Pressan - 19.05.1993, Síða 22
S KI LA BOÐ
22
PKESSAN
Miövikudagurinn 19. maí 1993
Hagfræði hinm
hagsýnu húsmóður
Morgunblaðið uppgötvar
konur meö nýstárlegar hug-
myndir. Það er frétt í sjálfu
sér. Merkileg kona er
stödd hér á landi; Anita
Rodrick, sem talin er ein
ríkasta kona heims. Hún
hefur femíníska hugsjón að
leiðarljósi í lífinu og komst I
álnir af eigin rammleik og
dugnaði. Þaö var viðtal við
hana á miðopnu Morgun-
blaðsins, þeirri sem Hrafn
Gunnlaugsson fær alltaf að
svara fyrir sig á. Rödd
hennar á síðum Morgun-
blaðsins er hins vegar ný
og fersk. En það er bara á
síðum Morgunblaösins því
hugsjónir sem hennar hafa
hljómað allar götur sfðan
nýja kvennahreyfingin varð
virkt afl víöa um heim.
Grunur leikur á að Morgun-
blaðsviðtalið hafi ekki verið
tekið vegna femínískra hug-
sjóna hennar, heldur vegna
þess að konan er forrík.
Nema ef til vill að Morgun-
blaðið geri sér ekki grein
fyrir því hvað eru femínískar
hugsjónir og hvaö ekki. Það
væri þá líka eitthvað nýtt.
Ef til vill er Morgunblaðið
að uppgötva nýjan sann-
leika og nýja hagfræöi;
hvernig mögulegt er að
verða ríkur nú á dögum.
Þegar allt er komið í þrot.
Þegar allir vegir viröast
ófærir; gamla einkavæðing-
arstefnan að ekki sé talað
um hina nýju einkavina-
væðingarstefnu sem féll
um sjálfa sig sem hugsjón
strax í upphafi. Þaö er eins
og Morgunblaðsmenn hafi
uppgötvað að konur búi yfir
einhverju sérstöku; að kon-
ur séu afl sem má virkja.
Anita Rodrick rekur fýrirtæk-
ið Body Shop, alls 900
verslanir, eins og móðir
hennar rak heimili á stríðs-
árunum. Rodrick spreðar
ekki peningum. Hún lætur
enga leigubíla bíða eftir sér
á meðan hún vinnur. Það
sem gerir hana hamingju-
sama er að geta bætt kjör
fólks. Hún hefur hugsjónir
þótt hún sé rík. Og kennir
Morgunblaðsmönnum að
mennti maður eina konu
mennti maður heila fjöl-
skyldu. Hún bendir á að ís-
lenskar konur séu mennt-
uðustu konur í heimi sem
hafi verið haldið niðri. Það
sem til þarf er að hlusta á
konur, gefa þeim tækifæri.
Fund, sem haldinn var með
henni í fyrradag, sóttu ein-
hverjir stífustu jakkafata-
karlar landsins. Þar voru
meðal annarra Jón Ás-
bergsson, Andri Már Ing-
ólfsson, Grímur Sæmund-
sen, Kristján Árnason,
Magnús Jóhannesson og
nafni hans Kristjánsson.
Þeir sátu agndofa undir
ræðum þessarar merkilegu
ríku konu. Kannski er von.
Kannski eru jakkafatakarl-
arnir og Morgunblaðið að
koma út úr skápnum og
viðurkenna femínistann
innra meö sér; að hagfræði
hinnar hagsýnu húsmóður
sé ekki svo galin eftir allt
saman.
‘Tvífarar
Árið 1940 lézt í New York rithöfundurinn F.
Scott Fitzgerald. Hann endurholdgaðist í Sta-
fangri árið 1962 sem Sigtryggur Baldursson,
alias Bogomil Font. Það er ekki nóg með að
útlitið hafi haldið sér — hárgreiðslan, flöt
eyrun, þunnar varir á hálfskúffukjafti og víð-
áttumiklar kinnar — heldur er upplagiðþað
sama: drykkhneigður bóhem, listamaður og
óforbetranlegur exhibitionisti.
flrnar Már Jónsson hefur lengi verið langsöluhæsti blaðasali
PRESSUNNAR og hann verður á fullu í sumar eins og endranær.
# Krakkar! Þið eigið líka möguleika á að ná árangri við að
selja PRESSUNA í viku hverri í sumar, enda er blaðið út-
breitt og nýtur œ meiri vinsœlda.
# í sumar verður verðlaunapottur ígangi sem allir njóta
góðs af Til viðbótar við góð sölulaun og aukablöð í viku
hverrifá allir blaðasalar PRESSU-bol ogPRESSU-húfu og
aukþess Stjörnupopp ogPepsí, auk bíómiða og keilumiða
þegar tilteknum árangri er náð.
# í hverjum mánuði eru síðan þrír söluhœstu blaðasalarn-
ir um land allt verðlaunaðir með heimsendri Jóns Bakans-
Pizzu afstœrstu gerð og Pepsí.
• Rúsínan ípylsuendanum ersvo samkeppni PRESSUNN-
AR um blaðasala sumarsins, þar sem þrír söluhœstu blaða-
salarnir samanlagt íjúní, júlí og ágúst eru sérstaklega verð-
launaðir.
1. verðlaun: Vandað fjallahjól
2. verðlaun: Leikjatölva
3. verðlaun: Körfuboltahringur
• Krakkar hafið samband í síma 643080 ogpantið blöð
strax. Munið að við sendum ykkur blöðin heim að morgni
útgáfudags.
• Blaðasalar úti á landi vinsamlega hafið samband við
umboðsmenn.