins
undir Sólon R. Sigurðsson,
sem er erlendis. Stefán Pálsson
vildi ekki tjá sig um þessi mál,
en taldi fullljóst að veðið á
Morastöðum væri baktrygg-
ing, en ekki merki um nýtt
lán.
Fyrst var það einbýlis-
húsið og nú hestarnir
Önnur veð á eigninni eru í
nafni Stofnlánadeildar Lands-
banka íslands á fýrsta veðrétti
(eftirstöðvar um 1,3 milljón-
ir), Eftirlaunasjóðs starfs-
manna Landsbankans á fjórða
veðrétti (1,4 milljónir), Lífeyr-
issjóðs byggingarmanna (400
þúsund), Eftirlaunasjóðs
starfsmanna Búnaðarbanka (1
milljón) og Byggingarsjóðs
ríkisins (alls 3,6 milljónir).
Eitthvað er á reiki með
íjölda hesta á Morastöðum, en
vitað er að þeim hefúr fækkað
að undanförnu. Það gerist þó
án þess að nokkur árangur
hafi orðið af útflutnings-
draumum aðstandendanna.
Tölur um fjölda hesta sem
nefhdar hafa verið eru ffá því
að vera 80 upp í 130, en að
sögn kunnugra ber Mora-
staðajörðin aðeins 40 til 50
hesta í beit.
Vitað er að Þorsteinn og
Mori hf. keyptu tugi hesta af
Árbakkabúinu í Landmanna-
hreppi og Svaðastaðabúinu í
Skagafirði og er ljóst að bæði
þessi bú verða með stórar
kröfur á væntanlegt þrotabú.
Samkvæmt öruggum heim-
ildum PRESSUNNAR hefur
talsvert af hrossum, sem skráð
voru á Mora hf. og Þorstein
persónulega, að undanförnu
verið skráð á Garðar Þor-
steinsson eða aðra vanda-
menn Þorsteins. Þetta er þó
erfitt að fá opinberlega stað-
fest, enda aðeins sýndir hestar
og hrossmerktir sem eru á op-
inberum skrám. Þorsteinn
sjálfur segir Garðar hafa keypt
20 til 30 hross af Mora.
Falaðist nýlega eftir
verðmætri jörð í Skaga-
firði
PRESSAN fékk það staðfest
hjá Guðbrandi Hannessyni,
oddvita Kjósarhrepps, að
hreppurinn hefði orðið að
grípa inn í málefni Morastaða
á síðasta vetri. „Það voru
þarna hátt í hundrað hross,
sem jörðin stendur alls ekki
undir í beit. Við vöruðum þá
við og gerðum þessum aðilum
grein fyrir því að þeir kæmust
ekki upp með annað en að
fóðra hrossin. Mér skilst að
það hafi verið tekið til greina,
en búskapurinn þarna var
undir sérstöku eftirliti. Mér
skilst að þessu ævintýri sé nú
lokið og jörðin til sölu. Það er
ekkert nema gott um það að
segja,“ sagði Guðbrandur.
Jörðin Morastaðir er alls
urn 200 hektarar en ræktað
land skráð 23,5 hektarar. Á
henni er að finna íbúðarhús,
fjós, hlöðu, hesthús, bílskúr og
tvö haughús.
Ljóst er að Þorsteinn og fé-
lagar hafa ætlað sér stóra hluti
með hrossabúskapnum á
Morastöðum. Illa hefur þó
gengið að halda í mannskap á
staðnum og hættu til að
mynda þrír tamningamenn
þar nýverið eftir árekstra, sér-
staklega þó vegna þess að
þeirn gekk illa að fá greidd
laun.
Þótt hlutafélögin, gamla
Hljómco, Tölvuspil og Mori,
hefðu öll um nokkurt skeið
staðið á brauðfótum hægði
það á engan hátt á fjárfesting-
aráætlunum Þorsteins og fé-
laga. Friðrik Pálmason, bóndi
á Svaðastöðum í Skagafirði,
staðfesti í samtali við blaðið að
í tvígang, í seinna skiptið fýrir
tæpum tveimur inánuðum,
hefði Þorsteinn falast eftir
kaupum á jörð sinni, sem er
stór og verðmæt.
Eidri þrotabú tengd Þor-
steini: Th. Garðarsson
og Sjónvarpsbúðin
Annar jarðeigandi í Skaga-
firði staðfesti að um svipað
leyti hefði Þorsteinn boðið 2
til 3 milljónir í graðhest hjá
sér. „Það var hlegið að þessu
tilboði í sveitinni, ég bauð
honum hestinn á átta
millj'æonir á borðið. En talan
skiptir ekki máli, sala til hans
kom ekki til greina.“
Ennfremur hefur PRESS-
AN fengið staðfest að fyrir
tveimur til þremur árum hafi
Þorsteinn boðið í laxveiði-
hlunnindi í einni dýrustu á
landsins, Laxá í Kjós, en ekki
fengið.
Þorsteinn Garðarsson hefur
á síðustu árum átt þátt í að
minnsta kosti tveimur öðrum
hlutafélögum sem farið hafa á
hausinn. Fyrirtæki hans Th.
Garðarsson var tekið til skipta
1982 og hljóðuðu kröfur upp
á 9,1 milljón að núvirði. Upp í
þær greiddust 5,6 milljónir.
Þá var Þorsteinn annar að-
aleigandi Sjónvarpsbúðarinn-
ar við Lágmúla sem tekin var
til skipta í ágúst 1988. Það bú
reyndist eignalaust og töpuð-
ust þar kröfur upp á 75 millj-
ónir króna að núvirði.
Friðrík Þór Guðmundsson
Þorsteinn Garðarsson:
Hrossakaup sonarins eðlileg viðskipti
„Það er rétt, Mori hf. er
komið í þrot. Ég geri ráð fýrir
því að eignir séu um 15 millj-
ónir en kröfur um 20 millj-
ónir. Ástæðurnar fyrir þessu
gjaldþroti eru fýrst og fremst
að við fengum ekki öll þau
hross sem við höfum keypt,
fengum í nokkrum tilfellum
röng hross, allt upp í 21 vetr-
ar, og við höfúm ekki fengið
leiðréttingar. Þetta voru við-
skipti vegna Árbakkabúsins
og það er svilcamylla sem þið
ættuð að kíkja á. Um leið hef-
ur verð farið lækkandi og
hrossamarkaðurinn brugð-
ist,“ segir Þorsteinn Garðars-
son um gjaldþrot Mora.
- Sonur þinn Garðar, sem
þú seldir nýverið einbýlishús
þitt, hefur verið skráður fyrir
allnokkrum hrossum Mora
upp á síðkastið, ekki satt?
„Það er verið að selja það
sem hægt er að selja og ekkert
óeðlilegt í þvi sambandi. Við
vorum með um áttatíu hross
en þau eru komin niður í átj-
án. Frá því í september síð-
astliðnum hefúr sonur minn
keypt á bilinu tuttugu til þrjá-
tíu hross, ég hef það ekki ná-
kvæmlega. Það eru eðlileg
viðskipti, allar nótur liggja
fyrir og peningar komu á
móti. Það er reyndar leitun á
Islandi að hrossaviðskiptum
þar sem nótur eru skrifaðar
fýrir hvem einasta hest.“
- Fréttin um gjaldþrot
Hljómco og Tölvuspila vakti
athygli og mikil viðbrögð. Og
nú erMori kominn á hausinn.
Fullyrt er að orsakatma sé ekki
síst að leita í bruðli og óráðsíu í
fjármálum?
„Óráðsíu? Eins og ég
nefndi síðast þá var þetta fýrst.
og fremst fjármagnskostnað-
ur, á síðasta ári upp á 27
milljónir króna hjá báðum
félögum, og svo gengistap
upp á 7 milljónir. Ekki óráð-
sía.“
- Menn nefna mikinn
ferða- og risnukostnað.
„Ferða- og risnukostnað-
urinn var enginn hjá
Hljómco eða Mora og um
eitt prósent af veltu hjá
Tölvuspilum.“
- Það er fuilyrt að þú sért
þegar búinn að fara þrjár
utanlandsferðir það sem af er
árinu?
„Það er rétt, ég hef farið
þetta á milli þrjár og sex
utanlandsferðir á ári. Oftast
hef ég nagað mig í handar-
bakið yfir því að hafa ekki
farið oftar, því í þessum við-
skiptum eru slíkar ferðir
nauð$ynlegar,, það. gilðir að
vera á staðnum, enda næst
ekki sami árangurinn með
síma og faxi.“
PRESSAN bar ofangreind-
ar ásakanir Þorsteins í garð
Árbakkabúsins undir Anders
Hansen, einn eigenda búsins,
og aftók hann þær með öllu.
„Þetta er ósvífin lygi. Sann-
leikurinn er sá að Þorsteinn
Garðarsson og Mori skulda
Árbakkabúinu milljónir
króna og eru búin að vera í
vanskilum með greiðslur um
langt skeið. Ef hann heldur
þessu fram munum við óska
eftir því að Rannsóknarlög-
regla ríkisins rannsaki hvern-
ig hann hefur síðustu vikur
og mánuði reynt að kaupa
hross á skuldabréfúm, sem
augljóslega hefur aldrei verið
meiningin að borga,“ sagði
Anders. ,