Pressan


Pressan - 27.05.1993, Qupperneq 11

Pressan - 27.05.1993, Qupperneq 11
FR E T T I R Fimmtudagurinn 27. maí 1993 PRESSAN 1 1 Sveinn Egill Úlfarsson og Björgvin J. Jóhannsson í BOR FIMM MÁNABA FANGELSI VEGNA SÖLUSKAFTSSVIKA Arnar Nlár Jónsson hefur lengi verið langsöluhæsti blaðasali PRESSUNNAR og hann verður á lullu I sumar eins og endranær. KMKAR SEUIÐ PRESSUNA ÍSUMR VERDUUINAPOTTIIR UMLANDAIH • Krakkar! Þið eigið líka möguleika á að ná árangri við að selja PRESSUNA í viku hverri í sumar, enda er blaðið útbreitt og nýt- ur œ meiri vinsœlda. • í sumar verður verðlaunapottur í gangi sem allir njóta góðs af. Til viðbótar við góð sölulaun og aukablöð í viku hverrifá allir blaðasalar PRESSU-bol og PRESSU-húfu ogattkþess Stjörnu- popp ogPepsí, auk bíómiða ogkeilumiða þegar tilteknum ár- angri er náð. • / hverjum mánuði eru síðanþrír söluhœstu blaðasalarnir um land allt verðlaunaðir með heimsendri Jóns Bakans-Pizzu af stœrstu gerð ogPepst. • Rúsínan ípylsuendanum ersvo samkepptti PRESSUNNAR um blaðasala sumarsins, þar sem þrír söluhœstu blaðasalarnir samanlagt í júní, júlt ogágúst eru sérstaklega verðlaunaðir. 1. verðlaun: Vandað fjallahjól 2. verðlaun: Leíkjatölva 3. verðlaun: Körfuboltahringur • Krakkar haftð samband í síma 643080 ogpantið blöð strax. Munið að við settdum ykkur blöðin heim að morgni út- gáfudags. • Blaðasalar úti á landi vinsamlega hafið satnband við umboðsmettn. Sannað þótti að eigendur BOR hefðu ekki greitt söluskatt upp á nær 8 milljónir að núvirði og fengu þeir fyrir það 5 milljóna króna sekt. Þrír mánuðir af fimm eru skilorðsbundnir. Héraðsdómur Reykjavíkur heíur dæmt þá Svein Egil Úlf- arsson og Björgvin Jóhann Jóhannsson hvorn í fimm mánaða fangelsi vegna nálægt 7,5 milljóna króna undan- skots á söluskatti við rekstur fyrirtækisins BOR, Bygginga og ráðgjafar hf., á árunum 1986 og 1987. Þrír mánuðir þar af eru skilorðsbundnir. Þeim er auk þessa gert að greiða 2,5 milljóna króna sekt hvorum til ríkissjóðs og komi fimm mánaða fangelsi í stað sektar, sé hún ekki greidd. Fyrirtækið sjálft varð gjald- þrota og reyndist eignalaust frammi fyrir 92 milljóna króna kröfum að núvirði. Sveinn yfirgaf hið von- iausa fyrirtæki og stofn- aði nýtt Þeim Sveini og Björgvini var gefið að sök að hafa á þriggja ára tímabili dregið undan söluskattsskylda veltu og ekki skilað inn söluskatti sem innheimtur hafði verið. Leiddi þetta til sérstakrar 8 milljóna króna álagningar rík- isskattstjóra í nóvember 1988, en það samsvarar um 11,5 milljónum í dag. Af þessu taldist vangreiddur söluskatt- ur 9 milljónir að núvirði. BOR var stofnað árið 1983 af þeim Sveini, Björgvini og Magnúsi Sigurðssyni, en um var að ræða byggingarfyrir- tæki og heildverslun með sölu á „hinum heimsfrægu álbygg- ingarmótum“ frá ABM. Þeir voru hluthafar að jöfnu, en um 1986 tók að bera á óein- ingu þeirra á milli. Fyrst hætti Magnús og Björgvin tilkynnti vorið 1988 að hann hefði hætt öllum afskiptum af félaginu. Félagið var úrskurðað gjald- þrota í júní 1989, en skömmu áður hafði Sveinn, ásamt fjöl- skyldu sinni, stofhað bygging- arfyrirtækið Geithamra og vakti athygli að það fyrirtæki fékk strax úthlutað lóð undir 24 íbúða fjölbýlishús í Grafar- vogi. Starfsmenn sögðu „mótapakka“ haldið ut- an söluskattsskýrslna Fyrir dómi sagði Sveinn umdeilanlegt að um sölu- skattsskylda starfsemi hefði verið að ræða í sumum tilfell- um og vísaði bókhaldsmálum 1986 á Þorvald Þorvaldsson, löggiltan endurskoðanda fé- iagsins. Þorvaldur þessi sagði þessu hlutverki sínu upp á sínum tíma, þar eð hann fékk ekki þau gögn sem hann taldi sig þurfa. Sveinn sagði að ekki hefði verið byrjað að færa bókhald vegna ársins 1987 er starfs- menn ríkisskattstjóra tóku gögn fyrirtækisins í sínar hendur í mars 1988. Fram kom hjá Björgvini að fyrir- tækið hefði verið illa statt, en meiningin hefði verið að gera söluskattinn upp þegar hagur fyrirtækisins vænkaðist. Af framburði vitnanna Maríu Hjaltadóttur og Sigur- jóns Skæringssonar, fyrrum starfsmanna BOR, að dæma virðist tvöfalt bókhald hafa verið í gangi. Þau hafi útfyllt söluskattsskýrslur vegna flestra þátta, en ekki vegna sölu á „stórum mótapökk- um“. Þeim hafi verið haldið fýrir utan. Dómarinn, Guðjón St. Marteinsson, taldi að athuga- semdir Sveins um að í ein- staka tilvikum hefði ekki bor- ið að greiða söluskatt af við- komandi viðskiptum ættu að nokkru við rök að styðjast og lækkaði upphæð ákæruvalds- ins um 15 prósent. Að öðru leyti dæmdi hann eftir ákær- unni um undanskot sölu- skatts. Sektin í raun langt undir upphæð skattsvikanna Dómarinn taldi ekki sann- að að Sveinn og Björgvin hefðu ekki ætlað að ganga endanlega frá bókhaldi vegna 1986 og 1987 og sakfelldi þá því ekki fyrir stórfellt hirðu- leysi í því sambandi, en þeir voru sakfelldir fyrir að semja ekki lögboðinn ársreikning. Dómarinn taldi sannað að þeir félagar hefðu skotið und- an 5,3 milljónum króna, en þegar upphafleg kæruupphæð er framreiknuð með tilliti til 15 prósenta lækkunar dómar- ans kemur út talan 7,6 millj- ónir. Þótt dómarinn hafi haft heimild til að sekta þá um allt að tífaldri upphæð undan- skotsins, sem sé allt að rúm- lega 50 milljónum, dæmdi hann þá til að greiða samtals 5 milljónir og ekki að sjá nein vaxtaákvæði í dómsniður- stöðunni. Sektin er því nokk- uð undir hinu sannaða und- anskoti, en á hinn bóginn „- greiða" þeir mismuninn með tveggja mánaða fangelsisaf- plánun. Þess má að lokum geta að auk þess sem Sveinn stofnaði Geithamra hefur hann verið virkur í rekstri veitingastaða, meðal annars í hlutafélögum er ráku Arnarhól, Óperukjall- arann, Berlín og Pisa. Fríðrík Þór Guðmundsson SVEINN E. ÚLFARSSON byggingarverktaki og veitingahúsamaður meö meiru. Hann var forsprak- kinn í BOR og skömmu fyrir gjaldþrot fyrirtækis- ins (eignalaust gagnvart 92 milljóna króna kröf- um) stofnaöí hann nýtt byggingarfyrirtæki: Geit- hamra hf.

x

Pressan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.